Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1998
17
Fréttir
Árangur liðs íslands á ólympíuleikunum í stærðfræði á Taívan þótti mjög
góður. Liðið var skipað þeim Stefáni Inga Valdimarssyni, Pétri Runólfssyni,
Pawel Bartozek, Marteini Þór Harðarsyni, Sveini B. Sigurðssyni og Birni
Bennewitz.
íslendingar á ólympíuleikunum í stærðfræði:
Aðeins stig
frá bronsi
„Okkur gekk mjög vel. Þrlr okkar
leystu heilt dæmi og fengu viður-
kenningu fyrir það. Þá var þetta
merkileg ferð, að komast hinum
megin á hnöttinn og kynnast landi
og þjóð,“ segir Stefán Ingi Valdi-
marsson, nemandi í Menntaskólan-
um i Reykjavík.
Stefán Inga vantaði eitt stig til að
ná bronsverðlaunum á ólympíuleik-
unum í stærðfræði sem haldnir
voru í Taípei á Taívan 13. til 21. júlí.
Með honum í liðinu voru þeir Bjöm
Bennewitz, Pawel Bartoszek og
Sveinn B. Sigurðsson, einnig úr
Menntaskólanum í Reykjavík, Mart-
einn Þór Harðarson, Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði, og Pétur Run-
ólfsson, Fjölbrautaskóla Suður-
lands.
„Við vorum hálfan mánuð í ferð-
inni en keppnin sjálf stóð í tvo daga.
Hvom daginn voru leyst þrjú dæmi.
Til þess fengum við fjóra og hálfan
tíma.
Eftir keppnina var boðið upp á
skoðunarferðir til að skemmta okk-
ur meðan við vomm að bíða eftir
úrslitum. Ég var efstur af íslending-
unum með þrettán stig en sjö stig
vom veitt fyrir hvert leyst dæmi,“
segir Stefán Ingi.
íslenska liðið varð í 52. til 53. sæti
og hæst Norðurlandaþjóðanna á eft-
ir Svíþjóð. Hins vegar er ekki fóma-
laust að taka þátt í svona keppni.
Strákarnir vom framan af sumri í
undirbúningi og hæpið að þeir .fái
vinnu fram að skólasetningu.
„Þrír okkar vom að klára stúd-
entspróf. Ég og Pawel emm að fara
í fimmta bekk i MR.
Undirbúningur fyrir keppnina
stóð mestallan júní og fram í júlí.
Þetta var nánast eins og hver önnur
vinna. Við komum heim 21. júlí og
mér sýnist að flestir okkar muni
ekki fá vinnu það sem eftir lifír
sumars," segir Stefán Ingi. -sf
Fókus og X-ið
bjóða til útgáfusamkvæmis
á Kaffi Thomsen
Föstudaginn 7. águst.
Dab Original í boði
Komdu með F kus undir hendinni
á X-ið, milli 15 og 16 í dag
og þú gætir fengið einn af
miðunum í þetta frábæra partí.
Risavoxnu geit*
ungabúi fargað
- leyndist á háaloftinu í allt sumar
Fyrir helgi var stóm geitunga-
búi eytt við Akurgerði í Reykjavík.
Meindýraeyðir á vegum borgarinn-
ar kvað þetta vera stærsta geit-
ungabú sem hann hefði séð. Það
vill svo til að Styrmir Hafliðason
meindýraeyðir, sem einbeitir sér
að rottudrápi, býr í húsinu.
Hann segir að það sé sjaldgæft
að geitungabú séu innanhúss. Ekki
er ólíklegt að búið hafl verið svona
stórt þar sem það var innandyra.
„Geitungarnir fengu að vera í friði
í allt sumar þar sem enginn vissi
af þeim.“
Geitungabúið var við lítinn
glugga á háaloftinu sem lítil rifa
hefur verið á í allt sumar. „Ég fór
0
upp á háa-
loft um
miðja nótt
til að leita
að einhverju
dóti. Þá
heyrði ég
skrjáfhljóð
og leit fram
fyrir mig. Þá
sá ég þetta
svakalega
geitungabú.
Ég var ekki
lengi að
koma mér
út.“
Styrmir segir að geitungamir
sofi á nóttunni en skrjáfið heyrðist
í búinu sem geitungamir vinna úr
trjám. „Það heyrist í því eins og
verið sé að skrjáfa i bréfi. Þetta er
eins og dagblaðsefni."
Meindýraeyðirinn á vegum
borgarinnar kom morguninn eftir
og eitraði fyrir geitungana. „Það
tekur sólarhring að gera út af við
geitungana þar sem þeir em úti á
Dagar þessa geitungs eru taldir en hann tilheyrði geitungabúi sem meindýraeyðir eyddi fyrir stuttu.
Það ku hafa verið eitt stærsta geitungabú sem fundist hefur á landinu. DV-mynd Teitur
daginn en þeir koma smátt og
smátt. Og þeir drepast þegar þeir
koma aftur í búið sem búið er að
eitra.“
Sem betur fer slapp allt heimilis-
fólk við stungu þessara óvelkomnu
gesta. -SJ
Barnaskóútsala
smáskór
í bláu húsi v/Fákafen • síml 568-3919
SoS1
0 *fsi