Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Skiptar skoðanir um málavöxtu í e-töflumáli Bretans Kios Alexanders Briggs:
„Ákæruvaldið hefur ekki sannað
það með gögnum eða trúverðugum
upplýsingum að ákærði sé sekur,“
sagði Helgi Jóhannesson, verjandi
Kio Alexanders Ayobambele Briggs,
í lokaréttarhaldi fikniefnamálsins
þar sem hinum 26 ára Breta er gef-
ið að sök að hafa flutt 2.031 e-töflu
til íslands þann 1. september. Ragn-
heiður Harðardóttir hafði þá flutt
sóknarræðu sína þar sem hún
beindi m.a. orðum sínum til Bret-
ans þess efnis að á meðan hann
„þegi um þátt annarra" væri ekki
hægt að ákæra fleiri - þar átti hún
aöallega við 24ra ára Islending sem
sagði fyrir dómi að hann hefði
samið við lögregluna og nýlega við
DV að hann hefði „fórnað Bretan-
um“ - þetta er m.ö.o. sá maður sem
hafði samband við lögregluna löngu
áður en Bretinn kom með efnin til
íslands.
Hálfs árs málarekstur
Bretinn er nú búinn að sitja í
tæpt hálft ár í gæsluvarðhaldi. Mál
manna er, lögmanna sem leik-
manna, sérstaklega í ljósi framburð-
ar framangreinds vitnis, að verði
ákærði dæmdur verði einungis um
að ræða sakfellingu á líkum. Sumir
hafa haldið því fram að lagalega
skuli Bretinn sýknaður á þeim
skynsamlega vafa sem vömin telur
fram komna í málinu - það megi
ekki gerast að réttarkerfið sakfelli
hugsanlega saklausan mann -
a.m.k. ekki meðan áþreifanlegri
sannanir liggi ekki fyrir. Önnur
sjónarmið lögmanna hníga hins
vegar að því að Bretinn „hafi örugg-
lega vitað af e-töflunum“ í töskunni
þegar hann kom til landsins. Hvað
sem því líður er það nú dómarans,
Péturs Guðgeirssonar, að ákveða
niðurstöðuna.
Geðlæknir styður
framburð Kios
Það kom talsver á óvart í réttar-
haldinu í gær þegar Helgi verjandi
lagði fram skýrslu Magnúsar Skúla-
sonar geðlæknis á Sogni. Magnús
hefur í starfi sínu sem fangelsisgeð-
læknir einnig á Litla-Hrauni oft
rætt við sakbominginn og myndað
sér læknisfræðilega faglega afstöðu
til framburðar Kios - hann hafi
Sakborningurinn Kio heilsar verjanda sínum, Helga Jóhannessyni, við upphaf réttarhaldsins í gær. Geir Jón Þóris-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn, lengst til vinstri, fylgist með. DV-mynd Sveinn
hins vegar ekki kynnt sér máls-
gögnin.
Efnisleg niöurstaða geðlæknisins
er á þá leið að samkvæmt hans ára-
löngu reynslu þá finnist honum
mjög ótrúlegt að ákærði sé með
framburði sínum að sviðsetja eitt-
hvað annað en raunveralega gerðist
- frásögn Bretans hafi ávallt verið
mjög staðfost í langan tíma í gæslu-
varðhaldinu. Það séu öll teikn á
lofti - tilfinningaþrangi og innri
ákafi - um að maðurinn sé að segja
satt, þ.e. að einhver hefði komið efn-
unum fyrir í tösku hans.
Ekki efni til að ákæra aðra
Ragnheiður Harðardóttir sækj-
andi sagði í vamarræðunni i gær að
allar líkur bentu til sektar sakbom-
ingsins - hann hefði m.a. nánast
komið peningalaus til landsins með
stuttbuxur og boli í farangrinum.
Ólíklegt væri að hann hefði ætlað
að leita sér að vinnu á íslenskum
togara eins og hann hefði haldið
fram. Allt að einu sagði Ragnheiður
að ósagt skuli látið hvort framan-
Margumtalað vitni var grunað um
að hafa átt þau - maður sem síðan
hélt því fram fyrir dómi að hann
hefði samið við lögregluna áður en
hann sagði til Bretans. Þverstæðurn-
ar eru svo miklar að menn hrista
höfúðið. Hvemig verða vitibomar
yfirheyrslur hjá lögreglu sem hefúr
samið við grunaðan mann? Og enn
fremur; hvaða trúverðugleika hefur
maður sem segist fyrir dómi og í DV
hafa samið við lögregluna en þegar
hann er yfirheyrður - hjá sömu lög-
reglu aftur - þá neitar hann öllu sem
máli skiptir?
Þegar Ragnheiður sækjandi og
Helgi verjandi höfðu lokið greini-
lega vönduðum ræðum sínum í rétt-
arsalnum í gær, þar sem dómtúlkur
þýddi allt jafnóðum fyrir sakbom-
inginn, sagði Pétur dómari að dóm-
ur gengi a.m.k. ekki fyrr en að liðn-
um tveimur vikum. Við svo búið
sagði hann:
„Er þá málið tekið til dóms.“
Viðstaddir, sem aðallega vora lög-
reglumenn, gengu við svo búið út úr
dómsalnum.
ádrætti um að lögreglan hefði lofað
manninum einhverju varðandi að
fá að vera í friði við eigin innflutn-
ing - lögreglan hefði engar heimild-
ir til slíks.
Ótrúverðugt og ruglings-
legt vitni
Allt frá þvi aö Kio var handtekinn
í lok smnars hefur sú spuming legið
í loftinu hver í raun „átti efnin“.
greint vitni - íslendingurinn sem
hýsti Bretann síðustu dagana fyrir
íslandsferðina og sagði svo lögreglu
frá öllu - hefði talið sig hafa samið
við lögregluna. Hún vísaði á bug
Áhöld um sekt
- lögmenn telja þetta sakamál „prinsippmár4 varöandi sakfellingu á líkum
Kristinn á eftir að iæra
Það þótt sumum það spaugilegt
þegar Kristinn Gunnarsson, for-
maður sjávarútvegsnefndar Al-
þingis, var að reyna að útskýra
það fyrir fréttamönnum sjón-
varpsins að nefndin væri enn að
skoða hvalveiðitillöguna, gaf ým-
islegt í skyn og tók fram að meiri-
hlutinn á þingi þyrfti að komast
að einhveiju samkomulagi um
málsmeðferð.
Á sama tíma og í sama frétta-
tíma var hins vegar haft samband
við Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sem var ekkert að skafa
utan af hlutunum frekar en fyrri
daginn. Davið tilkynnti að hval-
veiðar mundu ekki verða sam-
þykktar. Punktur, basta.
Þetta þótti spaugilegt vegna
þess að Kristinn var að reyna að
láta það líta svo út að nefhdin og
hann sjálfur réði einhverju um af-
drif tillögunnar. Þaö er hins veg-
ar ástæðulaust að hlæja að Kristni. Hann er ný-
kominn inn í stjómarliðið þegar hann söðlaði
yfir í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubandalag-
inu og það tekur tíma fyrir fyrrverandi stjómar-
andstæðing að átta sig á þeim leikreglum sem
gilda i stjórnarliðinu. Að vísu vefst það ekki mik-
ið fyrir reyndum alþingismönnum að skipta um
skoðun eins og best sést af Svavari Gestssyni og
því nýja hlutverki hans að túlka stefnu ríkis-
stjómarinnar í vamarmálum.
En meðan Kristinn er að venja sig við það að
vera í stjómarliðinu hefur hann af skiljanlegum
ástæðum ekki ennþá gert sér grein fyrir því að
þar á bæ snúast stjómmálin ekki um að hafa
skoðun eða leggja mál í nefndir eða hafa samráð
við aðra stjómarliða.
Hlutverk hans og annarra í meiri-
hlutanum, sem styður ríkistjómina,
er að gegna því sem þeim er sagt. Og
helst alls ekki að velta því fyrir sér
hvað málefiialega afstöðu rétt sé að
taka í vandasömum viðfangsefnum.
Forsætisráðherra sér um þá hlið
mála. Davíð ræður. Og þegar Davíð er
búinn að ákveða að ekki verði veidd-
ur hvalur þá verður ekki veiddur
hvalur. Svo einfalt er það.
Kristinn situr auðvitað uppi með
það að vera formaður sjávarútvegs-
nefndar en hann gerir best í því fram-
vegis að láta fréttamenn ekki ná í sig
og ef þeir slysast til að ná í hann á for-
maðurinn að segja sem minnst. Helst
ekki neitt. Annars kemst það upp að
hann ráði engu. í það minnsta er það
lágmark að formaður sjávarútvegs-
nefndar grafi það upp hvort Davíð
hafi myndað sér skoðun og þá hvaða
skoðun til að formaður nefiidarinnar
geti gefið í skyn að nefndin og hann
sjálfúr hafi komist að þeirri sömu niðurstöðu og
Davíð hefur ákveðið.
Þannig gerast kaupin á eyrinni í stjómarmeiri-
hlutanum og því fyrr sem Kristinn Gunnarsson
getur tileinkað sér þau vinnubrögð því betra. Því
minna ber á þvi að hann ráði engu um það hvað
nefndin hans leggur til.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Óháðir fordæma
Þingflokkur óháðra fordæmir
þá ákvörðun ríkisstjómarinnar
að undirrita ekki Kyoto-bókunina
við loftslagssamning SÞ áður en
tilskilinn frestur til 15. mars er
úti. í frétt frá þingflokknum segir
að ríkisstjórnin hafi þar með
skorist úr leik í viðleitni þjóða til
að hefta háskalegar loftslagsbreyt-
ingar af mannavöldum.
Forsetinn til Póllands
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti íslands, hefur þegið boð Alex-
anders Kwasni-
ewski forseta
um að koma í
opinbera heim-
sókn til Pól-
lands 10. til 13.
mars. Dalla
Ólafsdóttir, dótt-
ir forsetans,
fylgir honum í ferðinni. Auk þess
verða með í fór utanríkisráð-
herra, ráðuneytisstjóri utanrikis-
ráðuneytisins oJl.
Flóðahætta
Veðurstofan ákvað skömmu
fyrir kl. 16 i gær eftir samráð við
sýslumann á Patreksfirði og al-
mannavamanefiid á Bíldudal að
rýma þrjú hús neðan Gilsbakka-
gils. í ljósi veðurspár fyrir síðustu
nótt og í dag var talin hætta á
snjó- og krapaflóðum.
Kosningasímgjöld
Landssíminn hf. birti í gær sér-
taxta fyrir kosningasima. Stofn-
og uppsetningargjald fyrir tíma-
bundinn kosningasíma er kr.
4.018. Þá er afsláttur frá fullu
skrefagjaldi 85% og kostar hvert
talskref 50 aura. Kosningasimar
verða læstir þannig að ekki er
hægt að hringja beint úr þeim til
útlanda, í farsíma eða síma-
torgsíma.
Undir væntingum
Hagnaður fyrirtækja Aðal-
steins Jónssonar, Hraðfrystihúss
Eskifjarðar hf.
og dótturfélags
þess, Tritons hf„
árið 1998 var 212
milljónir króna.
Það er minni
hagnaður en
sérfræðingar
höfðu vænst en
vonir stóðu til þess að hagnaður-
inn yrði 300400 milljónir króna.
Ifréttavefur Viðskiptablaðsins
sagði frá.
Steinullarhagnaður
97,7 milljóna króna hagnaður
varð af rekstri Steinullarverk-
smiðjunnar í fyrra miðað við 82
milljónir árið áður. Tekjur félags-
ins drógust litillega saman, úr 632
milljónum króna í 620 milljónir
milli áranna 1997 og 1998. Veltufé
frá rekstri nam 160 milljónum
króna. Fréttavefur Viðskipta-
blaðsins sagði frá.
Vantar fólk
í atvinnukönnun Þjóðhags-
stofnunar, sem gerð var í janúar,
kemur frani að atvinnurekendur
töldu æskilegt að fjölga starfsfólki
um 325 á öllu landinu sem er 0,3%
af áætluðu vinnuafli. Þetta er
heldur meiri eftirspum en var á
sama tíma í fyrra. Aukningin er
öll á höfuðborgarsvæöinu og er
eftir fólki í þjónustugreinum.
Sukku vegna ofhleðslu
Rannsóknarnefnd sjóslysa segir
að allir sex plastbátamir sem
sukku í róðri 1995 hafi sokkið
vegna ofhleðslu, í sumum tilfell-
um vítaverðrar. Dagur sagöi frá.
Gagnagrunnsnefnd
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra skipaði í gær
nefnd til að hafa
umsjón með
gerð og starf-
rækslu gagna-
grunns á heil-
brigðissviði. í
henni eru Davíð
Þór Björgvins-
son lagaprófess-
or, formaður, Jóhann Ágúst Sig-
urðsson, prófessor í heimilislækn-
ingum, og Ebba Þóra Hvannberg,
lektor i tölvimarfræði. -SÁ