Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 7 Fréttir Gavin Lucas, skólastjóri fornleifaskóla sem starfar á sumrin á íslandi: Islenskar fornleifar einstakar Frá 1991 hafa verið stundaðar fornleifarannsóknir á vegum Fornleifastofhimar að Hofsstöðum í Laxárdal í Mývatnssveit. Þar er verið að grafa upp víkingaskála og er tilgangurinn að komast að þvl hvernig híbýli manna voru á fyrstu öldum íslandsbyggðar. í fyrrasumar hófst svo kennsla í fornleifaskóla að Hofsstöðum. Skólastjóri hans er Englendingur- inn Gavin Lucas. „Ég kom fyrst til íslands 1989 þegar ég var enn í námi og vann þá um tíma á Árbæj- arsafni. Þá kviknaði hjá mér áhugi á fornleifum á íslandi. Ég kom aft- ur 1991 þegar ég vann að könnun að Hofstöðum og fleiri stöðum á Is- landi. Þegar mér bauðst siðar tækifæri til að vinna við skólann tók ég því fegins hendi því það var eitthvað sem mig hafði langað til að gera.“ Lucas segir að fornleifar á ís- landi séu einstakar í sinni röð. „Þær eru tiltölulega nýlegar miðað við fornleifar á meginlandi Evr- ópu þar sem byggð á íslandi hófst miklu síðar. Innbyrðis þróim þeirra er líka áhugaverð. Hér er að finna einstaka hluti sem finnast ekki annars staðar. Að sumu leyti myndi ég segja að ísland væri fjár- sjóður fyrir fomleifafræðinga. Á íslandi bjóðast möguleikar á rann- sóknum sem ekki em fyrir hendi annars staðar í Evrópu, m.a. vegna þess að byggð hófst seint á íslandi eins og ég hef þegar bent á.“ í fyrrasumar vom nemendur í skólanum að Hofsstöðum tíu. í sumar vom þeir 15 og komust færri að en vildu. Nemendumir vom frá Bandaríkjunum og Englandi auk þess sem einn Norð- maður var í hópnum. Þeir nem- endur sem stunda nám í fomleifa- fræði fá nám sitt við skólann met- ið til eininga í fornleifafræðinámi sínu í erlendum háskólum. „Við vonumst til að sjá íslenska nem- endur næsta sumar. Það gæti orð- ið til þess að á íslandi verði forn- leifafræði kennd í framtíðinni." í sumar var aðaláherslan lögð á að kynna íslenska fornleifafræði og hagnýtar vettvangsrannsóknir. Lucas segist vona að í framtíð- inni verði ísland vinsælt á meðal fornleifafræðinga. „Það er engin ástæða til að svo verði ekki. Verk- efnið sem við erum að vinna að er spennandi og við fáum alþjóðlega viðurkenningu. Erlendir vísinda- sjóðir fjármagna t.d. rannsóknirn- ar að Hofsstöðum að sumu leyti og það segir mikið til um mikilvægi verkefnisins." -SJ íþróttatöskur -margar gerðir HOFFELL Armúla 36, Selmúlameginn Sími: 581 2166 - Fax: 588 8047 e-mail: hoffell@mmedia.is Gavin Lucas segir að á íslandi bjóðist möguleikar á rannsóknum sem ekki eru fyrir hendi annars staðar í Evrópu. DV-mynd Pjetur ] 1 X m n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.