Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Blaðsíða 26
I FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 JD"V 26 &ikmyndir Nú þegar ég er nýflutt hefur hug- ur minn (ávallt reikull) hneigst æ meira að hugleiðingum um margvíslega merkingu húsa og hlutverk þeirra í bíómyndum. Það var því tilvalið að rannsaka málið og fletta í uppáhaldsbókinni minni, Kvikmyndahandbókinni. Mér til þónokkrar hrellingar (ánægjuhroll- ur niður bakið) reyndust flestar húsamyndir sem ég mundi eftir vera hrollvekjur (eða er málið kannski bara það að ég sé aðallega hroflvekjur?) um draugahús þar sem nýir eigendur og ábúendur ým- ist andast (og bætast í draugaflór- una) eða neyðast til að flýja með hárbeitta búrhnífana fljúgandi á eft- ir sér. Hver man ekki eftir Polt- ergeist-myndunum þar sem húsið hreinlega hrundi rétt í því að fjöl- skyldan brunaði burt á ílanga amer- íska tekkbílnum sínum. Gott ef gat- an féll ekki saman líka. Hús hafa ekki bara karakter, þau hafa margvíslega merkingu. Húsið er tákn fjölskyldunnar eins og myndimar um hús Ushers-fjölskyld- unnar sýna. Þær eru byggðar á upp- áhaldssögunni minni eftir Edgar Allan Poe en hann er maðurinn með hrafninn sem er ekki Óðinn. í hinni inndælu Texas Chainsaw Massacre er skemmtilega snúið upp á þessa fjölskylda=hús myndhverf- ingu þar sem mannætufamilían býr í þessari líka huggulegu borgara- legu villu, með svölum og allt. En húsið er ekki bara tákn um fjölskyldu, það er líka tákn einstak- lingsins. Ef þig dreymir húser þig að dreyma sjálfa þig. Þfi ert húsið þitt og persónuleika þinn má lesa í hvemig (og hvort) þú opnar og lok- ar gluggum, hurðum og dregur fyr- ir og frá gardínur og hvort það stendur ‘allir alltaf velkomnir’ á dyramottunni. í kjallaranum er hið bælda, að sjálfsögðu, og Godzilla (i’m going deeper underground). Draugagangur í húsum er þannig ákaflega táknrænn fyrir alls konar innri óreiðu og umstang. Fyrir félaga Freud var heimilið beinlínis staður hins óhugnanlega (og erum við nú komin að kjarna málsins) en með miklum og skemmtilegum tilfæringum fellir Freud saman hið óhugnanlega eða óheimilislega (‘unheimliche’) við hið huggulega eða heimilislega (‘heimliche’), enda er það víst satt og víst innan veggja einkalífsins grasserar margur óhugnaðurinn. Ekki nóg með það (Freud lætur nú ekki staðar numið hér) heldur vísar húsið okkar, hið heimilislega - nú óhugnanlegt - beinlínis í heimili heimilanna, móðurkviðinn, þaðan sem við öll komum og þangað sem okkur ‘alla’ langar (likt og vanalega gleymdi Freud að konur voru til sem eitthvað annað en útungunar- box), jafnframt því að þessum stað fylgir óttinn mikli, a: við geldingu, b: að vera étinn, c: að vera lifandi grafinn, og só on. Og þá vitum við það. Hver segir svo að heima sé best? Ég fann enga mynd sem hét ‘Glaða húsið á hominu’ eða eitt- hvað álíka, hér er listi yfir nokkrar húsamyndir. The Amityville Horror (Stuart Rosenberg, 1979) Þetta draugahús gekk aftur og aft- ur og á sér nú ein 7 framhöld og er þá væntanlega orðin gata. Klassíska temað, fjölskylda flytur inn, draugar taka yfir, fjölskylda flýr. Mouse Hunt, 1998. The Borrowers (Peter Hewitt, 1998) Þetta er falleg húsasaga, svona til tilbreytingar, um húsálfa. Burnt Offerings (Dan Curtis, 1976) Ég hef ekki séð myndina en bók- in var fellega fin. Afskaplega eitt- hvað rólegur draugagangur og huggulegur ef ég man rétt. The Canterwille Ghost (Paul Bogart, 1986) Þessi var í sjónvarpinu um dag- inn. Gerð eftir sögu Wilde, þá er þetta klassík kastaladraugssaga, með rómantískum endi og allt. The Haunting (Robert Wise, 1963) Frægasta draugahúsmyndin er líklega The Shining. En sú besta er líklega þessi. Gerð eftir bók Shirley Jackson, The Haunting of Hifl Hou- se, sem inspíreraði síðan bók Kings, The Shining. í þetta sinn flytur eng- inn inn heldur fer fólk beinlínis á staðinn til að kanna hvort i húsinu sé reimt. The Haunting of Sea Cliff Inn (Walter Klenhard, 1994) Þessi var nú í slappara lagi, nú á að setja upp hótel í draugahúsi. Húsið (Egill Eðvarsson, 1983) íslendingar hafa líka gert drauga- húsamynd, nema hvað. House (Steve Miner, 1986) Þessi var ógislega skemmtileg, grínhrollvekja sem var bæði fyndin og dáldið skerí og gekk aftur þrisvar. Leikari flytur inn í hús frænku sinnar sem framdi sjálfs- morð og vitiði hvað? Hún gengur aftur og hitt og annað líka. House on a Haunted Hill (William Castle, 1958) Afskaplega skemmtilega vitlaus er-þetta-alvöru-draugagangur mynd, sem involverar veðmál um að dvelja nótt í draugahúsi. Með Vincent Price. (Kvikmyndahandbókin mín listaði fullt af myndum sem byrjuðu á House e-ð, sú sem mér leist best á heitir House of Psychotic Women) Mousehunt (Gore Verbinski, 1998) Húsamús rústar hús, en reddar síðan málunum á síðustu stundu. Söguþráðurinn er úr osti. Fremur sæt húsamynd... eða hvað? Paperhouse (Bernard Rose, 1989) Þessi nýtir húsasymbólismann vel, veikur strákur liflr sig bókstaf- lega inn í teiknað hús. The Shining (Stanley Kubrick, 1980) Overlook-hótelið tekur yfir rithöf- undinn og dregur fram alla hans innri skugga. Úlfhildur Dagsdótir The Shining, 1980. topp %m í Bandaríkjunum - a&sókn dagana 11. tll 13. september. Tekjur í mllljónum dollara og helidartekjur - Jackie Chan á toppnum Nýjasta kvikmynd hins kínversk-ætt- aöa Jackie Chan, Rush Hour, tók helgina meö trompi og var langvin- sælasta kvikmyndin og má segja aö nú hafi Jackie Chan endanlega geng- iö frá Seven Seagal og Jean Claude Meryl Streep og Renee Zelleweger Van Damme sem báöir hafa gert til- f 0ne TrueThing ka|| tj| þess aö vera mesti hasarleikarinn. Þaö sem Jackie Chan hefur fram yfir fyrr- nefnda kappa er húmor og hann er aö finna í miklum mæli í Rush Hour og þar nýtur Chan góörar aöstoðar Chris Tucker sem er aö veröa einn vinsæl- asti svarti leikarinn í Hollywood. Hinar miklu vinsældir Rush Hours komu öll- um t opna skjöldu en framleiöendur myndarinnar höfðu verið aö vonast eftir aö hún næöi 20 milljónum dollurum en aö hún færi yfir 30 milljónir dollara er tala sem þá dreymdi ekki um. -HK Tekjur Helldartekjur 1. (-) Rush Hour 33.001 33.001 2. (-) One True Thing 6.606 6.606 3. (2) There's Something about Mary 5.634 147.126 4. (1) Rounders 4.731 16.081 5. (5) Simon Birch 3.744 8.111 6. (4) Saving Private Ryan 3.405 178.091 7. (3) Blade 3.263 61.304 8. (6) Ever After 1.778 59.620 9. (9) Armageddon 1.254 195.835 10. (8) Snake Eyes 0.920 53.896 11. (13) The Parent Trap 0.894 63.100 12. (10) How Stella Got Her Groove Back 0.864 35.329 13. (15) The Mask of Zorro 0.688 90.210 14. (7) Knock off 0.638 9.515 15. (20) Dr. Doolittle 0.632 141.095 16. (12) Why Do Fools Fall in Love 0.622 11.599 17. (18) Everest 0.569 42.561 18. (17) Slums of Beverly Hills 0.555 4.464 19. (14) Dance With Me 0.528 15.113 20. (11) 54 0.524 16.214 EOI The Borrowers, 1997.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.