Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1999, Síða 36
lur miðvikudaginn 24.
Vinni,
02. ’99
VinningAupphœð
Fjöldi
Vtnmngar
vinninga
I. 6 aþ 6
39.358.300
2.5 aþ o
326.910
3-5 Qg 6
B5.610
± 4*4 at 6
3.160
530
326
HeudarvinningAupphœð
40.522.460
A Iólandi
1.164.160
Lwrra
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
Mosfellingar:
Óttast
læknaleysi
- 2000 undirskriftir
'W
Mosfellingar gengu á fund Ingi-
bjargar Pálmadóttur heilbrigðis-
ráðherra í morgun og afhentu um
2000 undirskriftir sem safnast hafa
í bæjarfélaginu. „Við erum að
krefjast þess að ráðuneytið geri
það sem til þarf til þess að við
höldum læknunum okkar,“ sagði
Frímann Lúðvíksson, einn tals-
manna íbúanna, við DV i morgun.
Þrír heilsugæslulæknar hafa nú
sagt upp störfum. Mosfellingar ótt-
ast að læknislaust verði með öllu á
heilsugæslustöðinni ef fram held-
ur sem horfir. Frimann sagði það
sina persónulegu skoðun að skipta
þyrfti um hluta yfirstjórnar á
,^heilsugæslustöðinni ætti að fást
friður á nýjan leik. -JSS
Lífið eftir vinnu
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
er spjallað við og birtar myndir af
stúlkunum sex sem taka þátt í ís-
landsmeistarakeppninni í erótísk-
um dansi. Einnig er rætt við Gabrí-
elu Friðriksdóttur myndlistarkonu
•~sem segist ekki nenna að líta gáfu-
lega út. Fjallað er um 10 ára afmæli
lögleiðingar bjórs á Islandi og Stein-
grímur J. Sigfússon spurður hvort
hann sé enn á móti bjór en hann var
einn þeirra þingmanna sem greiddu
atkvæði gegn bjórnum á sínum
tíma. Valinn hópur spekinga segir
okkur hvað hafi merkast gerst á
þessari öld og hvað merkilegast
muni henta á þeirra næstu. Rætt er
við Hrafn Jökulsson, sem er aftur
orðinn ritstjóri, og birt próf sem
leiðir í ljós hvort fólk er fífl eður ei.
í Fókusi á morgun birtist blaðauk-
inn Lífið eftir vinnu í fyrsta sinni
en það er nákvæmur leiðarvísir um
allt það sem fólk getur tekið sér fyr-
-ir hendur í frítímanum annað en
legið fyrir framan sjónvarpið.
Tveir formenn í sátt og samlyndi með ánægðan viðskiptavin: Lovísa Jónsdóttir, formaður Hárgreiðslumeistarafélags
ísiands, og Reynir Sigurðsson, formaður Meistarafélags hárskera. DV-mynd Pjetur
Sögulegur samruni:
Hárgreiðslu-
dömur og rak-
arar sættast
Ef að líkum lætur verða sögulegar
sættir á milli rakara og hárgreiðslu-
dama í byrjun næsta mánaðar þegar
fagfélög þessara aðila sameinast. Er
þar með lokið 25 ára „stríði" sem hef-
ur tekið á sig ýmsar myndir.
„Það hefur tekið okkur aldar-
fjórðung að lenda þessu máli,“
sagði Torfi Geirmundsson, rakari á
Hlemmi. „Reyndar má rekja mis-
klíð og samskiptaörðugleika hár-
greiðsludama og rakara allt aftur til
átjándu aldar í Evrópu. Þá litu hár-
greiðsludömur niður á rakara og
oft með réttu því þeir ráku gjarnan
gleðihús samhliða rakstrinum. Og
einhverra hluta vegna hefur hár-
greiðsiudama alltaf þótti eitthvað
fmni en rakari," sagði Torfi.
Fyrir tveimur árum urðu þau tíma-
mót að byrjað var að kenna greiðslu
og klippingu sem eitt fag í Iðnskólan-
um undir námsheitinu hársnyrtiiðn.
Samkvæmt tillögu sem lögð verður
fyrir stofnfund nýs félags 2. mars
verður nýtt nafn á sameiginlegu fagfé-
lagi Meistarafélag í hárgreiðslu. Þá
verður kosinn formaður og samkomu-
lag hefur náðst um að hann komi úr
stétt hárgreiðsludama. -EIR
Hundruö milljóna uppkaup á hættusvæði í Súðavík en enn búið í gömlu byggðinni:
Sveitarstjórnarmenn
búa á snjóflóðasvæði
- annar að byggja en hinn hefur keypt teikningar. Gagnrýnt, segir sveitarstjóri
Tveir sveitarstjómarmenn Súða-
víkurhrepps búa enn á snjóflóða-
hættusvæði í gamla bænum. Þetta
era þau Friðgerður Baldvinsdóttir og
Heiðar Guðbrandsson og fjölskyldur
þeirra, alls 8 manns. Báðar fjölskyld-
urnar þurftu að rýma hús sín um
helginga vegna yfirvofandi hættu.
Ágúst Kr. Björnsson, sveitarstjóri í
Súðavík, segist orða það svo að enn
séu eftir tvær fjölskyldur i gamla
þorpinu. Hann segir að þessir aðflar
séu enn ekki búnir að færa heimfli
sín. Annar sé búinn að hanna og
teikna, en hinn með fokhelda neðri
hæð.
“Ég hef vissulega fundið fyrir
gagnrýnisröddum undanfarið, meðal
annars gagnvart þessum tveimur. En
það er algjör tflviljun að þeir era
hreppsnefndarmenn. Þeir era ekkert
að nýta sér setuna í hreppsnefnd sem
stöðu í þessu máli. Þeir eru bara
seinni en aðrir að flytja, hvers vegna
það er get ég ekkert sagt um,“ sagði
Ágúst.
“Síðan hef ég heyrt raddir sem
segja almennt: Af hverju erað þið að
rýma gömlu byggðina? Eigið þið
nokkuð að vera þama? En þá koma
upp tvö svör. Fyrst að gamla byggðin
er söguleg staðreynd og það verður
hún um ókomna framtíð. Það þarf að
gæta að umgangi um hana meðan
hættuástand varir. Svo hitt að upp-
kaupum er ekki lokið. Hér era hús
sem ekki hafa fengið styrk Ofanflóða-
sjóðs þar sem þó fer fram ýmis þjón-
usta, banki, pósthús, heilsugæsla,
kaupfélag, hreppsskrifstofa, áhalda-
hús, bílaverkstæði og verktakastarf-
semi. Þetta vill sjóðurinn ekki beina
fjármagni til,“ sagði Ágúst. Hann seg-
ist trúa því að samningar takist um
uppkaup á þessum eignum.
Ráðuneytið undrast
„Það kemur mér vissulega á
óvart að enn skuli vera tvær fjöl-
skyldur eftir á svæðinu. Menn
gerðu sér vonir um að þessu yrði
lokið fyrr. En það gildir með þessar
íbúðir að þær verða rýmdar sam-
stundis og hætta skapast. Þetta eru
þvi fyrst og fremst óþægindi fyrir
íbúana í þessum húsum,“ sagði
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri i umhverflsráðuneytinu, i
gær.
Magnús segir að ekki sé hægt að
bera saman ástandið núna og fyrir
1996. Allt skipulag á rýmingu, marg-
falt ítarlegri vöktun og fleira hafi
komið tfl sögunnar og auki öryggið.
Menn séu því tiltölulega rólegir
núna og telji að öryggi íbúanna sé
meira en áður.
Bannið við því að dvelja í húsun-
um í gamla hverfinu byggir á lögum
um vamir gegn snjóflóðum og
skriðuföllum. í reglugerð sem fylgir
er talað um að umhverfisráðuneyti
setji reglur um nýtingu. Ráðuneytið
ákvað að bannað skyldi að búa á
svæðinu frá 1. nóvember til 30. apr-
fl.
“Þetta er gert í skjóli þess að búið
sé að kaupa upp. Þess vegna nær
þetta ákvæði ekki til þessara
tveggja. Annar aðilinn hefur enga
greiðslu móttekið en hinn er byrjað-
ur á húsbyggingu og hefur fengið
einhverjar greiðslur," sagði Ágúst.
-JBP
Veðrið á morgun:
Gola að
sunnan
Á morgun verður sunnan- og
suðvestangola eða kaldi og él
sunnan- og vestan til, norðaust-
angola og snjókoma eða él á
norðvesturhominu, en lengst af
þurrt norðaustanlands. Frost
verður yflrleitt á bilinu 0 til 5
stig, kaldast norðan tfl.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Dísel 2,7 TDI sjálfskiptur
Ingvar
• Helgason hf.
Sœvarhöfba 2
Simi 525 8000
www.ih.is