Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Kvörtun ESA vegna kaupa Reykjavíkurborgar á rafli án útboös:
Gæti orðið dómsmál
- segir Björn Friðfinnsson Evrópufræöingur
„Þetta getur sjálfsagt orðið
dómsmál milli ESA og íslenska
ríkisins, sem er ábyrgt fyrir því að
þegnarnir fari eftir reglunum,"
sagði Björn Friðfinnsson ráðu-
neytisstjóri, sérfræðingur í Evr-
ópumálefnum, þegar DV innti
hann eftir áliti á klögumáli ESA,
Eftirlitsstofnunar Evrópusam-
bandsins, sem sent var til fjár-
málaráðuneytis. ESA vill fá skýr-
ingar á viljayfirlýsingu um kaup
þriðja rafalsins frá Mitsubishi til
NesjavaUavirkjunar - án útboðs.
Hér er um að ræða viðskipti upp á
600 til 1.000 milljónir króna og
mikið í húfi fyrir borgarbúa, selj-
endur og ekki síst umboðsmenn.
Borgin borgar
Þrír borgarfulltrúar og hita-
veitustjóri halda utan til Japans á
sunnudag og munu í ferðinni
þiggja boð stórfyrirtækisins Mitsu-
bishi. Þetta eru Ingibjörg Sólrún
Gisladóttir borgarstjóri, Jóna Gróa
Sigurðardóttir borgarfulltrúi, Al-
freð Þorsteinsson, borgarfulltrúi
og formaður Veitustofnana Reykja-
víkur, og Guðmundur Þóroddsson,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Með þeim í för að hluta til verður
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu
hf., sem er umboðsaðili Mitsubis-
hi.
Alfreð Þorsteinsson vísaði því á
bug i gær að borgarfulltrúarnir
væru að þiggja boð um friar ferðir
og uppihald.
„Ég fullyrði að það er ekki verið
að bjóða okkur slíkt af Mitsubishi.
Það er mjög alvarlegt ef menn eru
að búa til slika hluti. Þetta er ekki
boðsferð," sagði Alfreð Þorsteins-
son, borgarfulltrúi og formaður
Veitustofnana, í gær. Undir það
tekur Sigfús Sigfússon, forstjóri
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
Alfreð Þor-
steinsson.
Heklu hf. Hann segir það andstætt
reglum Mitsubishi að bjóða slíkt.
Þá gilda reglur um boðsferðir borg-
arfulltrúa, sem erfitt reyndist að fá
uppgefnar hverjar væru. En þar
mun það skýrt að bannað er að
þiggja boðsferðir viðskiptavina.
Það á einnig við um starfsmenn
borgarfyrirtækja.
Alfreð segir að flugið til Japans
og heim kosti um 100 þúsund krón-
ur á hvem farþega. Borgin greiðir
fargjöldin og einnig uppihaldið
ytra auk dagpeninga. Farseðlarnir
vora tilbúnir hjá Samvinnuferðum
í gær.
Ferðin er ekki farin vegna þriðja
rafalsins, sem keyptur verður frá
Mitsubishi samkvæmt viljayfirlýs-
ingu sem aðilarnir undirrituðu
síðastliðið haust. Alfreð segir að
ferðast sé í öðrum tilgangi, til að
heimsækja Tokyo sem menningar-
borg og fræðast um hana og ekki
síður að kynnast nýrri tækni Jap-
ana, sem leiða ljósleiðara um hol-
ræsi borganna í stað þess að grafa
upp götur. Guðmundur Þórodds-
son, forstjóri Orkuveitu Reykjavík-
ur, hefur kannað þessa tækni og
skoðar hana betur í Japan. Alfreð
segir að þessi tækni gæti sparað
borgarbúum stórfé, ef hún hentar
okkur. Hins vegar staðfestir Alfreð
Glímumenn semja
við söðlasmið
í framhaldi af frétt DV frá í gær
um íslenska glímubúninginn og skort
á honum í verslunum hafa reykvískir
glímumenn bundist samtökum um úr-
bætur. Skipuð hefur verið nefnd til að
finna nýtt efni í búninginn og verður
bandarískt gæðaefni, sem meðal ann-
ars er notað í körfuboltaskyrtur, lík-
lega fyrir valinu. Þá eru glímumenn
að ganga frá samningum við gamal-
reyndan söðlasmið um gerð glímubelt-
isins sjálfs sem er ólin sem liggur um
mitti og lær glímumannsins. Glímu-
skórnir verða áfram framleiddir á
Skagaströnd þar til annað verður
ákveðið.
„Glímuskómir hafa lengi verið eitt
aðalvandamálið við glímubúninginn.
Hér áður fyrr gátum við notað banda-
ríska hnefaleikaskó en þeim hefur
verið breytt á síðustu árum þannig að
þeir henta ekki lengur," sagði Hörður
Gunnarsson, fyrrverandi formaður
glimudeUdar Ármanns. -EIR
Röskva fagnar á kosningavöku í gær. DV-mynd Teitur
Kosið í Háskólanum:
Vaka vann á
Kosið var til stúdenta- og há-
skólaráðs í Háskóla íslands í gær.
Röskva, félag vinstri sinnaðra stúd-
enta, sigraði í kosningum tU stúd-
entaráðs og hlaut 52,1 prósent at-
kvæða en Vaka, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta, hlaut 43,6 prósent at-
kvæða. Vaka náði aö saxa nokkuð á
það mikla forskot sem Röskva hefur
haft undanfarin ár í stúdentaráði en
Röskva heldur meirihluta sínum í
ráðinu eftir kosningamar i gær.
Einn fuUtrúi frá hvorum lista var
kjörinn í háskólaráð. Kjörsókn var
um 42 prósent, sem telst nokkuð
slakt, en hún var um 47 prósent í
fyrra.
-hb
að höfuðstöðvar
Mitsubishi verða
heimsóttar í leið-
inni og munu
borgarfuUtrúar
sitja boð fyrir-
tækisins.
Sigfús segir að
ferðalag Ingi-
bjargar Sólrúnar
Gísladóttur til
Japans sé í raun
gömul saga. For-
stjórinn var verkfræðingur við
Kröfluvirkjun á sínum tíma en er
núna æðsti maður. Hann hafi
fylgst vel með framvindu mála hér
þegar Mitsubishi seldi tvær túrbín-
ur að NesjavöUum. Þá hafi hann
boðið borgarstjóranum til Japans.
Ekki hafi orðið af þeirri ferð fyrr
en nú.
Jóna Gróa
urðardóttir.
Svínarí
Frétt DV í gær vakti undrun
margra. Fleimm en ESA þykir sjálf-
sagt að til útboðs komi. Stjórnarand-
stæðingar í borgarstjóm voru harð-
orðir. Guðlaugur Þór Þórðarson var
inntur álits:
„Þama erum við að tala um 600
miUjónir króna og attt að miUjarð.
Þetta era ettaust góðir hreyflar frá
góðu fyrirtæki, en engu að síðm- er
það afar sérkennilegt að menn skuli
ekki ætla i útboð sem slíkt og skrifi
undir vUjayfirlýsingu um slík kaup.
Ég undrast þessi vinnubrögð,“ sagði
Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfuU-
trúi í gær.
SamkeppnisaðUar vom enn frem-
ur undrandi og reiðir. Karl Ormsson,
forstjóri Bræðranna Ormsson hfl,
sagði:
„Ég vil ekki tala um þetta svínarí."
Þar skírskotaði hann ttt samninga
sem gerðir voru við Mitsubishi
snemma árs 1997 og síðan viljayfir-
lýsinguna sem undirrituð var síðast-
liðið haust. -JBP
Hanna Kristín Didriksen snyrtifræöingur hefur nóg að gera.
Höfuöborgarsvæöið:
Vantar 300
snyrtifræðinga
„Það er alveg ljóst að það verður
skortur á snyrtifræðingum á meðan
Fjölbraut í Breiðholti útskrifar ekki
nema sex tU átta á ári. Það er hins
vegar nóg af förðunarfræðingum og
það er aUt annað,“ segir Hanna
Kristín Didriksen, snyrtifræðingur
á Laugaveginum í Reykjavík.
Að mati þeirra sem best þekkja ttt
í snyrtivörugeiranum vantar um
300 snyrtifræðinga í Reykjavík.
Förðunarskólar útskrifa aftur á
móti svipaðan fjölda árlega en
Hanna Kristín segir að það bæti
ekki upp skortinn:
„Förðun er ágæt á fóstudags- og
laugardagskvöldum en snyrtingin
er nauðsyn alla daga. Það vantar
snyrtifræðinga í snyrtivörabúðir,
hjá heildsölum og á snyrtistofur
víða um bæinn. Sjálf gæti ég ráöið
fimm snyrtifræðinga strax í dag og
þeir hefðu nóg að gera,“ segir
Hanna Kristín.
Uppi eru hugmyndir um að
rýmka inntökuskUyrði á snyrti-
fræðibraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti tU að mæta þessum
vanda en fagið er ekki kennt annars
staðar. Förðun er hins vegar kennd
á námskeiðum á minnst sex stöðum
í Reykjavik. -EIR
Stuttar fréttir i>v
Bókhaldið í klessu
Leikfélag Akureyrar hyggst
standa fyrir heilsársrekstri í
framtíðinni. Vond afkoma og bók-
haldsbrestur fráfarandi leikhús-
stjómar, auk annarrar óvissu,
setur félaginu þó þröngar skorð-
ur. Dagur segir frá.
Risasamtök
VSÍ og önnur félög atvinnurek-
enda renna saman í ein stór og mið-
stýrö samtök ef
samningavið-
ræður sem nú
standa yfir
ganga upp. Þór-
arinn V. Þórar-
insson, fram-
kvæmdastjóri
VSÍ, segir í sam-
tali við Dag að á annað ár hafi ver-
ið í athugun búa ttt sterkara og
ódýrara félagsumhverfi.
M&M í hljóðbækur
Mál & menning hefur tekið að
sér dreifingu á hljóðbókum frá
Hljóðbókaklúbbi Blindrafélags ís-
lands og þjónustu við klúbbfélaga.
Fyrsta hljóðbókin i þessu samstarfi
er í þann veginn að koma út, en það
er Morgunþula í stráum eftir Thor
Vilhjálmsson sem höfundur les.
Ljósleiðari í klóakið
Orkuveita Reykjavíkur hefur
hug á að hefja samkeppni við
breiðbandskerfi Landssímans
með rekstri gagnaflutningskerfis
um ljósleiðara, sem lagt yrði um
skolpkerfi borgarinnar að jap-
anskri fyrirmynd. Þetta kemur
fram í frétt í DV í dag.
Villimennska
„Sú viUimennska sem viðgengst
innan raða út-
gerðarmanna
með því að stela
af launum sjó-
manna hefur
neytt okkur tU
að vera
óvægnir," segir
Konráð Alfreðs-
son, formaður Sjómannafélags Eyja-
tjarðar, við Dag.
Hraðar hendur
Lögregla á Akureyri kom upp
um stórfeUt sígarettusmygl hol-
lensks skipstjóra á flutningaskipi
frá Panama. Málið var upplýst
fyrir hádegi. Þá var ákært og
dómur faUinn fyrir síðdegiskaffi.
Kært vegna hunda
Reykjavíkurborg hefur verið
stefnt fyrir aðgerðir gegn hunda-
ræktarbúi fyrir 3 árum og krefst
ræktandinn mUljóna króna í
skaðabætur. Vísir.is segir frá.
Sótti bryggjuna
Björgunarsveitarmaður á Þórs-
höfn, Guðmundur S. Sigurðsson,
stakk sér til sunds og tókst að
koma taug i flotbryggju sem slitn-
aði frá landi í smábátahöfninni á
Þórshöfn í aftakaveðri um helg-
ina. Morgunblaöið sagði frá.
Heimilishagir ráða
Breytilegm- bakgrunnur nem-
enda á meiri þátt í mismunandi ár-
angri grunnskólanema í Reykjavík
á samræmdum prófum í 10. bekk en
mismunandi innra starfi skólanna.
Morgunblaðið sagði ffá.
Loðnan rýr
Meðalþyngd loðnu á yfirstand-
andi vertíð er sú minnsta sem
mælst hefur í tvo áratugi. Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræðingur, telur
að leita verði skýringa tU óvenju-
legra aðstæðna í hafinu. Morgun-
blaðið segir frá.
Hrafninn í hættu
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
Náttúrufræði-
stofnunar, telur
að islenski
hrafiiinn sé í út-
rýmingarhættu.
Um 8.000 hrafn-
ar era skotnir
árlega hér á
landi. Stöð 2
sagði frá.