Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Qupperneq 24
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 JjV » iupgt fólk :k "í . ins og hver nnar saltfiskur • Auður Jónsdóttir hefur nýlega sent frá sér skáldsöguna Stjóm- laus lukka. Eins og margir ef- laust vita er stúlkan barnabam Halldórs Laxness en hann er klárlega sá rithöfundur sem á hvað sterkust ítök í þjóðarsál- inni. Var ekki erfitt að fara að skrifa, þar sem hún gat búið sig undir að fólk ætti von á stórkost- legu kraftaverki? Verandi barna- bam H.K.L.? „Ég hefði getað hugsað þannig en forsendumar vom allt aðrar. Það var enginn hátíðléiki í kring- um þetta og ekki eins og ég sæti uppi á Gljúfrasteini og hugsaði; Jæja ég er barnabarn Halldórs Laxness og því er mér hollast að fara að skrifa. Eða þá að afi stæði yfir mér segjandi; ,jæja bam, á ekkert að fara að skrifa?“ Ætli það séu ekki rithöfundar innan allra fjölskyldna og ætli ég væri ekki alveg jafn glaðskrifandi þó að afi minn héti Jói Jóns. Fjöl- skylda mín kippir sér líka lítið upp við þetta. Fyrir henni er þetta nátt- úrlega eins og hver annar saltfisk- ur.“ Þú gefur út hjá Máli og menn- ingu. Stundum er talað um að það sé erfitt fyrir höfunda að komast að hjá þeim. Heldurðu að þú hafir kannski verið valin vegna gen- anna? „Nei, guð minn góður, ég held að þeir myndu nú ekki gera mér þann óleik. Þá held ég líka að þeir ættu frekar að senda mig upp í íslenska erfðagreiningu eða eitthvað," segir Auður og hlær. „Ég fór bara fyrst í Mál og menningu með það sem ég átti til. Þeir hafa marga höfunda á sínum snærum og vita jafnframt vel að þeir verða að hafa augun opin og hafa mikla breidd í vali sínu á höfundum. Ætli ég hafi ekki passað inn í það.“ Auður segist hafa verið vestur á Flateyri þegar hún byrjaði að skrifa bókina og það hafi bara ver- ið almennt aðgerðarleysi sem kom því af stað. „Það er lífsreynsla að vera fyrir vestan en það getur líka verið þrúgandi," segir Auður. „Ég varð mjög samdauna umhverfinu; ætlaði að vera í sex vikur en var í ár og gifti mig með klukkutíma fyrirvara hjá sýslumanninum á ísafirði. Núna er ég fráskilin að vestan. Þetta var náttúrlega ung- æðisháttur en það hafa víst allir leyfi til þess að gera sín bemsku- brek.“ Bókin Stjórnlaus lukka fjallar um mæðgur sem einmitt búa fyrir vestan. Þeirra samskipti eru rauði þráðurinn í bókinni, auk þess sem stelpan veltir fyrir sér fólkinu í bæjarfélaginu og lífshlaupi þess. „Þó að ung stúlka sé sögumaður, þá er hún að stúdera sér mun eldra fólk og því er bókin alls ekki bara fyrir lesendur á aldrinum 18-26,“ segir Auður. En er sagan byggð á raunveru- legum persónum sem þú hittir fyr- ir vestan? „Ég skrifaði Flateyringa ekki niður svona eins og þeir koma af kúnni en auðvitað sér maður alltaf eitthvað i fólki sem maður getur ekki stillt sig um að grípa og nota í sögu.“ Og Auður er staðráðin í því að halda áfram sömu iðju. Hún segist vera með hugmynd í kollinum að nýrri bók en það sé allt leyndarmál enn þá og hún lítið byijuð að vinna hana. Nú er nefnilega nóg að gera. En er ekki stressandi að standa i þessu ati í kringum hátíöimar í fyrsta sinn? „Nei, frekar er það bara gaman. Ég held líka að það borgi sig ekki að standa í þessu nema maður hafi skemmtun af því. Það þýðir ekkert að vera að naga á sér neglumar og bíða eftir dómum eða sölutölum og vera í slagsmálum við hina imgu höfundana. Verkin eiga líka að tala sínu máli, annaðhvort blífa þau eða blífa ekki og þannig verð- ur það að vera.“ -þhs Að í bók sinni Góðir íslendingar segir Huldar Breiðfjörð sögu af ferðalagi í svartasta skammdeginu. Huldar tók sig nefnilega upp frá höfuðborginni í vetur og ákvaö að fara í ferð til að kynnast þeim góðu íslendingum sem byggja landið. Á ferðum sínum hélt hann dagbók sem hann skrifaði aðal- lega í vegasjoppunum og í Lappland- erjeppanum, eða þar sem hann haíði næturstað hverju sinni. Þegar hann kom í bæinn vann hann síðan úr dag- bókinni og skrifaði ferðasögu. En er hann ekki bara að gera grín að landsbyggðinni? „Alls ekki,“ segir Huldar. „Eini maðurinn sem gert er grín að í bók- inni er ég sjálfur og það er gert í mikl- um mæli. Ég geri ekki grín að lands- byggðinni en er hins vegar nokkuð hreinskilinn og ekki að fegra eitt eða neitt.“ Af hveiju hélstu dagbók? „Þegar ég fer í löng ferðalög, sem ég hef gert oft, þá hef ég alltaf haldið dag- bækur. Af mörgum ástæðum. Það er eins og að hugsa upphátt. Þú kemur hlutum á hreint sem hafa velkst í koll- inum á þér allan daginn. Notar dag- bókina sem einhvers konar tæki til þess að vinna úr ferðalaginu. Ég fann þegar ég kom til baka að mér fannst mjög gott að halda áfram að skrifa söguna, því ég var líka að gera upp ferðalagið, klára pælingarnar sem höfðu sótt á mig.“ En hvers vegna stendurðu í því að skrifa, svona yfirhöfuð? „Ég get ekki svarað því hvers vegna ég skrifa. Ég get ekki neglt niður ástæðuna og mér hefur ekki einu sinni dottið það í hug, skriftirnar eru bara partur af þessu öllu saman. Ef- hligsa Upphátt laust er þetta einhver þörf, en ég fmn lítið fyrir henni. Þaö kemur ekki yfir mig sú tilflnning að ég verði að skrifa, heldur sest ég bara niður og fer að skrifa. Aðalástæðan er auðvitað sú að mér finnst það gaman.“ í bókinni talarðu stundum um gamla Huldar og nýja Huldar. Ertu nýr og betri maður eftir landsbyggð- arreisuna? „Ég held að ég hafi ekki áttað mig á tilgangi lífsins í ferðinni og ég kom ekki heim gerbreyttur maður. Svona feröalag er þó afskaplega hollt, því ferðalag er líka hugarástand. Þú setur í ákveðinn gír og hugsar öðruvísi og verður krítískari bæði inn á við og út á við. Ég vil samt frekar trúa því að ég verði nýr og betri maður hvem dag sem líður, ekki bara dagana sem ég var á ferðalaginu." En gætirðu hugsað þér að flytja út á land? „Nei, ég gæti ekki hugsað mér að flyfja út á land á morgun, í næstu viku eða næsta mánuði, frekar en ég gæti hugsað mér að flytja í Garðabæ- inn. í framtíðinni gæti ég þó alveg hugsað mér að búa úti á landi. Þang- að væri ég náttúrlega að sækja helstu kosti landsbyggðarinnar: ró og frið. En eins og flest ungt fólk vil ég frekar vera í stuðinu." Huldar segir að það sé góður mórall meðal yngri höfundanna og honum lítist ágætlega á það sem hinir era að gera. „Það er enginn að reyna að hrinda öðrum niður stiga og ég held, góðu heilli, að hópurinn sé tiltölulega laus við skáldaöfund og skítamóral." En ætlarðu að halda áfram að skrifa? „Já, ég held áfram að skrifa hvort sem það verður kvikmyndahandrit ir og hef áhuga á að gera meira af eða bók sem ég skrifa næst. Ég hef því.“ mjög gaman af að fást við kvikmynd- -þhs .. í prófíl Jón Atli Jón- asson, Rödd Guðs á X- inu, er í prófíl DV Fullt nafn: Jón Atli Jón- asson. Fæðingardagur og ár: 15. desember 1972. Maki: Engin. Böm: Daniella Saga Jóns- dóttir. Starf: Rödd Guðs. Skemmtilegast: Að lesa. Leiðinlegast: Óskalaga- sjúklingar. Uppáhaldsmatur: Lamba- kjöt af nýslátruðu. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Fallegasta manneskjan (fyrir utan maka): Konan með spjótið í Séð og heyrt. Fallegasta röddin: Þossi. Uppáhaldslíkamshluti: Raddböndin. Hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni: Vil ekki tjá mig um það. Með hvaða teiknimynda- persónu myndir þú vilja eyða nótt: Ren eða Stimpy. Uppáhaldsleikari: Eggert Þorleifsson. Uppáhaldstónlistarmað- ur: Optical.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.