Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Utlönd
9
Skýrsla um lögregluna í London:
Gegnsýrð
af rasisma
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, bað í gær móður svarts
unglingspilts, sem myrtur var 1993,
um að leggja sér lið í baráttunni
gegn kynþáttahatri innan opinbera
kerflsins. í skýrslu, sem birt var í
gær, um rannsókn lögreglunnar í
London á morði Stephens
Lawrences er fullyrt að innan lög-
reglunnar ríki stofnanabundið kyn-
þáttahatur.
Fimm hvítir menn voru sakaðir
um að hafa stungið Lawrence til
bana. Samkvæmt frásögnum
breskra blaða hrópuðu mennimir
slagorð gegn útlendingum við morð-
ið. En lögreglurannsókn var ábóta-
vant og enginn var ákærður fyrir
morðið. Meira að segja innanhúss-
rannsókn lögreglunnar á morðrann-
sókninni var röng og óverjandi, að
því er kemur fram í skýrslu dómar-
ans Williams Macphersons sem
kominn er á eftirlaun.
„Það var bara ein ástæða fyrir
morðinu. Hún var sú að Stephen
var svartur," sagði Jack Straw, inn-
anrikisráðherra Bretlands, í gær.
Móðir Stephens Lawrences, Dor-
een, sem gagnrýnt hefur morðrann-
sóknina harkalega, sagði í gær að
svartir unglingar væru enn óörugg-
ir á götum úti.
Lögreglan brást skyldum sínum
frá fyrstu stundu. Enginn lögreglu-
mannanna veitti til dæmis Stephen
Lawrence skyndihjálp á morðstaðn-
um. Yfirmaður lögreglunnar í
London, Paul Condon, bað í gær fjöl-
skyldu hins myrta afsökunar.
Bandaríska söngkonan Lauryn Hill þurfti aöstoö viö aö halda á Grammy-
verölaununum fimm sem henni hlotnuöust vestur í Los Angeles í nótt.
Lauryn var fremst meðal jafningja á mikilli sigurhátíö kvenna.
Framtíðarsýn færeysks ráðherra:
Efnahagslegt sjálf-
stæði innan 10-15 ára
Tiliögur um hvemig gera eigi
Færeyjar efnahagslega sjálfstæðar
verða lagðar fyrir færeysku þjóðina
og lögþingið í sumar. Sett hefur ver-
ið á laggimar nefnd til að vinna að
tillögunum. Þegar þær liggja fyrir
verður farið í viðræður við dönsk
stjómvöld.
Þetta segir Hogni Hoydal, ráð-
herra sjálfstæðismála í færeysku
landstjóminni, að sé næsta stóra
skrefið í þeirri viðleitni Færeyinga
að öðlast sjálfstæði frá Dönum.
Hogni er nú staddur á íslandi og
flytur í dag fyrirlestur í Háskóla fs-
lands um sjáÚ'stæðismál Færeyinga,
hugmyndir sínar um framtiðina og
um samvinnuna á Norður-Atlants-
hafi.
„Ég trúi því að innan tiu til
fimmtán ára verði Færeyjar orðnar
efnahagslega sjálfstæðar," segir
Hogni í viðtali við DV.
Færeyska lögþingið skipaði fyrir
skömmu nefnd sem á að gera drög
að nýrri stjómarskrá fyrir eyjamar
og gengur sú vinna vel, að sögn
Hogna. Drögin verða síðan borin
undir þjóðaratkvæði á næsta ári.
Ef allt gengur eftir fá Færeyjar
fullveldi á næsta ári, svipað því sem
ísland fékk árið 1918. Að fullveldinu
fengnu verður farið að vinna að því
að lækka styrki danska ríkisins til
Færeyja þar til þær geta staðið á
eigin fótum í efnahagslegu tilliti.
Sjálfstæðismálið hefur verið mik-
ið hitcunál á lögþinginu í vetur þar
sem stjómarandstaðan hefur lagst
gegn hugmyndum landstjómarinn-
ar. Þegar tiúagan um stjómarskrár-
nefndina var tekin fyrir deildu þing-
menn hart og haldnar vom tilfmn-
ingaþmngnar ræður. Svo fór þó að
lokum að tillagan var samþykkt,
enda nú í fyrsta sinn í mörg ár
meirihluti á þingi fýrir auknu sjálf-
stæði Færeyja.
Fulltrúar allra flokka eiga sæti í
stjómarskrárnefndinni og trúir
Hogni Hoydal því að eining náist
um málið.
„Ég tel að því lengur sem menn
vinna að hinum praktísku atriðum,
þeim mun nær færumst við því að
eining verði um máliö,“ segir Hogni
Hoydal, ráðherra sjálfstæðismála í
færeysku landstjóminni.
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn I rúðum og speglum •
• styrktarbita I hurðum •
• samlitaða stuðara •
á ótrúlegu verði
• Hátt og lágt drif - byggður á grind
• Kraftmikil og hljóðlát vél
• Einstaklega góður í endursölu
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíöa: www.suzukibilar.is
VITARA
TEGUND: VERÐ:
JLX SE 3d 1.580.000 KR.
JLX SE 5d 1.830.000 KR.
DIESEL 5d 2.180.000 KR.
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.
GLASGOW sófi, klæddur glæsilegu efni, lausar
sessur, bólstraður með kaldsteyptum svampi.
Fæst í ýmsum litum og gerðum áklæða.
3ja sæta sófi L220 sm kr. 79.920,-
2ja sæta sófi L200 sm kr. 71.960,-
BANGALORE skápur með glerhurð úr
fornfáðum býflugnavaxbornum seesham-viði
B90 x H165 x D40 sm kr. 49.860,-
COLOBA sófaborð úr fornfáðum, býflugnavax-
bornum seesham-viði B75 x L135 sm kr. 29.970,-
HÚSGAGNAHÖLUN
-þar sem úrvalið er meira!
Bíldshöfði 20-112 Reykjavík Sími 510 8000
BANGALORI