Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Síða 23
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998
23
Hestar
Konur einokuðu gullin
Konur fengu tuttugu og tvö gull
af þrjátíu á íþróttamóti Gusts um
helgina.
Hverjar eru þessar konur? Allt
um þaö hér á eftir.
Gustarar skiptu keppendum í
sex flokka. í yngsta flokki, sem
nefndur er pollaflokkur, kepptu
þau minnstu og voru tvær stúlk-
urnar sex ára. Önnur þeirra, Guð-
ný B. Guðmundsdóttir, sigraði í
þrígangi (brokki, feti og tölti) og
tölti á Litla-Rauð.
Faðir hennar, Guðmundur
Skúlason, og systirin, Berglind R.
Guðmundsdóttir, fengu einnig
sinn hluta gullverðlaunanna.
Guðmundur sigraði í fjórgangi,
tölti og íslenskri tvíkeppni á Sjö-
stjörnu í 2. flokki og Berglind í
tölti og íslenskri tvíkeppni á Maí-
stjörnu í unglingaflokki og gæð-
ingaskeiði á Skerjálu og Litla-
Rauð í slaktaumatölti i opnum
flokki.
Hryssurnar sem þau feðginin
keppa á eru allar frá Svignaskarði
en þaðan er Guðmundur ættaður.
Gylfi Gylfason varð stigahæstur
knapa í 2. flokki á ísólfi.
Sem fyrr er nefnt voru konur
mjög virkar á Gustsmótinu og fékk
Hugrún Jóhannsdóttir fimm gull-
verðlaun í opnum.flokki.
Hún sigraði í tölti, fjórgangi og
íslenskri tvíkeppni á Blæ, í skeið-
tvíkeppni og varð stigahæsti knap-
inn.
Sigurjón Gylfason sigraði í fimm-
gangi.
I ungmennaflokki sigraði Ásta D.
Bjarnadóttir í fjórum greinum. Hún
keppti á Eldi og fékk gull fyrir tölt,
fjórgang, íslenska tvíkeppni og varð
stigahæst en Sigurður Halldórsson
sigraði í flmmgangi og skeiðtví-
keppni á Lómi.
Svandís D. Einarsdóttir fékk
þrenn gullverðlaun í unglinga-
flokki. í flórgangi sigraði hún á
Ögra, í fimmgangi á Snúð og einnig
varð hún stigahæsti knapinn.
Freyja Þorvaldsdóttir hreinsaði
borðið í barnaflokki og fékk öll fern
gullverðlaunin. Hún keppti á Kópi.
Erling Sigurðsson, sem er félagi í
Fáki, sigraði í 100 metra miðnætur-
skeiði með fljúgandi starti en hann
fékk tímann 8,49 sekúndur á Ann-
an.
Sigurður Halldórsson fagnaði ógur-
lega er hann sigraði í fimmgangi í
ungmennaflokki. Með honum á
mynd eru Birgitta D. Kristinsdóttir
og Maríanna S. Bjarnleifsdóttir.
DV-mynd E.J.
Sigurður heldur
einvaldstitlinum
Gull á fáar hend-
ur hjá Herði
Einstefna var að guflverðlaunum
í flestum flokkum á íþróttamóti
Harðar í Mosfellsbæ um helgina.
í öllum ungknapaflokkunum fékk
sami knapi öll gullverðlaunin en
dreiflngin var meiri í 1. og 2. flokki.
Skipting fullorðinnna knapa í 1.
og 2. flokk hefur tekist geysilega vel
víðast hvar og voru liðlega flörutíu
knapar skráðir í þessa flokka til
samans hjá Herði.
í ungknapaflokkunum voru
skráðir 24 keppendur og er það ágæt
þátttaka.
Knapar í Herði eru vel ríðandi
því sex þeirra náðu lágmarksein-
kunn í tölti fyrir landsmót, allir
þeir fimm sem voru í úrslitum og
Guðmar Þ. Pétursson sem keppti í
ungmennaflokki.
Hryssan Kringla frá Kringlumýri
fékk langhæstu einkunnina, 100,7
punkta.
Sigurður Sigurðarson var knapi
Kringlu en hann var flölþreifinn
innan um verðlaunin. Það sem ger-
ir öll gullverðlaun hans sérstök er
að hann keppti á þremur hestum.
Auk sigursins í töltinu á Kringlu
sigraði Sigurður í fimmgangi og
gæðingaskeiði á Prins og
slaktaumatölti á Nökkva. Hann sigr-
aði einnig í skeiðtvíkeppni og var
stigahæsti knapinn.
Birgitta Magnúsdóttir sigraði í ís-
lenskri tvíkeppni á Óðni og Guð-
mundur Einarsson í flórgangi á
Ótta.
í 2. flokki fékk Jón Þ. Daníelsson
þrjú gull fyrir sigur í tölti, íslenskri
tvíkeppni og einnig varð hann stiga-
hæsti knapinn. Hann keppti á
Hnokka.
Þorkell Traustason sigraði í flór-
gangi á Blátindi.
I fimmgangi, gæðingaskeiði og
skeiðtvíkeppni sigraði keppandi
sem að öðru leyti keppir í barna-
flokki. Það var Kristján Magnússon
sem keppti á vekringnum Pæper.
Ef ekki er til flokkur fyrir kepp-
anda má hann keppa upp fyrir sig
og það gerði Kristján með þessum
frábæra árangri.
í ungmennaflokki sigraði Guð-
mcir Þ. Pétursson í tölti, flórgangi,
íslenskri tvíkeppni og varð stiga-
hæstur knapa á Háfeta.
Hiö sama gerði Sigurður S. Páls-
son í unglingaflokki á Rimmu og
Daði Erlendsson í barnaflokki á
Neista.
Norðurlandamót í hestaíþrótt-
um verður haldið 5. til 9. ágúst í
Danmörku.
Landsliðsnefnd hefur beðið Sig-
urð Sæmundsson að velja sveitina
og stjórna keppninni.
Hann stóð sig frábærlega er
hann valdi í landslið fyrir heims-
meistaramótið sem var haldið í
Noregi í fyrrasumar en þá fengu
íslendingar fleiri gull en fyrr.
Hver þjóð má senda 15 knapa tU að
keppa í fullorðinsflokki á Norður-
landamótinu og 5 unglinga.
Óvíst er hve margir fuUorðnir
munu keppa en að sögn HaUgríms
Jónassonar hjá Landssambandi
hestamannafélaganna (LH) er
stefnan að hafa fámenna sveit en
Þótt íslenskir knapar séu afar
aðsópsmiklir á lista FEIF (Félags
vina og eigenda íslenska hestsins)
eiga þeir í erfiðleikum með að
tryggja sér sæti þar vegna skorts á
World Cup-mótum á íslandi.
Lagðar eru saman bestu ein-
kunnir knapa á sama hesti á
þremur World Cup-mótum og gUd-
ir árangur aUt að tvö ár afturábak.
Vandamál íslendinganna er að
einungis verða haldin þrjú World-
Cup mót í sumar á íslandi.
Þeir mega ekki fara með hest-
ana utan og koma með þá tU baka.
En þeir knapar sem keppa á Norð-
urlandamótinu í Danmörku fá ár-
angur sinn skráðan tU stiga og þá
geta þeir einnig skroppið tU Evr-
ópu á World Cup-mót en þar kem-
ur tU töluverður kostnaður.
TU að fá stig metin verða knap-
því skæðari.
Unglinganefnd LH mun velja
unglingana.
Þeir knapar sem telja sig eiga
erindi í landsliðið eru beðnir að
hafa samband við Sigurð Sæ-
mundsson fyrir 5. júní.
Sigurður mun velja knapa sem
hafa sýnt góðan árangur á árinu.
Óvíst er hvort hestar verða flutt-
ir út í sumar og því veit enginn
hvort knapar á íslandi geta tekið
hesta með sér eða verða að fá
hesta í útlöndum.
Margir knapar á íslandi eiga að-
gang að hestum í útlöndum og eins
eru margir íslenskir knapar í út-
löndum með góða hesta.
ar að fá hærri einkunn en 5,50 og
nú eru 725 knapar á stigalista
FEIF, sem er unninn af Marko
Mazeland í Hollandi
Keppnisgreinar eru átta en eng-
um knapa hefur tekist að fá stig í
hlýðnikeppninni.
f þeim sjö greinum sem eftir eru
er Sigurbjöm Bárðarson efstur í
tölti, flórgangi, 250 metra skeiði og
gæðingaskeiði og Þórður Þorgeirs-
son er efstur í 150 metra skeiði.
Uli Reber í Þýskalandi er efstur
í slaktaumatölti og Karly Zings-
heim í Þýskalandi efstur í fimm-
gangi.
íslendingar í ýmsum löndum
eru með 33 knapa í einhverjum af
tíu efstu sætunum í þessum sjö
keppnisgreinum eða 47%
knapanna.
Sigurður S. Pálsson fékk fjögur gull í barnaflokki á Rimmu. Honum á hægri hönd er Hrafnhildur Jóhannesdóttir en
Þorvarður Friðbjörnsson til vinstri.
DV-mynd E.J.
Skortur á
World Cup-
mótum
-E.J.