Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Page 32
36 ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 I>V nn Ummæli Láglaunastétt- ín a Alþingi „Laun alþingismanna eru hættulega lág. Þaö hefur gengiö illa að koma því til skila að þau eru ekki í neinum takti viö það sem gildir hjá þeim sem eru í ábyrgð- anniklum opin- berum stöðum, sem ég vil nú ætla að þing- menn séu.“ Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, í Degi. Komin skammt á veg í siðmenningu „Þegar öllu er á botninn hvolft má kannski ímynda sér að óöldin í Hagaskóla sé ekki endilega til marks um að okk- ur hafi borið svona langt af leið, heldur hitt: að svona skammt á veg séum við kom- in. Því öll dæmin sem rakin voru eru til marks um skort á siðmenningu." Guðmundur Andri Thors- son rithöfundur, í DV. Hlægilegar spár „Þessar spár Fjár- festingarbankans eru farnar að verða að almennu athlægi allra þeirra sem láta sig þessi mál varða." Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, í Degi Sjúkraskýrslurnar „Það er bara vonandi að kreppan verði ekki skollin á áður en Kári fær allar sjúkra- skýrslurnar okkar afhentar. Okkur verður að takast að bruna á nýju bílunum niður í bæ til að láta kippa skýrslun- um okkar í burtu áður en hann fær þær.“ Mikael Torfason rithöfund- ur, í DV. Dauður flokkur „Ég held að þessi svo kallaði Frjáls- lyndi lýðræðis- flokkur sé varla á lffl.“ Sverrir Hermanns- son, form. Frjáls- lynda flokksins, í Degi. Boðberi misréttis „Framsóknarflokkurinn er boðberi misréttis svo það er engin furða þótt hann verð- launi það aldraða fólk sem í bamslegri trú heldur að hann sé vinur þess.“ Albert Jensen byggingar- meistari, í Morgunblaðinu. Menningarborg Evrópu árið 2000: Menningin er í öllu - segir Sigrún Valbergsdóttir Sigrún Valbergsdóttir er nýráðin framkvæmdastjóri erlendra verk- efha hjá Reykjavík - menningar- borg Evrópu árið 2000. Hún er gift Gísla Má Gíslasyni rafmagnsverk- fræðingi sem rekur bókaútgáfuna Ormstimgu. Þau eiga tvö böm: Kári er 29 ára og starfar sem ljósamaður hjá Borgarleikhúsinu. Vala er 18 ára menntaskóla- nemi. Sigrún hefur unnið að menningarmál- um í tæp 20 ár, m.a. sem leik- stjóri. „Ætli ég trúi því ekki að þeim mun meira og betra menning- arlíf sem er í landinu, þeim mun betri lífsskilyrði séu fyrir fólkið í landinu." Hún segir að erfitt væri að lifa ef engin væri menningin. „Menningin er náttúrlega í svo mörgu öðra en að sitja á góðri leik- sýningu eða hlusta á fallega tón- list. Menningin er í raun og veru í öllu, svo sem hvemig við klæðum okkur, hvemig við verjum okkar frítíma og hvað við borðum. Menningin er ekki bara flnn kúltúr eins og það er kallað. Hún er allt annað en snobb.“ Menningarárið 2000 setur Reykjavík á sama bekk og Bergen, Helsinki, Kraká, Prag, Brussel, Avignon, Bologna og Santiago de Compostela. Sigrún segist hafa tekið að sér nýja starfið því sér fmnist það mjög áhugavert. „Ég hef unnið við störf sem tengjast erlendum samskiptum í um 17 ár. Ég var t.d. lengi í stjórn Alþjóðlega áhugaleik- húsráðsins og var þar Sigrún Valbergsdóttir. DV-mynd Teitur fulltrúi Norðurlandanna. Sem for- maður Leiklistarsambands íslands tók ég virkan þátt i alþjóðlegu sam- starfi á sviði atvinnuleiklistarinnar og ég var formaður Leiklistarsam- bands Norðurlanda í tvö ár.“ Sigrún segir það stórt og mikið verkefni að vera framkvæmdastjóri erlendra viðburða hjá Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000. „Mörg verkefni sem ég tek að mér tengja saman þær borgir sem eru einnig menningarhöfuðborgir árið 2000.“ Nú þegar undirbúningur er haf- inn felst starf Sigrúnar m.a. í að vinna að áætlunum hinna ýmsu verkefna og sjá til þess að fram- Maður dagsins kvæmdir standist áætlanir, ekki síst fjárhagsáætlanir. „Verkefnin krefjast þess að í þau fáist bestu fáanlegu listamennimir og að þau fái sem mesta athygli. Það sem boðið verður upp á á þessu menningarári á að vera í hágæða- flokki og á að höfða til sem flestra.“ í gær var tilkynnt að menningar- borgin hafi fengið 22 milljóna króna styrk úr Norræna menningarsjóðn- um til þess að framflytja tón- og dansverkið Baldr eftir Jón Leifs. „Ég held að þetta sé hæsti styrkur sem hefur verið veittur úr þess- um sjóði.“ Mikill skriður er kominn á menningarársverk- efnið. -SJ Islandsmeistarar í freestyle 1998. Keppni í freestyle Undirbúningur fyrir ís- landsmeistarakeppnina í frjálsum dönsum er hafinn. Þetta er í átjánda skiptið sem Dans keppnin er haldin og er það félagsmiðstöðin Tónabær og ÍTR sem standa að henni. Keppnin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár og er öllum unglingum á aldrinum 13-17 ára eða fæddum 1982-1985 heimilt aö taka þátt. Keppt verður í tveimur flokkum. Undankeppni fer fram víðs vegar um landið. í Reykjavík verður und- ankeppni 12. febrúar. Kemur í leitirnar Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Arthúr Björgvin Bollason. Kenningar Nietzsches Bókmennta- félagið efnir til lærdómsnám- skeiðs þar sem hugmyndir Nietzsches í Lærdómsrit- inu Handan góðs og ills verða ræddar og skýrðar og þeirri spm-ningu varpað fram hvaða er- indi heimspeki hans eigi til okkar nú i lok 20. aldar. Námskeiðið verður vikulega i fimm vikur og hefst á fimmtudaginn kl. 21. Leið- beinandi á námskeiðinu er Arth- úr Björgvin Bollason. Félag eldri borgara í Reykjavík í Þorraseli er opið í dag frá kl. 13-17. Handavinna (perlusaumur og silkimálun) kl. 13.30 og spilað alkort á sama tíma. í Ásgarði, Glæsibæ, verður teflt kl. 13. Ráð- stefna á vegum framkvæmda- nefndar Árs aldraðra um málefni aldraðra verður haldin í Ásgarði 20. janúar kl. 15. Samkomur Þorrafagnaður Fríkirkjan í Reykjavík heldur hinn árlega þorrafagnað safnaðar- ins í safnaðarheimilinu að Laufás- vegi 13 næstkomandi föstudag kl. 19. Þorramatur, skemmtiatriði og dans. Hagsaga og félagssaga Á hádegisfundi Sagnfræðingafé- lags íslands, sem haldinn verður i ráðstefnusal Þjóöarbókhlöðu í dag kl.12.05, fjallar Gísli Gunnarsson, dósent í sagnfræði, um tengsl hag- sögu og félagssögu. Bridge íslenska unglingaliðið vann 18-12 sigur áPortúgölum í 17. umferð Hero - alþjóðlega mótsins sem fram fór í Hollandi dagana 5.-8. janúar. Leikurinn fór 35-23 í impum talið en ísland græddi 13 impa á þessu spili í leiknum. Bæði pörin í AV enduðu í 5 hjörtum eftir slemmu- þrefflngar en punktar vesturs voru ekki til mikillar hjálpar fýrir aust- ur. Sagnir gengu þannig í opnum sal með Sigurbjörn Haraldsson og Guðmund Halldórsson í AV. Vestur var gjafari og AV á hættu: * G92 * G9 ♦ G965 • D842 * ÁD5 * 843 ♦ 72 • G10965 N 4 K1087643 '* 106 ♦ Á3 * Á3 * - * ÁKD752 ♦ KD1084 K7 Vestur Norður A ustur Suður pass pass i * * 24 dobl pass 3» pass 4» pass 4 grönd pass 54 pass 5» p/h Laufopnun Sigurbjöms lofaði punktum eða fleiri og dobl vesturs sýndi 6 eða fleiri punkta. Hönd aust- urs er firnasterk og Sigurbjöm var ekkert á því að gefast upp í fjórum hjörtum. Fjögur grönd spurðu um ása en Guðmund- ur ákvað að svara engum ás þvi hann taldi að spaðaásinn gagn- aðist sagnhafa lítt. Samningur- inn virtist stefna beina leið niður en Portúgalinn í suður var ekki lánsamur með út- spil. Hann spilaði út spaða, Sigur- björn setti drottninguna í blindum og gat þannig losnað við bæði lauf sín. Hann tapaði aðeins tveimur slögum á tígul en sami samningur v£ir einn niður í lokuðum sal. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.