Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Síða 23
31
Nýjung á Vísi:
Nýjustu fréttir úr
tölvuheiminum
INNKA Uf?A STOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
f 878 -121 Reykjavík
16 - Netfang: 1sr@rvk.is
Sími 552 58 00 - Fax 562 26
Forval
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir umsóknum verktaka um að fá
að taka þátt í lokuðu útboði á viðhaldi dreifikerfis hitaveitu árið 1999.
Forvalsgögn verða afhent hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Umsóknum skal skila á sama stað eigi síðar en kl. 16.00 þriðjudaginn
16. febrúar 1999.
ovr 07/9
Forsíða tölvuvefjar Vísis þar sem sjá má fréttir af því helsta sem er að ger-
ast í töivuheiminum.
Á fréttavefnum Vísir.is er nú
búið að setja upp sérvef þar sem
fjallað er um allt það sem er að
gerast í tölvuheiminum. Frétta-
þyrstir tölvuáhugamenn geta séð
þar á hverjum degi nýjustu fréttir
um hugbúnað, vélbúnað og við-
skipti í tölvuheiminum auk þess
sem fjallað er um það helsta sem
er að gerast á Netinu. Jafnframt
verður að finna á tölvuvefnum
umfjöllun um tölvuleiki og sagt frá
því helsta sem er að gerast á þeim
vettvangi hverju sinni.
Ásgeir Friðgeirsson hjá Vísi seg-
ir tölvuumfjöllun mikilvæga í nú-
tímasamfélagi, þó sérstaklega hjá
netmiðlum. „Við erum að upplifa
það í dag að tölvur eru í raun að
verða þungamiðjan i daglegu lífi
okkar og ekki sér fyrir endann á
þeirri þróun. Þetta sést til dæmis á
því að hugbúnaðargerð er að
verða ein af helstu útflutnings-
greinum íslendinga," segir hann.
Allir fjölmiðlar fjalla reglulega
um málefni tengd tölvum og Net-
inu, en að mati Ásgeirs hafa net-
miðlar sérstöku hlutverki að
gegna hvað þetta varðar. „Það seg-
ir sig sjálft að allir lesendur okkar
eru tölvuvæddir og því tengdir
upplýsingabyltingunni á einn eða
annan hátt. Það er því eðlilegt að
Vísir flytji lesendum fréttir af
þessum málaflokki sem bersýni-
lega varðar þá,“ sagði Ásgeir.
Jafnframt því að fjalla um það
helsta sem er að gerast hér heima
og erlendis er stefnt að því tölvu-
síða Vísis verði upplýsingamiðlun
fyrir íslensk tölvufyrirtæki. Þar
geta þau geta komið á framfæri
fréttum og tilkynningum um það
sem er að gerast hjá þeim hveiju
sinni.
Netið orðið vettvangur spilafíkla:
Fíkn í verðbráfaviðskipti
Samtök sem aðstoða spilafikla við
að losna við spilafíkn hafa á síðustu
misserum fengið til sín stöðugt
fleira fólk með sér fíkn í að stunda
verðbréfaviðskipti á Netinu. Líklegt
er að fróðra mati að þetta sé að
verða talsvert mikið vandamál.
Sennilega eru þau tilfelli sem vit-
að er um aöeins toppur ísjakans því
það tekur talsvert langan tíma fyrir
fólk að tapa nægilega miklu fé tU að
það viðurkenni vanda sinn. Ekki
bætir úr skák að hér er um að ræða
kynslóð verðbréfabraskara sem hef-
ur lifað við það að verð hlutabréfa
hækki stöðugt og tapið því lítið -
enn sem komið er.
„Flestir sem stunda verðbréfavið-
skipti á Netinu eru nýgræðingar á
þessum markaði," segir Kevin
O’Neill, framkvæmdastjóri sjáif-
boðaþjónustu sem rekur símaþjón-
ustu fyrir spilafíkla. „Þeir eru á
fullu í viðskiptunum og líta ekki á
atferli sitt sem flkn. Þetta fólk er
ekki í stórkostlegum vandræðum í
fyrstu en eftir því sem tíminn líður
og fíknin eykst verður vandinn
mjög mikill. Þegar fólkið loks hring-
ir i okkur er það búið að tapa geysi-
lega miklu, sumir jafnvel 50.000 döl-
um (um 3,5 milljónir króna).“
Spilafíklar eru að uppgötva nýjan
möguleika á að stunda fjárhættu-
spil.
Framhald Command & Conquer:
Geimverur bætast í hópinn
Hin stríðandi öfl í Command & Conquer fá ýmsa geimverutækni til að leika
sér með í framhaldi leiksins sem kemur út í haust.
Aðdáendur Command & Conquer-
leikjanna eru mjög margir og því er
ekki ólíklegt að þeir bíði í ofvæni
eftir framhaldi leikjaraðarinnar
sem mun kallast Command &
Conquer: The Tiberian Sun. Fram-
haldið mun ekki koma á markað
fyrr en í haust, en vinna við leikinn
hefur tekið nokkuð langan tíma og
greinilegt að Westwood Studios ætla
ekki að flana að neinu við gerð
hans.
Sögusvið leiksins er jörðin um
30-40 árum eftir að síðasti C&C leik-
ur kláraðist. Þar sigruðu GDI-menn
Nod-bræðralagið og tóku völdin á
Jörðinni. En þá koma upp vand-
ræöi: Tíberíum-jurtirnar verða
hreinlega óstöðvandi og leggja und-
ir sig stóran hluta heimsins. Geisla-
virk efni þeirra valda geysilegum
stökkbreytingum hjá öllum lífver-
um jarðar og enginn ræður neitt við
neitt. í þessu umhverfi tekst Nod-
bræðralaginu að vaxa á ný og ógna
GDI-mönnum enn og aftur.
í ljós kemur þegar á líður leikinn
að það voru geimverur sem sendu
tíberíum-jurtimar til jarðar með
það verkefni fýrir höndum að gera
plánetuna byggilega fyrir kvikind-
in. Seinni hluti leiksins mun því án
efa byggjast að einhverju leyti á
baráttu viö verur utan úr geimnum
sem verður án efa skemmtileg til-
breyting við hin venjulegu átök GDI
og Nod.
Holl og brogdgód jurtakœfa
Þrjár Ijúffengar
bragðtegundir!
Fæst í flestum
matvöruverslunum
Dreifing: Heilsa ehf.
S:533 3232
SIRIUS
Aukaljós
Gæðavottuð ISO 9002 og uE”-merkt
Off road
NS860
Settið kr. 12.350
Fiskiauga
NS 98
Settiðkr. 11.980
Austurvegi 69 - 800 Selfossi
Sími 482 2000 - Fax 482 2996
Söluaöili í Reykjavík:
Fjallasport, Malarhöfða 2a, sími 577 4444
Gæðarúm á RB-rÚmí
á góðu verði
Ragnar Bjömsson ehf.
Dalshraun 6, Hafnarfirði
Sími 555 0397 • fax 565 1740
i.