Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1998, Síða 29
Kinverjar proa nyn vopn:
Gervitungl í hættu
- hægt að lama öll fjarskipti í gegnum gervihnetti
Alþýðuherinn í Kína er að þróa og
framleiða leysigeisla og önnur vopn
sem hönnuð eru til að eyðileggja
gervihnetti. Með slíkum vopnum
geta Kínverjar til dæmis komið í veg
fyrir njósnamyndatökur gervihnatta
og lagt venjulega sjónvarps- og fjar-
skiptagervihnetti i rúst. Þetta kom
fram í bandaríska dagblaðinu Was-
hington Times fyrir skömmu.
í skýrslu frá Pentagon, sem gerð
var af Öryggisnefnd Bandaríkjanna
kemur fram aö vopn af þessu tagi,
oft kölluð Asat, séu til þess gerð að
eyðileggja nema á könnunar- og
njósnagervihnöttum sem eru á spor-
baug um jörðu. Bandaríski herinn
notar fjöldann allan af slíkum gervi-
hnöttum, m.a. til að halda uppi fjar-
skiptum milli einstakra deilda hers-
ins. Jafhframt éru þeir nýttir til að
fylgjast með hernaðarbrölti annarra
þjóða eins og t.d. herflutningum og
eldflaugaskotum.
Að mati talsmanna leyniþjónustu
bandaríska hersins eru njósnahnett-
ir Bandaríkjamanna ekki vel búnir
til að standast árásir Asat-vopna.
Jafnframt munu slík vopn geta gert
mikinn usla í GPS-staðsetningarkerf-
Óábyrg ferðaþjónusta:
Hákörlum kennt að
veiða brimbrettafólk
Skipuleggjendur hákarlaskoðun-
arferða í þröngu sundi við Dyer-eyju
viö Höfðaborg í Suður-Afríku ýta
undir hákarlaárásir á ferðamenn og
brimbrettafólk. Þetta kemur ffam í
grein sem birt var fyrir skömmu í
timaritinu New Scientist.
Hákarlaskoðunin fer þannig fram
að ferðamennimir kafa í litlum búr-
um niður í sjóinn. Síðan lokka
skipuleggjendur ferðanna hákarlana
aö með þvi að setja brimbretti og
bamaleikfóng á flot fyrir ofan búrin.
Þetta eru margir hræddir við og
telja að með þessu sé verið að kenna
hákörlunum að þar sem fmna megi
brimbretti sé matur á næsta leiti.
„Þama er mögulegt að hákarlanir
læri að bráðar sé að vænta í hvert
sinn sem þeir sjá brimbretti," segir
George Burgess, hákarlasérfræðing-
ur við náttúruminjasafhið í Mórída.
„Einhvem daginn munu þeir finna
mannveru hinum megin við brim-
brettið.“
Þeir sem friða vilja hákarlana
biðja skipuleggjendur ferða sem
þessara að minnast ábyrgðar sinnar
og koma í veg fyrir slys sem gætu
orðið, sé ekki varlega að farið. Ekki
þarf nema eitt slys að henda til að al-
menningur telji hákai-lana vera
grimma morðingja sem þurfi að út-
rýma. Friðunarsinnar hafa unnið af
miklum móð að því að breyta þeirri
ímynd skepnanna.
Á siðustu 38 árum hafa einungis
verið tilkynntar 46 tilefhislausar
árásir stóm hvítu hákarlanna við
Suður-Afriku. Friðunarsinnar telja
að fjöldi slíkra árása muni fara vax-
andi vegna hegðunar hákarlaskoð-
ara. Yfirvöld í Suður-Afríku vita af
þessum vanda og settu þess vegna
tímabundið bann á hákarlaskoðun í
búram í ágúst síðastliðnum.
Hákarlafriðunarsinnar í Suður-Afríku eru óánægðir með framferði skipuleggjenda
hákarlaskoðunarferða.
Gervihnettir munu ekki eiga sjö dagana sæla ef til strfðs kemur milli Banda-
ríkjamanna og Kfnverja. Ný vopn munu sjá til þess að þeir komi ekki að
neinum notum.
inu sem notað er um allan heim við
leiðsögn flugvéla, skipa og annarra
farartækja.
Á síðasta ári tilkynnti Boris
Jeltsín, forseti Rússlands, í bréfi til
Clintons Bandaríkjaforseta að Rúss-
ar hefðu þróað Asat-vopn en væru
hættir allri vinnu við þau. Was-
hington Times hefur hins vegar eftir
háttsettum ónafngreindum manni
innan Bandaríkjahers að Banda-
rikjamenn hefðu ekki yfir slíkum
voprnnn að ráða. Jafnframt sagði
hann að þeim væri fullljós hættan
sem stafaði af hinum kinversku
Asat-vopnum.
Hvíta húsið gaf út skýrslu fyrir
skömmu þar sem rakin er stefna
Bandaríkjamanna í varnarmálum.
Þar kemur fram að Bandaríkjamenn
muni „hindra ógnun við hagsmuni
sína í geimnum. Ef hindranimar
koma ekki að gagni munu hin óvin-
veittu öfl verða sigruð svo Banda-
ríkjamenn hafi eftir sem áður
óhindraðan aðgang að geimnum."
HVER MÍNÚTA
FRÁ KL. 23 TIL 08
Á KVÖLD- OG NÆTURTAXTA
Dagtaxti er 73 kr./mín.
SIMINN