Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Blaðsíða 22
26
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Gabríela Friðriksdóttir
. myndlistarkona
að sýnast
gáfuleg
Prof sem sker ur þvi
sem máli skiptir:
Hrafn Jökulsson aftur
oróinn ritstióri:
Hrój jj
alls
fagnaðar
Erum við betur sett ef við fáum ííf
það sem við óskum okkur?
Svona lítur L* 3
drauma- m =
prinsinn út %
4|Leidarvísir um skemmtana-
og menningarlífid
Líficf eftir vinnu
Fókus fylgir DV á morgun
u
Fréttir
Rætt um að flytja Plastos norður:
50 störf hverfa
úr borginni
Fimmttu störf í iðnaði munu senn
flytjast frá Reykjavík norður til Ak-
ureyrar.
Hér er um að ræða plastfram-
leiðslufyrirtækið Plastos, sem nú er
orðið í meirihlutaeign Daníels
Árnasonar og tveggja félaga hans á
Akureyri, sem reka svipaðan iðnað
nyrðra, Akoplast hf., en það fyrir-
tæki og Plastos munu sameinast
endanlega ef svo fer sem horfir. Hjá
Akoplasti starfa um 30 manns í dag.
Þetta verður stærsti bitinn á at-
vinnumálasviðinu sem Akureyring-
ar hafa til þessa klófest frá höfuð-
borgarbúum.
„Ég var með starfsmannafund í
borginni fyrir helgi þar sem við
sögðum fólkinu frá okkar plönum -
við erum að skoða þessa möguleika.
Auðvitað er aldrei hægt að segja
hundrað prósent fyrir víst að þetta
gangi upp, en það er athugað hvort
fýsilegt sé að framleiðsluhluti fyrir-
tækisins fari norður,“ sagði Daníel
Árnason, framkvæmdastjóri og
frambjóðandi Framsóknarflokksins
til Alþingis, í gær. -JBP
Hér er einn af 13 bílum af 1999-árgerð sem eyðilögðust í brunanum.
DV-mynd Hörður
Bruninn í Bílagarði á ísafirði:
Eldurinn kviknaði
í búningsaðstöðu
Lögreglan á ísafirði hefur nú,
með aðstoð tveggja brunarannsókn-
arlögreglumanna frá ríkislögreglu-
stjóraembættinu, rannsakað orsök
eldsvoðans sem varð í húsnæði
Bílagarðs og Eyrarsteypu að Græna-
garði á Ísafirði þar sem bílaverk-
stæði og bílasala gjöreyðilögðust í
eldi aðfaranótt sunnudagsins 21.
febrúar.
Vettvangsrannsókn hefur leitt í
ljós aö eldsupptök urðu 1 búningsað-
stöðu og þvottaherbergi sem er
norðanvert í miðju húsnæðinu.
Ekki er hægt að fullyrða nánar um
orsök íkviknunar.
í eldinum brann allt sem brunnið
gat og þegar eigendur leituðu að
munum i byggingunni eftir brun-
ann var þar ekkert að finna nema
óbrennanlega hluti eins og jám og
steypu.
Bókstaflega enginn eldsmatur var
þar eftir og það vottaði ekki einu
sinni fyrir milliveggjum, tölvum,
borðum, skjalamöppum eða öðru,
frekar en það hefði aldrei verið í
byggingunni. Þama brunnu öll
gögn fyrirtækisins ásamt lager,
tækjabúnaði, bílum og öðm sem að
verðmæti er talið síga i 100 milijón-
ir króna. -HKr.
Það var Iff og fjör í frímínútum hjá krökkunum í Breiðholtsskóla á dögunum
þegar þau renndu sér niður svell sem hafði myndast við skólann.
DV-mynd GVA