Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Stuttar fréttir r>v
Norskir álfurstar finna fyrir kosningaskjálfta frá íslandi:
Norsk Hydro
ekki í framboði
- til Alþingis íslendinga, segir Jostein Flo, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins
DV, Ósló:
„Ég er farinn að fá á tUfinning-
una að þetta álmál snúist aðallega
um þingkosningar á íslandi. Við
tökum ekki þátt í þeim kosningum,"
sagði Jostein Flo, upplýsingafúlltrúi
Hydro Aluminium, þegar DV ræddi
við hann í gær um bygginu álvers á
íslandi.
Hann vildi að öðru leyti ekkert
segja um viljayfírlýsingu um bygg-
ingu álvers, sem Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra segir
að undirrituð verði í sum-
ar, og ekki heldur um hvort
framkvæmdir við nýtt álver
geti hafist á næsta ári.
„Það er enn unnið að
undirbúningi þessa máls á
sama hátt og gert hefur ver-
ið nú um hríð. Þar hefur
ekkert breyst, engin
ákvörðun enn verið tekin
og bara unnið að málinu
eins og áður,“ sagði Jostein.
Halldór
Ásgrímsson.
Hann staðfesti hins vegar
að bygging álvers Hydro
Aluminium á Trinidad
væri nú í endurskoðun
vegna þess að afkoma
Norsk Hydro, móöurfyrir-
tækis Hydro Aluminium,
væri lakari nú í upphafi árs
en vonir hefðu staðið til.
Hagnaður síðasta árs var
miklu minni en ársins áður
og dregið verður úr fjarfest-
ingum. Álverið á Trinidad var á
undan íslandi í verkefharöðinni hjá
Hydro Aluminium.
„Álverð er nú lægra en verið hef-
ur og fer enn lækkandi. Við vitum
ekki hvert stefnir með álverðið en
það hefur auðvitað áhrif á endan-
lega ákvörðun," sagði Jostein. Hann
taldi þó að minni verðsveiflur hefðu
ekki áhrif á langtímaverkefni eins
og bygginu og rekstur álvers.
„Þetta er allt í skoðun og ekkert
meira um málið að segja á þessu
stigi,“ sagði Jostein. -GK
Stórt snjóflóö féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar:
Garðarnir gerðu sitt gagn
„Ég held að þetta sé mjög gott fyr-
ir bæjarbúa, mikill léttir að sjá þetta
með eigin augum hvað garðarnir
gerðu. Sjá hvemig snjóflóðið steypist
niður með garðinum. Án efa er þetta
eina snjóflóðið sem er að þessu leyti
fagnaðarefni," sagði Einar Oddur
Kristjánsson alþingismaður í gær-
kvöldi. Hann var á heimili sínu, Sól-
bakka við Önundarfjörð, nokkur
hundruð metra frá flóðinu, en langt
út úr flóðstefnu. Hann sagðist ekki
hafa tekið eftir flóðinu fyrr en Vega-
gerðin sagði honum frá því. Hann
sagðist ekki sammála sjónvarpinu
um að þetta heföi verið mikið snjó-
flóð og efaðist um að það heföi náð
niður að byggðinni. Einar sagði að
þama hefði nákvæmlega það sama
gerst og í tölvuhermum úti í Sviss,
þar sást að vamargarðamir vom
látnir taka við stórum flóöum og
stóðust hverja raun.
Samkvæmt heimildum fréttaritara
DV á Isafirði, Harðar Kristjánssonar,
var flóðið um 150 metrar breiðast en
um 75 metrar þegar það fór yfir veg-
inn og út í sjó. Þykktin á flóðinu var
um 2 metrar og krafturinn það mikill
að flóðið náði langleiðina að báta-
höfninni.
„Það er ánægjulegt að menn sjá að
garðarnir gera sitt gagn,“ sagði
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri umhverfisráðuneytisins og for-
maður Ofanflóðanefndar, um snjóflóð
sem féll úr Skollahvilft ofan Flateyr-
ar. Nýir snjóflóðagarðar ofan Flateyr-
ar beindu snjóflóðinu frá byggðinni
og út i sjó. Magnús segir að snjóflóð-
ið í gær hafi verið miklu minna en
flóðið sem olli mannskaða fyrir rúm-
um þremur árum. Garðamir sem
staðið hafi með prýði séu hannaðir
fyrir mun stærra snjóflóð.
„Þetta undirstrikar að sérfræðing-
ar og hönnuðir garðanna hafa unnið
Rögnvaldur Bjarnason, íbúi í Hnífs-
dal, stendur hér við brotinn glugga
á bílskúr við Fitjateig sem snjóflóð
náði að brjóta. DV-mynd H.KR
Þéttbýli
varnarearður
Höfnin
sitt verk með prýði,“ segir Magnús.
Trausti Bjarnason vinnuvélaeig-
andi var að vinnu við snjómokstur
þegar honum bámst tíðindi af flóð-
inu I gær. Hann fór þegar á vettvang
og sá ummerki flóðsins. „Þetta var
miklu meiri snjór 1995. Maður sér
núna upp í Skollahvilft þar sem þetta
hefur farið af stað, sér sprungumar
og stálið þar sem þetta hefur átt upp-
tök. Það hafa farið af stað heljarmikl-
ir flekar en miklu minni en fyrir fjór-
um árum,“ sagði Trausti.
Stefna snjóflóðsins var hin sama
og þegar það féll á byggðina með
hörmulegum afleiðingum. Núna tóku
garðamir við flaumnum, þannig að
hann lak með fram þeim og skipti
snarlega um átt frá bænum. Snjórinn
leitaði niður að uppfyllingu í útjaðri
bæjarins, fór þar yflr veginn og lagði
að velli eitt umferðarskilti þar sem 30
kílómetra hámarkshraði er boðaður
og steyptist í lónið.
Garðamir stóðust vel við þessar
aðstæður. „Þótt það kæmi annað flóð
jafnstórt á morgun, þá mundi það
ekki skipta máli. Það hraukaðist ekk-
ert upp við garðinn, þeir eru gjör-
samlega friir, þannig að næsta flóð
mundi ekki fljóta yflr eins og menn
hafa kannski verið að óttast," sagði
Trausti Bjamason.
í dag er ætlunin að menn frá Veð-
urstofunni komi til bæjarins. Þeirra
bíður það verkefni að mæla flóðið
upp og áætla gagnsemi garðanna.
Fyrir þá er flóðið stór frétt þar sem
þeir geta hugsanlega fengið staðfest-
ingu á hvaða gagn garðarnir gerðu.
„Ég gæti vel ímyndað mér að þetta
flóð hefði getað náð alla vega þangað
sem Esso-skálinn stóð, jafnvel að
byggðinni, en auðvitað er það getgáta
ein, sem enginn getur sannað,“ sagði
Trausti Bjarnason. -
JBP/rt
Tvö snjóflóð í Hnífsdal
- annað féll yfir grunna tveggja húsa sem flutt höfðu verið í burtu
í gær féllu snjóflóð bæði úr
Búðargili og Traðargili í Bakka-
hyrnu í Hnífsdal.
Flóðið úr Traðargilinu féll nið-
ur yfir grunna tveggja húsa efst
við Fitjateig sem flutt höfðu verið
á brott. Þá tók það með sér skúr
sem stóð þar fyrir ofan og hræ af
olíubíl. Flóðið fór niður að húsi
sem stendur norðanvert við Fitja-
teig og braut þar glugga í bílskúr.
Snjóflóð úr Búðargili féll í átt
að Brekkuhúsi og að hesthúsa-
byggð sem er fyrir neðan gilið.
Náði það að gafli eins hesthússins
og fór snjór þar inn án þess þó að
skemmdir yrðu verulegar.
Þessi flóð munu vera þau
stærstu sem komið hafa í Hnífs-
dal síðan 1947. Annað þeirra féll
eins og áður sagöi niður að íbúða-
byggð sem keypt var upp af Ofan-
flóðasjóði. Búið er að flytja mörg
húsanna í burtu og líklegt er að
nýr golfskáli ísfirðinga, sem nú
stendur i Tungudal og stóð efst
við Fitjateiginn, hefði skemmst
verulega í flóðinu sem féll í gær.
-HKr.
Friðun í hættu
Ef áætlanir um
Norðlingaölduveitu
ná fram að ganga
munu 10% Þjórsár-
vera fara undir
vatn. Þá munu
Þjórsárver fara af
skrá yflr alþjóðleg
vemdarsvæði. Þetta kom fram í
máli Kristins Hauks Skarphéðins-
sonar fuglafræðings á fundi Skot-
veiðifélags íslands. RÚV greindi frá.
Námið arðbært
Nýnemai- við Háskóla íslands
hefla nám af hagsýni frekar en hug-
sjón. Bæði kyn telja námið arðbæra
fjárfestingu. Háskólanemar telja að
arðsemin verði um 12%. Morgun-
blaðið greindi frá.
Slitinn strengur
Sæstrengurinn Cantat-3 slitnaði
fyrir utan Færeyjar um hálfflmm-
leytið í gærmorgun. Samband við
Ameríku er samkvæmt venju en
gervihnattasamband er við Evrópu.
Búist er við því að viðgerðum við
strenginn ljúki um 10. mars. RÚV
greindi frá.
Léleg vertíð
Loðnuvertíðin hefur valdið vem-
legum vonbrigðum. Loðnufrysting
hefúr gengið illa enda þykir loðnan
of smá fyrir Japansmarkað. Morg-
unblaðið greindi frá.
Engin boð
Boðkerfl Landssímans bflaði
klukkan flmm í gærmorgun og var
ekki komið í lag þegar blaðið fór í
prenhm. Ástæðan er bilun í móður-
tölvu. Ekki er hægt að taka á móti
og senda skilaboð til símboða. Deil-
ur era um hvort Landssiminn hefur
sinnt upplýsingaskyldu sinni. RÚV
greindi frá.
Óréttmæt gagnrýni
Jón Steinar
Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmað-
ur segir gagnrýni
ASÍ og Eflingar á
frumvarp tO skaða-
bótalaga óréttmæta
og telur brýnt að
frumvarpið verði samþykkt. Morg-
unblaðið greindi frá.
Rækjuvinnslu hætt
Rækjuvinnslu á vegum Samheija
á Ilalvik hefúr verið hætt. Ekki er
hægt að spá um hvenær vinnsla
hefst að nýju. Þetta er mikið áfafl
fyrir atvinnulíf á Dalvík. Stöð 2
greindi frá.
Uppgangur á Höfh
MikOl uppgangur er í atvinnulif-
inu á Höfn í Homafírði og kemur
það meðal annars fram í mOdum ný-
byggingum. Fyrirtæki em ýmist að
byggja yfir sig ný hús eða flytja í
annað. Flatarmál nýbygginga á Höfti
er um 7000 fermetrar. Stöð 2 greindi
frá.
Farþegum fjölgar
Farþegum í mOlOandaflugi flölg-
aði um 127 þúsund á mOli áranna
1997 og 1998. Alls vora farþegamir
1.250 þúsund talsins. JaftigOdir þetta
820 ferðum á ári eða rúmlega tveim-
ur ferðum á dag með 150 farþega
þotu aflan ársins hring.
Bætt innheimta
Breyttar aðferðir hjá tollstjóran-
um í Reykjavík skOuðu 650 milljón-
um tO rfldsins. Fjámámsbeiðnum
hjá embættinu hefur fækkað um
helming og gjaldþrotaskiptabeiðn-
um um þriðjung. Morgunblaðið
greindi frá.
Ofþensla greinileg
Margir fjármálasérfræðingar
segja merki um ofþenslu greinfleg í
islensku efnahagslífi. Forsætisráð-
herra segir marga fara óvarlega í yf-
irlýsingum og styðjast við gömul
fræði. RÚV greindi frá.
Tæknilega tilbúnir
Friðrik Sophus-
son, forstjóri Lands-
virkjunar, sagði í
viðtali við Reuters-
fréttastofuna að fyr-
irtækið væri tækni-
lega tflbúið að tvö-
falda raforkufram-
leiðslu fyrir árið 2007. Morgunblaðið
greindi frá. -sm