Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Aukið öryggi fyrir kaupendur notaðra bíla:
- í fyrsta sinn á íslandi - bílaviðskipti inn á neytendavænni brautir
Toyota-bílaumboðið, P. Samúels-
son, hefur tekið upp þá nýjung hér
á landi í viðskiptum með notaða
bíla að skoða þá itarlega á sérstakri
skoðunarlínu af sérmenntuðum
fólki og láta ítarlega skoðunar-
skýrslu fylgja bílnum til nýs eig-
anda. Þetta er gert samkvæmt sér-
stöku ábyrgðarkerfi sem Jón Jóns-
son verkstjóri stjómar. Umboðið er
eina bílaumboðið á íslandi sem
selur notaða bUa með 6-12 mánaða
ábyrgð. Jón segir í samtali við DV
að þetta kerfi hafi verið tekið upp
hjá fyrirtækinu i byrjun vikunnar
og hafi mælst vel fyrir hjá
neytendum. Jón segir að notaðir
bílar séu flokkaðir samkvæmt kerf-
inu í þrjá flokka; sérflokk, gæða-
flokk og sparflokk.
I sérflokki eru nýlegir og vel með
farnir bílar sem reynast í lagi. Þeir
eru endurseldir meö eins árs
ábyrgð gagnvart hugsanlegum
ágöUum eða bUunum sem ekki upp-
götvuðust í skoðun og með þeim
Hemlarnir eru prófaðir bæði að
framan og aftan. Þá er hjólastellið
skoðað með því að hjólin eru hrist
fram og til baka, til hliðar og upp og
niður til að athuga siit í fjaðrabúnaði
og dempurum.
Þorsteinn Sigtryggsson, skoðunarmaður notaðra bíla hjá Toyota-umboð-
inu, byrjar á að athuga burðarvirki og hjólabúnað notuðu bílanna. Hafi bíll
lent í árekstri og illa verið gert við hann kemst það oftast upp á þessu fyrsta
stigi skoðunarinnar þannig að bfllinn „sporar" vitlaust. Afturhjólin elta ekki
framhjólin rétt og bfllinn er skakkur á vegi eins og hundur á skokki. Sam-
kvæmt tölunum og grafinu á skjánum fyrir framan Þorstein er ekki að sjá
annað en bfliinn sem verið er að skoða sé í fullkomnu lagi að þessu leyti.
Með þvf að mæla útblásturinn er ástand vélarinnar metið. M.a. hægt að meta
hvort bflnum hafi verið meira ekið en kílómetrateljarinn sýnir. Þetta er Ifka
hægt að staðfesta með þvf að skoða ástandið að innan, hvort teppi, áklæði
og fótstig séu óeðlilega slitin.
Undirvagn og útblásturskerfi skoð-
að. Þorsteinn athugar hvort einhver
merki séu um ryð, hvort ryðvörn
hafi skemmst, hvort allar leiðslur,
barkar og lagnir séu í festingum sín-
um og hvort gúmmíupphengjur séu
heilar.
fylgir aukagangur af dekkjum.
Bílar í gæðaflokki eru yfirleitt
eldri en sérflokksbílar en seldir í
fullkomnu lagi miðað við aldur og
notkun. Bílum í gæðaflokki fylgir
ábyrgð í sex mánuði.
Elstu og jafnframt ódýnistu bfl-
amir lenda í sparflokki. Á þeim er
ekki tekin ábyrgð á þeim. Þeir eru
hins vegar skoðaðir jafn ítarlega,
að sögn Jóns, og fyrmefndu bílam-
ir. Skoðunarskýrslan er síðan látin
fylgja meö sparflokksbílunum
þannig að kaupendur geta áttað sig
á kostum þeirra og göllum á hlut-
lægan hátt. Ef kaupendur telja það
ekki nægjanlegt segir Jón að þeim
sé velkomið að láta skoða bílana
annars staðar líka. Jón segir að
sparflokkurinn sé í raun tilboðs-
flokkur sem í em bílar sem verið sé
að selja á uppítökuverði. Reynt sé
að halda öllu til haga varðandi
ástand þeirra þannig að kaupendur
eigi ekki að þurfa að fara í grafgöt-
ur um hvað sé i boði og kaupa kött-
inn í sekknum
Jón segir að áður en þessu fyrir-
komulagi var komið á hafi hann og
fleiri starfsmenn fyrirtækisins
skoðað viðskipti með notaða bíla í
nágrannalöndunum og sniðið sitt
ábyrgðarkerfi samkvæmt því sem
þar er tíðkað. „Okkur fannst sjálf-
sagt að leggja eitthvað af mörkum
tfl að auka öryggi neytenda í bíla-
viðskiptum. Við teljum okkur hafa
með þessu náð ákveðnu og ömggu
forskoti sem við eram staðránir í að
halda.“ -SÁ
ítarleg söluskoðun
og ábyrgð
Slæm bílakaup:
Keðjumálaferli
vegna flóðbíls
Bfll sömu geröar og bflllnn sem fjallað er um í fréttinni. Hann var fluttur inn frá Bandaríkjunum fram hjá umboðinu.
Bílaviðskipti hafa löngum þótt vera
ofurseld því að misvandaðir menn
noti þau sem verkfæri við að hlunn-
fara fólk. Víst er að bílar em tfltölu-
lega margbrotin tæki sem almenning-
ur á erfltt með að setja sig inn í. Þess
vegna fara velflestir eftir því hvemig
bílar koma fyrir sjónir og treysta jafn-
framt orðum seljenda eða umboðs-
manna þeirra að öðm leyti. Traust
ástandsskoðun hefði getað afstýrt því
að sú vandræðasaga sem hér fer á eft-
ir hefði nokkru sinni gerst.
Mjög mikilvægt er því að fólk
kynni sér vel ástand bíla sem það hef-
ur augastað á, fái þá ástandsskoðaða
af sérfræðingum og krefjist þess að fá
eigendasögu þeirra frá fyrsta skrán-
ingardegi. Tíð eigendaskipti eru oft
merki um að ekki sé allt með felldu.
Ef seljandi hefur orð á einhveiju af-
brigðilegu eins og að bíllinn hafi lent
í smátjóni, eða smáflóði, sem „kaup-
anda er kunnugt um og sættir sig
við“, er full ástæða til að hafa allan
varann á. Seint á síðasta ári gekk
dómur í máli sem maður höfðaði
vegna nýlegs bíls sem hann hafði
keypt en reyndist gallaður. Sá sem
seldi málshöfðanda bílinn var dæmd-
ur til að endurgreiða bílinn og allan
málskostnað en þar með er ekki öll
sagan sögð:
Flóðbíll
Billinn var á sínum tíma fluttur til
landsins frá Bandaríkjunum af einka-
aðila og var óekinn. Hann hafði lent í
flóði og hafði kaupandi eignast hann
sem slíkan. Þar sem ætlunin var að
flytja bílinn út var ekkert skráð í af-
sal um tjónið á bílnum. Bíllinn var
síðan fluttur til íslands og tekinn inn
í skemmu suður með sjó þar sem tek-
in var úr honum innréttingin og hann
skolaður út og síðan þurrkaður og
seldur. Sá sem keypti bílinn fékk að
vita að bfllinn hefði lent í ferskvatns-
flóði en ætti að vera i lagi.
Fljótlega komu upp gangtruflanir í
bilnum og tók þá innflytjandinn að
sér að skipta um aksturstölvuna í
bflnum og stilla hann. Eftir það var
bíllinn til friðs að mestu það tæpa ár
sem kaupandinn, eigandi nr. 2, átti
hann.
Allt bilaði
Hann seldi svo bilinn en lét þess
ekki getið við nýja kaupandann að
bfllinn væri flóðbfll. Nýi eigandinn
seldi bflinn nánast strax aftur í skipt-
um fyrir dýrari bíl. Eigandi nr. 4,
fyrmefhdur málshöfðandi, lenti strax
í vandamálum með bflinn: Útvarpið
bilaði, rafmagnsrúðuvindur biluðu og
leirleðja tók að dijúpa úr loftklæðn-
ingunni auk þess sem stýrið í bílnum
fraus fast í fyrstu frostum. Þegar bfll-
inn var tekinn til skoðunar kom í ljós
að stýrisvélin í bflnum var full af
vatni og út úr sjálfskiptingunni kom,
auk smávegis af sjálfskiptivökva,
bæði vatn og fínn leir.
Þótt í ljós hafi komið að eigandi nr
3, sá sem seldi málshöfðanda bflinn,
hafi ekki vitað um þessa forsögu bíls-
ins var hann dæmdur til að endur-
greiða hann með 1,5 milljónum króna
auk 600 þúsund króna málskostnaðar.
Hann á síðan kröfu á hendur eiganda
nr. 2 og er þegar byrjaður að sækja
rétt sinn gagnvart honum. Staða eig-
anda nr. 2 er veik vegna þess að hann
vissi af forsögu bílsins en lét hennar
ekki getið þegar hann seldi. -SÁ