Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Page 28
32
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Sviðsljós
Miðvlkudaginn 17. mars fylgir hin sívinsæla
fermingargjafahandbók DV.
Þessi handbók hefur þótt nauðsynleg
upplýsinga- og innkaupabók fyrir alla
þá sem eru í leit að fermingargjöfum.
Umsjón efnis:
Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir
Umsjón auglýsinga:
Selma Rut Magnúsdóttir,
sími 550 5720.
Ath. Skilafrestur á
vinnsluauglýsingum
er til 5. mars.
Spiluðu fyrir
hálftómu húsi
Annað hvort eru vinsældir
Micks Jaggers að dvína eða mið-
amir á tónleika hans of dýrir.
Rolling Stones léku nefnilega fyr-
ir hálftómi husi í Auburn Hills
fyrir utan Detroit nú í vikunni.
Rollingarnar eru nú á tónleika-
ferðalagi í Bandaríkjunum og
hingað til hefur verið uppselt þó
að miðarnir hafi kostað allt að 22
þúsund krónur.
Mel Gibson gef-
ur 50 milljónir
Mel Gibson hefur gefið leiklist-
arskólanum NIDA í Sidney, þar
sem hann stundaði á sínum tíma
nám, um fimmtíu milljónir ís-
lenskra króna. Tilkynnt var um
gjöfma rausnarlegu á fjörutíu ára
afmæli skólans. Nota á féð til að
reisa nýtt stúdíó og bókasafn við
skólann.
Gibson, sem býr í Los Angeles,
var þrjú ár i skólanum í lok átt-
unda áratugarins. Meðal skólafé-
laga hans voru Judy Davis og
Geofirey Rush.
Mel Gibson ólst upp í Ástralíu
þar sem foreldrar hans fluttu
þangað frá Bandarikjunum.
talskir rómeóar kunna svo sannarlega listina að heilla hið veika kyn upp úr
skónum. Franska ofurfyrirsætan Laetitia Casta fékk að kynnast því við upp-
haf sönghátíðarinnar í San Remo þegar ítalski skemmtikrafturinn Fabi Fazio
smeliti laufléttum kossi á hönd hennar. Laetitia er kynnir hátíðarinnar.
Snjóflóð stöðv-
uðu James Bond
Kvikmyndaleikarnir Pierce
Brosnan og Sophie Marceau áttu
á dögunum að halda til Frakk-
lands þar sem taka átti upp senur
fyrir nýjustu Bond-myndina, The
World Is Not Enough.
Tökunum var hins vegar aflýst
á síðustu stundu vegna kröfu
tryggingafélaga framleiðenda
myndarinnar. Of hættulegt þótti
að kvikmynda í og við Chamonix
í kjölfar snjóflóðanna sem þar
hafa fallið. James Bond verður
því að bíða með að sýna kúnstir
sínar í frönsku Ölpunum. Von-
andi kemst kappinn þó í brekk-
umar sem fyrst. Frestun á tökun-
um kostar tugi milljóna króna.
óskar eftir blaðberum
eftirtaldar götur í
Garðabæ:
Birkihæð
Blómahæð
Eyktarhæð
Melhæð
Óttuhæð
Upplýsingar
í síma 550 5777
lágður göngutúr fyrir heimavinnand
Tískukóngurinn Calvin Klein
er búinn að reka ofurfyrirsætuna
Kate Moss, ef marka má frásagn-
ir erlendra blaða. Ástæðan er
sögð vera sú að Kate sagði frá
fíkniefnamisnotkun sinni í við-
tali við tímaritið Face.
Calvin Klein hefur notað andlit
Kate Moss, sem nú er 25 ára, í
auglýsingaherferðum sínum um
allan heim síðan 1992. Sumar
auglýsingarnar voru harðlega
gagnrýndar en á þeim voru
myndir af Kate þar sem hún var
fól og mögur. Þótti mörgum sem
hún liti út eins og heróínfikill.
Meira að segja Bill Clinton
Bandaríkjaforseti sagði að mynd-
imar væru hræðilegar. Auglýs-
ingaherferðin var einnig harka-
lega gagnrýnd vegna þess hversu
mögur Kate Moss var. Þótti hún
minna á lystarstolsjúkling. Auk
þess var stúlkan sögð of ung.
Fannst sumum auglýsingamar
heinlínis bamaklám.
En nú er samstarfi Kate og
Kate Moss er úti í kuldanum.
Símamynd Reuter
Calvins Kleins sem sagt lokið. Á
tískuvikunni í New York var
komin önnur stúlka í stað Kate
Moss, rússneska fyrirsætan
Colette Pechekonova sem er 18
ára.
í viðtalinu sem sagt er vera
ástæða brottrekstrar Kate segir
hún frá því að hún hafi byijað að
drekka tólf ára gömul. Hún hafi í
raun alla ævi átt við fikniefna-
vanda að stríða.
Calvin Klein hefur ekki bara
verið gagnrýndur fyrir myndim-
ar af Kate. Hann neyddist nýlega
til að stöðva auglýsingaherferð
með myndum af litlum bömum.
Sögðu gagnrýnendur hættu á að
myndirnar höfðuðu til barnaníð-
inga. Klein virðist vera að reyna
að skapa sér betri ímynd en í
tískubransanum þykir mönnum
aö hann hefði átt að koma betur
fram við Kate. Það sé lélegt að
svíkja hana fyrir það eitt að hún
hafi greint opinberlega frá
vandamálum sínum.
Rússarnir sjá
rautt yfir Tom
Rússar eru að vonum orðnir
langþreyttir á þeirri mynd sem
kvikmyndagerðarmenn í
Hollywood
hafa dregið
upp af þeim.
Þingmaður-
I *nn Alexei
■ Mítrofanov,
* *'"#■' skoðanaþróð-
ir þjóðern-
isöfgamanns-
ins Zhírínov-
skís, hefur oft
kvartað sáran og nú siðast yfir
mynd með Tom Hanks. Þingmað-
urinn heldur því fram að þar sé
Rússum lýst sem lötum drykkju-
rútum. Hann hefúr þó ekki séð
myndina enn og þíður með loka-
dóminn þangað til.
Gwyneth kemur
ekki með Benna
Er nema von að almenningur
hristi hausinn í forundran? Sund-
ur, saman, sundur, saman, eða öf-
ugt. Þannig er
það víst með
þau Gwyneth
Paltro og Ben
Affleck þegar
óskarsverð-
launaafhend-
ingin er ann-
ars vegar.
Einn daginn er
fullyrt að þau muni leiðast hönd í
hcnd eftir rauða dreglinum en
þann næsta er allt slíkt borið til
baka og sagt að Gwyneth ætli
bara aö mæta með pabba gamla,
leikstjóranum Bruce Paltrow.
En þótt Gwyneth fari ekki með
Ben tii verðlaunaafhendingarinn-
ar er vist ekkert sem kemur í veg
fyrir að þau fari saman í partíin
sem haldin eru síðar um kvöldið
og fram á nótt. Hvað sem öðru líð-
ur eru skötuhjúin enn á góðum
talefod, eins og danskurinn segir,
þótt hætt séu saman.
C al vin Klein
rak Kate Moss