Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Side 11
JÖ5 V ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
Skemmtilegt
að togast á
Menningarverðlaun
DV verða veitt í 21. sinn
þann 25. febrúar næst-
komandi og að venju
hafa nefndir tekið til
starfa í sjö listgreinum.
Framboðið á menningar-
viðburðum er svipað frá
ári til árs, þó hafa menn
á tilfínningunni að það
aukist heldur í flestum
greinum.
Gífúrleg gróska var í
tónlistarlífinu að sögn
Jónasar Sen og verður
virkilega erfitt að halda
sig við fimm tilnefning-
ar. „Talsvert var frum-
flutt af verkum eftir ís-
lensk tónskáld og sem
dæmi um sjaldgæfan
merkisviðburð má nefna
að pianókonsert eftir Atla Heimi
Sveinsson var frumfluttur. Það er
ekki á hverjum degi sem slíkt gerist
hér á landi,“ sagði Jónas.
Árið var líka ágætt að mati kvik-
myndanefndar, þrjár bíómyndir og
fjöldi stuttmynda, bæði í bíó og
sjónvarpi. „Svo eigum við eftir að
athuga hvort eitthvert af sunnu-
dagsleikritum sjónvarpsins kemur
til greina,“ sagði Hilmar Karlsson.
„Það er sannarlega af mörgu að
taka,“ sagði Auður Eydal, „en þó
verð ég aö viðurkenna að topparnir
eru færri en undanfarin ár. Menn
tóku ekki mikla áhættu í leikhúsun-
um á síðasta ári, verkefnavalið var
hefðbundið og fyrirsjáanlegt.
Kannski hafa menn verið að hvíla
sig um stund eftir óróa undanfar-
inna ára.“
- Að hverju beinist þá athyglin?
„Að leikstjórum og stökum leik-
urum fyrst og fremst.“
Bókmenntanefnd er að lesa á
Leiklistarhópurinn flutti sig út í frosthörkuna meðan ÞÓK
smellti af: Auður Eydal, Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir
og Hávar Sigurjónsson funda um leiklistarviðburði árið 1998.
DV, Andri Snær Magna-
son rithöfundur og Frið-
rika Benónýs bók-
menntafræðingur.
Byggingarlist
Dr. Maggi Jónsson
arkitekt, Guðmundur
Jónsson arkitekt og Júlí-
ana Gottskálksdóttir list-
fræðingur.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur, Áslaug
Thorlacius, myndlistar-
maður og gagnrýnandi
DV og Elísa Björg Þor-
steinsdóttir listfræðing-
ur.
ekkert er skemmtilegra en að togast
á um hlutina."
Hér á síðunni sjást þau sem nú
togast sveitt á um hverjir hafi skar-
að fram úr í íslenskri menningu
árið 1998. í byrjun febrúar verður
farið að segja frá hverja þau til-
nefna til verðlauna. -SA
Leiklist
Auður Eydal, gagnrýnandi DV,
Hrafnhildur Hagalín Guðmunds-
dóttir leikskáld og Hávar Sigurjóns-
son leikhúsfræðingur.
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir, bók-
menntafræðingur og gagnrýnandi
Tónlist
Jónas Sen, tónlistarmaður og
gagnrýnandi DV, Runólfur Þórðar-
son verkfræðingur og Halldór Har-
aldsson píanóleikari.
Listhönnun
Torfi Jónsson leturhönnuður,
Eyjólfur Pálsson innanhússarkitekt
og Baldur J. Baldursson innanhúss-
arkitekt.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson, gagnrýnandi
DV, Baldur Hjaltason forstjóri og
Inga Björk Sólnes, framkvæmda-
stjóri Kvikmyndaskóla íslands.
Leiklist
Hrafnhildur Hagalín Hávar Sigurjónsson.
Guðmundsdóttir.
fullu og Sigriður Albertsdóttir var
ekki frá því að meira væri að lesa
nú en undanfarin ár. Og margt af
því merkilegt og spennandi. „Bæði
gáfu margir af okkar viðurkenndu
höfundum út bækur í fýrra og svo
eru margir nýir höfundar. Venju-
lega reynum við að skipta með okk-
ur verkum en nú eru óvenjulega
margar bækur sem við verðum öll
að lesa.“
- Er þá gott samkomulag í nefnd-
inni?
„Njaah,“ segir Sigríður og dregur
seiminn, „það er satt að segja svolít-
ið tvísýnt með samkomulagið! En
Auður Eydal.
Fjörleikir og angistarkvein
Framlag Blásarakvintetts Reykjavíkur til Myrkra
músikdaga voru tónleikar sem haldnir voru í samvinnu
við menningarmiðstöðina Gerðuberg síðastliðinn laugar-
dag. Á efnisskránni voru 5 verk, sem öll nema eitt höfðu
verið flutt áður þótt þau væru öO jafnný í eyrum gagn-
rýnanda.
Tónleikamir hófust á Expromtu eftir Pál Pampichler
Pálsson, en fyrir það hlaut hann verðlaun í tónsmiða-
keppni i Graz í júni 1997. Verkið er upphaflega samið fyr-
ir fiðlu og píanó og byggir á
Impromtu í B dúr eftir Schubert þó
þau tengsl séu ekki beint augljós við
fyrstu heyrn. En áheyrendavænt er
það, líkt og verkið sem það byggir á,
og hljómaði vel í meðfórum kvin-
tettsins. Það geröi líka næsta verk,
Fjörleikur eftir Jón Ásgeirsson, splunkunýtt verk og sér-
staklega samið fyrir kvintettinn. Það er í þremur köflum:
„Fjörleikur" sem ber nafn með rentu, „Hrynlaust milli-
spil“ sem er hægur hljómakafli og „Snertla-stilla-stefja"
sem er sérlega skemmtilegur kafli með glæsilegri 5 radda
fúgu rétt í lokin. Greinilega hefur ekkert verið til sparað
við gerð verksins sem er afar vandaö að allri uppbygg-
ingu og flutningur kvintettsins í fullu samræmi við það.
Næst kom verk eftir Diana Burrell sem er bresk og vel
virt i sinu heimalandi. Verkið sem hún kallar einfaldlega
blásarakvintett er samið árið 1990 og er í tveimur þátt-
um. Sá fyrri er hektískur í byxjun með hálfgeröum ang-
istarkveinum klarinetts, flautu og óbós, en sá síðari hæg-
Tónlist
Amdís Bjöik Ásgeirsdóttir
ur, sem hlýtur að reyna á þolrif flytjenda ekki síður en
áheyrenda og þrátt fyrir fágaðan flutning virkaði hann
allt of langur þannig að við lá að maður varpaði öndinni
léttar þegar hann var loks búinn.
Elsta verkið á efnisskránni var Tónlist fyrir tréblást-
urshljóðfæri eftir John Cage frá 1938. Skemmtilegt verk í
þremur yndislega stuttum köflum; sá fyrsti tríó, ryt-
hmískur og vel útfærður af Einari Jóhannessyni, Bern-
harði Wilkinssyni og Hafsteini Guðmundssyni, dúó-þátt-
urinn allur mýkri og sömuleiðis vel
leikinn af þeim Joseph Ognibene og
Daða Kolbeinssyni, þriðja þáttinn
léku þeir svo allir saman og gerðu
það ágætlega þó að smá þreyta hafi
___________________verið farin að gera vart við sig -
enda voru þeir búnir að spila lát-
laust i klukkustund. Það hefði farið betur á því að hafa
hlé en engin tök voru á því vegna málþings um Jón Leifs
sem hófst strax eftir tónleikana, eða sleppa einu verki (þá
kannski kvintetti Burells).
Að lokum lék kvintettinn þrjár þjóðlagaútsetningar
eftir Jón Leifs, Hestavisur og Fuglavísur, sem Páll P.
Pálsson hafði útbúið fyrir blásarakvintett og Sorgarlausn
sem þeir léku beint af blaðinu sem ljúfan og angurværan
fjögurra radda sálm í stofuharmóníumstil eins og Einar
Jóhannesson svo réttilega orðaði það. Auðveldaði sá
flutningur fólki að setja sig í réttu stellingarnar fyrir um-
ræðurnar um Jón Leifs, en meira um þær síðar.
%nenning
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir.
Andri Snær Friðrika Benónýs.
Magnason.
Byggingarlist
jEsflk 1 f 111 ppfc! * tf' '**$*. ’' lei m v v j§r.... ;§ ~~
Dr. Maggi Jónsson. Guðmundur Jónsson. Júlíana
Gottskálksdóttir.
Myndlist
Tónlist
Áslaug Thorlacius.
Elísa Björg
Þorsteinsdóttir.
Jónas Sen.
Runólfur Þórðarson. Haildór Haraldsson.
Listhönnun
Torfi Jónsson.
Eyjóifur Pálsson. Baldur J. Baldursson.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson.
Baldur Hjaltason.
Inga Björk Sólnes.