Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Side 32
36
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 H>"V
Ummæli
Verkalýðshreyfingin
verði aftur pólitísk
„Hér er verk óunnið, það er
að gera verkalýðshreyfinguna
aftur pólitiska,
enda er það háð-
ung að flokkur
vinnuveitenda,
Sjáifstæðisflokk-
urinn, skuli vera ,
einn helsti
áhrifaaðilinn
innan verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Ágúst Einarsson alþingismað-
ur, í Degi.
Launum haldið niðri
„Sú þróun sem átt hefur sér \
stað undanfarin ár, að hingað
eru flutt hundruð útlendinga til
að vinna í fiski, er orðin mjög
hættuleg og hefur beinlínis orð-
ið til þess að halda lavmum i
fiskvinnslunni niðri.“
Aðalsteinn Baldursson, form.
fiskvinnsludeildar VMSÍ, í DV.
Vinstrimenn Islands
„Þeir hanga eins og hundur í
roði á andstööunni við herinn.
Herinn sem skipti
þá engu máli þegar
ráðherrastólar
voru í boði fyrir
þá sjálfa. Svo urra
þeir: Við erum
Vinstrimenn ís-
lands.“
Heimir Már Pétursson
samfylkingarmaður, um brott-
flogna alþýðubandalagsmenn,
í Morgunblaðinu.
Vond samviska?
„Við sem komið höflun fram
í þessum þáttum hljótum að
hafa vonda samvisku af ein-
hverju sem við höfiim látið út
úr okkur og hefur farið í taug-
arnar á einhverjum yfirsam-
starfsmanna Önnu Kristínar.
Það var aldrei meiningin að
hún missti vinnuna."
Árni Björnsson laeknir, vegna
brotthvarfs Önnu Kristínar frá
RUV, í DV.
Vitlausar reglur
„Svona vitlausum og ég end-
urtek: Svona vit-
lausum reglum
verðm- að breyta."
Eggert Magnússon,
form. KSÍ, um reglur
Afreksmannasjóðs |
ÍSÍ, í Morgunblað-
inu.
Það verður að hafa
það þótt þeir
fari í fýlu
„Ég verð að fylgja minni
dómgreind og sannfæringu í
þessum málum og það verður
bara að hafa það ef þeir (KSÍ)
fara í fýlu. í mínu starfi hygli
ég engum sérstaklega.“
Ellert Schram, forseti ÍSÍ, i
Morgunblaðinu.
Björgvin Þór Jóhannsson, skólastjóri Vélskóla íslands:
Eftirsóknarverð menntun
víða í þjóðfélaginu
„Skrúfudagurinn var fyrst haldinn
1962 og var hann fyrstu árin ávallt
haldinn 12. febrúar, sem var afmælis-
dagur Gunnars Bjarnasonar, fyrrum
skólastjóra, sem er upphafsmaður
Skrúfudagsins. Þegar Gunnar hvarf
frá skólanum fór Skrúfudagurinn á
ílakk en var oft haldinn í lok svokall-
aðrar starfsviku en hefur núna síð-
ustu árin verið haldinn í upphafi
starfsvikunnar og núna er Skrúfudag-
urinn 27. febrúar og strax þar á eftir,
fyrstu vikuna i mars, erum við með
starfsviku. Þá fara nemendur mikið í
heimsókn í stofnanir og fyrirtæki sem
tengjast starfsvettvangi þeirra í fram-
tíðinni," segir Björgvin Þór Jóhanns-
son, skólastjóri Vélskóla íslands, en á
Skrúfudaginn er Vélskólinn opnaður
almenningi og geta væntanlegir nem-
endur, gamlir nemendur og aðrir sem
áhuga hafa á starfseminni gert sér
glaðan dag með kennurum og nem-
endum skólans, fræðst um skólann og
fylgst með ýmsu i starfi hans, auk
þess sem björgunarþyrla Landhelgis-
gæslunnar kemur í heimsókn, svo
sagt sé frá einhveiju af því mörgu sem
í boði er þennan dag innan veggja
skólans sem er til húsa í einni viröu-
legustu byggingu borgarinnar, Sjó-
mannskólanum.
Björgvin er lengi búinn að vera við-
loðinn Vélskóla íslands: „Ég var nem-
andi við skólann þegar fyrsti Skrúfu-
dagurinn var haldinn og í fyrstu
skiptin völdu nemendur vinsælasta
kennarann og kennarar vinsælasta
nemandann en þetta hefur fallið niður
um leið og það hefur færst í aukana
starfa við sjómennsku sér maður vél-
stjóra mikið við störf í virkjunum,
vatnsaflsstöðvum, varmaaflsvirkjun-
um og jarðvarmavirkjunum, kæli-
tækni og í ýmsum viðhaldstörfum."
Björgvin er, eins og hann segir sjálf-
ur, mjög nátengdur skólanum: „Ég út-
skrifaðist frá skólamun 1963 og byijaði
að kenna við hann 1969 og hef starfað
við harrn allar götur síðan. Þetta hefur
verið starfsvettvangur minn í lífinu og
verður vonandi áfram
og ég hef yfirleitt
ekki mikinn tima
fyrir annað enda
er skólinn
áhugamál hjá
mér númer
eitt, tvö og
þijú en þegar
mér vinnst
tími til finnst
mér gaman að
fara í göngu-
ferðir og sund.“
-HK
að Skrúfudagurinn er opinn kynning-
ardagur og haldinn í samstarfi við
ýmis fyrirtæki sem tengjast starfi vél-
stjóra og fá þá fyrirtækin að kynna
þjónustu sína og vöru. Við leggjum
Maður dagsins
nokkra áherslu á að fá ungt fólk til
okkar, fólk sem oft og tíðum er leit-
andi að framtíðarstarfi, og kynna því
skólann, auk þess sem alltaf er
gaman að fá eldri nemendur í
heimsókn en þeir koma gjarn-
an með ábendingar."
Björgvin segir ásókn í Vél-
skólann hafa verið jafna í
gegnum árin: „Við erum með
um 200 nemendur í skólan-
um. Við gætum tekið við
fleiri nemendum en samt er
ekki hægt að segja að nokkum
tímann hafi verið skortur. Það
virðist engin áhrif hafa á aðsókn-
ina í skólann hvort það sé uppgang
ur í atvinnulíflnu eða ekki, þetta
hefur í gegnum tíðina
verið mjög jöfh að-
sókn og það
hefur
sýnt sig
að þessi
menntun
er eftir-
sóknar-
verð víða
í þjóðfé-
laginu.
Auk
Hönnun menningar-
stöðva
Guðmundur Jónsson arki-
tekt heldur fyr-
irlestur sem
hann nefnir Þak
yfir menningar-
arfínn í fyrir-
lestrasal Lands-
bókasafns/Há-
skólabóksafns á 2. hæð í Þjóð-
arbókhlöðu kl. 17.15.
Tauganet
Sigurður R. Sæmundsson
tannlæknir flytur fyrirlestur-
inn Tauganet á málstofu í
læknadeild. Málstofan fer fram
í sal Krabbameinsfélags ís-
lands, Skógarhlíð 8, efstu hæð,
og hefst kl. 16.00 með kaffiveit-
ingum.
Fullveldisætlan
landstýrisins
Högni Hoydal flytur fyrirlest-
ur sem ber yfirskriftina Full-
veldisætlan landstýrisins á
fundi um sjálfstæði Færeyja í
boði rektors Háskóla Islands.
Fundarstjóri verður Sigurður
Líndal lagaprófessor. Fundur-
inn verður haldinn í Hátíðasal
Háskólans og hefst kl. 16.15.
Samkomur
Samtök
lungnasjúklinga
í kvöld kl. 20 verður hald-
inn fyrirlestur í fyrirlestraröð
Samtaka lungnasjúklinga í
Safnaðarheimili Hallgríms-
kirkju. Kolbrún Ragnarsdótt-
ir, sem vinnur sem ráðgjafi
hjá Fjölskylduráðgjöf kirkj-
unnar, mætir á fundinn og
heldur fyrirlestur um sam-
starfsverkefni sem unnið var
að árið 1997.
Hefur vetursetu
Myndgatan hér að ofan lýsir orðasambandi.
Garðar og
Hildur, höf-
undar og
leikarar.
í raun og veru
í kvöld sýnir unglingadeild
Leikfélags Halharfjarðar nýtt leik-
rit í Hafnarfjarðarleikhúsinu við
Vesturgötu. Það nefnist í raun og
veru og er eftir Garðar Borgþórs-
son og Hildi Kristjánsdóttur. Leik-
stjóri sýningarinnar er Þorsteinn
Bachmann. Leikritið er sérstakt
að því leyti að það er skrifað af
tveimur félögum unglingadeildar-
innar, þeim Garðari Borgþórssyni
og Hildi Krisfjánsdóttur sem
einnig leika í sýningunni. Leikrit-
ið er óvægin sýn unglinga á sina
eigin veröld og á veröld hina fúll-
orðnu. Það spyr þá sem fjalla um
unglinga, vandamál þeirra og
langanir hvort þeir séu á réttri
leið. Vita þeir nokkuð um hvað
unglingar eru að hugsa í dag? Er
nokkuö hlustað á 14-15 ára
krakka? Leikritið fjallar um
hvemig fíkniefnadjöfullinn dreg-
ur 6 unglinga niður í svaðið. Þeir
búa á vörulofti í miðborg Reykja-
víkur án allra afskipta umheims-
ins og uppáþrengjandi, taugveikl-
aðra foreldra. Þeir líta á lifið sem
leik og vilja ekki opna augun fyr-
ir alvöru þess.
Leikhús
Helstu hlutverk eru í höndum
Hildar Kristjánsdóttur, Garðars
Bergþórssonar, Völu Hrannar Pét-
ursdóttur, Andra F. Gunnarsson-
ar, Sjafnar Þórarinsdóttur, Brynju
Bjargar Jóhannsdóttur og Ástrós-
ar Óskar Jónsdóttur.
Brídge
Á hveiju ári veita alþjóðasamtök
bridgeblaðamanna (The Intemational
Bridge Press Association) verðlaun
fyrir bestu sagnraðir, vöm og úrspil
og er oft mikil keppni um þessi verð-
laun. Spil dagsins þykir koma til
greina fyrir bestu sagnröðina á líð-
andi ári. í sætum NS vom Roger Titk-
in og Erin Deloney. Suður gjafari og
NS á hættu en spilið kom fyrir í tví-
menningi:
* KD643
♦ KG9752
* K8
* 7
* DG863
* 104
* D10652
4 ÁG52
- K972
♦ Á8
* Á73
Suður
1 grand
3 ♦
5 ♦
Vestur
pass
pass
pass
Norður
2 * *
5 *
74
Austur
pass
pass
p/h
Grandopnun suðurs sýndi 15-17
punkta og tvö hjörtu norðurs var yf-
irfærsla í spaða. Þrír tíglar lýstu há-
markshendi með fjögurra spila
stuðningi í tromplitnum og tvíspili í
tígli. Þá greip
norður til sagnar
sem getur reynst
vel i mörgum til-
fellum, sagði 5
hjörtu sem
spurði um ása
þar sem hjartalit-
urinn er ekki tal-
inn með („Woid-
wood“ - sumir vilja kalla þessa sagn-
venju „Exclusion Blackwood'j. Svar
suðurs á fimm spöðum greindi frá
engum eða þremur ásum og norður
vissi að suður átti þijá en ekki engan
ás og lyfti því í alslemmuna (suður
hefði varla sagt þijá tígla með spaða-
gosann og nánast alla aðra punkta í
hjartanu). Norður sá að alslemman
gat jafnvel unnist þó tígullinn væri
4-1 og í þessari legu var hún lítið
vandamál. Sjö spaðar gáfu hreinan
topp i tvímenningnum.
ísak Örn Sigurðsson