Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Lesendur______________
Lóðarí hjá lands-
byggðarfólki
„Allt um það veit Davíð að til að stöðva þennan fólksflótta er leiðin ekki sú
að tryggja nægilegt framboð lóða í Reykjavík," segir Friðrik m.a. í bréfinu.
Spurningin
Ertu búinn að fá
flensuna?
ívan Ólafsson nemi: Já.
Tinna Margrét Jóhannsdóttir
nemi: Já.
Karl Viðar Pétursson verkstjóri:
Nei.
Harpa Ingólfsdóttir nemi: Nei.
Ásrún Karlsdóttir nemi: Nei.
Sigrún Sigurðardóttir reiðkenn-
ari: Nei, ég er svo hraust.
Friðrik Guðmundsson skrifar:
Talsmenn D-listans í Reykjavík
fara hamforum þessa dagana við að
saka R-listann um að standa með-
vitað fyrir lóðaskorti í höfuðborg-
inni. Þau þekkja persónulega hvað
það er mikilvægt að lóðir séu til
fyrir landsbyggðarfólkið sem vill yf-
irgefa heimabyggðir sínar og
byggja yfir sig í borginni; Inga Jóna
Þórðardóttir, flóttakona frá Akra-
nesi, og Guðlaugur Þór Þórðarson,
flóttmaður frá Borgamesi. Þau telja
aö það eigi jafhvel að vera forgangs-
atriði að koma flóttafólkinu af
landsbyggðinni fyrir í sprungunum
svakalegu við Rauðavatn - til að
forða því frá þeirri óáran að flytja
til Kópavogs af öllum stöðum.
Verkstjóri viðreisnar lands-
byggðarinnar er Davíð Oddsson,
methafi í þrásetu í stúkusæti kjöt-
katlanna. Allan tíunda áratuginn
hefur hann haft það hlutverk að
draga úr fólksflóttanum frá lands-
byggðinni til Reykjavíkur, með al-
deilis afleitum árangri. Allt um það
veit Davíð að til að stöðva þennan
fólksflótta er leiðin ekki sú að
tryggja nægilegt framboð lóða í
Reykjavík. Davíð á að vera að fram-
fylgja þeirri stefnu að fólkið haldist
á landsbyggðinni.
Viðreisn landsbyggðarinnar kost-
ar óhemju fé og utan um ríkiskass-
ann heldur Geir Haarde fjármála-
ráðherra, borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og að líkindum eftir-
maður Davíðs í formannsstóli D-
listans. Geir hefur það verkefni að
Eyrún Ragnarsdóttir skrifar:
Ég velti því fyrir mér hvort það
gæti snúist upp í andhverfu sína
hversu „margir öflugir forystu-
menn“ (eins og Margrét Frímanns-
dóttir orðar það) gætu ekki eyði-
lagt samfylkingu þjóðarinnar að
baki Samfylkingunni.
Nú er Sighvatur Björgvinsson
búinn að lýsa því yflr að hann og
Alþýðuflokkurinn styðji Margréti
Frímannsdóttur, formann Alþýðu-
Ómar Ragnarsson skrifar:
Skoðanakannanir geta oft verið
gagnlegar og forvitnilegar, einkum
ef spurt er um álit manna á huglæg-
um matsatriðum, svo sem fylgi við
stjórnmálaflokka. Hins vegar er
hæpið að nota aðferð skoðanakann-
fjármagna viðreisn landsbyggðar-
innar, gæta þess að landið sporð-
reisist ekki með flóttamanna-
straumnum af landsbyggðinni til
Reykjavíkur. Geir er eiginmaður
Ingu Jónu Þórðardóttur frá Akra-
nesi og það hlýtur að vera truflandi
fyrir hann, mitt í þessu hugsjóna-
verki sínu við að hefta strauminn
til Reykjavíkur, að eiginkonan
syngur yfir kaffibollanum á morgn-
ana; það vantar fleiri lóðir í Reykja-
bandalagsins, til forystu Samfylk-
ingarinnar.
Það á að ganga þvert á vilja og
siðferðilegan rétt þeirra þúsunda
Reykvíkinga sem kusu Jóhönnu í
prófkjöri. Einstaklingar stærsta
sveitarfélagsins á landinu eru
hundsaðir enn og aftur. Um leið og
Jóhanna vann sinn stóra sigur í
Reykjavík fengu landsbyggðarfor-
kólfarnir hland fyrh hjartað og ótt-
uðust um sinn hag.
ana um mældar staðreyndir, svo
sem um það hvort fjallið sé hærra,
Esja eða Skarðsheiði. Þótt flestum
sýnist Esjan hærri, séð frá Reykja-
vík, er staðreyndin sú að Skarðs-
heiðin er um 140 metrum hærri.
í skoðanakönnun DV á dögunum
um það hver sé mesti íþróttamaður,
sem íslendingar hafa átt, lenti Jón
Amar Magnússon í fyrsta sæti en
Örn Clausen í 12.-14. sæti. - Þetta er
skondin niðurstaða. Árangur
beggja, miðað við erlenda keppi-
nauta, var mældur í metrum og sek-
úndum, sem voru grunnur stigaút-
reiknings í tugþraut.
Af því leiðir eftirtaldar stað-
reyndir: Örn Clausen var með
þriðja besta heimsárangur i tug-
þraut þrjú ár í röð, 1949, ‘50 og ‘51,
vík svo fólkið af landsbyggðinni
komist til Reykjavíkur. Ofan í
sprungumar með liðið!
Við þetta er bara einu að bæta. í
kosningabaráttunni fyrh síðustu
borgarstjórnarkosningar hamaðist
D-listinn við að vara kjósendur við
að á R-listanum væru misindis-
menn. - Er þá ekki umhugsunar-
vert að góður meirihluti borgarbúa
valdi misindismannalista frekar en
það sem D-listinn bauð upp á?
Við vitum af hverju Sighvatur og
Alþýðuflokkurinn vilja fá Margréti
í forsvar og við vitum af hverju
Margrét vill þiggja það traust Al-
þýðuflokksins, þau eru dauðhrædd
við Jóhönnu og Reykvíkinga.
Þess vegna skrifa ég; það er
hættulegt að hafa of marga for-
ystumenn, of margra „öfluga" í
einum flokki. - Samíylkingin gæti
riðlast.
og með besta eða næstbesta árangur
í Evrópu þessi ár, efth því hvaða
stigatafla var notuð. Hann varð ann-
ar á Evrópumeistaramóti 1952 og
tólfti á Ólympíuleikum 1948. Jón
Arnar varð tólfti á ÓL I Atlanta og
hefur hvorki komist eins hátt á
heimslistanum og Evrópulistanum
og Öm né heldur í keppni á Evrópu-
meistaramóti.
Þótt breiddin í tugþraut sé mehi
nú en á tímum Arnar stingur í augu
að Örn sé jafn neðarlega á svona
lista. Þess má geta að Valbjöm Þor-
láksson varð tólfti i tugþraut á ÓL í
Tokyo 1964, Norðurlandameistari og
tífaldur íslandsmeistari, en hann
komst ekki einu sinni á blað í þess-
ari skoðanakönnun um skamm-
tímaminni!
Farþega-
ferja frá
Þorlákshöfn
Sveinbjörn skrifar:
Ég hugsa að margh fleiri en ég
líti björtum augum til þess tíma
að hægt verði að taka farþegaskip
frá Þorlákshöfn til Bretlands eins
og ham hefur komið í fréttum að
verið sé að kanna. Hér er sagt um
skoskt fyrirtæki vera að ræða. En
sama hvaðan gott kemur, og úr
því íslendingum hefur ekki verið
boðið þetta af neinum íslenskum
samgöngufyrirtækjum, þá er
þetta hið besta mál. Það er búið
að vera áhugamál mjög margra
landsmanna að komast sjóleiðis
frá landinu sem ferðamenn, auk
hundraða ef ekki þúsunda er-
lendra ferðamanna sem spyrja
hvort ekki sé hægt að komast sjó-
leiðis sem næst Reykjavík.
Kettir gera
óskunda
Berglind hringdi:
Ég las pistil Kristins Sigurðs-
sonar í DV sl. mánudag, „Heim-
iliskisa - ekki meindýr". - Mín
reynsla er nú sú að fólk lætur
ketti sína ganga lausa úti við og
frá þeim kemur úrgangur, katta-
skitur og hland þar sem þeh gera
þarfir sínar, t.d. á höppum hjá
manni. Þetta er ekki liðið í ná-
grannalöndum okkar. Það eru
ekki dýravinh sem láta ketti sína
út í hvaða veður sem er. Og svo
spyr Kristinn í pistli sínum: Ætla
menn að setja sérstakan útivistar-
tima fyrh kisurnar, því ekki fyrir
fugla líka? Hvílíkt rugl. Svona
málflutningur dæmh sig sjálfur.
Morgunblaðið
og Reykjavíkur-
flugvöllur
Þór skrifar:
Ég las leiðara Morgunblaðsins í
morgun (þriðjud. 23. febrúar) um
Reykjavíkurflugvöll, Vatnsmýr-
ina og hugsanlega byggð þar. Ég
var sammála leiðarahöfundi um
það sem þar sagði í byrjun, að
flugvöllurinn tekur upp dýrmætt
byggingasvæði og af honum stafl
bæði loft- og hávaðamengun. En
svo snýst leiðarahöfundi hugur,
að því er virðist, því hann segir
að flugvöllur og autt svæði í
Vatnsmýrinni sé betri kostur en
eyðilegging náttúruperlunnar.
Þama er sem sé (efth allmiklar
vangaveltur um nýjan flugvöll
o.fl.) lagt til að flugvöllurinn í
Vatnsmýrinni verði bara kyrr.
Mér sýnist sem stefnan sé að
landsbyggðin og þingmenn henn-
ar, þ. á m. samgönguráðherra,
skuli ráða hvar innanlandsflug-
völlur sé staðsettur. - Vita menn
ekki af hinum fullkomna og van-
nýtta Keflavíkurflugvelli?
Hvalveiðar
- engin
hálfvelgja
Aðalheiður Guðmundsdóttir
skrifar:
Mig langar til að taka undh
skrif Ólafs Heiðars Þorleifssonar í
DV sl. þriðjudag um að frestun
hvalveiða verði fordæmd af flest-
um landsmönnum. Kjósendur
ættu auðvitað að sýna vanþóknun
sína í verki með þvi að mæta alls
ekki á kjörstað í vor. Enga hálf-
velgju, bara fara ekki á kjörstað.
Það dugh ekki að segjast ætla að
skila auðu en fara á kjörstað, því
fæsth skila auðu þegar þeir eru á
annað borð komnir á staðinn. Að
sitja heima nú er reyndar þjóðráð
fyrh hvem þann sem einhverju
vill mótmæla stjórnarfarslega eða
yfirleitt að sýna andúð sína á
hverju sem þeim er efst í huga.
Svo má kjósa þar næst ef eitthvað
hefur úr ræst með það sem við-
komandi var óánægður með. - Já,
sitjum heima á kjördag.
Hræðslan viö Jóhönnu
og Reykvíkinga
Frægir tugþrautarmenn: Jón Arnar Magnússon, Örn Clausen og Valbjörn Þorláksson. - Einhver fremstur meðal jafn-
ingja?
Könnun á skammtímaminni