Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 Fréttir Meirihlutinn hélt í Stykkishólmi: Olafur Hilmar Sverris- son áfram bæjarstjóri DV, Vesturlandi: Þótt hart hafi verið sótt aö sjálf- stæðismönnum náðu þeir að halda meirihluta sínum í Stykkishólmi og hafa þeir haldið honum í 24 ár. D- listi Sjálfstæðisflokks fékk 381 at- kvæði, 49,5%, og íjóra menn kjöma, hreinan meirihluta. B-listi fékk 134 atkvæði, 23,4%, og einn mann kjör- inn en hafði tvo menn. Stykkis- hólmslistinn, sem er arftaki H-list- ans sem hafði einn, fékk 254 at- kvæði, eða 33,3% atkvæða, og tvo menn og aðeins munaði 33 atkvæð- um að Stykkishólmslistinn, sem er ótvíræður sigurvegari kosninganna, næði þriðja manninum af sjálfstæð- ismönnum. „Ég er ákaflega ánægður með úr- slit kosninganna og er afskaplega þakklátur kjósendum í Stykkis- hólmi fyrir það traust sem þeir sýndu okkur. Við vissum að það yrði hart sótt að okkur en við héld- um velli og erum mjög ánægðir með okkar hlut. Ólafur Hilmar Sverris- son, sem verið hefur bæjarstjóri, verður það áfram,“ sagði Rúnar Gíslason, efsti maður á lista Sjálf- stæðisflokksins. Erling Garðar Jónasson, efsti maður á lista Stykkishólmslistans, var að vonum óánægður að geta ekki fellt meirihlutann. „Svo sann- arlega erum við ekki ánægðir með niðurstöðuna, þetta eru skilaboð til sjálfstæðismanna í Stykkishólmi um að breyta sínum stjómunarstíl. Við fengum til þess atkvæðamagn að við getum sagt við vini okkar í Sjálfstæðisflokknum, nú störfum við saman að málefnum Stykkis- hólms,“ sagði Erling Garðar Jónas- son, efsti maður á lista Stykkis- hólmslistans, við DV. -DVÓ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nýkjörin borgarstjóri, og Árni Sigfússon, leiötogi sjálfstæðismanna, takast í hendur ör- fáum mínútum eftir að fyrstu tölur höfðu birst í Reykjavík og Ijóst var að Reykjavíkurlistinn hafði sigrað. Augnablik- iö var hlaðiö tilfinningum því bæöi höfðu lagt höfuðið að veöi í baráttunni og Ijóst var að Árni var á leiðinni út úr leið- togahlutverki því sem hann hefur gegnt síöustu ár meðal sjálfstæðismanna í borginni. Ingibjörg Sólrún hafði hins vegar fest sig í sessi. Þau tóku bæöi orönum hlut meö glæsibrag og óskuðu hvort ööru góðs gengis í framtíðinni. -phh/DV-mynd Pjetur Siglujgöröur: Góður sigur hjá Sjálfstæðisflokki Viðræöur flokksins og Framsóknar um meirihluta hafnar DV, Akureyri: „Ég er mjög ánægður með úrslit- in og þakka hann m.a. góðri vinnu samhents hóps,“ segir Haukur Ómarsson, oddviti Sjálfstæðis- flokksins á Siglufirði, en þar vann flokkurinn stórsigur, bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum og veru- legu fylgi og fékk 4 menn kjöma. Framsóknarmenn héldu sínum eina bæjarfulltrúa en Sigluf]arðarlistinn, sem samanstóð af vinstrimönnum, tapaði illa. Meirihlutinn í bæjar- stjórn, sem samanstóð af Alþýðu- flokki og af lista óháðra, tapaði tveimur mönnum af 6 og féll. Krist- ján L. Möller, forseti bæjarstjórnar og oddviti krata, sem var í 5. sæti Siglufjarðarlistans, missti sæti sitt í bæjarstjórn. Skarphéðinn Guðmundsson fram- sóknarmaður er í oddaaðstöðu i bæjarstjórn og getur myndað meiri- hluta með bæði Sjálfstæðisflokki og Siglufjarðarlistanum: „Ég er ekki ánægður með okkar hlut, við sett- um markið á að fá 2 menn og voram mjög stutt frá því. Ég tel eðlilegt að við ræðum fyrst við sigurvegarana, sem eru sjálf- stæðismenn, og ég sé ekki margt sem ber á milli hjá okkur. Þaö er þó áherslumunur í atvinnumálunum," segir Skarphéðinn. Haukur Ómars- son segir þennan áherslumun vissu- lega fyrir hendi en segist ekki sjá hann sem eitthvað sem ekki sé hægt að fmna lausn á. -gk Stórsigur Sjálfstæðisflokksins í Eyrarsveit: Framsókn vill hafa Björgu Ágústsdóttur áfram sveitarstjóra DV, Vesturlandi: Sjálfstæðismenn í Eyrarsveit bættu við sig einum manni í sveit- arstjórnarkosningunum í Grandar- firði, þeir voru með tvo menn en fengu þrjá og tóku hann af Alþýðu- bandalagi sem hafði þrjá menn. Framsóknarflokkurinn sem var með tvo menn heldur sínum tveim- ur mönnum. Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hafa myndað meirihluta í Grandarfirði og í gær áttu sér stað viðræður um áfram- haldandi meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. „Sjálfstæðismenn era búnir að hafa samband við okkur og við munum eiga viðræður við þá klukk- an 13.00 á sunnudag. Björg Ágúst- dóttir hefur verið sveitarstjóri í Grandarfirði og við höfum sett það fram að hún verði áfram sveitar- stjóri, en hinir flokkamir sögðu ekkert til um það,“ sagði Guðni Hallgrímsson, efsti maður á lista Framsóknarflokksins, við DV þegar úrslit lágu fyrir. „Þetta er mjög ánægjulegt, það er óráðið hvort við höldum meirihlut- anum áfram en við geram ráð fyrir því að tala saman á sunnudag," sagði Sigríður Finsen, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Eyrar- sveit. -DVÓ SkagaQöröur: Stórsigur hjá Sjálfstæöisflokki DV, Akureyri: Sjálfstæðisflokkurinn var ótvi- ræður sigurvegari kosninganna í nýju sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði. Flokkurinn hlaut 5 menn kjöma, Framsóknarflokkur fékk einnig góða kosningu og 4 menn en Skagafj arðarlistinn fékk 2 bæjarfulltrúa. „Við settum markið á 4 menn þannig að ég er mjög ánægður. Fólk vill að sameining sveitarfélaganna 11 í Skagafirði fái góðan framgang. Við vorum með góðan hóp fram- bjóðenda víðs vegar úr Skagafirði og þá gengu K-listamenn á Sauðár- króki til liðs við okkur,“ segir Gísli Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðis- flokksins. „Mér finnst eðlilegt að þeir aðilar sem fengu bestu kosninguna tali fyrst saman og því ræðum við fyrst við Framsóknarflokkinn um meiri- hlutasamstarf. Hér er nýtt landslag í pólitíkinni og reyndar ekki svo mikill meiningarmunur milli þeirra sem buðu hér fram,“ segir Gísli. -gk Methúsalem Þórisson, efsti maöur á H-lista húmanista, var sáttur við sitt hlutskipti þrátt fyrir fá atkvæöi. Hér er hann ásamt félögum sínum eftir aö fyrstu tölur birtust. DV-mynd S Methúsalem Þórisson: Minna en ég bjóst við „Þetta er heldur minna en ég hafði búist við. Ég bendi þó á að hvert atkvæði okkar skiptir máli,“ sagði Methúsalem Þórisson, efsti maður á lista húmanista, þegar fyrstu tölur lágu fyrir og sýndu að listi hans fékk aðeins 70 atkvæði af 13.140 greiddum atkvæðum. -S/-rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.