Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Síða 7
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
7
Fréttir
Erlent vinnuafl áberandi á Vestfjörðum:
Vil kvóta á hlutfall útlendinga
- segir Sigurður Hafberg, fj ölbýlishúsaeigandi á Flateyri
DV, Flateyri:
Erlent vinnuafl er
víða orðið hátt hlutfall
af íbúatölu í vestfírskum
sjávarplássum. Á sum-
um stöðum er talað um
að nauðsynlegt sé að
kimna pólsku til að geta
átt samskipti við ná-
grannana. Þrátt fyrir
áberandi fjölda útlend-
inga þá hafa samskiptin
við þá gengið nokkuð
bærilega og flest er þetta
harðduglegt fólk til
vinnu.
Sigurður Hafberg, um-
sjónarmaður íþróttamið-
stöðvarinnar á Flateyri,
hefur þó ákveðnar skoð-
anir á þeirri þróun sem
átt hefur sér stað á Vest-
fjörðum undanfarin ár.
Hann óttast að litlu sam-
félögin beri skaða af
óheftum innflutningi út-
lendinga, sem oftast taki
engan þátt í félagsstarfi
eða öðrum félagslegum
samskiptum við íslend-
inga.
„Ég veit ekki hvort Sigurður Hafberg, forstöðumaður sundlaugarinnar á Flateyri og fjölbýlishúsaeigandi, vill stemma
menn vilja túlka það stigu við fjölda útlendinga. DV-mynd Hörður
sem kynþáttafordóma
eða hvað, en ég vil samt
að það sé settur kvóti á
hlutfall útlendinga í
þessum litlu samfélög-
um. Ég vil ekki að út-
lendingar fari að yfir-
taka samfélagið. Dæmin
sanna líka að það er
ekki sama hvaðan fólk
kemur. Pólverjarnir
halda sig t.d. mikið út af
fyrir sig og samlagast
ekki samfélaginu eins og
Júgóslavarnir," segir
Sigurður. Hann tekur
fram að viðhorf sín ráð-
ist ekki af kynþáttafor-
dómum.
„Ég held að þessu
verði þó ekki breytt
öðruvísi en í gegnum
fyrirtækin - það eru þau
sem flytja þetta fólk inn.
Segja menn þá ekki á
móti að það fáist engir
íslendingar til að starfa
við fískvinnslu? Þá spyr
maður sig aftur: „Ef
sjávarútvegurinn skiptir
svona miklu máli, hvers
vegna vill þá enginn
hvítur maður, eins og
sagt er, koma nálægt
Björgunarsveitir í Árnessýslu:
Formaðurinn sambandslaus
Ámundi Kristjánsson, björgunar-
sveitarmaður frá Minna-Núpi í
Gnúpverjahreppi, segir ljóst að
björgunarsveitamenn finni fyrir
miklu öryggisleysi vegna bilunar í
símboðakerfi Landssímans.
Ámimdi, sem er formaður svæð-
isstjómar björgunarsveita í Ámes-
sýslu, segir boðleiðir hafa verið
rofnar og frekar óþægilegt sé að
þurfa að boða menn eftir öðrum
leiðum ef til þess komi. Ámimdi er
vörubílstjóri við Búrfellsvirkjim og
verður þess vegna að vera á stöð-
ugu ferðalagi og skrölti inn og út
úr bílnum. Hann vill símboðann
sinn í lag.
„Ég hef verið sambandslaus þar
sem ég er ekki með handfrjálsan
farsíma. Ég þurfti að hringja í
menn sem eru með mér í svæðis-
stjórninni og hafa þá í viðbragðs-
stöðu þannig að það næðist í ein-
hvern í björgunarsveitinni," segir
Ámundi. „Undir venjulegum kring-
umstæðum tekur fimm mínútur að
boða alla björgunarsveitina ef til
útkalls kemur en núna getur það
tekið allt að hálftíma þegar kerfið
er bilað,“ segir Ámundi. Hann tel-
ur að ekkert megi út af bregða á
þessum árstíma enda sé þetta sá
tími ársins þegar mest getur riðið á
að símboðakerfið sé í lagi.
„Ég er ekki sammála Halldóri
Blöndal samgönguráðherra að
þetta teljist ekki til öryggismála
þar sem björgunarsveitir bjarga lífi
fólks. Það er spurning hvort menn
hafa sofið á verðinum með þetta og
hvort þetta sé eitthvað sem menn
geta átt von á með NMT- og GSM-
kerfið, það verður auðvitað að at-
huga,“ sagði Ámundi, áhyggjufull-
ur, í gær. -hb
Ámundi Kristjánsson bjargar fólki
og vill símboðann sinn í lag.
honum." Er ekki eitthvað skrítið
um að vera? Þessir útlendingar eru
flestir ágætisfólk og ekkert undan
þeim að kvarta. Þó einn og einn
svartur sauður sé þar innan um
eins og gengur, þá má þó ekki
stimpla allan hópinn út frá þeim,“
sagði Sigurður Hafberg. -H.Kr.
'SCHWAB
Eldtraustir
örggisskápar
✓ Nýtísku hönnun
✓ Margargerðir
✓ Hagstæð verð
SKEIFUNN117 • 108 REYKJAVÍK
SÍIHI 581-4515 • FAX 581-4510
hugsaðulengra...