Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1998, Blaðsíða 17
UV MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1998 inenning
Klassískt myndefni og klassísk uppbygging - en ekki er allt sem sýnist:
„Spegillinn" eftir Dag Fyri á sýningunni 80/90. Speglar samtímans.
Norsk og
alþjóðleg
Á laugardaginn var opnuð í Lista-
safni íslands stærsta yfirlitssýning
evrópskrar og bandarískrar sam-
tímalistar sem hér hefur verið hald-
in. Sýningin heitir 80/90. Speglar
samtímans og á henni er úrval
verka frá Museet for samtidskunst í
Ósló. Það er tíu ára í ár og heldur
upp á afmælið meðal annars með
því að sýna íslendingum hiuta af
fjársjóöum sínum. Sýningarstjór-
arnir tveir sem verkin völdu voru
Audun Eckhoff frá norska safninu
og Ólafur Gíslason frá Listasafni ís-
lands.
Á sýningunni eru málverk og
rýmisverk en einnig eru ljósmyndir
áberandi. Kom fram í máli norska
sýningarstjórans á blaðamanna-
fundi um sýninguna að umtalsverð-
ur hluti nýrra innkaupa til safnsins
þessi árin væru ljósmyndir - í sam-
ræmi við auki vægi þeirra í list-
sköpun samtímans. Rýmisverkin
eru þó mun áhugaverðari á sýning-
unni, til dæmis „Þegar þú pissar
undir“ eftir Pólverjann Miroslaw
Balka sem sækir titil sinn i setn-
ingu í skáldsögu James Joyce, A
Portrait of the Artist as a Young
Man. Veggverk Jannis Kounellis
með lýsandi olíulampa og súlur á
stólum eftir Mariu Serebriakovu
draga líka til sín augað við fyrstu
yfirferð, og ein ljósmynd situr fóst á
heilaberkinum, andlitsmynd af
konu eftir Marie-Jo Lafontaine með
textanum „Schmerz ist auch eine
Lust - Sársaukinn er líka nautn.
Verkin eru eftir listamenn víðs
vegar að en óneitanlega er aUsterk-
ur norrænn og jafnvel sér-norskur
svipur á sýningunni. Þar eru verk
eftir fleiri norska listamenn en eðli-
legt væri á sýningu sem raunveru-
lega væri alþjóðleg.. Audun Eckhoff
svaraði athugasemdum um þetta at-
riði með því að fullyrða að norsk
list væri sterk á alþjóðavettvangi og
staðfesti Þorgeir ðlafsson listfræð-
ingur að fleiri Norðmenn væru í
hópi þekktustu listamanna heims
en gerðist meðal annarra Norður-
landaþjóða. Ólafur Kvaran, for-
stöðumaður Listasafns íslands,
bætti því við að eitt af því sérstæða
við þessa sýningu væri að geta bor-
ið norræna listamenn saman við
heimsþekkta evrópska og banda-
ríska listamenn. Aöeins einn ís-
lenskur listamaður á verk á sýning-
unni, Ragna St. Ingadóttir sem er
búsett í Noregi.
Aðspurðir um innkaupastefnu
norska samtímalistasafnsins svör-
uðu Eckhoff og Per Bj. Boym, for-
stöðumaður safnsins, því til að þeir
fylgdust grannt með sýningum
heima í Noregi og reyndu að elta
uppi það mikilvægasta erlendis.
Þeir gerðu háar listrænar kröfur til
þess sem keypt væri inn, en auðvit-
að væri oft erfitt að ákveða hvað
væri mikil list. Viðmiðin væru
alltaf að breytast. „Listin er það sem
erfíðast er að verða sammála um,“
sagði Eckhoff. Oft setur verðlag á
listaverkum safninu líka stólinn
fyrir dyrnar, þó að safnið eigi nú
þegar nokkur verk í milljónadeild-
inni - og þá er átt við norskar millj-
ónir. Safnið fær 6 milljónir norskra
króna á ári til að kaupa listaverk
eða 60 milljónir ísl. kr. Til saman-
burðar má geta þess að Listasafn ís-
lands fær 12 milljónir ísl. kr. til
listaverkakaupa á ári en á þó að
sinna íslenskri listasögu frá upphafi
þar sem nörska safnið ber aðeins
ábyrgð á myndlist eftir 1945.
Sýningin 80/90. Speglar sam-
tímans stendur til 30. janúar
1999.
Ein af Ijósmyndum Cindy Sherman úr myndaröðinni „Untitled Film Stills".
Verö aðeíns:
W8H70
Verö aöeins:
W8H72
hmmI
TOMMU • BLACK LINE MYNDLAMPI
TOMMU • SUPER PLANAR BLACK LINE MYNDLAMPI
Góðir hátaiarar að framan
Sterio heyrnatólatengi
Nicam sterio magnari
Sjálfvirk stöðvaleitun
Fullkomin fjarstýring
leW-
Allar aðgerðir a skja
íslenskt textavarp
2 Euro scart tengi
S-VHS inngangur
BAÐlÚBM
Sími 553 1133
mfSmiMa
ENN MEIRI
VERDLÆKKUN
1972 -1997
17
UMBOÐSMENN AIWA UM l_AND ALLT: Reykjavík: Heimskringlan - Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla -Grindavík: Rafeindaþjónusta Guðmundar - Keflavík: Sónar-
Akranes: Hljómsýn - Borgames: Kaupfélag Borgfiröinga - Hellissandur: Blómsturvellir-Stykkishólmur: Skipavlk-Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi:
Rafeindaþjónusta Odds Sigurðssonar-Saudórkrókur: Skagfirðingabúð-Búðardalur: Verslun Einars StefánssonarBolungarvík: Vélvirkinn -ísafjörður: Frummynd
-Siglufjörður: Rafbær-Akureyri: Bókval/Ljósgjafinn-Húsavík: ÓmurVopnafjörður. Verslunin Kauptún-Egilsstaðír: Rafeind-Neskaupsstaður TónspilEskrfjörður
Rafvirkinn - Seyðisfjörður: Turnbræöur - Höfn: Rafeindaþjónusta BB - Hella: Gilsá - Selfoss: Radíórás - Þorlákshöfn: Rás - Vestmannaeyjar: Eyjaradfó
Þelr ílska sem róa... Þelr flska sem róa... Þelr ílska sem róa... Þelr
www.visir.is
FYRSTUR MEO FRETTIRNAR