Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Side 22
30
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
Nagdýradans
Einhver
hefur fundið
sig knúinn til
að setja upp
tugi mynda
af dansandi
nagdýrum á
heimasíðu
sinni. Hægt
er að skoða
þetta nánar á
slóðinni http://www.hamp-
sterdance.com/
Metal Gear Solid
Nú fer að styttast í að
PlayStation-leiknum sem allir
tala um fari að skola hér upp á
íslandsstrendur. Hann heitir
Metal Gear Solid og á aö vera
besti leikur sem gerður hefur
verið fyrir PlayStation. Heima-
síða leiksins er
http://www.metalgear.com/
Látnar sjónvarps-
stjörnur
Á heimasíðunni http://tel-
esearch.org/passings/ er
fylgst náið með þvi þegar fólk
sem tengst hefur sjónvarpsþátt-
um á einhvem hátt fellur frá.
Það er eins gott að fylgjast vel
með því...
Veður og vindar
„Þetta er á Veðurstofu Nets-
ins; veðurspá." Á
http://www.weather.com/ er
að fmna upplýsingar um veður
og veðurspá alls staðar í heim-1
inum. Þetta er ein alvinsælasta
heimasíða Netsins, með um 154
milljónir síðna skoðaðar í síð-
asta mánuði.
Netmyndaválar
Það eru netmyndavélar úti
um allan heim sem sýna beint
frá hinum undarlegustu hlut-
um. Lista yfir slíkar myndavél-
ar og tengla á þær er að finna á
heimasíðunni
http://www.allcam.com/
Hróarskelda 1999
Þeir eru sjálfsagt margir sem
eru famir að huga að því hvort
þeir komist
á Hró-
arskelduhá-
tíðina i
sumar. Nú
þegar eru
hljómsveit-
ir famar að
skrá sig til
leiks og
stór nöfn á
borð við Metallica og REM hafa
boðað komu sína. Nánari upp-
lýsingar eru á heimasíðunni
http://www.roskilde-festi-
val.dk/
Uppboð
Uppboðsheimasíðan Ebay er
geysilega vinsæl um þessar
mundir. Þar er hægt að bjóða í
allt milli himins og jarðar og
jafnframt hægt að selja hluti
sem menn vilja losna við. Slóð-
in er http://www.ebay.com/
Intel í vanda:
Pentium III mót-
mælt harðlega
- kemur á markaðinn undir lok vikunnar
Næstkomandi fostudag kemur á
markaðinn nýjasti örgjörvinn frá
Intel, langstærsta framleiðanda ör-
gjörva i heiminum í dag. Hann heit-
ir þvi fmmlega nafni Pentium III og
hefur vakið talsverða athygli og
umræðu að undanfomu.
Umræðan hefur snúist um
tvennt. Annars vegar mjög aukna
vinnslugetu örgjörvans á ýmsum
sviðum og hins vegar raðnúmera-
kerfi sem innbyggt er í örgjörvann.
Flestir em svo sem sammála um að
hið fyrmefnda sé gott og blessað en
raðnúmerakerfið hefur verið gagn-
rýnt harðlega.
Versta martröð neyt-
enda
Ýmis samtök sem láta sig upplýs-
ingaleynd á Netinu skipta em æf út
í raðnúmerakerfi Pentium III.
Tæknin felst í því að hver einstak-
ur örgjörvi getur sent sérstakt rað-
númer til þeirra heimasíða sem
óska eftir því. Með því er hægt að
staðfesta nákvæmlega hvaða net-
notandi heimsækir síðumar hverju
sinni.
Intel segir þetta vera gert til að
fyrirtæki sem stunda viðskipti á
Netinu geti komið í veg fyrir svik.
Samtökum sem berjast fyrir vemd
persónuupplýsinga er hins vegar
ekki skemmt. Þau segja að með
þessu geti fyrirtæki þefað af áður
óþekktri nákvæmni uppi stafræn
fótspor netnotenda og séð nákvæm-
lega hvað þeir aðhafast á Netinu.
Fyrir helgi sendu samtökin Junk-
busters og Electronic Privacy In-
formation Center skilaboð til upp-
lýsingaleyndar- og neytendasam-
taka um öll Bandaríkin og hvöttu
þau til að reyna að fá Viöskiptaeft-
irlitsnefnd Bandaríkjastjórnar til að
liðsinna þeim í baráttunni gegn
Pentium III. Jafnframt biðja sam-
tökin tölvuframleiðendur og tölvu-
kaupendur um að sniðganga hinn
nýja örgjörva.
Formaður Viðskiptaeftirlits-
nefndarinnar, Robert Pitofsky, hef-
ur áður lýst því yfir að hann telji
ekki að nefndin geti gert neitt í
þessum máli. Hann fékk sérstakt
bréf frá samtökunum þar sem lýst
var áhyggjum þeirra um að neyt-
endur myndu hreinlega ekki þora
að taka þátt í viðskiptum á Netinu
framar. „Pentium III tæknin eykur
líkumar á að versta martröð net-
neytenda verði að veruleika," stóð
m.a. í bréfinu.
Velaengni P-lll nauð-
synleg
Margir efast þó um að ákall sam-
takanna muni bera mikinn árang-
ur. Þar kemur þrennt til. í fyrsta
lagi hefur Intel búið til hugbúnað
sem gerir notendum kieift að
kveikja og slökkva á raönúmera-
sendingum örgjörvans að vild. Þessi
hugbúnaður var framleiddur um
leið og fyrirtækið gerði sér grein
fyrir andstöðu upplýsingaleyndar-
manna og mun hann fylgja með öll-
um tölvum sem innihalda ör-
gjörvann. Að auki hvetur Intel
tölvuframleiðendur til að hafa
slökkt á raðnúmerakerfinu í vél-
búnaðinum þegar þeir selja tölvur
með Pentium III. Því þarf neytand-
inn bæði að kveikja á kerfinu á vél-
búnaðinum og einnig með hugbún-
aði, svo enginn ætti að þurfa að
nota raðnúmerasendingamar án
þess að vilja það sjálfur.
í öðru lagi er Pentium III gríðar-
lega öflugur örgjörvi sem býður upp
á ýmsa nýbreytni sem tölvuunnend-
ur munu eiga erfitt með að stand-
ast. Eitt af því sem mun án efa
heilla marga er mikil framfór ör-
gjörvans í að vinna með þrívíddar-
efni af ýmsu tagi á Netinu. Það ger-
ir heimasíðuhöfundum kleift að búa
til mun þyngri, flóknari og flottari
heimasíður en áður og að sama
skapi verður netflakk mun áhuga-
verðara fyrir netverja. Pentium III
mun að auki geta unnið mun betur
með hljóð og myndir, sem eykur t.d.
möguleika leikjaframleiðenda á að
búa til flottari leiki sem krefjast
mun meira af tölvum en áður.
í þriðja lagi er ólíklegt að samtök
um upplýsingaleynd geti keppt við
auglýsingaherferð Intel. í tilefni af
útkomu Pentium III leggur fyrir-
tækið út í auglýsingaherferð sem
mun kosta 300 milljónir bandarikja-
dala (um 21 múljarð íslenskra
króna). Það er langstærsta auglýs-
ingaherferð sem Intel hefur lagt út í
i sögu fyrirtækisins.
Ástæðan fyrir því að Intel ræðst í
svo umsvifamikla kynningu á ör-
gjörvanum er sú að fyrirtækið
stendur nú í gríöarlega harðri sam-
keppni á örgjörvamarkaðinum. Sér-
staklega á sú samkeppni sér stað
meðal örgjörva í ódýrari kantinum
Enn einn sigurinn fyrir Linux:
IBM slæst í hópinn
Linux-stýrikerfið hefúr verið á
geysilega hraðri uppleið að undan-
fórnu og vinna stuðningsmenn
þess hvern áfangasigurinn á fætur
öðrum. Stærsti sigurinn hingað til
varð þó sennilega í síðustu viku.
Þá tilkynnti IBM að fyrirtækið
mundi innan skamms fara að selja
hina kröftugu netþjóna fyrirtækis-
ins með Linux-stýrikerfinu upp
settu. Jaftiframt tilkynnti IBM að
fyrirtækið hygðist i framtíðinni
einnig bjóða almenningi upp á
einkatölvur með Linux.
Linux kom fram á sjónarsviðið
við upphaf þessa áratugar, en
skapari þess var hinn finnski Lin-
us Torvalds. Síðan þá hefur gríð-
arlegur fjöldi tölvuáhugamanna
um allan heim unnið saman að
því að þróa stýrikerfið, sem dreift
er ókeypis. í dag er áætlað að rúm-
lega 10 milljónir manna keyri tölv-
ur sínar á Linux.
Það er í sjálfu sér ekki stór tala
miðað við fjölda þeirra sem nota
Windows-stýrikerfið. En vöxtur-
inn er hraður hjá Linux og þá sér-
staklega hvað varðar netþjóna.
Undanfarið hefur netþjónum sem
keyra á Linux fjölgað hraðar en
þeim sem keyra á Windows-NT
netstýrikerfinu.
IBM er nýjasta fyrirtækið í hópi
tölvufyrirtækja sem hafa lýst yfir
stuðningi við Linux að undan-
fömu. í þeim hópi eru meðal ann-
arra Hewlett-Packard, Silicon
Graphics og Dell Computer Corps.
Forstjóri Intel, Craig Barrett, kynnti Pentium III örgjörvann fyrir fjölmiðlum á
mikilli kynningarhátíð í síðustu viku. Hátíðin var liður í auglýsingaherferð In-
tel sem mun kosta um 21 milljarð króna.
og hefur Intel nýlega þurft að lækka
mjög verð á hinum ódýra Celeron-
örgjörvum sínum til að standast
samkeppnina. Það þýðir að fyrir-
tækið hagnast mjög lítið á þeim
markaði og því er Intel mjög í mun
að fá neytendur til að kaupa Penti-
um III. Hvort það svo tekst á tíminn
eftir að leiða í ljós.
-KJA
Blómabúð á Netinu
Nú hefur veriö opnuö á íslandi
netverslun meö blóm og kransa og
því gefst fólki hvar sem þaö er statt
í heiminum kostur
á aö senda vinum
og ættingjum hér
heima blóm. Einnig
getur fólk sem er á
leiö aö heiman
p a n t a ö
blómasendingu
áöur en haldiö er
af staö og mun
verslunin svo sjá
um aö koma
blómunum til skila
á réttum tíma. Þaö
er fyrirtækiö Blóm og Ávextir í
Austurveri sem rekur netverslunina.
Slóö blómaverslunarinnar er:
http://www.blomabud.is/
Höfundarréttarstuldur
Bandarísk samtök eigenda
höfundarréttar segja aö ísrael sé
landa verst hvaö varöar stuld á
tónlist, myndböndum og
tölvuhugbúnaöi. Samtökin hafa hvatt
Bandaríkjastjórn til aö aöhafast
eitthvaö í málinu og setja einhvers
konar viöskiptabann á landiö. ísrael
er þó ekki eina landiö sem stendur
sig illa hvaö þetta varöar, aö mati
samtakanna. Önnur lönd á svörtum
lista eru Kúveit, Mexíkó, Macau,
Ítalía, Rússland, Tyrkland og Pólland.
Listi af þessu tagi er lagöur fram
árlega til aö þrýsta á ríkisstjórnir
viökomandi ríkja aö taka sig á í
þessum málum.
Hewlett-Packard græðir
Fyrsta fjóröungi fjárhagsárs
tölvuframleiöandans Hewlett-Packard
lauk þann 31. janúar. Viö uppgjör
kom í Ijós aö
Ifyrirtækið haföi
hagnast um 960
m i I I j ó n i r
bandarikjadala, en
þaö eru tæpir 70
milljaröar íslenskra
k r ó n a .
Hagnaöurinn á
sama tíma fyrir ári
var 929 milljónir
daia. Hagnaöur
fyrirtækisins var
nokkuö meiri en
sérfræöingar á Wall Street höföu
búist viö. Talsmenn fyrirtækisins
þakka hagræöingu þessa aukningu.
Enn er vöxtur fyrirtækisins þó ekki
nægilega mikill aö þeirra mati og
veröur verkefni næsta árs aö auka
vöxt þess án þess þó aö missa
kostnaö úr böndunum.
Myndleitarvél
Fyrirtækiö Imagelock hefur þróaö
tækni sem leitar aö einstökum
myndum eöa teikningum á Netinu.
Þetta mun hjálpa einstaklingum og
stofnunum aö fylgjast meö því hvort
veriö sé aö nota verk þeirra á
ólögmætan hátt. Leitarvélin virkar í
raun svipaö og venjulegar leitarvélar
á Netinu, nema hvaö hún finnur
einstakar myndir i staöinn fyrir texta.
Talsmenn Imagelock telja aö hún
veröi komin í gagniö fyrir lok
mánaöarins.
•'j *****
v- -» # ,
V >
h ' A .