Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Síða 19
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
19
Fréttir
Sænskt fýrirtæki
á Krókinn
DV, Skagafirði:
Áætlað er að sænska fyrirtækið
ClicOn flytjist frá Svíþjóð til Sauð-
árkróks í byrjun mars og muni
hefja framleiðslu upp úr miðjum
mánuðinum. Það hefur áður komið
fram að starfsemi fyrirtækisins
byggist á að sauma símahulstur úr
leðri og er talið að það getið skap-
að 10-12 störf þegar starfsemin
verður komin í fullan gang á
Króknum.
Að sögn Orra Hlöðverssonar,
stjómarformanns ClicOn hf. á ís-
landi, hafa verið ráðnir þrír starfs-
menn. Þeir eru nú erlendis að
kynna sér ýmislegt sem lýtur að
starfseminni.
Framleiðslustjóri hefur verið ráð-
inn og er það Sigríður Gísladóttir.
Framkvæmdastjóri kemur frá Sví-
þjóð og verður búsettur hér, jafnvel
í þrjú ár samkvæmt samkomulagi
sem gert var jafnhliða flutningum
hingað.
ClicOn mun verða til húsa þar
sem áður var saumastofan Vaka á
Sauðárkróki. Hún hætti starfsemi á
síðasta ári. -ÖÞ
Titringur í
Reynisfjalli
DV, Vík:
Það er afltaf vinsælt hjá Mýr-
dælingum - og reyndar fleiri Is-
lendingum - að fara niöur í Reyn-
isfjöru við Vik á góðviðrisdögum,
líka þótt eitthvað hvessi, og njóta
þeirrar náttúru sem þar er, hvort
sem það er í fjöruborðinu, á sand-
inum, í fjallinu, eða hins mikla
útsýnis sem er til allra átta, með
Mýrdalsjökul og Eyjafjallajökul
yfir öllu. Náttúran þar er lika fjöl-
breytileg. Nýlega hrundi stór fyfla
úr Reynisfjalli niður í fjöruna,
svo mikil að nokkrir íbúar í Vík
heyi'ðu dynkinn og fundu titring-
inn sem fylgdi. -NH
Grunnskólinn í Hveragerði:
Fjölhæfir tíundu-
bekkingar
DV, Hveragerði:
Að kvöldi öskudags efndu 10.
bekkingar grunnskólans í Hvera-
gerði til skemmtunar í hátíðasal
skólans. Þar fór fram glæsileg
keppni nemenda um flottustu hár-
greiðsluna og síðan var haldin tisku-
sýning þar sem bestu módelin voru
valin. Keppendur í hárgreiðslu, sem
voru af báðum kynjum, greiddu sér
ýmist sjálfir eða fengu vini sina tfl
þess, en hárgreiðslan var öfl hin fag-
mannlegasta.
Ekki síðri var framkoma módel-
anna sem þarna sýndu síða kjóla
og báru sig ekki síður en margt
fagfólk í „bransanum". Kjólana,
sem stúlkumar klæddust, hönn-
uðu þær ýmist og saumuðu sjálfar
eða fengu lánaða.
Þetta er í fyrsta skipti sem sýn-
ing eða keppni af þessu tagi hefur
verið haldin í grunnskólanum.
Hugmyndin var alfarið 10. bekk-
inga og framkvæmd skemmtunar-
innar að langmestu í þeirra hönd-
um. -eh
Reynisfjara.
DV-mynd Njörður
Restaurant ýNightclub
PÓRS^G^FÉ
BRAUTARHOLTI 20
SÍMI 552 8100
www.thorscafe.com
kynnir:
Föstudaginn 26. febrúar
íslandsmeistarakeppnin
í erótískum dansi 1999
Fjórréttuð máltíð með vlni, kr. 6.950
Grafinn lambavöðvi með rúsínusósu.
Grilluð risahörpuskel og humar með saffransósu
Nautalundir með rauðvínssósu og gratíneruðum jarðeplum.
Erótísk endalok.
Sérvalið eðalvín með hverjum rétti.
Húsið opnað kL 19-00.
Tekið verður á móti gestum með
fordrykk. Borðhald hefst kl. 20.00.
Keppnin sjálf hefst kl. 22.45 stundvíslega.
Sent út á Sýn og Mono í beinni
Kynnir: Rósa Ingólfsdóttir
Veislustjóri: Ólafur Már Jóhannesson
Borðapantanir í sima 552 8100.
DV, Dalvík:
Snæfefl hf. var rekið með um 380
milljóna króna tapi á síðasta rekstr-
arári, frá 1. janúar-31. ágúst 1998.
Samkvæmt reikningum félagsins var
brúttóvelta á tímabilinu 2,4 mifljarð-
ar króna en að frádregnum innbyrð-
isviðskiptum nam veltan 1,9 milljörð-
um króna. Óregluleg gjöld námu 83
milljónum og er þar fyrst og fremst
um að ræða niðurfærslu hlutabréfa
þannig að tap af reglulegri starfsemi
félagsins nam tæpum 298 milljónum
króna á rekstrarárinu.
Afkoma einstakra eininga innan
felagsins var nokkuð ólík. Rekstur
frystihúss á Dalvík gekk vel og
einnig útgerð isfisktogarcmna Björg-
úlfs og Kambarastar. Hins vegar
varð mjög mikið tap af flestum öðr-
um þáttum í rekstri félagsins. Þetta
kom m.a. fram á nýafstöðnum aðal-
fundi Snæfells hf. Þar kom einnig
fram að heildartap af landvinnsl-
unni varð um 145 milljónir króna.
Mesta tapið varð af rækjuvinnslu fé-
lagsins í Ólafsvík, um 112 milljónir
króna. í Sandgerði varö um 50 millj-
óna króna tap í Hrísey var verulegt
tap, u.þ.b. 32 milljónir króna. Rekst-
urinn þar var endurskipulagður sl.
haust og er enn til skoðunar.
Mestur hagnaður varð hins vegar
hjá frystihúsinu á Dalvík, 52 millj-
ónir króna. Tap varð af útgerðinni í
heild að upphæð 67 mifljónir króna.
Það stafar mest af þvi að skip félags-
ins voru mjög mikið frá veiðum
vegna breytinga og viðhalds og
einnig hve rækjuveiði á heimamið-
um gekk illa. Við því var brugðist
með því að selja togarann Má án
aflaheimilda.
Á yfirstandandi kvótaári eru afla-
heimildir meiri en áður og því ekki
þörf á því að leigja aflaheimildir.
í máli Magnúsar Gauta Gautason-
ar stjórnarformanns kom fram aö
að tækjust fyrirætlanir sem unnið
væri að væri fyrirtækið komið í
mjög vænlega stöðu, eingöngu í
veiðum og vinnslu á bolfiski á Dal-
vík, í Hrísey og á Stöðvarfirði. Bol-
fiskvinnslan hentaði fyrirtækinu
best og þar væri mest þekking og
reynsla fyrir hendi. Hluthcifar í
Snæfefli í árslok voru 119. Þrír
stærstu voru KEA hf. (92,62%),
Hlutabréfasjóðurinn íshaf hf.
(2,19%) og Olíufélagið hf. (1,29%). í
stjórn sitja: Eiríkur Jóhannsson
stjómarformaður, Rögnvaldur Skíði
Friðbjömsson, Guðný Sverrisdóttir,
Ragnar Bogason og Bjami Aðal-
steinsson. -hiá
Skrautlegir búningar og hárgreiðsla.
DV-mynd Eva
380 milljóna króna
tap hjá Snæfelli
- en gert ráö fyrir hagnaöi á þessu rekstrarári