Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Qupperneq 30
38
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998
Líkt eftir
aðstæðum við
Miklahvell
Eðlisfræðingar við Columbia-
háskóla í New York tóku nýlega í
notkun ofurtölvu sem nota á til
að llkja með tölum eftir aðstæð-
um sem ríktu við Miklahvell sem
almennt er talinn marka upphaf
alheimsins.
Þótt Miklahvellskenningin sé
alla jafna notuð til að skýra upp-
haf alheimsins eru til vísinda-
menn sem bera brigður á hana. í
fyrra greindu tveir bandarískir
vísindamenn útvarpsbylgjur frá
160 flarlægum stjörnuþokum og
uppgötvuðu frávik sem bentu til
að þensla alheimsins, sem Mikli-
hvellur kom af stað, væri ekki
alls staðar eins.
Rannsóknin á að standa yflr í
fimm ár, að því er eðlisfræðipró-
fessorinn Norman Christ segir.
>
aboðefni
eilanum
Bandarískir vísindamenn
hafa uppgötvað nýtt taugaboð-
efni í heilanum sem hefur áhrif
á hvað við borðum mikið. Þeir
segja að uppgötvunin kunni að
leiða til framleiðslu enn einnar
megrunarpillunnar áður en lýk-
Nýja taugaboðefnið fannst
þegar Mike Kuhar og félagar
hans við Emoryháskóla í At-
lanta voru að rannsaka kókaín.
Taugaboðefni flytja boð milli
heilafrumna og vitað er að
nokkur þeirra hafa áhrif á mat-
arlyst okkar.
* Hópur Kuhars hefur til þessa
aðeins unnið með rottur og rott-
ur bregðast oft öðruvisi við en
menn í rannsóknum sem þess-
um. Þegar taugaboðefninu, sem
hefur fengið skammstöfunina
CART, var sprautað í heila heil-
brigðra rottna átu þær 30 pró-
sentum minna.
Andoxunarefni góð
i fyrir lungun
Það getur borgað sig að borða
mat sem inniheldur gnótt svo-
kallaðra andoxunarefna. Þau
bæta nefnilega starfsemi lungn-
anna. Andoxunarefnin er meðal
annars að finna I dökkgrænum,
gulum og appelsínugulum
ávöxtum og grænmeti. C- og E-
vltamín eru einnig andoxun-
arefni.
Já, munurinn á lungnastarf-
semi manns með mikið af
andoxunarefnum í sér og þess
sem hefur lítið er ámóta og
munurinn á lungnastarfsemi
manns sem ekki reykir og
stórreykingamanns.
Lungnastarfsemin sem hér
um ræðir miðast við hversu
*■ miklu lofti einstaklingurinn
getur blásið úr lungum sínum.
Andoxunarefnið beta karótín
gerir þeim sem ekki reykja
meira gagn en þeim sem reykja,
en C- og E-vítamín koma báðum
hópum að jafnmiklu gagni.
fjJJ
Vísindam ráðþrota gagnvart lífslíkum mannfólksins:
Lifum ekki að ei-
lífu en samt eru
engin takmörk
Öll eldumst við, víst er það, og
verðum sífellt eldri. Nú er líka svo
komið að lífslíkur okkar aukast
hraðar en vísindamenn geta út-
skýrt.
„Mennirnir geta ekki lifað að ei-
lífu en í raun eru engin takmörk,"
segir Thomas Johnson, prófessor í
atferliserfðafræði við Coloradohá-
skóla í Boulder.
Johnson þessi er i hópi vísinda-
manna frá ýmsum stofnunum í
Bandaríkjunum, Evrópu og Mexíkó
sem komust að því að fimmtán af
hundraði íbúa heimsins árið 2025
verða sextugir eða eldri. Að því er
fram kemur í grein í tímaritinu Sci-
ence voru sextugir og eldri aðeins
níu prósent ibúa heimsins árið 1997.
Vísindamennimir, undir forustu
James Vaupels við lýðfræðirann-
sóknarstöð Max Plank stofnunar-
innar í Rostock í Þýskalandi, rann-
sökuðu lífslíkur fólks í iðnríkjunum
og þróunarríkjunum. Þeir notuðu
sérstaka tækni þar sem blandað er
saman líffræði, lýðfræði og tölfræði.
Þegar öllum gögnum hafði verið
safnað saman kom i ljós að þau lönd
sem áttu von á að hafa flesta íbúa
yfir sextugu voru Japan og Italía,
með 33 prósent hvort land. Árið 2025
verða 32 prósent íbúa Þýskalands
sextug og eldri, 29 prósent Svía og
25 prósent Bandaríkjamannna. í
fyrra voru sextugir og eldri sautján
prósent íbúa Bandaríkjanna.
í þróunarlöndum á borð við Ind-
land og Mexíkó er búist við að áður-
nefndur aldurshópur verði orðinn
að minnsta kosti tólf prósent undir
lok fyrsta fjórðungs næstu aldar.
Þetta skýrist að hluta til af því að
barnasprengjukynslóðin svokallaða
verður farin að eldast, læknisþjón-
usta verður sífellt betri og sömuleið-
is mataræðið. Fleira kemur þó til,
segja vísindamennimir: Ef fólk lifir
fram á elliárin hefur það tilhneig-
ingu til að tóra og tóra, einkum kon-
urnar.
„Frá því snemma á áttunda ára-
tugnum hefur dánartíðni kvenna í
Japan lækkað um þrjú prósent á ári
meðal þeirra sem komnar em á ní-
ræðisaldurinn og tvö prósent hjá
þeim eru á tiræðisaldri," segja vís-
indamennimir í skrifum sínum.
Þeir komust einnig að því að
fjöldi þeirra sem ná því að verða
hundrað ára í hinum ýmsu iðnríkj-
um hefur tvöfaldast á hverjum tíu
árum frá 1960.
Vísindamenn standa ráðþrota
frammi fyrir þessu. Kannski á
erfðafræðin þarna hlut að máli eða
áunnir eiginleikar, eins og betri
næring. En þetta á þó ekki aðeins
við um mánnfólkið. Vespur lifa
einnig lengur, ein tegund þráðorma
og fjórar tegundir ávaxtaflugna.
Jafnvel bflar era langlífari.
Vísindamennirnir leiða að því
líkum að einhver æðri ferli, til
dæmis stærðfræði, ráði þessu. Áð-
urnefndur Thomas Johnson hefur
hins vegar reynt dálítið sem allt að
því tvöfaldar lífslíkur þráðormanna.
Hann fjarlægði úr þeim ákveðið gen
sem kallast ag-1. Hann áformar að
reyna þetta næst á músum.
HEIMURINN ELDIST
Búist er við að öldruðum muni fjölga mjög á næstu 25 árum. Það mun
skapa ójafnvægi þar sem unga fólkið verður að leggja meira á sig til
að ala önn fyrir hinum eldri, að því er Alþjóöaheilbrigöisstofnunin
(WHO) segir i nýlegri skýrslu.
ALDURSSAMSETNING OG LÍFSLÍKUR VIÐ FÆÐINGU
íbúar heimsins
(mllljaröar) ...
Aldurssamsetrjing
Eldrien65ára
5%
Lifs-
líkur viö
fæöingu
Meiri en 60
10
8
6
4
2
0
1955
ÍBÚAR, 65 ÁRA OG ELDRI, ÁRIÐ 1997
96%
32%
Minni en 60
68%
6% ÍT
47%
47%
5^
Vy . fC. "
.v w *
. f -Nvr. m
SKYRINGAR.
Qundir10% \
□ 10%-19%
\>VA.<
V
J
; 7
V, "
V /
\ rj
WvT:- ^
ÍBÚAR, 65 ÁRA OG ELDRI, ÁRIÐ 2025
V\
SKÝRINGAR.
Q Undir 10% \
Q 10%—19%
■ 20% eða meira .
/
m
yv\\
\ / ...
V fj
/
Heimild: The World Health Report 1998, WHO
Leitað að loftsteinsbrot-
um á Grænlandi í sumar
Danskir vísindamenn halda í
leiðangur tii Grænlands i júlí í
sumar til að leita að brotum úr
loftsteini sem féll til jarðar í des-
ember síðastliðnum. Vonir eru
bundnar við að loftsteinsbrotin
veiti einhverja innsýn í hvernig
sólkerfi okkar varð til.
„Þetta var logandi hnöttur sem
lýsti upp himininn og féll í brot-
um yfir suðvesturhluta ísbreið-
unnar á Grænlandi," segir í yfir-
lýsingu frá stjarnvísindadeild
Tycho Brahe-stjörnusalarins í
Kaupmannahöfn.
Stjörnufræðingurinn Lars
Lindberg Christensen, einn vænt-
anlegra leiðangursmanna, segir
að líkast tfl hafi loftsteinninn,
sem féll niður á Grænlandi, verið
á stærð við einkabíl.
„Við teljum að þetta hafi verið
mjög stór loftsteinn," segir
Christensen.
Á jörðinni hafa fundist leifar
meira en tiu þúsund loftsteina.
Grænlenski loftsteinninn hefur
hins vegar þá sérstöðu að fjöldi
manns sá hann falla til jarðar.
Vísindamenn Tycho Brahe-
miðstöðvarinnar hafa undir
höndum meira en eitt hundrað
skýrslur frá sjónarvottum og
þriggja sekúndna myndbands-
upptöku, auk gagna frá gervi-
hnetti bandaríska hersins sem
sýna hrap lofsteinsins I gegnum
gufuhvolf jarðar.
Christensen segir að til þessa
hafl aðeins verið hægt að reikna
út sporbaug fjögurra loftsteina á
leið til jarðar. Háþróaðri tölvu-
tækni er nú beitt við að reikna út
sporbaug loftsteinsins sem féll
niður á Grænlandi.
Þar sem lofsteinninn féll niður
á ishelluna er reiknað með að
hann sé „ómengaður", ólikt því
sem gerst hefði ef hann hefði lent
í skóglendi eða á ræktarlandi.
Næsta víst er talið að bergteg-
undin í steininum sé ólík öllum
sem fyrirfinnast á jörðu.
„Brotin geta geflð okkur vís-
bendingar um tilurð sólkerfis-
ins,“ segir Christensen.
Fjórir menn verða í leiðangrin-
um. Auk Christensens verða þar
heimskautafræðingur, rafeinda-
verkfræðingur og fjallgöngumað-
ur. Leiðangursmenn áætla að
dvelja flórar vikur á Grænlandi.
Loftsteinsbrotin sem finnast
verða síðan rannsökuð á jarð-
fræðisafninu í Kaupmannahöfn.
Sæhestum fer fækk-
andi í höfunum
Áhugamenn um sæ-
hesta, sem leggja leið
sína til Chicago á
næstunni, ættu að
bregða sér í Shedd-
sædýrasafnið þar i
borg og virða fyrir
sér hvorki fleiri né
færri en tuttugu mis-
munandi tegundir
þessa skemmtilega
dýrs. Minnsti sæhestur-
inn er tveggja og hálfs
sentímetra langur og sá
stærsti þrjátíu sentimetra
langur.
Forráðamenn safnsins vilja
með sýningunni vekja athygli á því
að sæhestum hefur fækkað mjög í
höfunum vegna ofveiði. Sæhestar
eru nefnilega mjög eftirsóttir í hefð-
bundna lyflagerð i Austurlöndum og
á Vesturlöndum vilja margir hafa þá
sem gæludýr í búri.
„Sóknin er meiri en stofninn þol-
ir,“ segir James Anderson, sýningar-
stjóri hjá Shedd-sædýrasafninu.
Kínverjar nota lyf úr sæhestum til
að meðhöndla öndunarerfiðleika,
hjartveiki og getuleysi.
Sérfræðingar telja að stofn sæ-
hesta í höfunum hafi minnkað um
helming á undanfomum árum vegna
ofveiði, einkum með fram ströndum
Asíulanda.
Sæhestaeldi er á frumstigi og
vandinn þar er að sjá dýranum fyrir
lifandi fæðu. Sæhestar lifa á örsmá-
um lífverum og á meðan á sýning-
unni í Shedd-sædýrasafninu stendur
sjá tvær manneskjur um þennan sér-
staka mat dýranna.
Fyrir þá sem ekki vita skal tekið
fram að það eru karldýrin sem verða
„ólétt" og ganga með ungana.