Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Page 20
24
&ikmyndir
FIMMTUDAGUR 25. FEBRUAR 1999
903 • 5670
Laugarásbíó - Clay Pigeons:
Traustur vinur.
Hvernig á að
svara
auglýsingu
í svarþjónustu:
4
Pú hringir í síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess aö svara smáauglýsingu.
4
4
Pú slærö inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
Þá heyrir þú skilaboö
auglýsandans ef þau eru fyrir
hendi.
4
Pú leggur inn skilaboð eftir
hljóðmerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
4
Þá færö þú aö heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægö/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur
þú talað þau inn aftur.
Hvernig á að
svara atvinnu-
auglýsingu í
svarþjónustu:
4
Þú hringir í slma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara
atvinnuauglýsingu.
4
4
Þú slærö inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
Nú færö þú aö heyra skilaboö
auglýsandans.
Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á
1 og heyrir þá spurningar
auglýsandans.
4
Þú leggur inn skilaboð eftir
hljóömerki og ýtir á
ferhyrninginn aö upptöku
lokinni.
4
Þá færð þú aö heyra skilaboöin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægö/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur þú
talað þau inn aftur.
1 Þegar skilaboöin hafa veriö
geymd færð þú uppgefiö
leyninúmer sem þú notar til
þess aö hlusta á svar
auglýsandans. Mikilvægt er aö
skrifa númeriö hjá sér því þú
ein(n) veist leyninúmerið.
4
Auglýsandinn hefur ákveöinn
tíma til þess aö hlusta á og
flokka svörin. Þú getur hringt
aftur í síma 903-5670 og valiö
2 til þess aö hlusta á svar
auglýsandans.
Þú slærö inn leyninúmer þitt
og færö þá svar ayglýsandans
ef það er fyrir hendi.
Allir í stafræna kerfinu
með tónvalssíma geta
nýtt sér þessa þjónustu.
903 • 5670
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama
verö fyrlr alla landsmenn.
iririr Ég myndi ekki vilja
hitta Vince Vaughn í
dimmu öngstræti þótt hann sé aga-
lega sætur. Hann er bara einum of
sannfærandi sem fjöldamoröinginn
Lester Long og ég get varla beðið
eftir að sjá hann fróa sér sem Nor-
man Bates. En samt, hann er góður
vinur vina sinna. Ef þú átt kærustu
sem þú vilt losna við sér hann um
það og hann gerir allt til að reyna
að ná þér úr fangelsi, meira að segja
að drepa aðra vinkonu þína, ung-
lingsstelpuna sem þú passaðir.
Kvikmyn, da
GAGNRYNI
Leirdúfan er Clay Bridwell
(Joaquin Phoenix), einn af þessum
afskaplega góðu piltum sem finnur
sig skyndilega í óþægilegri aðstöðu.
Besti vinur hans, Earl, skýtur sig
því Clay hélt við konuna hans,
Amöndu, og lætur líta út fyrir að
Clay sé morðingi. Clay þarf nú bæði
að koma af sér sök og segja Amöndu
upp. En það bjargast því í staðinn
fyrir Earl eign-
ast hann nýjan
vin sem síðan
myrðir Amöndu.
Því miður tókst
Amöndu i milli-
tíðinni að stúta
nýju kærustu
Clay og þar með
þarf hann að fela
annað lík... Og
siðan fara líkin
að hrannast upp,
því nýi besti vin-
urinn Lester er
óvart
fjöldamorðingi
og Clay i vond-
um málum.
Bæði leik-
stjóri og hand-
ritshöfundur eru
nýliðar og þeir
ætla sér greini-
lega mikið með
þessari mynd
sem ber bæði
merki Tarantino Lester Long (Vince Vaughn) og Amanda (Georgina Gates)
og Cohen- eru örlagavaldar Leirdúfunnar
bræðra, og þrátt fyrir að þeir ætli
sér á stundum aðeins of mikið þá
verður það að segjast eins og er
að þeim tekst bara ansi vel upp.
Það er mikið til að þakka
skemmtilegum persónum og frá-
bærum leik, en þeir smástrákam-
ir Vince og Joaquin eru stórgóðir
í sínum hlutverkum. Janeane
Garofalo (sú eftirminnilegasta úr
Romy and Michele) er jafnvel enn
betri sem eitilhörð FBI-lögga,
Déde Shelby, og önnur hlutverk
em almennt vel mönnuð. Þetta er
kannski ekki frumlegasta eða
markverðasta mynd ársins, en
hún er svo sannarlega skemmti-
leg, ekki síst fyrir hvað hún hafði
góðan húmor fyrir sjálfri sér og
persónum sínum.
Leikstjóri: David Dobkin. Handrit:
Matthew L. Healy. Kvikmynda-
taka: Eric Edwards. Tónlist: John
Lurie. Aðalhlutverk: Joaquin
Phoenix, Georgina Gates, Scott
Wilson, Vince Vaughn, Janeane
Garofalo.
Úlfhildur Dagsdóttir
!§M 10
í Bandaríkjunum
- aösókn dagana 19. - 21. febrúar. Tekjur í milljónum dollara og helldartekjur
Mel Gibson vill fá endurgreiöslu í Payback.
Mel Gibson aftur á toppinn
Vinsældir Mel Gibson eru miklar og hann leyföi Kevin Costner ekki aö
vera nema eina viku I efsta sæti listans og er nýjasta mynd kappans,
Þayback, aftur komin í efsta sætiö. Annars eru litlar breytingar á listanum
þessa vikuna enda var lítiö um stórar frumsýningar. Um næstu helgi
verður aftur á móti spennandi aö sjá hvernig viötökur spennumyndin
8MM fær, en í henni leikur Nicolas Cage aöalhlutverkiö. Sú nýja mynd
sem hæst fer er October Sky sem er frá Universal og sérstaklega ætluö
kvenfólki, enda fór þaö svo aö konur 25 ára og eldri fjölmenntu á myndina
og sögöust I 90% tilfella myndu mæla meö henni viö vinkonur sínar. í
vikunni geröist þaö aö Saving Private Ryan varö aösóknarmesta kvikmynd
sem gerö var áriö 1998 og leysti Armageddon af hólmi í því sæti. Þær
kvikmyndir sem flestartilnefningar hafa fengið til óskarsverölauna eru
yfirleitt í góöum glr þessa dagana og stíf og góö aösókn á þær.
Tekjur Heildartekjur
1. (2) Payback 10.268 57.147
2.(1) Message in Bottle 10.042 32.129
3. (3) My Favorite Martian 6.911 19.935
4. (-) October Sky 5.905 5.905
5. (5) Blast from the Past 5.839 16.509
6.(6) Shakespeare in Love 5.827 54.127
7. (4) She's All That 5.288 49.391
8. (-) Office Space 4.231 4.231
9- (8) Rushmore 2.804 9.758
10. (7) Saving Private Ryan 2.417 203.152
11. (11) Life Is Beautiful 2.350 24.666
12. (9) Patch Adams 1.742 129.358
13. (-) Jawbreaker 1.603 1.603
14. (10) Varsity Blues 1.584 50.231
15. (-) Affliction 1.111 2.115
16. (20) Ellzabeth 1.098 21.038
17. (12) The Thin Red Line 0.932 34.370
18. (17) The Rugrats Movie 0.901 97.388
19. (15) Waking Ned Devine 0.787 21.319
20. (13) A Civll Action 0.770 55.150
Saga-bíó - Hamilton:
Hasarmynd fátæka mannsins
if Hamilton fær eitt prik fyr-
ir þá skemmtilegu ósvífni að
ganga gegn hinni viðteknu skoðun
að Evrópumönnum (sér í lagi
Skandinövum) beri að forðast að
gera myndir á forsendum
Hollywood. Einhverjum ofurhugum
í Svíþjóð (já Svíþjóð) hefur sem sagt
dottið í hug að gera hasarmynd í
þjóðrembustíl um ofurhetju sem elt-
ist við illmenni, kálar þeim og
bjargar heiminum í leiðinni. Bruce
Willis snýtir svona myndum úr nös
sem og Stallone, en þeir hafa á bak
við sig haug af peningum og ára-
tugareynslu sem orðin er afskap-
lega straumlinulöguð. Svíarnir
bjóða okkur heimamanninn
Peter Stormare, sem vissulega
er flottur, þeir tjalda líka öllu
til en það er ekki nóg. Ef
Hollywood-hasarmyndin er
Porsche þá má líkja HamUton
við Trabant, það eru fjögur
hjól undir bílnum en þar end-
ar samanburðurinn. Þegar
svo ofan á bætist að leikstjór-
inn virðist ekki hafa kynnt
sér nægilega undirstöðuaat-
riði persónugerðar í svona
tegund mynda er útkoman
vandræðalegur bastarður, líkt
og þessar myndb sem fram-
leiddar eru fyrir myndbanda-
markaðinn í Austrmlöndum
fjær. Það er hreinlega pínlegt að sjá
klassaleikara á borð við Stormare
og Olin þræla sér í gegnum þennan
óskapnað, en Mark HamUl (Luke
Skywalker) er í essinu sínu;
kannski af því að hann skUur form-
ið og tekur öUu mátulega alvarlega,
en kannski af því hann talar amer-
ísku sem er jafn óaðskUjanlegur
hluti svona mynda og italskan er
óperunnar. Jú, hinir tala ensku líka
en hver með
sínu nefi og Sví-
amir eru illa
döbbaðir (þeir
tala sænsku upphaflega), svo aUt er
þetta svolítið út úr kú.
Hamilton er sumsé sænskur sér-
sveitarmaður, sem sendur er tU
Rússlands tU að stoppa af sölu á
kjarnorkuflugskeyti en kemst að
því að hann hefur verið gabbaður
og bomban er komin tU Libýu þar
sem heimamenn hyggja á óskunda.
Með fulltingi CIA og bandaríska
hersins, auk PLO (því Sviar eru
aUra vinir), heldur Hamilton til
Austurlanda nær til að stöðvá
kjarnorkuþrjótana. Á meðan ógnar
vondur KGB-maður kærustu
Hamiltons þar sem hún bíður þolin-
móð í tæknivæddum kastala ofur-
hetjunnar og gerast þá góð ráð dýr
fyrir hetju vora. Allt er þetta ágæt-
is upplegg í hasar en fer fyrir lítið,
þar sem aUa stemningu vantar.
Hasarmyndaformið lýtur nefni-
lega ströngum lögmálum og krefst
trúmennsku. Það er auðvitað nú-
tima útgáfa af hetjusögum og goð-
sögnum fyrri tima og gerir þær
kröfur til bæði kvikmyndagerðar-
mannsins og áhorfandans að hann
fyrirgeri vantrú sinni og fylgji hetj-
unni af heUum hug, gangi helst inn
í hana. Þetta er fantasíuheimur sem
engu að síður verður að ganga upp
í sjálfum sér. Ýmsir Evrópumenn
hafa náð ágætum tökum á þessu,
t.d. Luc Besson, Paul Verhoeven og
Renny Harlin. Zwart á reyndar
ágæta spretti í sviðsetningu átaka
og sprenginga en þyrfti nauðsyn-
lega að iæra nokkur trix varðandi
persónusköpun. Það er enginn að
tala um að kafa djúpt, en ofurlítið af
sjarma og hæfilegur skammtur af
geggjun gerði áhorfandanum auð-
veldara að hafa á þessu einhvern
áhuga og gaman.
Til þess er jú leik-
urinn gerður.
Að lokum, hver
sagði að norrænt samstarf væri lið-
ið undir lok? Svíar skaffa pening-
ana og flesta leikarana, leikstjórinn
er norskur og aðstoðarleikstjórinn
er enginn annar en íslendingurinn
Gunnlaugur Jónasson sem hefur að
baki langa reynslu sem upptöku-
stjóri og framkvæmdastjóri, bæði
hér heima og i Svíþjóð.
Leikstjóri: Harald Zwart. Hand-
rit: Jonas Cordell og William
Aldridge. Tónlist: Trond
Bjerknæs. Aðalhlutverk: Peter
Stormare, Lena Olin, Mark
Hamill.
Ásgrímur Sverrisson
Kvikmynda
GAGNRÝNI