Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Blaðsíða 36
44
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
nn
Ummæli
Sér vígvöllinn
af fjósbitanum
„Niðurlægingin sem forysta Al-
þýðubandalagsins hefur kallað yfir
, sig og áður öílugan
stjórnmálaflokk á sér
enga hliðstæðu í is-1
i lenskum stjómmál- j
, um. Engan þarf að
. undra þótt Sighvat-
ur Björgvinsson sé
brosmildur og
bústinn þar sem
hann horfir yfir vígvöllinn af 6ós-
bitanum."
Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maöur, í DV.
Matarást
hreppsneíndar
„Sjálfsagt elskar hreppsnefndin
Mývatn eins og hún hefur oft sagt.
Ég held að það sé matarást."
Kári Þorgrímsson, í Degi.
Svailhátíð orðin
gæluverkefni
„Mér kemur það á óvart að
svona svallhátíð
skuli vera orðin
gæluverkefni
Reykjavíkurborgar,
sem á sama tíma er
að vinna að því
verkefni að gera ís-
land vímuefnalaust
land - að ég hélt af fullri alvöru."
Helgi Seljan, fyrrv. alþingismað-
ur, í DV.
íslenskir karlmenn
á lausu
„Nútíminn hefur svipt þá sjálf-
skipaðri húsbóndastöðu svo þeir
geta kennt tíðarandanum um líf-
emið; krafist skilnings frá um-
hverfmu og haldið áfram að röfla
um tilvistarkreppuna."
Auður Jónsdóttir rithöfundur,
iDV.
Kominn með nóg af
Danmörku
„Ég er búinn að búa hérna í
fjögur og hálft ár og
er kominn með alveg
nóg af Danmörku.
Enda hef ég aldrei \
enst svona lengi í
útlöndum. Hef yfir-
1 leitt komiö
vælandi heim aftur
eftir nokkrar vikur og það er því
kominn tími til að flkra sig heim.“ {
Hilmar Örn tónlistarmaður,
í Fókusi.
Tapsárir
samfylkingarmenn
„Ég vil benda á að þegar Sig-
björn missti þingsæti sitt í kosn-
ingunum fyrir íjórum áram þá tók
hann þeim ósigri mjög karlmann-
lega. Ég vil líka vekja athygli á því
hvernig andstæðingar hans í próf-
kjörinu nú bmgðust við sigri hans
og ósigri sínum.“
Stefán Gunnlaugsson veitinga-
maður, í DV.
Ábrystir með kanel og
Maðkar í mysunni
Um síðustu helgi frumsýndi leikfélagið Snúður og
Snælda, sem er leikfélag eldri borgara í Reykjavík, tvo
einþáttunga í Möguleikhúsinu við Hlemm. í forrétt er
sýndur breskur leikþáttur, Maðkar í mysunni eftir
Mark, og í aðalrétt og ábæti nýtt íslenskt verk, Ábryst-
ir með kanel, eftir Sigrúnu Valbergsdóttur en hún skrif-
aði verkið sérstaklega fyir Snúð og Snældu.
í fyrra verkinu segir frá sex konum á Englandi, sem
eiga fleira sameiginlegt en virðist í fljótu bragði. Ábryst-
ir með kanel gerist í rammíslensku umhverfi, á sveita-
bæ í afdal þar sem boðið er upp á bændagistingu og
reyndar hafa nýjar aðferðir í markaðssetningu gert það
að verkum að eldri borgara streyma á staðinn.
Leikhús
Að þessu sinni taka ellefu leikarar þátt í sýningunni.
Þau eru: Aðalheiður Guðmundsdóttir, Aðalheiður Sig-
urjónsdóttir, Guðlaug Hróbjartsdóttir, Guðrún Jóhann-
esdóttir, María H. Guðmundsdóttir, Ólöf Jónsdóttir, Sig-
mar Hróbjartsson, Sigrún Pétursdóttir, Theódór Hall-
dórsson, Þorgeir Jónsson og Þorsteinn Ólafsson. Leik-
stjóri er Helga H. Jónsdóttir. Næsta sýning á einþátt-
ungunum er á miðvikudag.
Eldri borgarar sýna tvo einþáttunga í Möguleikhúsinu.
Árný Inga Pálsdóttir, nýráðinn skólastjóri Heiðarskóla í Reykjanesbæ:
Bjartsýn á að góð vinnu-
aðstaða laði kennara að
DV, Suðurnesjum:
„Mér finnst starfið sérstaklega
spennandi og áhugavert því það gefur
mér kost á að móta starfsanda og
vinnubrögð í nýjum skóla," segir Árný
Inga Pálsdóttir, nýráðinn skólastjóri
Heiðarskóla í Reykjanesbæ, en skólinn
er í byggingu og tekur til starfa næst-
komandi haust.
Undirbúningur stendur nú sem
hæst og að mörgu er að hyggja. „Und-
irbúningsvinnan er mjög fjölbreytt og
verkefnin margvísleg. í meginatriðum
má segja að undirbúningsvinnan skipt-
ist í tvennt, annars vegar það sem snýr
að hinu faglega starfi og hins vegar
þau fjölmörgu praktísku verkefni sem
þarf að leysa. Eins og liggur í augum
uppi er ég aðeins ein af fjölmörgum
sem vinna að því þessa dagana að gera
það kleift að Heiðarskóli geti tekið til
starfa næsta haust og tekið á móti
rúmlega 430 nemendum sem þar munu
stunda nám næsta skólaár. í þessari
undirbúningsvinnu hef ég átt mjög
gott samstarf við hönnuði skólans, þá
Bjarna Marteinsson og Kjartan Jóns-
son. Mitt hlutverk er að koma á fram-
færi sjónarmiðum okkar sem komum
til með að starfa í skólanum."
Heiðarskóli verður mjög vel búinn
grunnskóli. í honum verður góð að-
staða fyrir allt bók- og verknám sem og
sund- og íþróttakennslu. Skólahúsnæð-
ið verður tilbúið í heild sinni næsta
haust ásamt góðri skólalóð.
„Það hefur verið lögð áhersla á það
við hönnun skólans að hafa vinnuað-
stööu sem besta fyrir alla þá sem í
skólanum starfa og mér þykir sérstak-
lega ánægjulegt
að geta sagt frá
því að vinnuaðstaða kennara verður til
fyrirmyndar í Heiðarskóla. Það er ljóst
að með tilkomu nýs skóla og einsetn-
ingu þá fjölgar þeim kennarastöðum
sem þarf að ráða í og það er því miður
kennaraskortur fyrir í bænum. En ég
er bjartsýn á að góð vinnuaðstaða í
Maður dagsins
nýjum skóla laði hingað kennara. Góð
þátttaka þriðja árs kennaranema í
kynnisferð sem skólaskrifstofan í
Reykjanesbæ bauð upp á nú nýver-
ið til að kynna verðandi kennur-
um hvað er á döfinni hér í
skólamálum jók á þá bjart-
sýni mína.“
Árný Inga er Sunn-
lendingur, fædd og
uppalin á Selfossi.
„Það er skemmtileg
tilviljun að fyrsta
heimilið mitt á Sel-
fossi var á Kirkju-
vegi 14 og nú bý
ég við sömu götu
og númer en bara
í Keflavík. Ég hef
þó allan minn
kennsluferil búið
og starfað i Reykja
vík og Kópavogi."
Hingað á
Suðumesin
flutti
siðast-
liðið
haust,
þá
DV-mynd Arndís
Kaupmannahöfn,
Hrafn, 16 ára
nemi í
Menntaskól-
anum við
Hamra-
hlíð, og
Ingólfur
Páll, 7 ára
nemandi í
Myllubakka-
skóla.
-AG
nýkomin heim eftir þriggja ára dvöl í
Kaupmannahöfn þar sem hún lagði
stund á nám í skólastjórnun. Hún seg-
ir áhugamálin Cölmörg. „Fyrir utan
uppeldis- og kennslumál þá er útivist
eitt af mínum aðaláhugamálum. Þar
geri ég ekki upp á milli lengri og
styttri gönguferða, hjólreiða eða skiða.
Bóklestur og ljósmyndun eru hins veg-
ar þau áhugamál sem hafa fylgt mér
frá því ég var stelpa."
Eiginmaður Árnýjar Ingu er Ingólf-
ur Björn Sigurðsson, ráðgjafi á Stuðl-
um, meðferðarheimili fyrir unglinga.
Börnin eru þrjú. Elst er Halla
Steinunn, 23 ára fiðlu-
nemandi við Konung-
lega músík
konservatoríið í
Fjallagrös
í kvöld kl. 20.30 verður annar
fræðslufyrirlestur Hins ís-
lenska náttúrfræðifélags á
þessu ári. Fundurinn verður að
venju haldinn í stofu 101 í
Odda. Á fundinum flytur Heim-
ir Þór Gíslason, kennari á Höfn
í Homafirði, erindi með mynda-
sýningu sem hann nefnir Fjalla-
grös. Allir eru velkomnir.
Fyrirlestur um myndlist
Kristján Steingrímur flytur
fyrirlestur um eigin verk á
vegum Myndlista- og handíða-
skóla íslands í Laugamesi í
dag kl. 12.30.
Ungum er það allra best
Skóla- og fræðslunefnd Sjálf-
stæðisflokksins efnir til
tveggja funda um stefnu í
skólamálum undir yfirskrift-
inni Ungum er það allra best.
Fyrri fundurinn er i dag í Val-
höll kl. 17.15. Framsöguerindi
flytja Ingvar Sigurgeirsson,
Hildur Friðriksdóttir og Þor-
steinn Sæberg Sigurðsson.
Háskólafyrirlestur
Samkomur
Linda Kristmundsdóttir,
hjúkmnarfræðingur MS, flytur
fyrirlesturinn: Upplifun for-
eldra af því að búa með ein-
staklingi sem hefur verið
greindur með „borderline" per-
sónuleikaröskun kl. 12.15 í
stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Ei-
ríksgötu 34.
Kumlarannsóknir
Breski fomleifafræðingur-
inn Dr. Colleen E. Batey mun
halda fyrirlestur um Kumla-
rannsóknir á Skotlandi og
Orkneyjum". Fyrirlesturinn,
sem verður á ensku, er haldinn
í Odda, stofu 101, kl. 17.30.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2335:
áyþo*-
Auðsveipur
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Rúnar Óskarsson með bassaklar-
ínett sem hann leikur á í Hásölum
í kvöld.
Einleikur á
bassaklarínett
í kvöld mun Rúnar Óskarsson
bassaklarínettleikari halda ein-
leikstónleika í Hásölum, Hafnar-
fjarðarkirkju. Á tónleikunum
verða leikin verk eftir Isang Yun,
Elínu Gunnlaugsdóttur, Theo
Loevendie, Claudio Ambrosini,
Eric Dolphy og Wayne Sigel. Allt
eru þetta verk frá þessari öld, það
elsta djasspuni eftir Dolphy og
það yngsta eftir Elínu Gunnlaugs-
dóttur, en hún samdi verkið fyrir
Rúnar og er um frumflutning á
þvl að ræða.
Tónleikar
Rúnar Óskarsson lauk einleik-
ara- og kennaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1993. Þaðan
lá leiðin til Hollands þar sem
hann nam klarínettuleik. Auk
þess var hann í námi á bassaklar-
inett hjá manninum sem hvað
mestan þátt hefur tekið í að hefja
hljóðfærið til vegs og virðingar,
Henry Sparnaay.
Bassaklarínett er ekki gamalt
hljóðfæri. Fyrstu eintökin voru
gerð 1750, en það er ekki fyrr en á
þessari öld sem var fariö að skrifa
eitthvað að ráði fyrir hljóðfærið.
Síðastliðin þrjátíu ár hefur vegur
hljóðfærisins vaxið hratt.
Bridge
Slemma var spiluð á 35 borðum af
62 á hendur n-s i þessu spili í tví-
menningi bridgehátíðar. Tveir spil-
arar sögðu og stóðu 7 spaða á hend-
ur n-s en til þess að standa þann
samning þurfti að svína fyrir tígul-
gosa austurs. Suður gjafari og allir
á hættu:
♦ D8752
V Á65
♦ D8
♦ KD9
4 G4
V 32
♦ G9643
* 8752
♦ ÁK3
♦ 1087
♦ ÁK105
♦ ÁG4
Sex granda samningur er
nokkurn veginn sá sami og 6 spaðar
ef trompið hagar sér sæmilega. Ef
vörnin spilar út hjarta í upphafi og
spaðinn liggur 4-1 er eina von sagn-
hafa sú að hann geti hent tapslögum
sínum í hjarta niður í tígullitinn.
Fyrir því eru ekki góðar líkur og af
þeim sökum er sennilega best að
spila 6 grönd.
Þeir sem spiluðu
6 grönd og fengu
12 slagi fengu 86
stig af 122 mögu-
legum fyrir spil-
ið. Þeir sem spil-
uöu 6 spaða og
fengu 12 slagi
þáðu fyrir það
rúmlega meðal-
skor eða 63 stig. Þeir sem hins veg-
ar höfðu hugrekki til þess að svína
tígultíunni (þ.e.a.s þeir sem fengu
ekki tígulútspil í upphafi) fyrir 13.
slaginn fengu ríkuleg verðlaun,
hvort sem samningurinn var 6 spað-
ar eða 6 grönd. Sex spaðar með yfir-
slag gáfu 104 stig og 6 grönd með yf-
irslag 114 stig. Að spila þrjú grönd
var ekki dauöadómur ef sagnhafi
tók 13 slagi en fyrir það fengust 48
stig, eða aðeins 13 stig undir meðal-
skor. Á ellefu borðum voru spilaðir
4 spaðar með tveimur yfirslögum en
það gaf aðeins 10 stig af 122.
ísak Örn Sigurðsson
♦ 1096
♦ KDG94
♦ 72
4 1063