Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Qupperneq 40
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
íslenska kvikmyndin Dansinn, sem gerö er eftir sögu Williams Heinesens, var frumsýnd í gær. Petta er í fyrsta sinn sem kvikmynd er gerö eftir sögu hins vinsæla færeyska skálds. Sýningin vakti
ánægju gesta sem og spennufall hjá leikurum og öðrum aöstandendum myndarinnar. Hér er Ágúst Guömundsson leikstjóri ásamt leikurunum Pálínu Jónsdóttur og Gunnari Helgasyni.
DV-mynd Hilmar Pór
Bikarkeppni í
glæsileik
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
eru birt úrslit í bikarkeppni kvenna
sem blaðið efndi til. 16 glæsilegustu
konur landsins börðust í keppni
með útsláttarfyrirkomulagi um
hylli föngulegra sveina. Sú sem
^krækti sér í atkvæði fleiri sveina
hélt áfram í næstu umferð en hin
féll úr keppni. í Fókusi má lesa lýs-
ingar um viðureignir kvennanna,
óvænt úrslit, nauma sigra og rót-
burst, þar til ein þeirra stóð uppi
sem sigurvegari. í blaðinu eru for-
ystumenn í ungliðahreyfingunni
spurðir út í smáar og stórar syndir.
Er þetta fólk heilagt eða neyðist það
til að fegra sannleikann eins og
Clinton greyið? Rætt er við Ragnar
Blöndal, útvarpsstjóra á Mono, sem
segir þá geta flutt upp í Grafarvog
sem þoli ekki hávaðann frá nýja
diskótekinu hans í Grjótaþorpinu.
Auk þess er í blaðinu fjallaö um at-
burði komandi helgar, bíómyndin
: j|pansinn er vegin og metin og
brugðið er upp ótal myndum af lífi
ungs fólks.
ER EYÐIMERKUR- 'N
FLOKKURINN EKKI
NÆR LAGI? J
Krafa Sambands íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja:
Landssímanum skipt
„Það var starfandi nefnd á vegum
iðnaðarráðherra sem skilaði af sér í
febrúar og þar var tekið á ýmsum
starfsskilyrðum fyrir fyrirtæki í
hugbúnaðargeiranum. Eitt af því
sem menn voru að velta fyrir sér
var samkeppnisstaðan gagnvart fyr-
irtækinu Landssímanum og menn
eru á einu máli um að hún sé óvið-
unandi," segir Ingvar S. Kristins-
son, formaður Sambands íslenskra
hugbúnaðarfyrirtækja, en samband-
ið mun krefjast þess að Landssím-
anum verði skipt upp og þær deild-
ir hans sem eru í beinni samkeppni
við önnur fyrirtæki verði aðskildar
frá hinum.
IngvEir segir að Landssíminn, sem
er orðið hlutafélag, hafi í sjálfu sér
leyfi til að gera hvað sem er í dag,
hafandi yfir að ráða öllu dreifikerfi
upplýsingatækninnar. „Þeir ráða
öllum köplunum i jörðinni og öllu
dreifikerfinu um landið. Þeir hafa
jafnframt með að gera að þróa þjón-
ustu sem byggir á þessu kerfi. Það
geta aðrir gert líka en ætli þeir sér
ekki að byggja upp dreifikerfi við
hliðina á kerfi Landssímans verða
þeir að fara inn á dreifikerfi Lands-
símans eins og t.d. öll Internetfyrir-
tæki.
Menn sjá það auðvitað fyrir sér
að Landssíminn geti ,jarðað“ þessi
fyrirtæki, ef honum sýnist svo, með
því að lækka gjöld niður úr öllu
valdi til sinna notenda og við gæt-
um lítið gert. Þó er í lögunum gert
ráð fyrir því að það sé bókhaldsleg-
ur aðskilnaður mUli svokallaðrar
samkeppnisþjónustu og reksturs
grunnþjónustunnar.
Okkar krafa hlýtur þvi að vera sú
að búið verði til sérstakt fyrirtæki
um dreifikerfi og fjarskiptanet
Landssímcins sem yrði sett mjög
ströng samkeppnisskilyrði. Síðan
verði öll notendaþjónusta Lands-
símans skilin frá og þar með talið
GSM-kerfið. Þetta verði selt út úr
Landssímanum á verði sem mark-
aðurinn myndi sjá um að ákveða.
Ástandið eins og það er núna er al-
veg óþolandi," segir Ingvar Krist-
insson. -gk
Frjálslyndi flokkurinn:
Alltaf verið
frjálslyndur
- segir Sverrir
Frjálslyndi flokkurinn skulu
stjómmálasamtök Sverris Her-
mannssonar og samherja hans
heita. Stefnt er að
því að stofna flokk-
inn formlega í byrj-
un nóvember. Áður
höfðu verið uppi
hugmyndir um að
nefna samtökin
Lýðræðisflokkinn
en það nafn reynd-
ist þá skráð af öðr-
um.
„Ég er fijálslyndur og hef alla tíð
verið,“ sagði Sverrir um nafhgiftina
við DV í morgun. „Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur yfirgefið mig úti á
hægri eyðimörk í frjálshyggju og
skilið mig eftir.“
í dag verður kynnt fundaherferð
sem Samtök um þjóðareign munu
standa fyrir. Þá verður kynntur
rammi að stefnu hins væntanlega
stjórnmálaflokks. -JSS
Starfsmenn Sjón-
varpsins í átökum
Sverrir
Hermanns-
son.
Starfsmenn frá Sjónvarpinu lentu
í handalögmálum við húsráðanda í
Grafarvogi þegar þeir voru að
kanna hvort óskráð sjónvarp væri í
húsinu.
Húsráðandi ætlaði að varna
mönnunum inngöngu og lenti þeim
þá saman. Töluverð átök urðu á
milli mannanna og hlutust af ein-
hverjir áverkar og einnig skemmdir
á fótum. Starfsmenn Sjónvarpsins
hafa kært húsráðanda vegna átak-
anna. Málið er í rannsókn hjá lög-
reglu. -RR
Vinnuslys á Sultartanga:
TF-Líf sótti slasaðan mann
Vinnuslys varð í Sandafelli við
Sultartangavirkjun um kvöldmatar-
leytið í gær. Starfsmaður sem var
að vinna inni í göngum slasaðist
þegar grjóthnullungur féll að ofan
og lenti á honum. Talið var að
meiðsl mannsins væru alvarleg og
var þyrla Landhelgisgæslunnar, TF
LÍF, kölluð út.
Þyrlan flutti manninn á Sjúkra-
hús Reykjavíkur í gærkvöld. Að
sögn vakthafandi læknis á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur er maðurinn enn
á sjúkrahúsinu en meiðsl hans eru
ekki eins mikil og talið var í fyrstu.
-aþ
Nemendur úr Menntaskólanum viö Sund afhentu í gær Ástþóri Magnússyni,
forsvarsmanni Friöar 2000, jólapappír til aö Ástþór geti pakkaö inn jólagjöf-
um sem hann fer meö til bágstaddra í útlöndum um jólin. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Skýjað
með
köflum
Á morgun verður fremur hæg .
austlæg eða breytileg átt á land-
inu. Skýjað verður með köflum
en sums staðar dálítil súld við
ströndina. Hiti verður á bilinu 4
til 10 stig, mildast suðvestan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 37.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-22Q_nú
Islenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
n
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffanq: www.if.is/rafport
§ I
I#
TOBLIRONK'
dfdándur
ánægjimnar