Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Síða 17
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
enmngi
Tilnefningar til Menningarverðlauna DV í kvikmyndum:
Gæðin ekki í samræmi við magnið
Kvikmyndanefnd DV hefur kom-
ið sér saman um þrjár tilnefningar í
kvikmyndum fyrir árið 1998. „Til-
nefningamar eru ekki þrjár vegna
þess að lítið hafi verið gert,“ segir
Hilmar Karlsson, kvikmyndagagn-
rýnandi DV. „Árið var frjótt að því
leytiinu til, sérstaklega í sjónvarp-
inu, þar sem óvenju mikið af nýju
efni var frumsýnt á árinu. Kvik-
myndagerðarmenn í kvikmynda-
bransanum sátu heldur ekki auðum
höndum því þrjár kvikmyndir í
fullri lengd voru frumsýndar, auk
nokkurra stuttmynda. En ekki er
sama magn og gæði og þegar kvik-
myndanefndin hafði farið vel yfir
allt sem stóð til boða, stóð þrennt
upp úr sem við gátum verið stolt af
að tilnefna til menningarverðlauna
DV.“
í kvikmyndanefnd DV sátu Hilm-
ar Karlsson kvikmyndagagnrýn-
andi, Inga Björk Sólnes, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndaskóla ís-
er ung og falleg kona, hefur komist
að þeirri niðurstöðu að maðurinn
sem hún ætlar að giftast sé ekki sá
sem hún elskar. Meðan brúðkaups-
gestir stíga dansinn er tekist á um
hylli Sisru auk þess sem ýmsir aðr-
ir atburðir spinnast inn í söguþráð-
inn. Ágúst Guðmundsson hefur átt
farsælan feril sem leikstjóri og er
einn þeirra sem hefur mótað ís-
lenska kvikmyndagerð. Hann styrk-
ir enn stöðu sína með Dansinum.
Slurpurinn & Co
Slurpurinn & Co er listrænt sjón-
arspil þar sem kvikmyndavél er
stillt upp í miðri sviðsmynd og látin
snúast. Fjallar myndin, sem er að-
eins tólf mínútna löng, á kómískan
hátt um lífið á skrifstofu einni þcir
sem skrifstofustjórinn nýtir sér yfír-
mannsstöðu sína til hins ýtrasta.
Það er óhætt að segja að Slurpurinn
& Co komi manni í opna skjöldu.
mörku og unnið náið með helstu
kvikmyndaleikstjórum þar í landi,
svo sem Bille August, Thomas
Vinterberg og Sören Kragh-Jacob-
sen. Valdís hefur nýlokið klippingu
á kvikmynd Sören Kragh-Jacobsen,
Mifunes sidste sang (Dogma 3), sem
valin var til keppni á kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín I þessum mánuði.
Valdís er tilnefnd til Menningar-
verðlauna DV fyrir klippingu á
kvikmyndinni Veislunni í leik-
stjórn Thomas Vinterberg. Myndin
hefur hlotið framúrskarandi dóma,
er margverðlaunuð og hefur náð
hylli almennings. í Veislrmni sýnir
Valdís næma tilfinningu fyrir
rythma og klippingin ber vott um
dirfsku og öruggt handbragð. Valdís
nær að skila heildstæðu verki úr
ákaflega erfiðum efnivið, þar sem
myndin er unnin við hin ströngu
skilyrði Dogma yfirlýsingarinnar.
Valdís Óskarsdóttir.
Dansinn. Leikstjóri Ágúst Guðmundsson.
lands, og Baldur Hjaltason forstjóri.
Tilnefningar til Menningarverð-
launa DV í kvikmyndum hljóta:
Ágúst Guðmundsson
Með Dansinum boðar Ágúst Guð-
mundsson á eftirminnilegan hátt
endurkomu sína sem þátttakandi í
íslenskri kvikmyndagerð. Hann átti
stóran þátt í að blása nýju lífi í ís-
lenskar kvikmyndir um og upp úr
1980, en fyrsta mynd hans í fullri
lengd, Land og synir, var frumsýnd
1980. Eftir fylgdu Útlaginn árið eftir,
svo Stuðmannamyndin vinsæla,
Með allt á hreinu, árið 1982 og loks
kom Gullsandur 1984. Síðan þurftu
landsmenn að bíða í ein fjórtán ár
eftir Dansinum. í millitíðinni starf-
aði Ágúst við gerð sjónvarpsþátta
fyrir erlenda aðila og má þar nefna
þættina um Nonna og Manna og
víkingamyndina Sædrekann. Dans-
inn er gerð eftir smásögu færeyska
rithöfundarins Williams Heinesens.
Hún gerist á afskekktri eyju á Norð-
ur Atlantshafi um 1913. Sisra, sem
Hún er eitt myndskeið og sýnir okk-
ur það sem helst er hægt að kalla
spuna án orða. Hraðinn á kvik-
myndavélinni er í fullu samræmi
við villtar hreyfingar leikaranna og
minnir myndin stundum á nútíma
ballett. Það er stíll yfir Slurpinum
og má segja að hvert einasta skref
sem leikarar taka sé þaulhugsað og
þaulæft; vel tekst að halda hinu
þrönga formi myndarinnar um leið
og sagan kemst til skila. Með Slurp-
inum & Co hefur leikstjórinn og
handritshöfundurinn Katrín Ólafs-
dóttir strax sett sitt mark á íslenska
kvikmyndagerð með áræðinni kvik-
mynd sem gefur fyrirheit um metn-
aðarfull verk í framtíðinni.
Valdís Óskarsdóttir
Valdís Óskarsdóttir útskrifaðist
sem klippari frá Den danske fUm-
skole 1991. Eftir nám kom hún heim
og klippti kvikmyndirnar Inguló,
Sódómu Reykjavík, SkýjahöUina og
Draumadísir. Undanfarin ár hefur
Valdís starfað sem klippari í Dan-
Slurpurinn & Co. Leikstjóri Katrín Ólafsdóttir.
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
aflmiklar vélar • samlæsingar
rafmagn í rúðum og speglum
• styrktarbita I hurðum •
• samlitaða stuðara •
• Sérstaklega röskur og snúningslipur
• Ein sparneytnasta vélin á markaðnum
Lægsta bilanatíðni nýrra smábíla, aðeins 1,6%
• Óvenju ríkulegur staðalbúnaður fyrir
bíl í þessum verðflokki
TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.000 KR.
GLX5d 1.020.000 KR
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Aoto Report. 91 <ró TUV,
Technischer Uberwachungs
Verein, byggt ó meira en
3 milljonum bila.