Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Side 29
I>V LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 mig að ljóðum annarra. Þá hef ég lesið ljóðið og tekið tillit til þess. En mér þykir líka gaman að því að sitja við píanóið og setja saman fallega hljóma og þá vant- ar mig ljóðskáld sem lagar sig að lögum minum og semur við þau ljóð. Ég hafði ágæta konu í stóln- um hjá mér sem sagði mér að maðurinn hennar, sem líka var sjúklingur minn, væri textahöfundur. Þar var Ari Harðarson kom- inn.“ Heimir og Ari hófu sam- starf og afraksturinn má heyra á geislaplötunni Sól í eldi, sem nýlega er kom- in út. Með þeim á plötunni er heill herskari lista- manna á horð við Guð- rúnu Gunnarsdóttur, Siggu Beinteins, Egil Ólafsson, Björgvin Hall- dórsson, Ara Jónsson og Diddú. Viðtökur hafa verið mjög góðar, þegar hafa selst yfir 2000 eintök. Hluti ljóðanna er saminn af skáldum á borð við Tómas Guðmundsson, Davíð Stef- ánsson, Heiðrek Guð- mundsson og Jón Óskar. Ari semur hinn hlutann, en lögin eru öll eftir Heimi. „Platan er fjöl- breytt og á henni ættu all- ir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta er eng- in bítplata, en það er alveg mögulegt að byrja og enda partí á henni," segir Heim- ir að lokum. -þhs 29 ek. 130 þús. km, vél V-6, 3800cc, ssk., gullsanseraður, rafstillt leðursæti, cruise control, air condition, nýir demparar, mjög gott lakk. Gullfallegur amerískur. Skipti möguleg. Verð 1.640.000 £g>TOYOTA sími 563 4450 Nýbýlavegi 4-8 • Kópavogi wwwvisir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Heimir Sindrason er liðtækur í fleiru en tannlækningum. Hann hefur nú ný: lega gefið út geislaplötuna Sól í eldi, þar sem hann nýtur aðstoðar fjölda listamanna. DV-mynd Fann skáldið í stólnum Hver kannast ekki við lag Heimis Sindrasonar við ljóð Tómasar Guð- mundssonar, Hótel Jörð? Slíkum vinsældum hefur lagið náð að litlu er bætt við þegar sagt er að þjóðin öll þekki það og kyrji á viðkvæmum stundum og öðrum. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Heimir segir að lagið sanni að hægt sé að semja lög þó að maður sé heyrnarlaus, eins og sagt er að Beet- hoven hafi gert. „Ég var í sumar- afleysingum í Áburðarverksmiðj- unni, þar sem svo mikill hávaði var í vélum að maður heyrði ekki í sjálf- um sér, en ég samdi þar lagið við þetta fagra Ijóð Tómasar. Mig óraði ekki fyrir því að það yrði svona vin- sælt. Ég man að Jón Ásgeirsson, sá er samdi lagið við Maístjörnuna, svaraði þessu einhvern tíma i við- tali og sagði það sama, það væri heldur engin leið að vita fyrir fram hvað gengi í fólk, og ég er hjartan- lega sammála því, mér datt þetta aldrei í hug.“ En það voru ekki allir hrifnir af laginu. „Nei, Helgi Hálfdanarson vildi láta banna lagið, þar sem hrynjandi kvæðisins væri ekki rétt,“ segir Heimir. „En hvorki Rík- isútvarpið né þjóðin tóku það í mál. Seinna söng Egill Ólafsson lagið inn á plötu og þá breyttum við og betrumbættum og fengum að laun- um þakklæti Helga, en einhvern veginn er það upprunalega útgáfan sem fólk vill heyra og þess vegna hef ég hana á plötunni." En semurðu þegar þú ert að bora? „Já, ég hef gert það, og ég hitti líka fólk sem ég hef síðar unnið með. Mig vantaði til dæmis skáld, vegna þess að ég er alltaf að laga Hið nýja, glæsilega einbýlishús Fannafold 215 stendur öllum opið á morgun, sunnudag, frá kl. 14:00 til 18:00. Verðið kemur á óvart - aðeins 20 m. Nánari upplýsingar veitir Friðþjófur K. Eyjólfsson í símum: 896 2479 og 568 7999. Allar lagnir, vökvahraðtengi aftan og framan, gaflar fyrir hraðtengi, 40, 60 og 90 cm skóflur. Verð kr. 4 millj,- án vsk. í toppstandi, nýtt lakk, vökvalagnir, 25 og 55 cm skóflur. Verð kr. 1.750.000,- án vsk. Gúmmíbelti, vökvalagnir og slétt skófla, 85 cm. Verð kr. 1.650.000,- án vsk. Hraðtengi framan, vökvalagnir, 55 cm skófla. Verð kr. 2.150.000,- án vsk. Yfirfarin, servo, 90 cm skófla. Verð kr. 1.200.000,- án vsk. y KRAFTVtlAR Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogi s:535 3500/fax 5353519 e-mail peturi@kraftvelar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.