Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Síða 11
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
11
Fréttir
ÁTVR hættir skipasölu á áfengi:
Deyjandi stofnun
„ÁTVR er deyjandi stofnun.
Hvers konar einkasala og einkaleyfi
af því tagi sem hún byggir starfsemi
sína á er óskiljanleg tímaskekkja og
á ekki heima í viðskiptalífi á
nokkurn hátt. Ég sé í raun ekkert
athugavert við það að stofnunin
dragi úr umsvifum sínum. Best
væri að hún lokaði alveg,“ segir
Ingvar J. Karlsson, forstjóri Karls
K. Karlssonar ehf., eins stærsta
áfengisinnflytjanda landsins. Hann
segir að ákvörðun ÁTVR um að
hætta að selja skipum, flugvélum og
fríhöfnum áfengi á svonefndu skipa-
verði skipti fyrirtæki hans engu
máli. Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Austfars, umboðsfyr-
irtækis útgerðar ferjunnar Norrönu
á Seyðisfirði, hefur hins vegar gagn-
rýnt ákvörðun ÁTVR harðlega og
segir hana enn eina aðfórina að
- segir forstjóri Karls K. Karlssonar
landsbyggðinni.
Ingvar segir
hina raunveru-
legu ástæðu fyrir
því að ÁTVR hafi
ákveðið að hætta
þessum viðskipt-
um líkast til þá að
þau brjóti í bága
við lög og tilskip-
anir Evrópska
efnahagssvæðis-
ins. ÁTVR sé smá-
söluaðili en skipasalan sé í raun
heildsala. Hann segir að til að halda
þessum viðskiptum innan héraðs á
Austurlandi gagnvart t.d. Norrönu
og öðrum skipum og jafnvel milli-
landaflugvélum, sem þar hafa við-
komu, mætti hugsa sér að komið
yrði upp toflvörugeymslu á Austur-
landi. -SÁ
Ingvar J. Karls-
son.
ÁTVR hefur hætt að selja áfengi á skipaverði. Áfram verður selt í einskasölu
svo sem verið hefur.
(höggdeyfar)
GS
varahlutir
Hamarshöfða 1-112 Reykjavík
Sími 567 6744-Fax 567 3703
Stórverkefni Húsvíkinga:
720 milljóna
króna orku-
framkvæmdir
DV, Akureyri:
„Þetta er stórframkvæmd á okk-
ar mælikvarða. Kostnaðurinn er
áætlaður um 720 mflljónir króna
og sé miðað við fólksfjölda þá sam-
svarar þetta um 43 mifljarða króna
verkefni væri það framkvæmt á
höfuðborgarsvæðinu," segir
Hreinn Hjartarson, veitustjóri á
Húsavík, en Húsavíkurbær stend-
ur fyrir geysilegum orkufram-
kvæmdum sem á að ljúka á næsta
ári. Um er að ræða borun eftir
heitu vatni á Hveravöllum í
Reykjahverfi, lagningu flutnings-
æða fyrir vatnið tfl Húsavíkur og
raforkuframleiðsla þar.
Á sl. ári bar borun eftir heitu
vatni á HveravöOum þann árangur
að holan sem boruð var gefur í dag
um 90 sekúndulítra af um 125
gráða heitu vatni. Hreinn segir að
þeir hafi viljað ná í meira magn
vatns þama áður en þeir byrja að
flytja það tfl bæjarins og því hafi í
sumar verið unnið að borun á
Hveravöllum. Ætlunin er að fá tfl
viðbótar vatn þannig að um 130
sekúndulítar af 125 gráða heitu
vatni verði fluttir. Borunin í sum-
ar hefur reyndar ekki skOað þeim
árangri sem að var stefnt en
Hreinn segir það standa tO bóta.
„Þarna er nóg vatn og við munum
finna það í haust,“ segir hann.
Lagning flutningspípu frá
HveravöOum tO Húsavíkur fer
fram næsta sumar og skömmu síð-
ar á raforkuframleiðsla að geta
hafíst. Raforkuframleiðslan á að
nema 1,2-1,5 megavöttum sem er
riflega helmingur þess rafmagns
sem notað er á Húsavík. Eftir að
vatnið hefur verið nýtt til raforku-
framleiðslunnar verður það leitt
um 80 gráða heitt út í bæjarkerfið.
Stór hluti þess vatns sem kemur á
þennan hátt til bæjarins verður
notaður til iðnaðar og eru ýmis
áform uppi varðandi þann þátt
málsins.
Húsavíkurbær hefur fengið 53
miOjóna króna styrk frá Evrópu-
sambandinu vegna þessarar fram-
kvæmdar. Það er þó aðeins lítifl
hluti kostnaðarins sem nemur sem
fyrr sagði um 720 miOjónum
króna. Þar er dýrust lagning flutn-
ingspípu frá HveravöOum tO Húsa-
víkur, sem kostar 450 milljónir, að
koma raforkuframleiðslunni í
gang kostar um 230 milljónir króna
og borunin að HveravöOum um 40
miOjónir.
-gk
Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni.
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt
að taka til skráningar:
Verðtryggð skuldabréf FBA:
4. flokkur 1998
Krónur 2.000.000.000,-
Gjalddagi 25. september 2006
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins tekur að sér viðskiptavakt
á ofangreindum flokki.
Skuldabréfaflokkurinn verður skráður 28. september 1998.
Skráningarlýsingar og önnur gögn liggja frammi
hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík, umsjónaraðila skráningarinnar.
— /\
FJÁRFESTINGARBANKI
ATVINNULÍFSINS H F
Ármúla T3a, 108 Reykjavík. Sími: 580 5000. Fax: 580 5099. Netfang: fba@fba.is
mmmmmmmmmntmmtmmmam