Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Side 24
32
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
Þétt handtak
ávísun á langlífi
Þéttingsfast handtak a miðj-
um aldri kann að vera vísbend-
ing um góða heilsu á gamals-
aldri. Sú er að minnsta kosti
skoðun bandarískra vísinda-
manna í kjölfar 25 ára rann-
sóknar á meira en sex þúsund
Bandaríkjamönnum af
japönskum ættum á Hawaii.
Vöðvastyrkur mannanna var
mældur með aðstoð sérstaks
tækis. Rannsóknin hófst árið
1965 þegar karlarnir voru á
aldrinum 45 til 68 ára og henni
lauk 25 árum síðar þegar
heilsufar þeirra rúmlega þrjú
þúsund sem enn lifðu var
kannað.
Sagt er frá rannsókn þessari
í tímariti bandarísku lækna-
samtakanna.
Það hefur sýnt sig að fylgni
er milli styrks handtaksins og
styrks annarra vöðvahópa.
Þéttingsfast handtak er því
prýðileg vísbending um al-
mennan styrk, að sögn vísinda-
mannanna.
Salmonella
greind í hvelli
VÍsindamenn bandaríska
landbúnaðarráðuneytisins hafa
fundið nýja aðferð við að
greina salmonelluakteríur á
skjótan hátt.
Genakóði DT 104 salmonellu-
bakteríunnar var kortlagður.
Það þýðir að mjög skamma
tíma tekur að greina hvort kjöt
og egg innihalda þessar hættu-
legu bakteriur sem eru ónæm-
ar fyrir mörgum tegundum
sýklalyfja.
Áður fyrr tók það um það bil
sex vikur að ganga endanlega
úr skugga um hvort DT 104
salmonella var i viðkomandi
matvælum. Nú tekur greining-
in aðeins tvær klukkustundir,
eða þar um bil.
Sprungið á mér,
segir dekkið
Verkfræðingar vestur í
Bandaríkjunum hafa hannað
nýja tegund hjólbarða sem býr
yfir þeim einstöku hæfileikum
að geta sagt bílstjóranum frá
þegar springur á því. Nú eða þá
hvenær nauðsynlegt er að
skipta um dekk.
Að sögn tímaritsins New Sci-
entist eru það vísindamenn frá
Case Westem Reserve háskól-
anum í Ohio sem standa fyrir
dekki þessu, í samvinnu við
Goodyear dekkjaframieiðand-
ann. Örsmáir nemar fyrir hita
og þrýsting hafa verið settir í
dekkin til að fylgjast með
ástandi þeirra.
Goodyear hefur gert tilraun-
ir með nemann í dekkjum und-
ir stóra bíla en ekki hefur enn
verið tilkynnt hvenær fólks-
bíladekk verða svona útbúin.
Lífið í undirdjúpunum við Suðurskautslandið skoðað:
Weddell-selurinn gerir
leifturárásir á þorskinn
Myndavél á stærð við tennisbolta
og örsmá tölva hafa gert vísinda-
mönnum kleift að fylgjast með sel-
um við Suðurskautslandið þegar
þeir kafa ofan í ísköld hafdjúpin.
Þar sem sjávarspendýr verja
miklum tíma undir yflrborði sjávar
hefur reynst erfiðara að fylgjast
með þeim í sínu náttúrulega um-
hverfi en með dýrunum sem lifa á
þurru landi.
Nú er öldin sem sé önnur og litla
myndavélin hefur leitt ýmislegt for-
vitnilegt í ljós. Til dæmis það, að
selimir við Suðurskautslandið beita
Maður skyldi nú ekki ætla það,
en þannig er það nú samt. Nánasti
núlifandi ættingi krókódíla eru
skjaldbökur en ekki fuglar eins og
áður var talið.
Erfðafræðilegar rann-
sóknir hafa leitt í ljós að
krókódílar og skjaldbök-
ur hafi sennilega átt
sameiginlegan forfoður
fyrir um tvö hundruð
milljónum ára, á trías-
tímabilinu. Hefðbundin
líffræði hafði ekki kom-
ið auga á þetta.
Tveir bandarískir vís-
indamenn, S. Blair Hed-
ges og Laura Poling, við
Penn ríkisháskólann í
Pennsylvaníu, skýra frá
niðurstöðum rannsókna
sinna á DNA-erfðaefni
bæði krókódila og
skjaldbakna í tímaritinu
Science.
Tilgangur rannsóknanna var að
reyna að komast að hinu sanna um
ýmsum brögðum við að veiða sér til
matar. Þeir bregða til dæmis á það
ráð að blása loftbólum inn í mjóar
sprungur í ísnum til að flæma smá-
fiska þaðan út. Frá þessu segir í
grein í timaritinu Science eftir sjáv-
arlíffræðinginn Randall Davis við
Texas A&M háskólann og starfs-
bræður hans.
Rannsókn þeirra á svokölluðum
Weddell-selum, sem verja allt að
níutíu prósent ævinnar í kafl, er
hin fyrsta sem varpar ljósi á veiði-
tækni sjávarspendýra.
„Við ráðum nú yfir tækni sem
hver væri nánasti lifandi ættingi
krókódílanna. Vísindamönnum
hafði verið það mikil ráðgáta.
Samkvæmt hefðbundnum flokk-
unarkerfum eru skriðdýr í flokki
með fuglum en skjaldbökur eru sett-
ar heldur neðar á þróunartréð.
Flokkun þessi byggist á ákveðnum
gerir okkur kleift að ferðast með
dýrum þessum. Tæknin hefur orðið
til þess að við getum loksins rann-
sakað þau í náttúrulegu umhverfi
sínu,“ segir Randall Davis.
Weddell-selir geta orðið allt að
þriggja metra langir og 450 kílóa
þungir. Þetta eru gæflynd dýr sem
eiga sér enga óvini á þurru landi.
Vísindamennimir gómuðu nokkra
seli og festu myndavélarnar við
hausana á þeim og örsmáu tölvurn-
ar á bakið á þeim.
Tölvan skráir ferðir selanna mjög
nákvæmlega þar sem þeir kljúfa
sérkennum hauskúpu dýranna.
Hedges og Poling skoðuðu genin
þess í stað. Þau veittu athygli að
fyrri genarannsóknir höfðu bent til
þess að hefðbundin vísindi kynnu
að hafa rangt fyrir sér í
máli þessu. Þau tóku því
saman allar fáanlegar
rannsóknir á genum
krókódíla og skjaldbakna.
„Skjaldbökurnar reynd-
ust ekki vera þar sem þær
áttu að vera á ættartrénu í
hvert sinn sem gen þeirra
voru höfð með í rannsókn-
um,“ segir Hedges.
„Niðurstöðurnar gefa
mjög ákveðna vísbendingu
um að skjaldbakan sé nán-
asti núlifandi ættingi
krókódílsins."
í greininni í Science
kemur fram að skepna ein
sem liföi á triastimabilinu
hafi haft ýmis einkenni bæði skjald-
bakna og krókódíla.
svellkalt vatnið og kafa niður á Eillt
að sex hundruð metra dýpi í McM-
urdo-sundi við Suðurskautslandið.
Og það sem vísindamennirnir sáu
fyrir tilstilli myndavélanna kom
þeim nokkuð á óvart.
Selirnir eru hugmyndaríkir, ef
svo má að orði komast, þegar kem-
ur að því að veiða flsk í matinn.
Þegar það er stórfiskur eins og
þorskur sem þeir gimast laumast
þeir að bráðinni neðan frá og gera
síðan leifturárás. En smærri fiska
flæma þeir út úr glufum og sprung-
um með loftbólum, að sögn Davis.
Hann segir að aukinn skilningur
á atferli og venjum dýra þessara
geri mönnum auðveldara fyrir með
að ákvarða hvernig best sé að
standa vörð um stofnana.
Kóngafiðrildin í
Mexíkó eru í út-
rýmingarhættu
Umhverfisverndarsinnar í
Mexíkó hafa rekið upp neyð-
aróp. Kóngafiðrildin sem þar
hafa vetursetu eru í stórhættu
og sums staðar hefur orðið
allt að áttatíu prósent fækkun
í stofninum. Ástæðan er gífur-
legt ólöglegt skógarhögg á op-
inberum vemdarsvæðum.
Kóngafiðrildin hafa hrifið
umhverfisverndarsinna um
allan heim. Fiðrildi þessi fara
frá Mexíkó til Kanada og aftur
til baka. Kynslóðirnar sem
fæðast einhvers staðar á þess-
ari löngu leið finna engu að
síður heimkynni sín í Mexíkó,
Bandaríkjunum eða Kanada.
Kóngafiðrildin sem eru í
Mexíkó núna eru barnabörn
þeirra sem þar vom á síðasta
ári.
Umhverfisverndarsinnar
segja að ólöglega skógarhögg-
ið sé meira núna en nokkru
sinni fyrr í furuskógum
Michoacan-ríkis. Við það hafa
fiðrildin misst vetrardvalar-
staði sína og því hefur þeim
fækkað um fimmtíu til áttatíu
prósent á stöðum sem skógar-
högg er bannað.
Fiðrildin þekja nú aðeins
fimm og hálfan hektara lands
í griðlöndunum. í fyrra þöktu
þau þrettán hektara og árið
þar á undan sautján hektara.
Ferðamenn flykkjast til
griðlandanna til að virða fyrir
sér og dást að milljónum
kóngafiðrilda sem þekja skóg-
ana eins og teppi.
Homero Aridjis, forseti um-
hverfissamtakanna Hóps 100,
segir ástandið til vitnis um að
þrjár ríkisstjómir hafi ekki
megnað að vernda kóngafiðr-
ildið. Aridjis bendir á að fiðr-
ildið sé einmitt tákn NAFTA,
fríverslunarsamtaka Norður-
Ameríku.
Weddell-selur með myndavél á hausnum kemur með nýveiddan fisk upp á yfirborð sjávar.
Undur og stórmerki erfðafræðirannsókna:
Skjaldbakan nánasti núlif-
andi ættingi krókódílsins
Ekki beint krókódílslegar, eða hvað?