Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Page 8
8
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
Útlönd
Stuttar fréttir dv
Kona skaut þrjá
karla til bana í
Helsinki
Kona skaut þrjá menn á
fertugsaldri til bana í skotklúbbi í
Helsinki í gær. Einn særðist
alvarlega í árás konunnar sem
skaut fórnarlömb sín í höfuðið.
Ekki er vitað um ástæðu
árásarinnar. Finnska lögreglan
handtók konuna á flugvellinum við
Helsinki.
FElíRÍJAR-
TILROl)
Blöndunartæki,
20% afsláttur
Handlaugartæki m/lyftitappa.
Tilboðsverð 4.958.
A ntiktflpki
Baðtæki, tilboðsv. 8.373.
Handlaugartæki, tilboðsv. 6.219.
Handlaugartæki
Án lyftitappa, tilboðsv. 2.668.
M. lyftitappa, tilboðsv. 3.217.
Baðtæki, tilboðsv. 3.851.
Eldhústæki, tilboðsv. 2.799.
Hitastillt tæki
Sturtutæki, tilboðsv. 7.094.
Baðtæki, tilboðsv. 8.980.
Eldhústæki
Tilboðsv. 5.610.
VATNSVIRKINN ehf
Albright þrýstir á
Kosovo-Albana
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, mistókst í
gær að fá sendinefnd Kosovo-Al-
bana í Frakklandi til að fallast á
friðarsamkomulag þar sem ekki er
ákvæði um tryggingu fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðslu um fúllt sjálfstæði.
Hefði Albright tekist að fá sam-
þykki Kosovo-Albana hefði verið
mögulegt fyrir Bandaríkin að auka
þrýstinginn á Serba. 430 herflugvél-
ar standa enn reiðubúnar til að gera
loftárásir á Serbíu samþykki
Slobodan Milosevic Júgóslavíufor-
seti ekki að NATO-herlið verði stað-
sett í Kosovo til að fylgjast með því
að friðarsamkomulagi verði fram-
fyigt-
Albright hitti sendinefnd Kosovo-
Albana á hádegisverðarfundi í gær.
Fyrir fundinn sagði talsmaður Alb-
ananna að þeir héldu fast við kröfu
sína um þjóðaratkvæðagreiðslu um
sjálfstæði innan þriggja ára. Það er
einnig ein af aðalkröfum Albana að
NATO-herlið fylgist með að friðar-
samkomulagi verði framfylgt.
Albright segir engar árásir gerðar á
Serba samþykki Kosovo-Albanar
ekki friðartillögur stórveldanna.
í gær hafði ekki verið boðað til
fundar með Albright og serbnesku
sendinefndinni. Forseti Serbíu, Mil-
an Milutinovic, var efins um að
hægt yrði að komast að friðarsam-
komulagi fyrir miðjan dag á þriðju-
dag en þá rennur viðbótarfrestur-
inn, sem stórveldin hafa gefið deilu-
aðilum, út. Robin Cook, utanríkis-
ráðherra Bretlands, sagði það ólík-
legt að nýs viðbótarfrests væri að
vænta.
Samtímis þvi sem friðarviðræð-
urnar fóru fram í Rambouillet-höll
utan við París í gær reyndu alþjóð-
legir eftirlitsmenn að binda enda á
bardaga sem blossað hafa upp i
Kosovo undanfarna daga. Sjónar-
vottar hafa greint frá því að hundr-
uð óbreyttir borgara af albönskum
uppruna hafi á laugardaginn flúið
frá bænum Studencane í kjölfar
skotárásar Serba. Samkvæmt
serbneskum heimildarmönnum
fundust þrír Albanar skotnir til
bana í suðurhluta Kosovo í gær.
Ármúla 21, sími 5332020.
Rússar búa sig nú undir föstuna meö miklum hátíöahöldum þessa viku. Myndin er tekin í Krasnoyarsk í Síberíu þar
sem menn skemmtu sér meö pönnukökuáti og söng. Símamynd Reuter
Toyota LandCruiser
(bílnum eru: Leðursæti tyrir 7
farþega, rafdrifnar rúður og sæti,
rafdrifin toppl., rafdrifnir speglar,
hiti í sætum, loftkæling, tímastillt og
fjarstýrð aukamiðstöö, fjarstýrðar
samlæsingar, þjófavarnarkerfi,
driflæsingar aftan og framan,
krómgrind að framan, kastarar,
toppgrind, útvarp/segulband og
geislaspiiari, cnjisecontrol, aukaflautur,
álfelgur og góð dekk, dráttarkrókur,
24 ventla vél, sílsalistar.
VX special '96
ek. 98 þús. km, mjög vel með
farinn og fallegur bíll.
Þetta er bíll fyrir vandláta
sem vilja allt fyrir lítið
Upplýsingar
í síma 899 5555.
Tyrkir handtóku
sænska
fréttamenn
Tyrkneska öryggislögreglan
handtók á laugardaginn sænska
fréttamenn er þeir lentu á flugvell-
inum í Diyarbakir, höfuðborg tyrk-
neska hluta Kúrdistans. Eftir nokk-
urra klukkustunda yfirheyrslu var
fréttamönnunum tilkynnt að er-
lendum fréttamönnum væri ekki
heimilt að koma til svæðisins og
voru þeir sendir aftur til Istanbul. í
stórborgum Tyrklands stöðvar lög-
regla einnig fréttamenn sem reyna
aö taka viðtöl við Kúrda í hverfum
þeirra. Tilkynnt hefur verið að
kúrdíski PKK-leiðtoginn Abdullah
Öcalan komi fyrir rétt í apríi. Er-
lendir lögmenn hans fá ekki að
verja hann. Samkvæmt tyrknesk-
um lögum verður lögmaður hans að
vera tyrkneskur. Enginn hefur
gefið sig fram til starfans.
Þroskaheftir
sveltir til bana
Á árunum 1941 til 1943 lést skyndi-
lega fjórðungur karlkynssjúklinga á
stofnuninni Vipeholm í Sviþjóð sem
var vistheimili fyrir geðsjúklinga og
þroskahefta. Samkvæmt grein í
sænska blaðinu Dagens Nyheter
kemur ekki fram i skjölum að yflr-
læknir stofnunarinnar hafl beinlínis
lýst yfir þeim vilja sínum að sjúk-
lingarnir yrðu látnir svelta. En í að-
eins 12 tilfellum af 173 þar sem um
var að ræða mikið þyngdartap fengu
sjúklingar viðbótarfæði. Oft var það
ekki fyrr en dauðastríðinu var að
ljúka. í uppkasti yfirlæknisins að fyr-
irlestri kemur fram að honum þykir
tilgangslaust að halda erfiðum sjúk-
lingum á lifi. Niðurstaða hans var þó
sú að vegna ættingjanna ætti ekki að
grípa til þess ráðs að svelta sjúk-
linga. Það þykir ekki afsanna að
sjúklingar hans hafi ekki verið
sveltir.
Ný landsstjórn
Útlit var fyrir í gærkvöld að
flokkur jafnaðarmanna og inúíta,
sem er vinstri flokkur, myndu
mynda nýja landsstjóm á Græn-
landi.
Stöövuðu frétt
Bresku stjórninni tókst seint á
laugardagskvöld að koma í veg
fyrir aö blaðið Sunday Telegraph
birti útdrátt úr skýrslu þar sem
lögreglan er gagnrýnd fyrir kyn-
þáttahatur.
Hillary með forskot
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, myndi sigra
Rudolph Giuli-
ani, borgar-
stjóra New
York, í kosning-
um til öldunga-
deildarinnar
samkvæmt nýj-
um skoðana-
könnunum.
Fengi Hillary 52
prósent atkvæða en Giuliani 43.
Hillary er nú að hugsa um hvort
hún eigi að fara í framboð.
Veita Kúrda hæli
Grísk yfirvöld tilkynntu í gær
að þau hefðu boðið einni af þrem-
ur kúrdísku konunum, sem urðu
eftir í sendiráði þeirra í Keníu er
Kúrdaleiðtoginn Öcalan var tek-
inn, hæli.
Gullbjörninn
Bandaríska kvikmyndin The
Thin Red Line hlaut gullbjöminn
á kvikmyndahátíðinni í Berlín í
gær.
Karólínu bjargað
Tugþúsundir skiðamanna vom
innilokaðir í Ölpunum um helg-
ina vegna snjókomu. Meðal þeirra
sem bjargað var frá svæðinu í
þyrlu var Karólína Món-
akóprinsessa og Beatrix Hollands-
drottning.
Gat ekki veitt loforð
Kjell Magne Bondevik, forsæt-
isráöherra Noregs, sem er í heim-
sókn í Miðaust-
urlöndum, gat í
gær ekki veitt
Yasser Arafat
Palestínufor-
seta loforð um
viðurkenningu
norsku stjórn-
arinnar lýsi
Arafat yfir
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu
4. maí næstkomandi. Bondevik
telur að slík yfirlýsing geti haft
neikvæð áhrif á kosningamar í
ísrael 17. mai.
Skólabörn brunnu inni
Aö minnsta kosti þrjú rússnesk
skólabörn létust í gær er eldur
kom upp í heimavistarskóla
þeirra í Síberíu.
Aukið fylgi Venstre
Aðeins 20,8 prósent Dana myndu
greiða jafnaðarmönnum atkvæði éf
kosið væri nú. Venstre-flokkurinn
eykur hins vegar fylgi sitt og fengi
37,5 prósent atkvæða.
Siskel látinn
Gene Siskel, þekktasti kvik-
myndagagnrýnandi Bandaríkj-
anna, lést á laugardaginn.
Hamingjusöm fjölskylda
Kryddpíunni Mel B og eigin-
manni hennar, Jimmy Gulzar,
fæddist lítil
dóttir á föstu-
dagskvöld. Hin-
ir nýbökuðu for-
eldrar eru ákaf-
lega hamingju-
samir. Nú
hlakka aðdáend-
ur Kryddpianna
til fæðingar bcU'ns Viktoríu sem
verður innan tíðar.
Ingham skemmdi bil
Sir Bernard Ingham, fyrrver-
andi blaðafulltrúi Thatcher, var í
gær sakaður um að hafa skemmt
Mercedes-bíl nágranna sins.