Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1998
7
scmdkorn
Þörffyrir Þórunni
Hið nýja sameinaða sveitarfélag í
uppsveitum Borgarfjarðar hefur nú
ráðið sér sveitarstjóra. Vel hefur tek-
ist með valið þvi úr stórum hópi um-
sækjenda var Þór-
unn Gestsdóttir,
fyrrum aðstoðarmað-
ur bæjarstjóra ísa-
fjarðarbæjar, valin.
Sagan segir að það
sem réði úrslitum
hafi verið að I
hjarta hins nýja
sveitarfélags kúrir
Stóri-Kroppur
hvar endalausar deOur um nýtt vega-
stæði hafa engan látið ósnortinn. Sú
krafa hafi því staðið hæst varðandi
nýjan sveitarstjóra að hann hefði
enga skoðun á umdeildum vegi. Þá
kom á daginn að það var þörf fyrir
Þórunni því allir aðrir umsækjendur
hafi verið ýmist með eða á móti...
Mogginn skúbbar Rás 2
Það vakti mikla athygli um helg-
ina þegar það spurðist út aö pening-
um hefði rignt á Holtavörðuheiði.
Þar varð alsaklaust ferðafólk fyrir
því að hundruð þús-
unda dundu á fram-
rúðu bifreiðar þeirra
þannig að beita
þurfti rúðuþurrkum
tO að forða frá bein-
um háska. Ferða-
fólkið var með ein-
dæmum heiðarlegt
og safhaði saman
aurunum og fór á
næstu löggustöð tO að tilkynna um
fjársjóðinn sem taldist vera um hálf
miOjón. Það var Anna Kristine
Magnúsdóttir sem sagði fyrst frá
þessu í þætti sínum á Rás 2 á mánu-
dagskvöld. Mogginn gerði síðan mál-
ið að sínu á baksíðu miðvikudags-
blaös. Það merkOega var að þá tók
morgimvakt Rásar 2 upp málið og las
upp úr Mogga með svo sem um ný-
mæli væri að ræða. Það er greinilega
ekki mikiO samgangur á miOi deilda
þar á bæ...
Karon og Carmen
Söngleikurinn Carmen Negra hef-
ur slegið í gegn hjá landandum, ekki
síst fyrir frammistöðu söngkonunnar
Caron sem þykir frábær. Ekkert lát
virðist á aðsókn og nú
er fyrirhugað að halda
söngleiknum gang-
andi fram á haust.
Þátttakendur i leikn-
um fengu nýlega ör-
stutt sumarfrí og
einn þeirra, Garð-
ar Cortes yngri
notaði það meðal
annars til að skjótast út tO að fylgja
eftir erindum umboðsskrifstofa í
Lundúnum sem líst greinOega vel á
pOtinn. Sýningar hefjast þó aftur um
helgina en þess má geta að vegna
mikOlar aðsóknar hafa aðstandendur
söngleiksins neyðst tO að bæta við
fleiri sýningum i ágúst og september
en voru áður ráðgerðar ...
Slagur um banka
LítO hrifning er innan Sjálfstæðis-
flokksins á frumkvæði Halldórs Ás-
grímssonar í bankamálunum. Það
kom nefnilega sjálfstæðismönnum al-
gerlega á óvart þegar
HaUdór upplýsti í fjöl-
miðlum að bak við
tjöldin væru viðræð-
ur í gangi um að
selja Skandinaviska
Enskilda-bankanum
í Svíþjóð, sem Wal-
lenberg-ættin ræð-
ur, stóran hlut í bankanum. For-
maður efnahagsnefndar Alþingis og
framkvæmdastjóri Verslunarráðs,
Vilhjálmur Egilsson, vissi þannig
ekkert af málinu og helsti sérfræð-
ingur framsóknar i bankamálum,
Gunnlaugur M. Sigmundsson, er
lítt hrifinn af því. Það vekur jafn-
framt athygli innan stjórnarliðsins
að Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur gætt þess að taka hvergi undir
hugmyndir HaUdórs
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is
Fréttir
Stjörnu Oddi ehf. framleiðir íslenskan hátæknibúnað:
Merkja dýr til að rann-
saka hegðun þeirra
- merkin notuð víða erlendis, m.a. á skjaldbökur í Afríku
„Með þessum merkjum mælum
við og rannsökum ýmsa hegðun
dýranna. í leiðinni er komið inn á
umhverfisþætti tengda dýrunum.
Sem dæmi mælum við hitastig,
seltustig og dýpi þar sem fiskar lifa.
Við getum meira að segja mælt
haUastig fisksins, þ.e. hvemig hann
haUar í sjónum," segir Sigmar Guð-
björnsson, framkvæmdastjóri
Stjömu Odda. Fyrirtækið býr tO ís-
lenskan hátæknibúnað og sérhæfir
sig í rafeindamerkjum á dýr. Merk-
in, sem em örsmá, hafa verið notuð
á fiska, fugla, krabba- og skriðdýr
bæði hér á íslandi og víða erlendis.
„Við byrjuðum 1993 og höfum
smám saman verið að efla út-
breiðslu merkjanna.
Hér heima eru laxfiskar, þorskur
og skarkoli merktir og einnig lundi
í Eyjum. Við höfum tO gamans
mælt lunda á 58 metra dýpi. Varan
er farin að dreifast víða um heim.
Erlendis eru fiskar, krabba- og
skriðdýr merkt með merkjum frá
Sigmar Guöbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Stjörnu Odda. Þar er
búinn til hátæknibúnaður, örsmá
merki sem sett eru á dýr tii að rann-
saka hegðun þeirra.
okkur, m.a. skjaldbökur í Afríku.
Við erum ungt fyrirtæki þaö er
margt fram undan hjá okkur. í
framtíöinni ætlum við koma með
fleiri nema og minnka rafeinda-
merkin. Það er mjög mikOvægt þeg-
ar dýr eru merkt að fyrirferðin á
nemunum sé eins litO og hægt er
þannig að við séum ekki að mæla
hegðun dýrsins vegna merkingar-
innar.
Við erum í mjög nánu samstarfi
við Hafrannsóknastofnun og Veiði-
málastofnun og rannsóknarsetur
Háskóla Islands í Vestmannaeyjum.
Hér hjá fyrirtækinu vinnur einvala-
lið sérfræðinga. Það eru sex starfs-
menn hjá fyrirtækinu i dag og gæti
hæglega fjölgað eftir því hvemig
spOast úr framtíðaráformum fyrir-
tækisins. Við erum bjartsýnir á að
vera komnir tO að vera. Við emm
fremstir á þessu sviði hér á landi og
þó víðar væri leitað. Fyrirtækið hef-
ur mætt skOningi og velvOja stofn-
ana og stjórnvalda enda um mikið
hagsmunamál að ræða í rannsókn-
um á sjávardýrum. Með þessu úr-
valsliði starfsmanna tekst okkur að
nota og nýta hverja krónu betur en
hátæknifyrirtæki gera annars stað-
ar,“ segir Sigmar.
-RR
GLERAUGNAHÚS
ÓSKARS
LAUGAVEGI 8
ioi REYKJAVÍK
©55' 44 55
Hafnarfjörðir:
16" m/tveim
áleggsteg.
aðeins 940 kr.
Sf litmr * r * tvnr 16’ ulimr /»il
3SO kr. auka ufildttur
18" m/tveim
áleggsteg. aðeins
1080 kr.
E/ tAttar tru tvar !&" pltsur fntt
300 kr. a u k a af 11 á 11 u r.
Gerir
oW mil/i hirryn$
Smáauglýsingar
r»^i
550 5000
Sent heim
18" m/þrem áleggsteg. 12"
hvítlauksbrauð, 21. Coke og
hvítlauksolía aðeins 1890 kr.
Ts.etfkjaoilí
5Ó8 4848
^zÆaánatÁlözdu t
56? 1515
r 16" m/þrem áleggsteg.
o aðeins 1280 kr.
upp
gamlan
stigabíl
Þegar rólegt er að gera hjá Har-
aldi Eggertssyni, bifvélavirkja og
slökkvOiðsmanni hjá SlökkvOiði
Hafnarfjarðar, dundar hann við
stigabO sem á án efa eftir að koma
einhverjum tO bjargar seinna meir.
Félagar hans rétta honum stundum
hjálparhönd. BOlinn, sem er frá
1974, var keyptur fyrir tveimur
árum af Sölunefnd vamarliðseigna.
Haraldur segir að ekki sé óalgengt
að slökkvOiðsmenn á öðrum stöðum
á landinu séu að dytta að bílakostin-
um. „Viðgerðarkostnaður er orðinn
um 1,6 milljónir en stigabillinn
kostaði slökkvOiðið 500.000 krónur.
Nýr bOl myndi kosta um 30-40 miOj-
ónir. Það er mikO upphæð fyrir
sveitarfélag sem er ekki stærra."
BOlinn var fyrst ryðbættur, sand-
blásinn og lakkaður á verkstæði en
síðan tók Haraldur við honum. Þeg-
ar hann er búinn að dytta að bíln-
um fara bifvélavirkjar á verkstæði
lokahöndum um hann. Að sögn á
hann að vera jafn góður og nýr bíB.
SlökkvibOar eru almennt á
slökkvistöðum í um 25 ár en þeir
em náttúrlega ekki eknir eins mik-
ið og aðrir bOar. „Aldur þeirra er
hár á íslandi en ekki er sinnt sem
skyldi að endurnýja þá. Síðustu
árin eru eldri bOar notaöir sem var-
abOar.“
Að meðaltali fær SlökkvOið Hafn-
arfjarðar um 250 útköO á ári. Helm-
ingur þeirra er vegna elds en hinn
tengist annarri þjónustu sem tengist
s.s. vatnsleka eða jafnvel að bjarga
köttum úr trjám. Kannski á stigabOl-
inn eftir að fara í þannig útkaO.
-SJ
Helgi ívarsson slökkviliösstjóri og Haraldur Eggertsson, bifvélavirki og
slökkviliösmaöur. Stigabíllinn sem Haraldur dyttir aö er á bak viö þá.