Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Spurningalið Menntaskólans við
Hamrahlíð.
Stigamet MH
Spurningalið Menntaskólans við
Hamrahlíð setti stigamet í spum-
ingakeppninni síðan reglum var
breytt árið 1995 í síðustu keppni.
Þar sigraði MH lið Menntaskólans í
Kópavogi með 39 stigum gegn 15.
Þykja spumingarnar hins vegar
hafa verið í léttari kantinum en
metið engu að síður staðreynd. Lið
MH er nú komið í undanúrslit
ásamt sigurvegurum síðasta árs,
MR. Margir telja líklegt að það
verði þessi tvö lið sem komi til með
að keppa um hljóðnemann í úrslita-
leik keppninnar. Þó má ekki útiloka
liðin sem eftir em sem eiga eftir að
sanna sig á morgun og í næstu viku.
Hundrað manns
frá Egilsstöðum
Nemendur í Menntaskólanum á
Egilsstöðum ætla að vonum að fjöl-
menna á keppnina á Selfossi enda
þótt leiðin sé löng. Búist er við að
um hundrað manns komi á keppn-
ina frá Egilsstöðum en það er sami
fjöldi og hefur skráð sig í svokallaða
„menningarferð" skólans um næstu
helgi. Keppnin verður haldin í há-
tíðarsal skólans sem tekur fimm
hundruð manns í sæti. Selfyssingar
ætla að fjöltnenna á keppnina og er
sannkölluð verslunarmannahelgar-
stemning í bænum að sögn inn-
fæddra. Um þrjátíu manns koma að
upptökunni á einn eða annan hátt.
Fyrir utan hefðbundið starfslið
verður fjölmennt upptökulið sent til
Selfoss.
Úr síðasta þætti
MK kemur ekki meira við sögu í
keppninni en komst þó í sjónvarps-
keppnina.
Illugi Jökulsson dómari stóð sig
með ágætum í síðustu keppni og
Þóra Arnórsdóttir taldi stigin rétt.
DV-myndir Pjetur
Pað var frábær stemning í salnum í
siðustu keppni.
Fjölbrautaskóli Suðurlands:
Stillum lióskunni í frontinn
Eyjólfur Þorkelsson, Herdís Sigurgrímsdóttir og Sigursveinn Sigurðs-
son. DV-mynd Kr.Ein.
Þriðja og næstsíðasta keppni átta liða
úrslita Gettu betur fer fram á morgun.
Þá eru það lið Fjölbrautaskóla Suður-
lands og Menntaskólans á Egilsstöð-
um sem mætast í húsakynnum Fjöl-
brautaskólans á Selfossi. Þetta er
fyrsta keppnin sem fer fram á lands-
byggðinni en næsta keppni fer fram á
Akureyri þegar lið Menntaskólans á
Akureyri og Menntaskólans við Sund
mætast. Fjölbrautaskóli Suðurlands,
FSU, lagði lið Fjölbrautaskóla Austur-
lands að velli í fyrstu umferð keppninn-
ar, 16-13, en í annarri umferð tapaði
liðið á móti MA. Það komst þó áfram í
átta liða úrslit þar sem það var eitt af
stigahæstu tapliðunum. Menntaskól-
inn á Egilsstöðum mætti Verkmennta-
skólanum á Akureyri í fyrstu umferð og
vann, 28-25, og í annarri umferð sigr-
aði hann Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, 14-11.
Fjölbrautaskólinn á Suðurlandi hefur einu
sinni sigrað í spumingakeppni framhaldsskóla
og það var í fyrsta skipti sem keppnin var hald-
in, árið 1986. Stetnan hjá Sunnlendingum er að
sjálfsögðu sett á fyrsta sætið í ár enda
segja keppendumir að liðið í ár sé
fima sterkt. Það era þau Eyjólfur
Þorkelsson, Herdís Sigurgrims-
dóttir og Sigursveinn Sigurðsson
sem skipa liðið. „Við höfum æft
mjög vel fyrir keppnina í
Sjónvarpinu. Það er spenn-
andi að komast í sjón-
varpið og við verðum að
sýna að við séum þess
verðug,“ segja krakk-
amir í FSU. Þau hafa
lesið mikið þó mest í sitt
hvora lagi. „Nema þegar
það kemur að því að æfa
hraðaspurningar, þá æfum
við öll saman. Það er nauð-
synlegt til þess að reyna að
ná upp hraða og samhæf-
ingu í liðinu. Svo er sérhæf-
ing í liðinu hjá okkur. Við
stillum ljóskunni í frontinn og fáum með því
áhorfsvænni liðsheild heldur en aðrir bjóða upp
á,“ segir Eyjólfur og hlær. Herdís er þó hvergi
bangin að vera eina stelpan í liðinu. „Vinir mín-
ir voru að benda mér á að það væra ekki gáfum-
ar sem kæmu mér í liðið heldur hafi ég komist í
liðið til að hressa upp á útlitið. Þetta eru ekki
vinir mínir lengur," sagði Herdis.
Þeim fmnst gott að vera á heimavelli á morg-
un. „Og svo ef við fáum að velja hvort liðið á að
yfirgefa salinn á undan þá ætlum við að vera fjar-
verandi og láta salinn klappa okkur inn. Það
skiptir töluverðu máli. Við eigum von á því að
salurinn verði fullur af stuðningsmönnum enda
er mikill áhugi á keppninni á Selfossi," segja þau.
Kr.Ein.
Menntaskólinn á Egilsstööum:
Algjörlega nýtt lið
„Það var sex manna hópur sem
valinn var til æfinga í haust og
síðan voru þrír valdir í aðalliðið
rétt fyrir próf. Þau vora öll í vara-
liðinu i fyrra þannig að við erum
með algjörlega nýtt lið. Við höfum
verið að æfa tvisvar til þrisvar í
viku. Það er ekkert stress í liðinu
en þau eru áhugasöm og það er
engin atvinnumennska í gangi.
Aðalatriðið er að hafa gaman af
þessu,“ segir Hrafnkell Freyr Lár-
usson sem þjálfar spurningalið
Menntaskólans á Egilsstöðum.
Hann er þrautþjálfaður í þessari
Gettu betur 1999
8 - liða úrslit Undanúrslit
Margrét Urður Snædal, Ríkharður Hjartar Magnússon og Einar Hróbjartur
Jónsson. DV-mynd S.B.
12. febr.
Menntaskólinn í Reykjavík 25 Menntaskólinn í Reykjavík
VerzTúnBrskóiUsIands^ 13
19. febr.
lvÍefrntaská(innU<ógayogi 15 Menntaskólinn viö Hamrahlíö
Menntaskólinn viö Hamrahlíö 39
26. febr. á Selfossi
Fjölbrautaskóli Suöurlands (Selfossi) ?
Menntaskólinn á Egilsstööum
5. mars á akureyrl
Menntaskólinn á Akureyri
Menntaskólinn viö Sund
keppni þar sem hann keppti
þrisvar fýrir ME. Tvö síðustu ár
komst liðið í undanúrslit, keppti
við MR í bæði skiptin og féll með
sæmd, 1997 með aðeins tveggja
stiga mun. Þau sem keppa núna
fyrir hönd ME eru Ríkharður
Hjartar Magnússon, á fjórða ári í
skólanum, Margrét Urður Snædal,
á þriðja ári, og Einar Hróbjartur
Jónsson, einnig á þriðja ári.
„Mér líst vel á keppnina í ár,
annars væri maður ekki að standa
í þessu. Sunnlendingar eru með
sterkt lið en við erum ekkert að
fara til að tapa. Það er alveg á
tæru. Aðalatriðið er að hafa gam-
an af þessu,“ segja keppendur ME.
Þeir segjast ekki fara alveg einir
suður því þeim fylgir fríður flokk-
m: skólafélaga. „Það verður menn-
ingarferð í bæinn akkúrat um
þessa helgi. Þannig að það er búist
við mörgum stuðningsmönnum á
Selfoss. Þar fer fremstur i flokki
Magnús Einþór Áskelsson, sem er
kallaður Maggi Tóki þar sem hann
er frá Tókastöðum, hann ætlar að
sjá um að áhorfendur verði í stuði
og hvetji liðið til sigurs,“ segir
spurningaliðið.
-S.B.