Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 5 DV Fréttir Ekki lögboðin kennsla í Barnaskóla Vestmannaeyja: Dönskukennararnir fluttir úr bænum - og engir fást í staðinn, segir skólastjórinn Vegna kennaraskorts fá nemendur í 6.-9. bekk Bamaskóla Vestmanna- eyja enga dönskukennslu. Nemendur í 10. bekk eru þeir einu sem fá þá kennslu. Kennarinn sem kennir þeim dönsku kennir auk þess sex ára bekk þannig að hann gat ekki tekið meira að sér. Þrátt fyrir að ekki hefur feng- ist dönskukennari í 6.-9. bekk munu nemendumir taka samræmt próf í dönsku þegar að því kemur. “Kennararnir sem kenndu dönsku í fyrra fluttu úr bænum. Ég auglýsti því eftir kennurum og hringdi i fólk í bænum en ég fékk enga kennara," segir Hjálmfríður Sveinsdóttir skóla- stjóri. „Ég beið með að gera stunda- töflur fram undir mánaðamót sem er mjög slæmt. Niðurstaðan var að fella þurfti dönskukennslu niður í 6.-9. bekk.“ Auk dönskukennslunnar í fyrrgreindum bekkjardeildum þurfti að fella hannyrðakennslu niður vegna kennaraskorts. „Ég hef tilkynnt skólaskrifstofunni og yfirvöldum í Vestmannaeyjum um kennaraskortinn. Þetta er neyðará- stand sem kristallast best þegar eng- inn fæst. Stundum er svipað vanda- mál leyst með misgóðum árangri." Ekki þurfti að sækja um undanþágu fyrir leiðbeinanda í dönsku þar sem enginn sótti um starfið. „Fyrir fimm árum voru allir kennarar í skólanum með réttindi. Síðan hefur hallað und- an fæti. Núna erum við með leiðbein- endur þótt þeir séu ekki margir." Hjálmfriður segir að í fyrstu hafi nemendur í 6.-9. bekk verið fegnir þegar þeir sáu að ekki yrði kennd danska. „Svo held ég að þeir séu farn- ir að sjá að þetta sé vont mál og nokkrir foreldrar hafa lýst áhyggjum sínum. Ég veit til þess að sumir hafa Hjálmfríður Sveinsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Vestmannaeyja og Sigurður Símonarson skólafulltrúi. „Ég veit til þess að sumir hafa fengið námsbækur í dönsku svo að börn þeirra geti lært heima," segir Hjálmfríður. DV-mynd Ómar Milljónasamningur Softis : Gömlu tölvurnar með nýtt viðmót Tölvufyrirtækið Softis gerði nýver- ið sína stærstu samninga til þessa og er um að ræða milljónasamninga. Softis gerði samningana við fyrirtæki í Hollandi og Finnlandi. „Markhópur okkar eru fyrirtæki sem eru með þroskað tölvukerfi sem búið er að þróa og leggja í mikla vinnu og fjár- festingu í gegnum árin,“ segir Sigurð- ur Bjömsson framkvæmdastjóri. „Við komum til skjalanna við aö setja á kerfin grafisk viðmót í staðinn fyrir gömlu textaviðmótin, auk þess sem fyrirtækin vilja gefa aðgang að kerf- unum frá internetinu." Softis hefur verið í samstarfi með framleiðendum COBOLS en það er eitt algengasta forritunarmálið í við- skiptaforritum. Þannig byrjaði bolt- inn að rúlla. „Við erum einfaldlega með góða lausn sem virkar." Sigurður segir að gróðinn streymi ekki strax inn heldur taki það um þrjú ár. Fyrst þarf að breyta kerfun- um sem skrifuð eru í COBOL. “Mesti gróðinn fyrir okkur liggur þó í því að við erum að fá öflug fyrir- tæki sem eru virt á sínu sviði og í sínu heimalandi sem við getum síðan vitnað til og vísað á. Það er það sem skiptir mjög miklu máli. Það má segja að það sé stærsti sigurinn. Við bind- um miklar vonir við að þetta muni svo skila okkur enn fleiri samningum í framtíðinni." -SJ fengið námsbækur í dönsku svo að börn þeirra geti lært heima." Leita áfram „Við vitum að það þýðir ekki að taka hvern sem er til að kenna dönsku því við fáum ekki heimild til þess,“ segir Sigurður Símonarson, skólafulltrúi í Vestmannaeyjum. „Það er ljóst að undanþágunefnd grunn- skóla er það stíf á þessu að við verð- um að leita að fólki sem hefur ein- hverja ákveðna lágmarksmenntun sem fælist í einhvers konar háskóla- prófi.“ Sigurður segir að starf dönsku- kennara við Bamaskóla Vestmanna- eyja verði áfram auglýst. „Við reyn- um að fella ekki þessa tíma niður heldur að nota þá í aðrar greinar, þ.e. ef og þegar við fáum dönskukennara þá hafa nemendumir fengið aukatíma í öðrum greinum. Það væri því hægt að leggja meiri áherslu á dönsku- kennslu." Það getur komið niður á sam- ræmdu prófunum í dönsku í 10. bekk á næsta ári ef nemendur í 9. bekk fá enga dönskukennslu í vetur. „Það er ekki vafi á því,“ segir Sigurður. „Ég minnist þess ekki að þetta hafi komið upp áður. Þetta er hlutur sem Rann- sóknarstofnun uppeldismála þarf að taka tillit til og skoða varðandi sam- ræmdu prófin. Mig grunar að Barna- skóli Vestmannaeyja sé ekki eini skól- inn í landinu þar sem þarf að fella niður einhverja tíma vegna kennara- skorts." Vegna kennaraskortsins er verið að brjóta reglugerð en samkvæmt henni eiga nemendur að fá kennslu í dönsku. „Samkvæmt henni er þó heimilt að færa tíma til milli ára.“ Sigurður segir að ekki sé búið að gefast upp í leit að dönskukennara þótt útlitið sé ekki gott. -SJ j---- PHILIPS - Há-gæði á lágu verði PHIUPS 28" sjónvarp Philips 28" gæða sjónvarpstæki á ótrúlegu verði. • Nicam Stereo • Blackline myndlampi • Einföld og þægileg fjarstýring • íslenskur leiðarvísir Gerðu hörðustu kröfur til heimilistækja. Fjárfestu i Philips! 9.900 PHIIIPS myndbandstæki a 19.900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.