Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Side 9
FTMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
9
Utlönd
Georges skilur eftir sig dauða og eyðileggingu:
Björk og Deneuve
líklegar í mynd
von Triers
Samningaviðræður standa nú
yflr um að fá Björk og frönsku
leikkonuna Catherine Deneuve til
að leika í söngvamynd danska
kvikmyndaleikstjórans Lars von
Triers, Dansaranum í myrkrinu.
„Það er rétt að viö eigum í
samningaviðræðum og allir hafa
sýnt mikinn áhuga,“ segir Vibeke
Windelov, sem starfar í kvik-
myndafyrirtæki von Triers,
Zentropa, í viðtali við Berlingske
Tidende í dag.
Ráðherra tekur á
sig ábyrgðina
Innanríkisráðherra Belgíu hef-
ur teki á sig ábyrgðina á dauða
tvítugrar nígerískrar konu sem
verið var aö flytja úr landi. Kon-
an missti meðvitund þegar lög-
regluþjónar reyndu að hafa hemil
á henni með því að þrýsta púða
að vitum hennar. Konan lést
skömmu síðar. Tveir lögreglu-
þjónar hafa verið ákærðir. Konan
hafði flúið til Belgíu til að komast
hjá því að giftast 68 ára manni.
Havel vill að
Madeleine
Albright verði
forseti Tékklands
Utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, Madeleine Albright, er efst
á lista yflr þá sem Vaclav Havel,
forseti Tékklands, vill að taki við
af sér. Havel hefur átt við erfiö
veikindi að stríða að undanfórnu.
Albright er af tékkneskum upp-
runa. Hún er dóttir stjómarerind-
reka og fæddist í Prag. Að því er
Havel greindi frá í útvarpsviðtali
í Tékklandi kom Albright upp í
huga hans er hann var í heim-
sókn í Bandaríkjunum á dögun-
um. Hún talar tékknesku en er
reyndar ekki lengur tékkneskur
ríkisborgari. Aðrir á óskalista
Havels yfir arftaka hans í forseta-
embættið eru Petr Pithart og
Petra Buzkova. Bæði gegna þau
embætti þingforseta í tékkneska
þinginu.
Þúsundir á flótta
undan óveðrinu
úrslita
Þúsundir manna beggja vegna
Flórídasunds yfirgáfu heimili sín í
gær af ótta við fellibylinn Georges
sem þá var á leið yfir Kúbu og
stefndi á Flórída. Gert er ráð fyrir
að hann verði kominn þangað áður
en dagur rennur á morgun.
Kúbverska veðurstofan sagði að
miðja fellibylsins hefði komið yfir
Kúbu undir kvöld í gær að staðar-
tíma. Georges var þá búinn að verða
108 manns, að minnsta kosti, að
bana á fjögurra daga ferð sinni um
Karíbahafið.
Forseti Dóminiska lýðveldisins
skýrði frá því að þar hefðu að
minnsta kosti sjötíu látist. Áður var
talað um að tólf hefðu týnt lífi í
hamforunum.
Áætlað tjón af völdum fellibylsins
áður en hann kom til Kúbu er met-
ið á meira en sjötíu milljarða ís-
lenskra króna.
Um tvö hundruð þúsund íbúar á
austurhluta Kúbu voru fluttir frá
heimilum sínum og sjötíu þúsund
skólaböm voru send til fjalla þar
sem kaffiuppskeran er í fullum
gangi.
„Við erum mjög hrædd en teljum
að allt hafi verið gert sem hægt er.
Nú er þetta í höndum guðs,“ sagði
sykurbóndinn José Rivera.
Um 80 þúsund manns á eyjunum
Flórída Keys fengu fyrirskipun um
að yfirgefa heimili sín og hálf millj-
ón manna á Miamisvæðinu er í við-
bragðsstöðu. Reuter
íbúi fátækrahverfis í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, reynir aö komast leið-
ar sinnar á hjóli sínu en vatnsflaumurinn af völdum fellibylsins Georges ger-
ir honum erfitt fyrir. Georges stefnir nú á Flórídaskaga.
Uppistand á Astró
Fókus, Mono og Visir.is kynna TALkvöld á Astró.
í kvöld kemur í Ijós hver er fyndnasti maður þjóðarinnar!
Rögnvaldur gáfaði,
Bryndís Ásmundsdóttir,
Einar Þorsteinsson og
Sveinn Waage
keppa til úrslita.
Uppistandið hefst kl 22:00 í kvöld
Kynnir. Jón Gnarr
Bein útsending á www.visir.is i
samvinnu við Xnet hefst kl 22:00 i kvöld
Aðgangseyrir aðeins kr. 500'
TALsmenn fá frftt inn gegn framvísun kortsins*
‘bjór með hverjum miða
Láttu sjá þig á Astró í kvöld!
WUm
www.visir.is
If ó k u s