Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
27
Fréttir
Hreyf ing er besta forvörnin
AÐALFUNDIR
TRIUMPH-ADLER
FX 61 Oi FAXTÆKI
Þýskar gæðakröfur - ítötsk hönnun
Verð kr. 28.900 með vsk
= i. áSTVRLDSSON HF.
SkifMi 33.105 Rqtjaik, sín 533 3535
Ekki sitja allir unglingar dagana
langa fyrir framan tölvur, vídeó eða
sjónvarp, eins og lýst var i blaðinu í
gær og er vissulega orðiö vandamál
og heilsunni til tjóns hjá of mörg-
um. Talsvert er um það í mörgum
heilsuræktarstöðvum að unglingar
æfi þar og bæti við fremur fátæk-
lega skólaleikfimi. Linda Hilmars-
dóttir í Hress í Hafnarfirði segir að
unglingatímamir í stöðinni þar séu
vinsælir. Stelpurnar eru í miklum
meirihluta meðal unglinganna, það
eru strákamir sem sinna skjáiþrótt-
unum. Krakkamir stunda hjóla-
tíma, spinning, tækjasal og palla-
leikfimi, auk þess sem þeir kynnast
gmnninum að Body Pump æfing-
um.
Þetta er hörkupúl í kg-klúbbnum,
eða kílóaklúbbnum, sem Linda seg-
ir að sé misheppnað nafn þar sem
ekki eigi að hugsa um kíló hjá ung-
lingunum. „Okkar markmið er að
koma krökkunum í gott form og
vekja áhuga þeirra á heilsubætandi
starfi í heilsuræktinni. Það er ekk-
ert gott að vera vigta unga krakka,
það gengur ekki upp. Ef þeir era of
þungir fer þetta af þeim við hreyf-
inguna og þeir verða miklu ferskari
í skólanum með því að æfa. Þetta
era krakkar á ýmsum aldri hjá okk-
ur, koma héðan og þaðan og hafa
skapað sérstaklega góðan anda í
hópnum," sagði Linda.
Údýrt og einfalt faxtæki fyrir venjulegan pappír
með bleksprautuprentun.
Helstu eiginleikar:
• Nýtiskulegt útllt
• Auövelt og ódýrt í notkun
• Innbyggðurslml og
Ijósritun stækkun -
rainnkun 70-140%.
• 84 númera rainni tyrir
slma-iaxnúmer.
• 5 blöð í matara, 40 blöð i blaðabakka.
• 15 sek. sendingartiraði, prentar 2 blöð á mínútu.
• Tafin sending úr matara, minni til að taka ð móti
sendingu, sjálfvirkur skiptir á milli síma og fax.
Vinir Leifa koma reglulega saman f Hress í Hafnarfirði og púla mikið. Púlið gerir líkamanum gott og engum blandast iengur hugur um að hér er um mikla og
góða forvörn gegn veikindum að ræða.
Hún grennist, hann fitnar
ÞOað eru fleiri hópar sem koma í
Hress reglulega, líka hjón og fjöl-
skyldur sem æfa saman. Ein hjónin
stunda grenningu (hún) og fitun
(hann) og gengur frábærlega vel.
Þama mæta karlamir sem kalla sig
Vini Leifa og puða undir stjóm
Guörúnar ísberg sjúkraþjálfara sem
er um þessar mundir í lukkulegu
ástandi og hverfur senn frá körlun-
um um sinn til að fjölga í fjölskyld-
unni. Þetta eru ýmsir athafnamenn
sem hafa æft saman í mörg ár, 15
manna kjami. sem heldur sínar eig-
in árshátíðir. Margir þeirra æfa auk
þess á öðram tímum og era mættir
í átökin löngu fyrir fyrsta hanagal á
morgnana.
„Við eram auðvitað hress héma
í Hress og miklir jaxlar, eram úti að
æfa nánast sama hvemig viðrar.
Þess vegna datt okkur í hug að efna
til útitíma í Body Pump undir lok
átaksins Leið til betra lífs. Það er
verið aö kanna hvort við sláum ekki
til og höldum þetta í sundlauginni í
Hafnarfirði. Við sjáum hvað setur,"
sagði Linda Hilmarsdóttir í gær.
Hollt fyrir hjarta og lungu
Heilsuræktarstöðvar höfuðborg-
arsvæðisins og aðrir þeir sem sinna
líkamlegri uppbygginu fá þúsundir
gesta á hverjum degi. Á nokkram
árum hefur sérhæfing batnað til
mikilla muna. Almennt starfar vel
menntað og áhugasamt fólk við
þjálfunarstörfin. Almenn þjálfun,
kraftþjáifun og þolþjálfun fólks á
öllum aldri er afar mikilvæg fyrir
heilsuna og fyrirbyggjandi aðgerð.
Uppbygging og styrking vöðva hef-
ur gífurlega mikið að segja fyrir
starfshæfni alls líkamans. Æfing-
amar era hollar starfsemi hjarta og
lungna, og örva hringrás blóðsins.
Vel þjálfað fólk ber sig betur í dag-
legu lífi, æfmgamar stuðla að réttri
beitingu likamans og veija stoðkerf-
ið fyrir skakkaföllum.
-JBP
Síldarvinnslan í Neskaupstað er að færa út kvfarnar.
verða haldnir fimmtudaginn 4. mars nk., kl. 17:15 á Kirkjusandi,
íslandsbanka hf., 5. hæð, Hólum.
Nýtt félag í veiðum og vinnslu:
Kaupir nótaskip og
fiskmjölsvinnslu
DV, Akureyri:
Síldarvinnslan hf. i Neskaupstað,
Kaupfélag Eyfirðinga og fleiri hafa
stofnað fyrirtækið Barðsnes ehf.
sem mun kaupa hluta af eignum
sjávarútvegsfyrirtækisins Snæfells
sem er dótturfyrirtæki Kaupfélags
Eyfirðinga. Nýja félagið mun yfir-
taka eignimar og reksturinn í lok
vikunnar.
Þær eignir sem um ræðir era
nótaveiðiskipin Sólfell EA-314 og
Dagfari GK-70 en með skipunum
fýlgja veiðarfæri og aflaheimildir í
uppsjávarfiski, þ.e. 2,3% aflahlut-
deild í loðnu, þrír síldarkvótar og
veiðiréttindi í norsk-íslenska síldar-
stofninum sem á síðasta veiðitíma-
bili var 5.868 tonn. Ennfremur kaup-
ir Barðsnes fiskimjölsverksmiðju í
Sandgerði ásamt öðrum eignum
Snæfells þar sem era áhöld, vélar og
fasteignir.
„Þessi sala á þeim eignum Snæ-
fells hf. sem tengist veiðum og
vinnslu á uppsjávarfiski er í sam-
ræmi við kynnta stefnu félagsins.
Nú mun fyrirtækið leggja aðalá-
herslu á að vinna bolfisk en á því
sviði er hæfni og þekking innan fyr-
irtækisins mest,“ segir Magnús
Gauti Gautason, framkvæmdastjóri
Snæfells.
Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
segir markmið fyrirtækisins með
þessum aðgerðum að treysta rekstr-
argrandvöU fyrirtækisins. „Síldar-
vinnslan hefur að undanfómu fjár-
fest umtalsvert í veiðum og vinnslu
uppsjávarfiska, bæði i fiskiðjuveri
og fiskimjölsverksmiðju. Við viljum
efla þessa vinnslu enn frekar og
tryggja að hún eigi aðgang að sem
mestu hráefni," segir Björgólfur.
-gk
H I NÝ
MARKÍMARK
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf sbr. 14. grein samþykkta félaganna.
2. Tillaga um breytingu á 5. gr. samþykkta félaganna varðandi rafræna útgáfu
hlutabréfa í samræmi við ákvæði laga um rafræna eignaskráningu verðbréfa.
3. Onnur mál.
Dagskrá, tillögur og ársreikningar félaganna munu liggja frammi á skrifstofu *
þeirra að Kirkjusandi, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Hluthafar eru hvattir til að mæta!
REKSTRARAÐILI:
Verðbréfamarkaður Islandsbanka hf. • Aðili aðVerðbréfaþingi íslands
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560 8900. Myndsendir: 560 8910.