Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Sölustjóri fasteignasölu um nýja íbúðalánasjóðinn og stirða afgreiðslu:
Nýja kerfið ekkert
annað en svik
Mikið var um dýrðir þegar hinn nýi íbúðalánasjóður tók til starfa en síðan
hefur allt verið fast.
DV, Akureyri:
„Viö höfum einungis fengið eitt
kauptilboð afgreitt frá áramótum og
nú bíða hjá okkur 13 kauptilboð
sem sum hver hafa beðið í rúman
mánuð,“ segir Hermann R. Jónsson,
sölustjóri Fasteignasölunni ehf. á
Akureyri, en hann er mjög ósáttur
við það hvemig starfsemi hins nýja
íbúðalánasjóðs hefur farið fram frá
því sjóðurinn hóf starfsemi um ára-
mót. Segir Hermann seinagang við
afgreiðslu í nýja kerfínu hafa valdið
mörgu fólki mjög miklum áhyggj-
um.
Sem dæmi um seinaganginn lýsir
Hermann því hvernig afgreiðslu
mál íbúðakaupanda á Akureyri þarf
að fá í nýja kerfínu. „Sá sem hyggst
kaupa sér fasteign hér á Akureyri
fer með samþykkt kauptilboð í við-
skiptabanka sinn og fær þar
greiðslumat. Það mat er síðan sent
til miðvinnslu bankans í höfuð-
stöðvum hans í Reykjavík og þaðan
fer málið til íbúðalánasjóðs. Eftir af-
greiðslu þar fer málið sömu leið til
baka til viðskiptabanka viðkomandi
einstaklings sem er kallaður fyrir
þjónustufulltrúa bankans til viðtals.
Að því viðtali loknu fer málið aftur
sömu leið í gegn um kerfið. Þetta er
auðvitað alveg fráleitur gangur
mála.“
Hvað finnst þér um svar félags-
málaráðherra þegar Félag fasteigna-
sala gagnrýndi þann langa af-
greiðslutíma sem er hjá íbúðalána-
sjóði?
„Mér fannst grín ráðherrans ekki
viðeigandi, þegar hann sagði að
ekki væri hægt að lemja tölvurnar
sem ekki virkuðu, því það er ekkert
grin þegar húsbyggjandi sem er í
leiguhúsnæði fær ekki afgreitt hús-
bréfalán. Grín ráðherrans á heldur
ekki við í öðrum tilfellum, s.s. þeg-
ar fólk hefur „selt“ sína íbúð og bíð-
ur svars til að fá fulla vissu varð-
andi það hvort salan hefur verið
samþykkt eða ekki.
„Ég get ekki kallað þetta nýja
kerfi annað en svik vegna þess að
við höfðum á síðasta ári kerfi sem
virkaði fullkomlega. Afgreiðslutími
var þá 5 dagar á meðan Húsnæðis-
skrifstofan hér á Akureyri þjónaði
okkur Norðlendingum. Nýja kerfið
er byggt upp á allt of mörgum milli-
liðum og málin fara hringi i kerf-
inu. Þetta er ekkert annað en aftur-
for.“
En nú segja forsvarsmenn íbúða-
lánasjóðs ástandið vera mjög gott,
þú ert sem sagt ekki sammála þeim?
„Það er rétt að þeir hafa lýst því
yfir að allt sé í himnalagi en það er
bara ekki rétt. Starfsmenn íbúða-
lánasjóðs mata forsvarsmenn sjóðs-
ins á röngum upplýsingum. Megin-
orsökin fyrir því hvemig ástandið
er í dag er sú að forsvarsmenn
sjóðsins vom ekki búnir að vinna
heimavinnuna sína þegar nýja lána-
kerfið kom til framkvæmda um síð-
ustu áramót," segir Hermann.
-gk
Gamla ísafoldarhúsið er á förum úr Austurstræti og verður næsti nágranní Innréttinganna, elsta húss Reykjavfkur. Hér eru tveir starfsmenn Armannsfells
að störfum í gömlum búðarglugga. DV-mynd Hilmar Þór
\wm
■j - 'Wí ím %'- í lái *>-*>v. *■? »
ísafoldarhúsið flytur í næstu götu
- en nýtt hús mun tengja saman Austurvöll og Austurstræti
Gamla ísafoldarhúsið, sem Bjöm
Jónsson ritstjóri byggði yfir blaðið
ísafold 1886, er á fórum úr Austur-
stræti yfir í Aðalstræti 12 í gámum.
Undir lok næsta mánaðar verður haf-
ist handa um að púsla húsinu saman
að nýju en allir húshlutar em merkt-
ir eftir sérstöku kerfi. Verkinu á að
ljúka í sumar. Kostnaður við flutning
og endurbyggingu er áætlaður 50
milljónh- króna. Á efstu hæð verður
íbúð, skrifstofur á annarri hæð en
verslun eða verslanir á jarðhæð. Hús-
ið var komið í slæmt ástand í Austur-
strætinu, burður þess að norðanverðu
hafði verið rýrður og húsið því tekið
að siga.
Þetta hús er fyrir margra hluta sak-
ir merkilegt sem blaðahús ísafoldar
og síðar Morgunblaðsins en einnig
fyrir að vera fyrsta raflýsta hús
Reykjavíkur. Fyrstu rafljósin kvikn-
uðu þar fyrir réttum 100 árum. Þor-
steinn Bergsson hjá Minjavemd segir
að í kringum niðurrif hússins hafi
komið í ljós allmörg gömul perastæði,
einkum á þeim stöðum þar sem setj-
aravélar voru.
Ólafur Hauksson, verkfræðingur
hjá Ármannsfelli hf., sagði í samtali
við DV að hafist yrði handa um að
byggja fjögurra hæða byggingu, auk
þakhæðar, á lóðinni í Austurstræti,
vonandi í næsta mánuði. Byggingin er
í grenndarkynningu sem er rétt að
ljúka. Stefnt er að því að hefja bygg-
ingarframkvæmdir strax og leyfi
byggingarnefndar liggur fyrir. Áætlað
er að ljúka framkvæmdum á ca 10-11
mánuðum, eða í ársbyijun 2000.
Ólafur sagði að töluverður áhugi
væri fyrir húsinu og margir að spyij-
ast fyrir. Húsið er hannað af arki-
tektastofunni Tisona, arkitektunum
Hlédísi Sveinsdóttur og Orra Árna-
syni. Gert er ráð fyrir tengingu milli
Austurstrætis og Austurvallar gegn-
um kaffihús á jarðhæð. -JBP
Samfylkingin:
Hákon framkvæmdastjóri
Hákon Gunnarsson, viðskipta-
fræðingur og fjármálastjóri hjá
Járnblendifélaginu, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri hjá
Samfylkingunni. Ekki er gert ráð
fyrir því að núverandi fram-
kvæmdastjórar A-flokkanna láti
af störfum. „Ég mun hefja störf
hjá kosningastjóm Samfylkingar-
innar 1. mars. Mín ráðning er
gerð í mjög góðu samráði við alla
þá sem koma að Samfylkingunni.
Hvort sem það eru A-flokkamir,
Kvennalistinn, Jóhanna eða aðr-
ir. Annars hefði ég aldrei tekið
verkefnið að mér. Þetta leggst
gríðarlega vel í mig enda
skemmtilegir tímar fram undan,"
sagöi Hákon.
-hb
Þorsteinn í hvalnum
Nú er talið víst að ærið verk
bíði núverandi sjávarútvegsráð-
herra Þorsteins Pálssonar þeg-
ar hann tekur við embætti sendi-
herra í London. All-
ar líkur era á því
að samþykkt verði
að veiða hvali á
nýrri öld og þá
mun fjandinn
verða laus við
sendiráð íslend-
inga í heims-
borginni
London. Reynsla
er fyrir því að viö slíkar pólítisk-
ar aðstæöur safnast umhverf-
issinnnar saman við sendiráðið og
mótmæla og þá gjarnan með upp-
blásinn hval. Hafi Þorsteinn hald-
ið að rólegir tímar væra fram
undan er það byggt á miklum mis-
skilningi. Sjávarútvegsmálin
munu væntanleg elta hann út og
ekki er ólíklegt að hann sjái upp-
blásna hvali í upphafi vinnudags...
Veðurfréttir
Á tónleikum Gus-Gus fjöllista-
hópsins í flugskýlinu á Reykjavík-
urflugvelli um síðustu helgi stóðu
áhorfendur agndofa og störðu á
sviðið. Gus-Gus-
hópurinn og for-
ingi hans, Ðaníel
Ágúst Haralds-
son, fóru mikinn
í tónlistarflutn-
ingi þótt liðs-
menn hefðu lýst
því yfir að þeir
kynnu ekki á
hljóðfæri. Voru
áhorfendur á einu máli -um að
sviðsframkoman heföi verið lík-
ust því aö horfa á 20 veðurfrétta-
tima í röð hjá ríkissjónvarpinu
með poppi og kók. Helst voru það
myndbönd sem sýnd voru í bak-
grunni sem nálguðust það að eiga
eitthvað skylt við list...
Hitti fram hjá
Svo sem Sandkorn hefúr ítrekað
bent á verða íþróttafréttamönnum
oft á mismæh í hita leiksins. Þetta
gullkorn er frá hinum einlæga
Valtý Birni Val-
týssyni á Stöð 2
þar sem hann lýsti
leik Manchester
United og Arsenal
á Sýn nýverið:
„Sá hitti fram
hjá!“
Og annð frá Val-
tý Birni í sama
leik: „Hefði verið sniðugt
hefði það heppnast."
Þá hraut þetta gullkorn af
munni hans: „Þetta hefði verið
mark hefði skotið verið gott!“
Predikarar
Það þykir tíöindum sæta í
Rangárþingi að sr. Önundur
Bjömsson, prestur á Breiðahól-
stað hefur fengið frambjóðendur á
Suðurlandi til að
taka þátt í svokall-
aðri samtal-
spredikun í kirkj-
um í prestakall-
inu. Fyrstir riðu
á vaðið þeir fé-
lagar ísólfur
Gylfi Pálma-
son og Guðni ____
Ágústsson . Þóttu þeir taka sig
óvenju vel út í orði og æði og
gamall bóndi úr Fljótshlíðinni
sagði að það mætti vel notast við
þá sem presta. Bjama Helga-
syni , vélsmið og uppfinninga-
manni á Hvolsvelli, er margt til
lista lagt og orti til þeirra eftirfar-
andi vísu sem nefnist „Eftir
predikun"
Um velgengni Framsóknar
vonir ég el
hún vaxi og styrkist og dafni.
Þeir messuðu báðir svo
mikið og vel
í Meistarans helgasta nafni.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is