Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Side 4
4
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Tugmilljóna tjón þegar Bílagaröur á ísafiröi brann:
Stórbruni á snjó-
flóðahættusvæði
- slökkviliðsmenn með snjóflóöaýlur unnu aö slökkvistarfi
Bílaverkstæði og btlasala Bílagarðs ehf. við Grænagarð á ísafirði brunnu til
kaldra kola aðfararnótt sunnudags. Hér er Sævar Óli Hjartarson við rústirn-
ar. DV-mynd Hörður
DV, ísafiröi:
Tugmilljóna króna tjón varð í
miklum eldsvoða er bílaverkstæði
og bílasala Bílagarðs ehf. við
Grænagarð á ísafirði brunnu til
kaldra kola aðfararnótt sunnu-
dags. Það voru lögreglumenn á eft-
irlitsferð sem tilkynntu um eld í
verkstæðishúsinu 15 mínútum yfir
þrjú um nóttina. Slökkviliðið á ísa-
firði var komið á staðinn stuttu
síðar, þrátt fyrir ófærð og slæmt
veður. Slökkvistarflð beindist fljót-
lega að því að verja steypustöð og
dekkjaverkstæði, sem eru í áfastri
byggingu, og tókst það giftusam-
lega. Slökkvistarfi lauk um kl. 6
um morguninn. Verkstæðið og
bílasalan gjöreyðilögðust í eldin-
um, ásamt tækjum og búnaði sem
þar voru inni. Þá brunnu 13 nýjar
bifreiðar í sýningarsal bílasölunn-
ar og fjórar bifreiðar á verkstæði,
auk tveggja vélsleða. Enginn var í
húsinu þegar eldurinn kom upp,
enda var búið að fyrirskipa rým-
ingu á þessu svæði vegna snjó-
flóðahættu.
Tryggingar í lagi
Sævar Óli Hjörvarsson, einn af
eigendum fyrirtækisins, sagði að
sér heðu borist fregnir af eldinum
um kl. fjögur. Þegar hann kom á
staðinn var allt alelda, en nokkuð
hvasst var þegar eldurinn kom
upp. Hann sagði hræðilegt að horfa
á þetta, en eigendur hafa unnið að
því á liðnum misserum að endur-
bæta húsið frá grunni og allan
tækjabúnað á verkstæði. Sagðist
hann telja að tryggingar væru í
lagi, en ljóst er að tjónið nemur
nokkrum tugum milljóna króna.
Slökkvistarf gekk nokkuð greið-
lega þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Kallað var til lið björgunarsveitar-
manna slökkviliðinu til aðstoðar,
þar sem brunastaður var inni á
snjóflóðahættusvæði. Reyndar
þurfti að ryðja snjóflóð sem féll um
kl. 2 um nóttina við Karlsá, nokkru
innan við Grænagarð, en það lok-
aði Skutulsfjarðarbraut og teppti
for þeirra slökkviliðsmanna sem
búa í Holtahverfi og Seljalands-
hverfi. Þá voru björgunar- og
slökkviliðsmenn sendir í hollum
inn að brunastað sökum snjóflóða-
hættunnar og voru allir með snjó-
flóðaýlur á sér. Þá var sett upp
bækistöð fyrir slökkviliðið í
áhaldahúsi bæjarins, sem er þarna
skammt frá, en á öruggu svæði.
Ekki er vitað um upptök eldsins en
unnið var að rannsókn brunans í
gær. Þá þótti samt ekki tryggt að
vera lengi á staðnum vegna snjó-
flóðahættu.
HKr.
í portl í Hafnarfirði liggja úreltir smábátar og bíða þess að verði keyptir.
DV-mynd S
Erfitt hjá Sturlu
Sala Þróunarsjóös á úreltum smábátum:
Þriðjungur seldur
- segir Hinrik Greipsson framkvæmdastjóri
„Þetta gengur frekar rólega. Eg á
eftir um 40 báta af alls 60,“ segir
Hinrik Greipsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarsjóðs sjávarútvegsins,
um sölu á úreltum smábátum.
Hann segir að bátamir hafi verið
auglýstir víða um heim og mikið sé
spurt um bátana.
„Það er mikið hringt og spurt.
Það er kannski ágætt að hafa selt 20
báta á einu ári en ég vildi helst að
þetta gengi hraðar. Það er alveg
hugsanlegt að skipasala úti í bæ
væri ánægð með árangurinn," segir
Hinrik.
Hann segir söluverð bátanna vera
á bilinu frá 1 milljón og upp í 3,8
milljónir króna.
„Meöalverð bátanna sem seldir
hafa verið er um 1,5 milljónir
króna. Ég hef ekki þurft að borga
með neinum þeirra enn þá,“ segir
Hinrik.
Eins og kunnugt er af fréttum
mun Sturla Böðvarsson ekki gefa
kost á sér sem varaformaður
Sjálfstæðisflokksins. Varafor-
mannskjörið er stærsta málið á
landsfundi flokksins sem fram-
undan er. Flokkurinn hefur ekki
nein önnur stórmál í sjónmáli,
enda góðæri í landinu og engin
raunveruleg viðfangsefni í póli-
tíkinni - nema þetta hver verði
varaformaður. Það mun setja
mark sitt á landsfundinn.
Vitað er að Geir Haarde mun
gefa kost á sér og eins Sólveig Pét-
ursdóttir, en þau eru bæði þing-
menn Reykjavíkur. Björn Bjarna-
son, sem einnig er þingmaöur
Reykvíkinga, gefur ekki kost á
sér. Hann vill leggja embætti
varaformanns niður í staðinn.
Ekki þarf að taka fram að formað-
ur flokksins er úr Reykjavík og
það var þess vegna sem Sturla
hugsaði sig um, enda mikill þrýst-
ingur af landsbyggðinni að fá
hann í framboð.
En Sturla gaf sig ekki þrátt fyr-
ir álagið af þrýstingnum, en hann
hefur hins vegar játað aö þetta hafi verið honum
erfið ákvörðun, að gefa ekki kost á sér. Afar erf-
ið og sýnir hversu íþyngjandi það er fýrir þing-
menn að þurfa að hugsa sig um hvort þeir gefi
kost á sér sem varaformenn þegar haft er í huga
að laun þeirra eru rýr, að eigin mati. Áhyggjurn-
ar eru nægilegar fyrir, þó ekki bætist á það álag
sem fylgir því að gera það upp við sig hvort menn
sækist eftir því að verða varaformenn. Hitt er
annað að Sturla gefur í skyn, að hann geti vel
hugsað sér að verða ráðherra, vegna þess að það
er mikil þrýstingur á hann að gefa kost á sér til
ráðherradóms, þannig að Sturla er undir miklu
álagi. Þetta verfður erfiður tími sem fer í hönd
eftir landsfund og kosningar í vor, að þurfa svo
að taka ákvörðun um það hvort hann vilji verða
ráðherra.
Það er ekki von til þess að þingmenn hafi mik-
inn tíma til að hugsa um pólitikina þegar þeir
eru undir slíku álagi - annað hvort að hafna
framboði til varaformanns eða samþykkja fram-
boð sitt til ráðherradóms - sérstaklega ef menn
eru í Sjálfstæðisflokknum og bera ábyrgð á lands-
málunum. Þá er nokkur huggun í því að góðæri
er til lands og sjávar og þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins og aðrir forystumenn geta einbeitt sér
að því að leggjast undir feld til að ákveða hvað
þeir vilji verða. Það er nóg álag þótt ekki bætist
annað við. Raunar getur Sjálfstæðisflokkurinn
þakkað Davíð og Guði (í þessari röð) að hann
þarf ekki að tefja landsfundinn með miklum um-
ræðum eða deilum um landsmálin. Davíð hefur
nefnilega bjargað góðærinu og þjóðinni og hefur
tekið fram að hann muni ekki skipta sér af því
hver verður varaformaður, þannig að flokks-
menn mega ráða því og það er ærið verkefni og
mikið álag og annað verður að bíða á meðan.
Dagfari
Stuttar fréttir
Alger slagsmál
Gísli S. Ein-
arsson segist
ætla í alger
slagsmál fyrir
efsta sæti lista
Samfylkingar-
innar á Vestur-
landi. Mikil bar-
átta er fyrirsjá-
anleg á milli kratans Gísla,
kratans Hólmfríðar Sveinsdóttur
og alþýðubandalagsmannsins Jó-
hanns Ársælssonar. Dagm-
greindi frá.
Atlantsskip sigla áfram
Dómstóll í Washington hefur
gefið Bandaríkjaher leyfi til að
láta Atlantsskip sigla áfram fyrir
vamarliðið á Keflavíkurflugvelli
þar til nýtt útboð hefur farið
fram. Morgunblaðið greindi frá.
Aukið eftirlit
í tillögum nefndar sem falið
var að gera tillögur um aðgerðir
til að takmarka hrossaljölda og
hrossabeit, er meðal annars lagt
til að vægi gróðureftirlits verði
aukið í núverandi búfjáreftirlits-
kerfi og að veigamiklar breyting-
ar verði gerðar á lögunum. Dagur
greindi frá.
Færri nefndir
Þingmenn for-
sætisnefhdar Al-
þingis hafa lagt
fram frumvarp
sem gerir ráð
fyrir miklum
breytingum á
störfum þings-
ins. Þar er með-
al annars kveðið á um styttri
ræðutíma og fækkun nefnda.
Morgunblaðið greindi frá.
Engin áætlun
Engin áætlun er til um þróun
atvinnumála við Mývatn, ef svo
færi að Kísiliðjan yrði lögð niður.
Sveitarstjómin leggur allt kapp á
að starfsemin haldi áfram, enda
blasir við fólksflótti og tekjuhrun
ef starfsemin leggst af. Dagur
greindi frá.
10-11 á skrá
Vöruveltan hf., sem rekur 10-11
verslanirnar, verður skráð á
Verðbréfaþingi íslands í mars
næstkomandi. Undirbúningur
undir skráninguna stendur nú
sem hæst. Morgunblaðið greindi
frá.
Úr bæjarstjórn
Siguijón Magnússon, sem setið
hefur í bæjarstjórn fyrir Ólafs-
fjarðai'listann, hefur sagt sig úr
bæjarstjóm. Sigurjón segir tíma
sínum betur varið annars staðar
en í bæjarpólitík. Við sæti hans
tekur Gunnar R. Kristinsson.
Dagur greindi frá.
Afkomuviövörun ÍS
íslenskar sjávarafurðir hafa
sent frá sér afkomuviðvörun
vegna rekstrartaps. Á seinni
hluta ársins 1998 varð tap fyrir-
tækisins mun meira en á fyrri
huta ársins. Heildartapið gæti
verið á bilinu 300 til 500 milljónir
króna. Morgunblaðið greindi frá.
Nýtt álver
Stefnt er að undirritun viljayf-
irlýsingar um álver hér á landi
með fulltrúum Norsk Hydro í
júní. Samingar gætu þá legið fyr-
ir í haust og framkvæmdir hafist
á næsta ári, að sögn Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra.
RÚV greindi frá.
Leiörétting
I viðtali við
Pétur Péturs-
son, fyrrver-
andi þul, var
rússneski
drengurinn,
sem Hvíta
stríðið snérist
um, á einum
stað kallaður „blindi drengur-
inn“. Hann var ekki blindur held-
ur haldinn sjaldgæfum augnsjúk-
dómi, eins og raunar kom ffarn í
viðtalinu. Beðist er velvirðingar á
þessari rangfærslu. -sm