Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Page 23
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
23
I>V
Bland í poka
Everton keypti í gær Steve Simon-
sen, 19 ára gamlan markvörð frá
Tranmere, fyrir 350 milljónir króna.
Þetta er mesta upphæð sem greidd
hefur verið fyrir markvörð á Eng-
landi. „Þetta er draumi likast. Ev-
erton er stórt félag og leikmennirnir
sem leika með félaginu eru frábærir,"
sagði Simonsen eftir undirskriftina
en hann er í U-21 árs landsliði Eng-
lendinga.
Fjölmidlar á Englandi fullyrða að
George Graham verði næsti knatt-
spymustjóri hjá Tottenham. Graham
er við stjórnvölinn hjá Leeds og hef-
ur verið að gera góða hluti með liðið.
Steve McMahon hætti störfum sem
framkvæmdastjóri enska B-deildar-
liösins Swindon í gær. McMahon seg-
ir að það sé vegna fjöldskyldu sinnar
sem hann hætti en hann hefur stýrt
liðinu síðastliöin fjögm1 ár.
Alex Ferguson, knattspymustjóri
hjá Manchester United, segist ekki
vera á förum frá félaginu en mikið
hefur verið rætt og ritað um að hann
taki við liöi Juventus á næstu leiktíð.
Ferguson vill vera um kyrrt á Old
Trafford og segist tilbúinn að gera
nýjan 5 ára samning.
Haustmót TBR i badminton verður
haldið um helgina 10.—11. október.
Hefst keppni með einliðaleik kl. 10 á
laugardag, keppni í tvíliðaleik hefst
kl. 10 á sunnudeginum og í tvenndar-
leik þar á eftir. Þátttökutilkynningar
berist TBR í síðasta lagi kl. 12 þann 4.
október.
Claus Nielsen, varnarmaður danska
A-deildarliðsins Viborg, hefur verið
rekinn úr félaginu. Ástæðan er sú að
hann sló til félaga síns á æfingu með
þeim afleiðingum að hann kjálka-
brotnaði auk þess sem tvær tennur
brotnuðu. Forráöamenn Viborg segja
aö Nielsen sé ekki lengur æskilegur i
herbúðum félagsins.
Haukar og ÍBV mætast í 1. deild
karla í handknattleik í kvöld og fer
leikurinn fram i Strandgötu í Hafnar-
firði. Leiknum var frestað á sunnu-
daginn vegna veikinda leikmanna
ÍBV en þeir hafa nú náð sér.
Aóalstjórn Fram boðar fulltrúaráð
og Framherja til áriðandi fundar í fé-
lagsheimili Fram í kvöld klukkan
20.30.
Brasilia og Júgóslavia skildu jöfn i
vináttulandsleik í knattspymu í
Brasilíu í gærkvöld, 1-1. Júgóslavar
vora manni færri í 40 mínútur en
voru samt nær sigri.
Rúmenar máttu sætta sig við 0-0
jafntefli í vináttulandsleik gegn ná-
grönnum sínum, Moldövum, i gær-
kvöld. Úrslitin eru mjög óvænt því
Moldavía er eitt af lægst skrifuðu
knattspymulandsliðum Evrópu.
Hollandsmeistarar Ajax töpuðu,
1-0, fyrir Fortuna Sittard í A-deild
hollensku knattspyrnunnar í gær-
kvöld. Feyenoord vann góðan útisig-
ur á PSV, 2-1, í fyrrakvöld. Feyen-
oord er efst i deildinni.
Valeri Karpin, landsliðsmaður
Rússa 1 knattspyrnu, hefur veriö
dæmdur í fjögurra leikja bann i
spænsku knattspyrnunni. Karpin,
sem leikur með Celta Vigo og spilar
væntanlega gegn íslandi hér á landi i
næsta mánuði, hrækti á mótherja í
leik gegnVaUadolid á sunnudaginn.
Juventus sigraói B-deildarlið Rav-
enna, 4-0, i ítölsku bikarkeppninni i
knattspyrnu í gærkvöld. Daniel Fon-
seca og Marcelo Zalayeta, sóknar-
mennirnir frá Uruguay, skomðu sin
tvö mörkin hvor. Juventus vann sam-
anlagt 6-0.
Vicenza sigraói Brescia í sömu
keppni, 3-0, og samanlagt 5-3. Þrír
leikmanna Brescia vom reknir af
velli og þjálfarinn í sturtu að auki -
allir í fyrri hálfleiknum.
Oliver Bierhoff tryggði ACMilan
sigur á Torino í ítalska bikarnum.
Hann kom AC Milan í 3-0 en Torino,
sem leikur i B-deild, hafði unnið fyrri
leikinn, 2-0. Þrír leikmenn Torino
vom reknir af velli.
Siegen, sem leikur í C-deild þýsku
knattspyrnunnar, sló A-deildarliö
Freiburg út úr bikarkeppninni í gær-
kvöld með 1-0 sigri. Þá þurfti Bayern
Múnchen vítaspymukeppni gegn B-
deildarliði Fúrth eftir 0-0 jafntefli en
Bayem hafði þá betur, 4-3.
Önnur úrslit i þýska bikamum í
gærkvöld: Jena-Duisbin-g 1-2, St.
Pauli-Hamburger SV 1-1 (5-4 í víta-
keppni), Wolfsburg-Númberg 3-0,
Dortmund-Schalke 1-0.
-JKS/GH/VS
_____________________________________íþróttir
íslendingur leikur með einu besta félagsliði Spánar:
„Lengi dreymt
þessa vinnu"
- segir Sigfús Sigurðsson, linumaðurinn sterki hjá Caja Cantabria í Santander
íslenskir handknattleiksmenn
hafa gert garðinn frægan í
spænskum handknattleik i gegnum
tíðina. Þar hafa leikmenn á borð við
Einar Þorvarðarson, Atla Hilmars-
son, Kristján Arason, Alfreð Gísla-
son, Geir Sveinsson og Júlíus Jón-
asson leikið við góðan orðstír. í
byrjun þessa áratugar stefndu sterk-
ustu handboltamenn heims til Spán-
ar, þar voru bestu liðin og bestu
launin.
í dag er öldin önnur, þeir bestu í
heimi eru nú að leika lystir sínar í
Þýskalandi. Um tíma stóðu liðin á
Spáni illa fjárhagslega en launa-
kostnaður var búinn að koma mörg-
um þeirra á kaldan klaka. Spænsk
lið eru smám saman að rétta úr
kútnum og nú horfir allt til betri
vegar.
Fyrir tímabilið, sem hófst fyrir
þremur vikum síðan, gerði efnileg-
asti línumaður landsins, Sigfús Sig-
urðsson úr Val, samning við Caja
Cantabría frá Santander á Norður-
Spáni. Þetta félag hét raunar áður
Teka en undir því nafni lék Kristján
Arason með liðinu.
Aginn er meiri heima á ís-
landi
Fyrir tímabilið spáðu allir því að
Barcelona myndi vinna titilinn enn
eitt árið en þar valinn maður í
hverju rúmi. Liðið vann allt sem
hægt var að vinna á síðasta tímabili
og er ekki óeðlilegt í beinu
framhaldi að spá liðinu frama
einnig í vetur. Ademar Leon og Caja
Cantabria, Portland, Valladolid og
Bidasoa geta hæglega á góðum degi
velgt Barcelona undir uggum. Bar-
celona tapaði stigi um síðustu helgi
á meðan öll liðin í næstu sætum
unnu sína leiki. Barcelona er efst
með 9 stig en síðan koma Ademar
Loen og Sigfús Sigurðsson og
samherjar í Caja Cantabria í næstu
sætum með átta stig.
DV lék forvitni á að vita hvernig
Sigfúsi líkaði handboltinn á Spáni.
„Handboltinn sem leikinn er hér
á Spáni er sterkur en samt finnst
mér aginn meiri heima á íslandi.
Leikmenn eru að vísu betur á sig
komnir líkamlega á Spáni. Segja má
að handboltinn á Spáni sé allt öðru
vísi en á íslandi," sagði Sigfús.
- Hvað hefur komið þér einna
mest á óvart?
„Viðmót fólksins, en allir eru til-
búnir að gera allt fyrir mann. Ég
hóf strax eftir að ég kom út nám í
spænsku og gengur mér bara ágæt-
lega að komast inn í hana. Ég skil
orðið ágætlega þegar talað er í
kringum mig en öllu erfiðara er enn
þá að tala málið. Þetta kemur allt
með tímanum.“
- Hvað eru margir útlendingar
á mála hjá Cantabria í vetur?
„Auk mín eru það Hvít-Rússinn
Mikhail Iakimovich og Ungveijinn
László Sotonyi. Báðir frábærir
handboltamenn og styrkja liðið
gríðarlega.
- Hvernig líður venjulegur dag-
ur hjá handboltamanni á Spáni?
„Það er æft tvisvar á dag fimm
daga vikunnar. Það er leikið á mið-
vikudögum og þá er tekin létt æfing
um morguninn þar sem farið er yfir
leikkerfi og síðan er aftur leikið á
laugardögum. Þetta er atvinnu-
mennska og maður er kominn i þá
vinnu sem mig hefur lengi dreymt
um að komast i.“
- Hvemig kom það til að þú
geriðst leikmaður með Canta-
bria?
„í fyrstu var mér boðið til Lemgo
og æfði ég með liðinu í nokkra daga.
Forráðamenn Cantabria fréttu af
mér að ég væri aö skoða aðstæður
hjá Lemgo og í framhaldinu settu
þeir sig í samband við mig. Ég sett-
ist niður með Spánverjunum og þaö
varð úr að ég skrifaði undir þriggja
ára samning við félagið."
- Svíinn Mats Olsson hefur
eitthvað starf með höndum hjá
félaginu. í hverju er það fólgið?
„Já, Olsson er tengiliður á milli
leikmanna og stjómarinnar. Hann
skipuleggur allar ferðir liðsins og
vinnur í samingagerð við styrktar-
aðila. Hann býr hér og er giftur
spænskri konu. Olsson hefur reynst
mér ágætlega.“
- Hvering er launamálum hátt-
að samanborið við það sem gerist
í Þýskalandi?
„Leikmenn á Spáni hafa lægri
laun en gerist í Þýskalandi. Ég hef
það alveg ágætt sjálfur."
- Þér hlýtur að fara mikið fram
sem handboltamanni, að leika í
einni bestu deild í heimi?
„Ég finn það nú þegar hvað ég hef
styrkst mikiö líkamlega. Við lyftum
tvisvar í viku og fariö er dýpra nið-
ur í öll atriði en gert er heima. Á ís-
landi vann maður 8-10 tíma á dag
og fór síðan á æfingu. Hér er þetta
allt annað umhverfi þegar maður al-
farið getur helgað sig i íþróttinni."
- Hvaða lið koma til með að
berjast um spænska meistaratit-
ilinn í vetur?
„Það segja allir að Barcelona
vinni titilinn og á pappírnum eru
Hinn heimsfræga fyrrum markvörð
Svía, Mats Olsson, þekkja allir
handboltaáhugamenn. Hann starfar
nú hjá Cantabría. Olsson gerði
íslendingum oft lífið leitt með
frábærri markvörslu.
þeir með langbesta liðið. Börsungar
náðu aðeins jafntefli í síðasta leik
og fyrir vikið er spennan mikil á
toppi deildarinnar.
Við eigum erfiðan leik um næstu
helgi gegn Bidasoa þar sem hvorki
Sodonyi né Iakimovich geta leikið
með okkur. Þeir verða báðir að
leika á sama tíma með landsliðum
sínum. Spánverjar þurfa ekki að
keppa í undankeppni heimsmeist-
aramótsins þar sem þeir lentu í
öðru sæti á Evrópumótinu á sl.
vori.“
Byrjunin lofar góðu hjá lið-
inu
- Er áhugi töluverður á hand-
bolta í Santander?
„Jú, áhuginn í borginni er mikill
og hér ríkir nokkur handboltahefð.
Við leikum okkar heimaleiki í fjög-
ur þúsund manna höll og til þessa
hafa komið á leikina í kringum 2300
áhorfendur. Forráðamenn liösins
eru bara ánægðir með þá aðsókn.
Miðað við undanfarin ár er hún
mun meiri núna. Eftir sem á mótið
líður fer síðan áhorfendum ört fjölg-
andi.“
- Eru menn ánægðir með byrj-
unina hjá liðinu?
„Almennt séð eru menn bara sátt-
ir. Liðið vinnur yfirleitt alla heima-
leiki sína en í gegnum tíðina hafa
útileikir liðsins verið veikasti
hlekkurinn. Við erum hins vegar
búnir að vinna tvo leiki i röð á úti-
völlum svo það er vonandi aðverða
breyting á í þeim efnum."
Alltaf heiður að fá að leika
fyrir íslands hönd
- Stefnir þú ekki að því aö
vinna þér fast sæti í íslenska
landsliðinu í framtíðinni?
„Þaö eru alltaf leikir hér á Spáni
þegar landsliðið er að leika í und-
ankeppni HM og því er ekki að
leyna að ég myndi taka sæti í ís-
lenska landsliðinu fegins hendi. Það
er alltaf mikill heiður að fá að leika
fyrir Islands hönd og að því stefni
ég í framtíðinni. Ég ætla að gera
mitt besta, svo sjáum við hvað
Tobbi þjálfari gerir.“
Er í góðu sambandi við
strákana heima
„Ég er mjög ánægður hérna á
Spáni. Ég er í góðu sambandi við
strákana heima en við notum mikið
Netið í okkar samskiptum. Það
hefur verið mjög heitt hér að undan-
fornu og raki mikill. Maður situr
bara á svölunum og slappar vel af á
milli æfinga og leikja," sagði Sigfús
Sigurðsson í spjallinu við DV. -JKS
Sigfús Sigurösson lék stórt hlutverk með Valsmönnum á síðasta tímabili
þegar liðið tryggði sér íslands- og bikarmeistaratitilinn. Sigfús er nú á mála
hjá spænska liðinu Cantabria og hefur leikið vel með liðinu fram að þessu.