Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 24. SEPTE:
17
Könnun á ódýrustu GSM-símunum:
GSM-símar í
hvern vasa
r
,. \ ; \4\V > '
.> \wSfi: ;
j. t
■jf\
J x
:: V'.’.í '5 A *- ‘i! 'r1 ■
1 v ' V Vil '
ilistækjum heitir Philips Diga og
kostar 14.900 krónur. Sá sími er
með SMS-skilaboðum, númerabirti,
símaskrá og öflugri nikkel-metal
rafhlöðu. Síminn hefur 2 klukku-
stundir í taltíma og 85 klukku-
stundir í biðtíma. Hann vegur
159 grömm og hægt er að tengja
hann við myndsíma.
Elko býður einnig GSM-síma
á 14.900 krónur. Sá sími heit-
ir Ericsson GA 628 og vegur
170 grömm. Hann hefur
númerabirti, símaskrá,
Sent í annan síma
Þar á eftir kemur raftækjaversl-
unin Smith og Norland með Siem-
ens-síma á 23.900 krónur. Sá sími
vegur 165 grömm, hefur 6 klukku-
stunda taltíma og 80 stunda bið-
tíma. Hann hefur einnig öfluga Lit-
hium-rafhlöðu, númerabirti, SMS-
skilaboð, frávísun í annan sima,
endurval, símaskrá og tengingu fyr-
ir fax og módem.
Ódýrasti GSM-síminn
- í hverri verslun -
Á V',
GSM-símarnir eru að verða jafnalgengir hérlendis og hver önnur heimilistæki.
Landssimmn og Tai ht. nata að
undanfornu sýnt hvort öðru klærn-
ar því landsmenn eignast æ fleiri
GSM-síma dag hvem. Samkeppnin
mun væntanlega harðna enn meira
með tilkomu hins nýja íslenska
símafyrirtækis, Íslandssíma hf.
En það er víst ekki nóg að fá
ódýra þjónustu á þessu sviði, GSM-
síminn sjálfur er víst grundvallarat-
riði. Neytendasíðan fór því á stúf-
ana og kannaði verð á ódýrasta
GSM-símanum sem í boði var í sex
raftækjaverslunum. Verslanirnar
sem kannaðar vom em: Heimilis-
tæki, Japis, BT-tölvur, Raftækja-
verslun íslands, Smith og Norland
og Elko.
Hér er engan veginn um tæmandi
umfjöllun að ræða því GSM-símar
eru seldir í ótal mörgum öðrum
verslunum. Könnun á einungis að
gefa lesendum hugmynd um hvaða
símar era ódýrastir í þeim verslun-
um sem kannaðar voru og hvaða
möguleika símamir bjóða.
Mismunandi litir
Fyrst lá leiðin í BT-tölvur. Ódýr-
asti GSM-síminn þar kostar 12.900
krónur sem er jafnframt lægsta
verðið í þessari könnun. Sá sími
heitir Alcatel og er í ábyrgð hjá
Landssímanum. Síminn er 209
grömm að þyngd sem verður að telj-
ast frekar mikið. Hann hefur 5,7
klukkustundir í taltíma og 120
klukkustundir í biðtíma, er með
þremur flýtihnöppum, símaskrá,
SMS-skilaboðum, minni, númera-
birti, vekjaraklukku og 15 mismun-
andi hringingum. Skjár símans er
stór, (2 línur með tólf stöfum hvor),
hægt er að tengja hann við mótald
og hann fæst í þremur mismunandi
litrnn.
Næst á eftir koma Heimilistæki
og Elko. Ódýrasti síminn hjá Heim-
2100!)
ÍIWö!)
J2JJÖ!) JíLiíOO iiyyij
Ericsson Panasonic Siemens Ericsson
Alcatel Philips Diga GA 628 EBG 450 EIO 788
BT-tölvur Heimlllstæki Elko Japls Smlth & Raftœkjaverslun
SMS-skilaboð, frávísun í annan
síma, 2 stunda taltíma og 40 stunda
biðtima,
Þyngdin skiptir máli
Næst i verðröðinni kemur Japis.
Ódýrasti síminn þar kostar 18.900
og heitir Panasonic EBG 450. Sá
sími er með SMS-skilaboðum, núm-
erabirtingu, símaskrá, tengingu fyr-
ir módem og myndsíma. Hann hef-
ur 3 1/2 klukkustunda taltíma og 80
klukkustunda biðtíma og vegur 175
grömm.
Noriand Islands
Lítill og nettur
Úrvalið af ódýmm símum í Raf-
tækjaverslun íslands var lítið þegar
Neytendasíðan hafði samband en að
sögn verslunarstjóra var von á fleiri
símum i vikunni. Sá ódýrasti sem
var til í augnablikinu heitir Erics-
son 788 og kostar 49.900 krónur.
Hann er lítill og nettur, aðeins 135
grömm, hefur númerabirti, SMS-
skilaboð, 3 tíma taltíma og 60 tíma
biðtíma. Hægt er að fá forrit í hann
fyrir mótald og myndsíma. -GLM
Keypt í helgarmatinn með Ingibjörgu Sólrúnu:
Borgarstjóri
í búðarferð
Á fimmtudögum og föstudögum era stór-
markaðir víða um land uppfullir af örvænt-
ingarfullum húsmæðrum og húsfeðrum sem
velta því fyrir sér hvað þau eiga að hafa í
helgarmatinn eina helgina enn. Neytendasíð-
an fór með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra að kaupa í helgarmatinn. Ingi-
björg féllst Ijúflega á að kaupa inn fyrir eina
helgarmáltíð með blaðamann og ljós-
myndara í humátt á eftir sér. Hins
vegar skein engin örvænt-
ing úr andliti Ingi-
bjargar Sólrúnar
þegar hún tíndi alls
kyns matvörur í
körfuna þvi hún var
alveg með það á
hreinu hvað ætti að
vera í helgarmatinn.
Ingibjörg hugsar
greinilega talsvert um
hollustuna þvi hún byrjaði
á að tína til alls kyns græn-
meti s.s. gulrætur, lauk og
sellerí. „Ég borða talsvert af
grænmeti og í raun lítið af
kjöti. Strákarnir mínir era hins
vegar ekki hrifnir af grænmeti.
Því „dulbý" ég það með því að
brytja það niður í lasagnarétt sem
ég ætla að hafa á laugardagskvöld-
ið. Föstudagskvöldin þarf hins vegar ekki að
hugsa um því þá pöntum við alltaf pitsu,“
segir Ingibjörg.
Sætindadagur
Heimiliskisinn er verður ekki útundan
um helgar hjá Ingibjörgu því í stað hvers-
dagslegs þurrfóðurs fær hann fisk um helgar.
Ingibjörgu fannst fiskurinn í stórmarkaðnum
hins vegar allt of dýr í köttinn og
ætlar frekar að fá afganga úr fisk-
búð fyrir kisa.
Borgarstjóri er greinilega á
hollustulínunni því auk græn-
metis kaupir Ingibjörg m.a.
lífræna Ab-mjólk, undan-
rennu og fersk lasagneblöð.
En ætlar Ingibjörg ekki að
kaupa neitt óhollt?
Fyrir þrábeiðni blaða-
manns lætur Ingibjörg
undan og tekur ör-
bylgjupopp úr hill-
unni. „Þetta er til
þess að maula yfir
sjónvarpinu á
fostudögum," seg-
ir hún. En blaða-
maðurinn lætur
ekki deigan siga: Popp er
nú ekki svo óhollt, ætlar borgar-
stjórinn ekki að kaupa nein sætindi?
Ingibjörg hugsar sig vandlega um og ákveður
síðan að kaupa Sprite og súkkulaðiis fyrir
laugardaginn. „Maður verður víst að leyfa
sér að eiga einn svona hálfgerðan sukkdag,"
segir Ingibjörg að lokum.
Ingibjörg Sólrún verslar hollan og léttan -GLM
helgarmat á hagstæðu verði.
Sparnaðarráð
Ef þig vantar trekt, t.d. vegna
tómstundaiðju, er óþarfi að
stökkva út í búð og kaupa eina
slíka. Ráð er að skera stút af
plastbrúsa og nota hann sem
trekt. Hinn hluta brúsans má
nota undir eitt eða annað, s.s.
nagla eða skrúfur.
Flísalagt borð
Er borðplatan orðin sködduð
og óásjáleg? Taktu nákvæmt mál
af henni og kauptu leirflísar til
að líma á hana. Þegar flísarnar
hafa verið límdar á stærstan
hluta borðsins kaupir þú lista úr
málmi eða góðum viði og klæðir
brúnir borðsins með honum.
Leirflísamar þola flest og því
þarf ekki lengur að hafa áhyggj-
ur af glasaförum eöa sígarettu-
blettum.
Jógúrtþeyta
Ef ætlunin er að þeyta rjóma
en þeytirjómi er ekki til á heim-
ilinu er ráð að blanda saman 1/2
lítra af jógúrt, 3 eggjahvitum og
150 g af strásykri. Þeytið eggja-
hvíturnar uns þær verða stinn-
ar, blandið sykrinum saman viö
og síðan jógúrtinu. Blandan
bragðast vel, t.d. með blönduðum
ávöxtum.
Rjómi til reiðu
Óþarfi er að henda fernu með
afgangsrjóma. Betra er að hella
honum í ísmolapoka og setja
siða í frysti. Þá áttu alltaf
rjómamola tilbúinn t.d. í sósu og
súpur.
Ruslapokar
Sjálfsagt er að nota plastpoka
undir úrgang sem bleyta er í.
Annan eldhúsúrgang m4 setja í
poka úr dagblöðum. Þá er dag-
blaðið brotið saman og límt síð-
an með ódýra límbandi á lang-
hliðinni og annarri skammhlið-
inni. Gott er að útbúa nokkra
poka af þessu tagi í einu til þess
að eiga þá tiltæka þegar á þarf
aö halda.
ís í mjólkurfernum
Ef ís er búinn til í heimahús-
um er tilvalið að nota tómar
mjólkurfernur undir hann. ís-
blöndunni er hellt í hreina fernu
og síðan er henni stungið í fryst-
inn. Feman er síðan skorin utan
af ísnum áður en hann er borinn
á borð.
Þurrmjólk í bakstur
Ef mjólkina vantar má auð-
veldlega nota þurrmjólk og vatn
í staðinn í baksturinn. Þá er
mjólkurduftinu blandað saman
við mjölið.