Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1998, Side 42
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1998
-»50
Afmæli
Margrét Bogadóttir
Margrét Bogadóttir, sérhæfður
starfsmaður við leikskóla, Fjarðar-
ási 12, Reykjavík, er fimmtug í dag
Starfsferill
Margrét fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Árbæjarhverfinu þar sem
áður voru svonefndir Árbæjarblett-
ir. Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla verknáms 1965 og
stundaði nám við Follo Folkehog-
skole í Vestby í Noregi.
Margrét hóf störf hjá Barnavina-
félaginu Sumargjöf, síðar Dagvist
bama, og starfaði þar á árunum
1969-78, starfaði í verksmiðjum Ála-
foss 1981-91 og hefur starfað hjá
Dagvist barna frá 1991.
Margrét var trúnaðarmaður
starfsfólks á vinnustað er hún starf-
aði hjá Álafossi og sat í stjórn Iðju,
félags verksmiðjufólks 1988-91.
Fiölskylda
Margrét giftist 15.6.
1968 Gísla Þór Þorbergs-
syni, f. 21.10. 1945, bif-
reiðarstjóra og fram-
kvæmdastjóra. Hann er
sonur Þorbergs Gísla-
sonar, verkamanns á
Ólafsfírði og í Reykjavík,
og Sofííu Magnúsdóttur,
húsmóður á Ólafsfirði en
þau era bæði látin.
Börn Margrétar og
Gísla Þórs eru Álfheið-
ur, f. 13.11.1968, húsmóð-
ir í Vík í Mýrdal, en maður hennar
er Arnar Þór Reynisson matreiðslu-
maður og eiga þau einn son, Ásgeir
Má, f. 2.11.1991; Herdís, f. 12.9.1970,
háskólanemi, maður hennar er Vil-
helm S. Sigmundsson, kennari við
MR, og eiga þau eina dóttur, Hrafn-
hildi, f. 26.12. 1993; Þorbergur, f. 1.3.
1974, starfsmaður hjá Islandia Inter-
Margrét Bogadóttir.
net, í foreldrarhúsum;
Svanborg, f. 6.4. 1978,
nemi við MH, í foreldra-
húsum.
Hálfbróðir Margrétar er
Björn Sævar Bogason, f.
28.6. 1937, bifvélavirki í
Reykjavík.
Fósturbróðir Margrétar er
Benedikt Bjarni Kristjáns-
son, f. 26.9. 1935, bifreiðar-
stjóri í Reykjavík.
Fóstursystir Margrétar er
Guðbjörg Ágústsdóttir, f.
31.3. 1952, starfsmaður við
Árbæjarskóla.
Foreldrar Margrétar: Bogi Sig-
urðsson, f. 27.8. 1906, d. 14.11. 1979,
kennari og framkvæmdastj. Sumar-
gjafar, og Álfheiður Bjamadóttir, f.
5.10. 1906, d. 23.8. 1953, saumakona.
Fósturforeldrar Margrétar voru
Ágúst Filippusson, f. 1.8. 1904, d.
11.2. 1995, húsvörður við Árbæjar-
skóla, og Svava Bjarnadóttir, f. 2.6.
1910, d. 16.9. 1989, matráðskona við
Árbæjarskóla.
Ætt
Ágúst og Bogi voru fósturbræður.
Þeir ólust upp hjá séra Vigfúsi Þórð-
arsyni og k.h., frú Sigurbjörgu
Bogadóttur, að Eydölum í Breiðdal.
Svava og Álfheiður voru systur,
dætur hjónanna Bjama Eyjólfsson-
ar og Margrétar Benediktsdóttur,
frá Hólabrekku á Mýrum í Horna-
firði. Önnur systkini Svövu og Álf-
heiðar voru Ingunn, Sigurbergur,
Torfhildur, Ásta, Margrét, Sigríður,
Eyjólfur, Ásta, Benedikt og Helga.
Álfheiður, dóttir Margrétar, verð-
ur þrítug á fostudaginn kemur. Þær
mæðgur taka á móti gestum í tilefni
afmælanna að Dugguvogi 12 föstu-
daginn 13.11. nk., kl. 19.30.
Fréttir
Keflavíkurflugvöllur:
Þattaskil i loftvornum
íslands og NATO
DV, Suðurnesjum:
Nýtt loftvarnakerfi á vegum At-
lantshafsbandalagsins, íslenska loft-
vamakerfið IADS sem Raytheon Sy-
stems hafði umsjón með smiði á,
var formlega tekið í notkun 5. nóv-
ember á Keflavíkurflugvelli. í tilefni
þess var sérstök afhöfn á flugvellin-
um. Þar voru viðstaddir fulltrúar
utanríkisráðuneytisins, NATO,
bandaríska fiughersins og flotans og
Vamarliðsins.
Fjórar ratsjárstöðvar, ratsjármið-
stöð og hugbúnaðarsetrið á Kefla-
víkurflugvelli er uppistaða kerfisins
auk öflugs samskiptabúnaðar sem
tengir saman einstaka þætti og
tengir það við önnur loftvarnakerfi
Atlantshafsbandalagsins. Við at-
höfnina má segja að þáttaskil hafi
orðið í loftvörnum íslands og NATO
en hér er um að ræða eitt fullkomn-
asta loftvarnakerfi í heiminum.
Heildarkostnaður við uppsetningu
þess er um 500 milljónir dollara eða
3,5 milljarðar ísl. króna.
Árið 1981 hófú Atlantshafsbanda-
INNKA UI?ASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkluvegi 3 - Pósthólt 878 -121 Reykjavík
Sími 552 58 0(f- Fax 562 26 16 - Nettang: 1sr@rvk.is
ÚTBOÐ
F. h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið „Mælaskipti".
Verkið felst í því að skipta um mæla á veitusvæði Hitaveitu
Reykjavíkur. Alls er um að ræða um 12.600 mæla. Verkinu skal lokið
fyrir 15. desember 2000.
Útboðið er opið fyrir alla pípulagningameistara sem hafa löggildingu á
veitusvæðinu.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar endurgjaldslaust.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 11.00 á sama
stað.
Bandarískir starfsmenn við loftvarnakerfið.
DV-mynd Arnheiður
hvr 114/8
F.h. Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í
þvottaþjónustu (þ.e. þvott og flutning á líni, fatnaði o.fl.) fyrir stofnanir og |
fyrirtæki Reykjavíkurborgar. Um er að ræða þvott á: moppum,
handklæöum, klútum, mottum, dúkum, vinnufatnaði og öðru tilfallandi.
Fjöldi afhendingarstaða verður u.þ.b. 180.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 24. nóvember 1998 kl. 11.00 á sama stað.
isr 115/8
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræöings er óskað eftir tilboðum í
loftræstikerfi í félagshús Þróttar í Laugardal.
Útboðsgögn fást frá og með þriðjud. 10. nóv. nk. gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 26. nóvember 1998 kl. 11.00 á sama
stað.
bgd 116/8
lagið og bandaríski flugherinn, sem
sá um rekstur ratsjárstöðva Vama-
liðsins, endurbætur á íslenska loft-
varnakerfinu vegna varnarskuld-
bindinga bandalagsins á Norður-
Atlantshafi og var fyrsti þáttur þess
stafræn tenging einstakra þátta
kerfisins. Árið 1987 var síðan gert
samkomulag milli íslands og Banda-
ríkjanna um að íslenskir tækni-
menn skyldu hafa umsjón með
tæknilegu viðhaldi á búnaði ratsjár-
stöðvanna. Til að annast þennan
þýðingarmikla þátt var Ratsjár-
stofnun stofnuð og íslendingar tóku
við af liðsmönnum Vamaliðsins.
Smíði fiögurra nýrra ratsjár-
stöðva var annar þáttur þess að end-
urnýja loftvamarkerfið, tveggja á
norðanverðu landinu og tveggja í
stað gamalla stöðva á Stokksnesi og
á Miðnesheiði og þær búnar ratsjám
af fullkomnustu gerð. Þá skyldi
reist ný ratsjárstöð og hugbúnaðar-
ver á Keflavíkurflugvelli. Árið 1995
hófst uppsetning tækjabúnaðar og
þjálfun starfsmanna flughersins,
Ratsjárstofnunar og Kögunar hf.
Ratsjárstöðvarnar tengjast kerfinu
um ljósleiðarakerfi Landssíma ís-
lands. Loftvarnasveit bandaríska
flughersins sem í em 932 liðsmenn
hefur þar eftirlit með umferð um
loftvamasvæði landsins.
Ratsjármerki eru einnig send til
flugstjómarmiðstöðvarinnar í
Reykjavík þar sem þau nýtast til al-
mennrar flugumferðarstjómar og
öryggisaðskilnaðar. Starfsmenn
Ratsjárstofnunar annast rekstur rat-
sjárstöðvanna en Kögun hf. sér um
viðhald hugbúnaðar íslenska loft-
vamakerfisins.
Hl hamingju
með afmælið
85 ára
Ólafur J.
Ólafsson
endurskoðandi,
Dalbraut 20,
Reykjavík.Hann
er að heiman.
Guðmundur
Ingimundarson,
Garðabraut 43, Garði.
Njáll B. Bjamason,
Þingvallastræti 10, Akureyri.
Jóhann Adolf Oddgeirsson,
Ægissíðu 13, Grenivík.
80 ára
Anna Gunnlaugsdóttir,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
Guðlaug Stefánsdóttir,
Búðagerði 3, Reykjavík.
Hulda Jóhannsdóttir,
Hjallabraut 2, Hafnarfirði.
75 ára
Magnús Pálsson,
Hraunbæ 164, Reykjavík.
Rannveig Margrét
Jónsdóttir,
Fannborg 8, Kópavogi.
Kristjana Þorgrímsdóttir,
Sigtúni 32, Selfossi.
70 ára
Kristín Gunnlaugsdóttir,
Sólheimum 23, Reykjavík.
Unnur Marteinsdóttir,
Nesbakka 15, Neskaupstað.
60 ára
Aðalheiður
Guðbj ömsdóttir,
Hólastekk 8, Reykjavík.
ívar Geirsson,
Holtagerði 1, Húsavik.
Sighvatur Eiríksson,
Miðengi 13, Selfossi.
50 ára
Sigurður Guðmundsson,
Kárastíg 2, Reykjavík.
Björk Kristjánsdóttir,
Brekkutúni 6, Kópavogi.
Gunnlaugur Einarsson,
Holtsbúð 3, Garðabæ.
Hafsteinn Halldórsson,
Hjallabraut 66, Hafnarfirði.
Elísabet Ögmundsdóttir,
Grundarstíg 6, Sauðárkróki.
Stefán Jóhannsson,
Ægissíðu 34, Grenivík.
40 ára
Helga Þorvaldsdóttir,
Hverfisgötu 59, Reykjavik.
Þórður Rúnar Stefánsson,
Seilugranda 2, Reykjavík.
Valrós Sigurbjömsdóttir,
Tómasarhaga 37, Reykjavík.
Björg Lárusdóttir,
Dalhúsum 103, Reykjavík.
Halldóra Þormóðsdóttir,
Garðhúsum 36, Reykjavík.
Hildigunnur Gunnarsdóttir,
Bollagörðum 97,
Seltjarnamesi.
Sigríður Einarsdóttir,
Hlíðarbyggö 43, Garðabæ.
Stefán Þór Sigurðsson,
Vesturgötu 142, Akranesi.
Sigríður Elva Ólafsdóttir,
Eyrargötu 8, Siglufirði.
Kjartan Rúnar Busk,
Reykjamörk 2 B, Hveragerði.
Guðný Bogadóttir,
Heiðarvegi 43, Vestm.
Þelr flska sem róa... Þelr flska sem róa... Þelr flska sem róa... Þelr
www.visir.ts
BYHSTUfi .McO fHíTI IfifMB