Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Blaðsíða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Blaðsíða 72
FRÉTTASKOTI0 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 Húsavíkurbær: Ihugar að kæra Flugfé- lag íslands DV, Akureyri: Reinhard ^'•jReynisson. Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, segir aö bæjaryfirvöld muni ihuga hvort þau fari í málarekstur gegn Flugfélagi ís- lands vegna þess að Flugfélagið get- ur ekki staðið við þriggja ára samn- ing sem aðilar gerðu um sam- starf þar sem fé- lagið hætti flugi til Húsavíkur. Um var að ræða verkefnið „Gjugg í bæ“ og samþykkti Húsavíkurbær að greiða Flugfélaginu 500 þúsund krónur á ári í þrjú ár vegna þess. „Það var gerður þriggja ára samningur um markaðssetningu Húsavíkur og Flugfélagið stóð ekki við síðasta hluta samningsins og við erum að skoða réttarstöðu okkar gagnvart þessum samningi. Við vor- um búnir að borga tvo þriðju framlag- anna, ekki fyrir yfirstandandi ár, en í svona langtímaverkefni er afrakstur- inn hugsanlega að skila sér á síðasta hlutanum. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um málaferli en ég útiloka ekki aö svo verði,“ segir Reinhard Reynisson. -gk „ Keflavík: Ospektir á skólaballi Talsverðar óspektir voru meðal nokkurra ungmenna á skólaballi Fjölbrautaskóla Suðumesja í Stapa í fyrrinótt. Lögregla var kölluð á vettvang og voru þrír piltar fluttir á lögreglustöðina í Keflavík. Þeir gistu fangageymslur um nóttina en var sleppt í gær. -RR SYLVANIA TOBLlEONil "Ifátindw' ánæg.jumiar 25. flokksþing Framsóknarflokksins hófst á Hótel Sögu í gær. Hér má sjá.f.v.: Unni Stefánsdóttur gjaldkera, Ingi- björgu Pálmadóttur ritara, Guðmund Bjarnason varaformann og Halldór Ásgrímsson formann að störfum í gær- morgun. Varaformannskjör setur mjög svip sinn á þingið en þar takast á þau Siv Friðleifsdóttir og Finnur Ingóifs- son. Bls. 4. DV-mynd Pjetur Málverkið Andlit eftir Gunnar Örn myndlistarmann. Verkinu var stolið úr anddyri veitingahússins í Munað- arnesi f ágúst sl. Gunnar Örn: Málverki stolið Málverkið Andlit eftir Gunnar Öm var tekið ófrjálsri hendi á sýningu hans í ágúst sl. „Það var sumarsýning á verkum minum í anddyri veitingahússins í Munaðarnesi. Málverkið hvarf úr hús- inu einhvem tímann í ágúst. Ætli við- komandi hafi ekki hrifist af myndinni en það er þá vafasamur heiður að láta stela af sér mynd. Ég vorkenni þeirri manneskju sem þarf að hafa stolið mál- verk hangandi uppi á vegg hjá sér,“ segir Gunnar Öm, myndlistarmaður og menningarverðlaunahafi DV. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar verkið er nú em vinsamleg- ast beðnir að láta vita í síma 487 6554. Fundarlaunum er heitið. -RR Stjórn Samtaka um þjóðareign vill ráða forystu Frjálslynda flokksins: Sverri ýtt til hliðar Ólga er komin upp hjá aðstand- endum Frjálslynda flokksins, rúmri viku áður en flokkurinn er formlega stofnaður. Sverri Her- mannssyni er ýtt til hliðar af stjórn Samtaka um þjóðareign. Átakafundur var haldinn í fyrrakvöld i húsnæði Samtaka um þjóðareign að Brautarholti 4. Þar mætti 10 manna stjórn samtak- anna auk Sverris Hermannsson- Sverri var gerð grein fyrir að ekki væri æskilegt að hann leiddi ílokk- inn en hann væri eigi að síður vel- kominn í framboð á vegum hans. „Þetta er lýðræðisflokkur og þvi allir í framboði. Ég gef kost á mér til formanns," svaraði Bárður Hall- dórsson, formaður Samtaka um þjóðareign, þegar DV hafði sam- band við hann í gær vegna ágrein- ingsins. Um næstu helgi verður Frjáls- lyndi flokkurinn stofnaður og hon- um kosin forysta. Fyrirfram var talið að Sverrir Hermannsson yrði formaður. DV hefur heimildir fyrir þvi að innan stjómar Sam- taka um þjóðar- eign þyki óþægi- legt að Sverrir eigi að leiða flokkinn vegna skoðana hans. Skilja þurfi á milli hans og samtakanna. Þó hefur Sverrir full- an stuðning manna að fara í fram- boð á Vestfjörðum og vægi hans sem stjórnmálamaður er viður- kennt. Sverrir Hermannsson staðfesti það í gær að stjóm Samtaka um þjóðareign hefði hafnað að eiga sam- starf við sig og sína fylkingu. Hann lagði áherslu á að þar væri aðeins um stjómina að ræða, ekki almenna félaga. Aðalfundur í sömu samtökum hefði fyrir stuttu síðan einróma sam- þykkt að ganga til liðs við sig og sitt fólk og ganga til framboðs. Bárður Valdimar Halldórsson. Jóhannesson. Blaðið hefur fregnað að Bárður Halldórsson formannsefni hafi rað- að upp tillögu að stjóm Frjálslynda flokksins. Hann vill hafa Pétur Ein- arsson, fyrrverandi flugmálastjóra, sem varaformann og Valdimar Jó- hannesson, fyrrverandi blaðamann, sem ritara. Með í hópnum em líka Guðmundur Ólafsson hagfræðing- ur, Stefán Erlingsson stjómmála- fræðingur og fleiri. „Stofnfundurinn okkar verður haldinn 28. nóvember og þið eruð velkomnir á fundinn en um þetta mál get ég ekki rætt að sinni,“ sagði Sverrir Hermannsson í samtali við DV. - Þið haldið ykkar striki með framboð Frjálslynda flokksins? „Ja, hérna, maður minn. Þó það nú væri!“ „Við teljum ekkert síður að Sverrir sé að koma til liðs við okk- ur en við við hann. Ég hóf þessa baráttu fyrir tveimur áram síðan og fór í mál við sjávarútvegsráðherra til að fá hnekkt synjun hans á að ég fengi að veiða fisk eins og allir ís- lendingar ættu að hafa jafnan rétt til. Sverrir byrjaði ekki í þessu máli fyrr en í vor. Á stofnfundinum okk- ar munum við kjósa lýðræðislega, kannski verða margir í kjöri,“ sagði Valdimar Jóhannesson, einn fram- kvöðla að Samtökum um þjóðar- eign, í gær. Hann sagði að í fyrra- vetur hefði verið unnið við gerð stefnuskrár flokksins löngu áður en Sverrir kom til sögunnar. Aðalfund- urinn í október hvatti félagsmenn til að ganga til stofnunar flokksins. -JBP Sverrir Hermannsson. Veðrið á morgun: El og slydduél Á morgun, sunnudag, verður norðaustankaldi eða stinningskaldi og él norðan til en slydduél sunnanlands. Léttir til um vestanvert landið síð- degis. Víða verður vægt frost en hiti kringum frostmark við suðurströnd- ina. Veðrið á mánudag: Hlýnandi veöur Á mánudag verður allhvöss suðaustanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands en fremur hæg austlæg átt og þykknar upp á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 73. /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.