Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Síða 15
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
4
15
Fermingarnar nálgast:
Undirbúningurinn
mikilvægur
Nú styttist í að mörg hundr-
uð ungmenni landsins verði
fermd, foreldrum og öðrum
ættingjum til mikillar gleði.
En fermingarveislan sjálf,
sem flestum finnst nú
ómissandi, er mikiil höfuð-
verkur hjá mörgum foreldr-
mn. Flestir vOja bjóða ættingj-
um og vinum til þess að gleðj-
ast með fermingarbaminu á
þessum degi en útgjöldin og
vinnan sem felst í þvi að
halda stóra veislu geta reynst
yfirþyrmandi.
Hagsýni leitaði ráða hjá
Hjördísi Eddu Broddadóttur,
forstöðumanni hjá Leiðbein-
ingarstöð heimilanna, um
hvernig halda megi góða
fermingarveislu án þess að
fjárhagurinn og fjölskyldan
sjálf kollvarpist.
Veisluvandræði
„Það er mikið hringt í okk-
ur á þessum árstíma vegna
ferminganna og margir eru í
stökustu vandræðum af því
þeir vita einfaldlega ekki á
hverju þeir eiga að byrja. Það
er auðvitað mjög misjafnt
hversu mikið fólk leggur upp
úr veislunum og hversu tím-
anlega fólk hugsar um þær en
ég hef það nú samt á tiifinn-
ingunni að sumir einfaldlega
sprengi fjárhaginn á þessu
sem er auðvitað alls ekki ætl-
unin. Ég skipti mér auðvitað ekki af fjárhag
fólks en mér virðist sem það sé svolítU sam-
keppni í þessu eins og öllu öðru, þ.e. fólk sé
að reyna að gera eins og nágranninn, jafnvel
þótt það hafi kannski ekki efhi á þvi. Þetta á
að sjáifsögðu alls ekki við um alla og margir
eru hagsýnir og skipulagðir í sér. Það sem
skiptir auðvitað mestu máli er að gera daginn
sem eftirminnilegastan fyrir fermingarbamið
því þetta er nú dagurinn þess. Mikilvægt er
að hafa fermingarbamið með í ráðum: hefur
það einhverjar sérstakar óskir, hvað finnst
því gott? o.s.frv.“
Skipulag og árvekni
Hjördís Edda segir að mjög mikilvægt sé að
fólk ofgeri sér ekki í alls kyns undirbúningi á
sjálfan fermingardaginn. Mikilvægt sé að
Hjördfs Edda Broddadóttir hjá Leiðbeiningarstöð heimilanna segir mikilvægt að fólk ofgeri sér ekki
daginn heldur undirbúi sem mest fyrir fram.
byrja undirbúninginn snemma, gera sér grein
fyrir hvað fólk vill og skipuleggja síðan út frá
því. Þá verði minna álag á sjálfan fermingar-
daginn og veislan komi betur út fjárhagslega.
Hjördís Edda segir að jcifnvel þótt fólk þurfi
að kaupa talsvert mikið af hráefni, annað-
hvort í kökur eða mat, þá verði það ódýrara
en að fá veisluþjónustu til að sjá um matinn.
Galdurinn sé meðal annars sá að velja rétt
hráefhi og vera vel vakandi fyrir tilboðum á
alls kyns mat, t.d. kjöti, laxi, rækjum eða bök-
unarvörum, vikumar fyrir ferminguna.
Matarveislur
Hjördís Edda segir að ef skipulagið sé gott
ættu flestir að geta séð sjáifir um fermingar-
veislur bama sinna. „Eins og áður sagði er
skipulagið mjög mikilvægt. Fyrst er auðvitað
að ákveða hvort á að vera með mat eða kök-
ur. Næsta skref er síðan að ákveða nákvæm-
lega hvers konar mat eða kökur eiga að vera
á borðum. Þá er mikilvægt að velja mat eða
kökur sem hægt er að búa til fyrir fram svo
ekki þurfi að gera mikið á sjálfan fermingar-
daginn og foreldrarnir geti notið þess að vera
með baminu.
Ólíkt því sem margir halda getur verið
ódýrara að vera með matarveislu heldur en
kafiiboð. Hráefnið í kökumar er nefnilega
mjög dýrt því í þær fer mikið af rjóma, eggj-
um, súkkulaði og slíku.
Ef fólk ákveður að vera með matarboð er
t.d. ekki nauðsynlegt að vera bara með dýrar
steikur. Það er heppilegt að vera meö pottrétti
sem hægt er að steikja daginn áður og ódýrt
meðlæti, eins og hrísgrjón, salöt sem hægt er
að undirbúa fyrir fram,
t.d. kartöflusalöt og hvít-
kálssalöt, og alls kyns
gerbrauð. Eins er snið-
ugt að vera með mat sem
hægt er að kaupa fyrir
fram og setja í frysti, t.d.
svínahamborgarhrygg
eða lax. Þessa rétti má
auðveldlega bera fram
kalda með heitum eða
köldum sósum. Sósumar
má líka búa til fyrir
fram og hita síðan upp
en ef áfengi er í þeim er
það sett í sama dag og
veislan er haldin.
Kökuveislur
Kosturinn við köku-
veislumar er, að mati
Hjördísar Eddu, sá að
flestar kökumar er hægt
að búa til fyrir fram og
stinga í frystinn. Köku-
veislunum fylgir því
minna bras á fermingar-
daginn sjálfan heldur en
matarveislunum. Hjör-
dís Edda segir að undir-
búningurinn fyrir köku-
veislurnar sé talsverður
og þá sé gott að vera með
nákvæman lista yfir
hvað á að vera í veisl-
imni: „Ég ráðlegg fólki
matartilbúningi á sjálfan fermingar- að vera ekki með of
margar tegundir af kök-
um heldur meira af
hverri sort því það sparar tíma við bakstur-
inn. Eins er ekkert gimilegt að koma að
veisluborði þar sem allt of margar sortir em
á borðum og maður veit ekki á hverju á að
byrja. Einnig ráðlegg ég fólki að vera ekki
einungis með sætar kökur heldur einnig eitt-
hvert brauðmeti. Brauð er dýrt og því má
spara mikið með því að baka t.d. skinkuhom
og bollur sem má frysta og vera með heita eða
kalda brauðrétti. Með því að vera ekki bara
með sætar kökur kemst líka meira jafnvægi á
veisluborðið og þeir sem eru að hugsa um lín-
urnar geta borðað án samviskubits."
Að lokum segir Hjördís Edda að gott sé að
fá vini eða ættingja til að standa vaktina í eld-
húsinu á fermingardaginn svo foreldrar og
nánustu ættingjar geti notið dagsins áhyggju-
laust. -GLM
Utanlandsferðir:
Kauptu ekki köttinn í sekknum
íslendingar verða sífellt ferðaglaðari með
árunum, ef svo má að orði komast, og víst er
að stór hluti landsmanna mun leggja land
undir fót í sumar og bregða sér til fallegra
stórborga eða suðrænna stranda. Hvert sem
haldið er kosta slikar ferðir umtalsverðar
fjárhæðir og þvi er mikilvægt að skoða vel
hvað er í boði og hvaö er innifalið svo við-
skiptavinurinn endi ekki á því að kaupa kött-
inn í sekknum í þessum efhum. Hér á eftir
fylgja nokkur ráð sem gott er að hafa í huga
áður en ferðin er keypt.
fyrir þann sem vill slappa af og „rólegur stað-
ur“ gæti þýtt að þeim sem ætla að skemmta
sér gæti leiðst.
2) Gerðu verðsamanburð á
milli ferðaskrifstofa og athug-
aðu vel að „lægsta verð“ ein-
hverrar ferðaskrifstofu er
e.t.v. ekkert betra en meðal-
verð einhverrar annarrar
ferðaskrifstofu.
heldur en þegar á áfangastað er komið. Þú
gætir t.d. spurt hvenær tíma ársins
myndir frá sólarströndinni sem þú
ert að hugsa um að skella
þér á eru teknar ef
ströndin er
mjög mann-
mörg yfir
sumartímann
en myndin er
tekin að vorlagi.
Einnig er ágætt að lesa
lýsingar í bæklingunum með gagnrýnu
hugarfari, „líflegt hótel" gæti e.t.v. þýtt
að það sé of hávaðasamt
Misjafnar lýsingar
1) Skoðaðu
bæklinga ferða-
skrifstofanna með
gagnrýnisaugum
því stundum lítur
staðurinn betur
út í bæklingnum
Stór hiuti íslend-
inga mun leggja
land undir fót í
sumar og þá er
mikilvægt að
kaupa ekki kött-
inn í sekknum.
3) Skoðaðu smáa letrið vel og
athugaðu hvort þar felst ein-
hver aukakostnaður sem þú
vissir ekki um, t.d. flugvallar-
skattur, gjald fyrir akstur frá
flugvelli eða annað slíkt.
Skoðaðu einnig vel hvaða
skilyrði liggja á bak við þegar
boðið er upp á frí flugsæti fyr-
ir bömin eða ókeypis bUa-
leigubU. Venjan er sú að tveir
fullorðnir þurfa að fylgja
bömunum tU þess að þau fái
frítt Uugsæti og oft þarf að
greiða sérstaklega fyrir trygg-
ingu á bílaleigubílnum og
bensín á hann, jafnvel þegar
sagt er að ferðinni fylgi
ókeypis bUaleigubUl.
Næturflug
4) Skoðaðu vel hvenær tíma dagsins flogið
er út og hvenær er flogið heim afinr. Einnig
skEdtu skoða hvort um beint flug er að ræða
eða hvort millUent er á leiðinni og jafnvel
skipt um flugvél. Stundum em flogið á næt-
umar og skipt um vélar eða milhlent á leið-
inni ef um ódýrt flug er að ræða. Slíkt getur
valdið óþægindum og stytt dvalartímann á
áfangastaðnum meira en ætlunin var.
5) Kauptu ferðatryggingu um leið og þú
bókar ferðina tU að komast hjá óþægindum og
peningaútlátum ef þú þarft að hætta við.
6) Fáðu nákvæma lýsingu á hótelherberg-
inu eða íbúðinni þannig að þú og fjölskyldan
verði ekki eins og sardínur í dós í áUtof lítUli
íbúð sem virtist mun rúmbetri í bæklingnum
heldur en þegar á staðinn er komið.
7) Ef þú hefur einhverjar sérþarfir, þarft
t.d. að vera nálægt lyftunni eða á neðstu hæð,
skaltu senda inn skriflega beiðni inn slíkt
áður en haldið er af stað. Best er einnig að fá
skriflega staðfestingu á að ferðaskrifstofan
geti orðið við beiðni þinni áður en þú leggur
af stað.
-GLM