Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Page 36
36
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 DV
tvær skuli
ráða ferðinni
„Mér finnst það helvíti hart
að þingflokkur með tveimur
þingmönnum skuli
ráða ferðinni í f
þessu mikla lífs-
hagsmunamáli
þjóðarinnar."
Einar K. Guðfinns-
son alþingismaöur
um afstöðu
Kvennalistakvenna
til hvalveiða. í DV.
Sýndarveruleikinn
og grínpískallar
„Það er sýndarveruleiki sem
hefur verið flaggað fyrir ís- 1
lendingum um að hægt sé að
hefja hagkvæmar atvinnuhval-
veiðar umbúðalaust og allir
verði ánægðir nema nokkrir
„grínpís“-kallar og Magnús \
Skarphéðinsson."
Jóhann Kristjánsson tölvu-
verkfræðingur, í Degi.
Urslitahópurinn sem keppir um Islandsmeistaratitilinn
kvöld.
Astro:
íslandsmeistara-
keppni í fyndni
í kvöld verður úrslitakvöldið á Tal-kvöldum sem
veitingastaðurinn Astro stendur fyrir ásamt Fókusi,
Vísi.is og Mónó FM 87,7. Keppt er um titillinn fyndasta
manneskja á íslandi. Haldin hafa verið þrjú imdanúr-
slitakvöld og nú hafa verið valdir fjórir þátttakendur
til að taka þátt í úrslitakeppninni í kvöld og þar með
keppa um hvert þeirra komi til með að bera titilinn
fyndnasta manneskja íslands. Þetta eru þau Sveinn
Waage, Rögnvaldur gáfaði, Bryndís Ásmundsdóttir og
Þorsteinn Bjarnason. Troðfullt hefur verið síðustu þrjá
fimmtudaga og er gert ráð fyrir mikilli aðsókn í kvöld.
Settiu' hefur verið upp myndvarpi sem sendir myndina
upp á aðra hæð þar sem sýnt er á breiðtjaldi.
Sigurvegari kvöldsins fær 50.000 krónur í verölaun
Tal-kvöld
Úrslitakvöldið er sent út á www.visir.is og ítarlega
er fjallað um keppendur og framkvæmdina á Mónó
FM 87,7 og í Fókusi. Dómnefnd skipa fimm valinkunn-
ir aðilar frá öllum fyrirtækjunum sem standa að
kvöldunum. Kynnir og stjómandi keppninar er hin
síkáti Jón Gnarr sem þekktur er fyrir gamanmál á
mannamótum.
Lítur skelfilega út
„Þetta lítur skelfilega út á
pappírnum en eins og staðan
er var þetta það
langbesta sem ég
gat gert í stöð-
unni.“
Hermann Hreiðars-
son knattspyrnu-
maður sem seldur
var á milli deilda,
i Morgunblaðinu.
Okkur vantar ekki
gamlan kerfiskarl
„Okkur vantar ekki menn
eins og Sverri Hermannsson,
spilltan kerfiskarl, sem auk
þess er orðinn gamall og hefur
ekkert að gera í pólitík. Þar
fyrir utan er okkur bara illa
við hann.“
Arnar Geir Níelsson, oddviti
Grágásar á Tálknafirði, í DV.
Pólitíkin og kynlífið
„Þeir era fáir pólitíkusamir
í heiminum sem stæðu keikir
eftir aðra eins
grannskoðun á
kynlífi sínu og
Bandaríkjafor-
seti hefur mátt
þola.“
Steinunn Jó-
hannesdóttir rit-
höfundur, í DV.
Kristján skrifaði
fyrir Þorstein
„Ég held að það hljóti að
vera Kristján Ragnarsson sem
hefur skrifað hluta af ræðu
sjávarútvegsráðherra því það
er ævinlega viðkvæði útgerð-
armanna þegar vel gengur að
laun sjómanna séu allt of há og
passi ekki inn í hlutaskipta-
kerfið."
Konráð Alfreðsson, form.
Sjómannafélags Eyjafjarðar, í
Degi.
wi<&****#
Hörður Blöndal, hafnarstjóri á Akureyri:
Áhugamálin tengjast
íþróttum og útivist
DV, Akureyri:
„Eg er þessa dagana að setja mig
inn í hin ýmsu mál og starfið í
heild, en ég get sagt það strax að
mér líst vel á starfið sem mér sýnist
að sé lifandi og áhugavert á margan
hátt,“ segir Hörður Blöndal, en
hann er nýtekinn við starfi hafnar-
stjóra á Akureyri.
Hörður er Akureyringur, og að
lokinni hefðbundinni skólagöngu
stundaði hann nám við Menntaskól-
ann á Akureyri þaðan sem hann út-
skrifaðist árið 1966. „Eftir það fór ég
til starfa hjá Vegagerð ríkisins og
vann þar aðallega við mælingar allt
fram til ársins 1974 að ég hóf nám i
verkfræði við Háskóla íslands og
því námi lauk ég 1978.“
Hörður stundaði framhaldsnám í
vega- og framkvæmdafræðum í Sví-
þjóð og starfaði síðan að nýju hjá
Vegagerð ríkisins til ársins 1985 en
frá þeim tíma og til ársins 1989
starfaði hann sjálfstætt, m.a. við
ráðgjöf fýrir verktaka á sviði vega-
gerðar. Á næstu árum eða til 1996
var Hörður framkvæmdastjóri
Dagsprents á Akureyri en starfaði
síðan með verktökum á sviði vega-
gerðar fram til þess tíma að hann
var ráðinn hafnarstjóri á Akureyri í
haust.
„Það sem helst er á döfinni er að
fylgja eftir uppbyggingu hafnarinn-
ar og þar ber hæst að stækka fiski-
höfnina og það verk
verður væntanlega boð- Hörður Blöndal.
ið út fyrir áramót. Um DV-mynd gk
er að ræða dýpkun og siðan verður
farið í að reka niður stálþil næsta
vor. Smábátaeigendur sem hafa haft
aðstöðu fyrir báta sína og verbúðir
þama á tanganum munu færa sig út
Maður dagsins
í Sandgerðisbót þar sem þeir fá
aðstöðu. Þetta verk hefur
verið í undirbúningi og ég
kem inn í þann undir-
búning miðjan."
Hörður segist hafa
mikinn áhuga á íþrótt-
um og ýmiss konar úti-
vist. „Það á ekki hvað
sist við um þá starf-
semi sem fram fer í
Hlíðarfjalli á vetuma
en þar hef ég reynt að
starfa þegar ég hef haft
tíma tU. Á sumrin hins
vegar þykir mér mjög
gaman að renna fyrir
fisk og geri töluvert að
því. Ég er í stangaveiðifé-
lagi á Akureyri
sem heitir
Straumar
og hefur á
leigu
Húsa-
eyja-
kvísl í
Skaga-
firði og hluta af Laxá í Aðaldal. Mín
veiði fer mest fram í þessum ám.
Ég myndi ekki segja að ég væri
illa haldinn af „veiðibakteríunni"
en sennilega era aðrir í minni fiöl-
skyldu ekki sömu skoðunar. Ég hef
til þessa ekki veitt stærri lax en 18
punda en nokkra svoleiðis og hef
því ekki komist í hóp þeirra sem
hreykja sér af 20 punda
fiskum, enda ekki
markmið í sjálfu
sér.“
Hörður er giftur
Sólveigu Gísla-
dóttir og eiga
þau þrjú börn,
Gísla, 21 árs,
sem er við nám
í tölvunarfræð-
um í Svíþjóð, og
Katrínu, 18 ára,
og Bjöm, 16 ára,
sem bæði stunda
nám við Menntaskól-
ann á Akureyri.
-gk
Viðar Jónsson kántrísöngvari
skemmtir á Næturgalanum í
kvöld.
Kántrí á
Næturgalanum
Skemmtistaðurinn Nætur-
galinn í Kópavogi er nú að
hefia vetrardagskrána. Eins
og áður skipar tónlistin mik-
ið pláss í starfseminni og
hefst tónlistardagskráin í
kvöld en á fimmtudögum
verður sveitatónlistin alls-
ráðandi og mun Viðar Jóns-
son kántríkóngm- ráða ferð-
inni. Á föstudags- og laugar-
dagskvöldum munu Lúdó og
Stefán, Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms, Stefán P. og
Pétur og fleiri hljómsveitir
koma fram. Á sunnudags-
kvöldum mun svo hin ágæta
hljómsveit Hjördísar Geirs-
dóttur leika gömlu og nýju
dansana.
Skemmtanir
Sir Oliver
í kvöld skemmta Andra
Gylfadóttir og Eðvarð Láras-
son á Sir Oliver, annað kvöld
og á laugardagskvöld er það
Barflugan sem ræður ferð-
inni og á sunnudagskvöld er
það svo hljómsveit sem ber
hið kunnuglega nafn Bítlarn-
ir sem skemmtir.
Myndgátan
Setur málið á oddinn.
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Ingveldur
Ýr og Ger-
rit Schuil
skemmta í
Kaffileik-
húsinu í
kvöld.
Söngleikir
f kvöld koma þau Ingveldur Ýr
söngkona og Gerrit Schuil píanó-
leikari fram í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum. Dagskrá sína nefna
þau Söngleiki og munu þau bregða
á leik og flyta ýmis sívinsæl lög úr
söngleikjum, kvikmyndum og ís-
lenskum leikritum. Fyrr í sumar
var dagskrá þeirra flutt í Iðnó og
vakti verðskuldaöa athygli. Vegna
fiölda áskorana er hún nú endurtek-
in í Kaffileikhúsinu. Þetta er létt og
skemmtileg dagskrá sem er byggð á
lögum úr söngleikjum, kvikmynd-
um og leikritum, jafnt innlendum
sem erlendum.
Tónleikar
Af innlendum verkum má nefna
lög úr leikritunum Ofvitanum, Silf-
urtunglinu og Húsi skáldsins og
kvikmyndunum 79 af stöðinni og
Skilaboðum til Söndru. Þau Ingveld-
ur og Gerrit flytja einnig syrpu af
lögum eftir George Gershwin og
Kurt Weill auk laga úr hinum sivin-
sælu söngleikjum og má þar nefha
Söngvaseið, My Fair Lady, Cabaret
og Showboat. Ingveldur Ýr hefur
vakið mikla athygli undanfarin ár
fyrir sína óvenjulegu og blæbrigða-
ríku söngrödd, líflegu sviðsfram-
komu og sterku leikhæfileika. Hún
hefm- komið fram á óperasviði og í
tónleikahúsum víða um heim og
sungið með þekktum hljómsveitar-
stjóram.
Bridge
Áhorfendur sem horfðu á þetta
spil í úrslitaleik Bikarkeppni BSÍ
höfðu það á tilfinningunni að sagn-
hafi væri með góða yfirsýn af öllum
höndum. Báðar sveitimar í úrslit-
um, Marvin og Ármannsfell, sögðu
sig upp í 3 grönd á hendur AV í
þessu spili en það var Sigurður
Sverrisson í sveit Ármannsfells sem
hafði puttana í lagi. Sagnhafi var
austur í báðum tilfellum og útspilið
var það sama á báðum borðum,
hjartagosi. Þar sem Jakob Kristins-
son var sagnhafi gat hjartagosinn
vel verið frá kóng og af þeim sökum
setti Jakob drottningima. Eftir þá
byrjun var engin von á vinningi og
spilið fór tvo niður. Hjartagosinn
neitaði hins vegar hærra háspili þar
sem Sigurður var sagnhafi:
* G1098
* K85
* 973
* D32
4 K742
* ÁD32
-f 4
* G986
4 Á65
* G1094
4 G852
* K4
Sigurður setti lítið spil í upphafi
og Öm Arnþórsson, sem sat í suður,
spilaði næst hjartatíunni. Sigurður
setti þá ásinn, spilaði laufniunni úr
blindum og setti tíuna heima. Öm
drap á kónginn og var nú í vanda.
Hann fann bestu vömina, spilaði
áfram laufi, gosinn úr blindum og
drottning drepin á ás. í þessari
stöðu spilaði Sigurður laufafimmu á
áttuna. í þessari
stöðu þurfti hann
að ákveða hvort
hann reyndi við
tígullitinn eða
treysti á spaðaás-
inn hjá suðri og
kónginn þriðja í
hjarta hjá norðri.
Sigurður fann að
sjálfsögðu réttu
leiðina: spilaði
lágu hjarta úr
blindum. Norður
Sigurður
Sverrisson
fékk slaginn á
kónginn, spilaði laufníu, Sigm-ður
drap á ás og spilaði lágum spaða.
Þannig tryggði hann sér 9 slagi og
laufsjöan var innkoma á tígulslag-
ina. Góð spilamennska Sigurðar
kom þó fyrir ekki því sveit Marvins
hafði sigur í leiknum, 143-130.
ísak Öm Sigurðsson