Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Page 32
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999
44 trimm
Laugavegur milli Landmannalauga og Þórsmerkur:
Jákvæð reynsla
erlendra hlaupara
Hópur 79 þreyttra en ánægðra hlaupara að loknu Laugavegshlaupinu milli Landmannalauga og Þórsmerkur síðast-
liðið sumar. Ken Monks má sjá til hægri á myndinni, með dökk sólgleraugu, til móts við stöngina.
héldu sig vera að æfa fyrir aðstæð-
ur sem væru svipaðar og á Lauga-
veginum, þ.e. í hæðóttu landslagi.
Hins vegar komust þeir félagarnir
að því að hæðótt landslag táknaði
eitthvað allt annað á íslandi en sú
merking sem lögð var i orðið (“roll-
ing hills“) i Bandaríkjunum.
Á mánuðunum fyrir hlaupið afl-
aði Monks sér upplýsinga um að-
stæður og tilgreinir þar sérstaklega
Gísla Ásgeirsson og Ágúst Þor-
steinsson sem hann segir að hafi
Umsjón
Isak Om Sigurðsson
verið sér sérlega hjálplegir. Gísli
var reyndar svo vinsamlegur að
bjóðast til að vera með honum og
Matriccino í sveit, en eins og kunn-
ugt er, þá er Laugavegurinn bæði
einstaklings- og sveitakeppni.
Monks komst fljótlega að því að
hlaupiö var miklu erfiðara en hann
hafði gert sér í hugarlund. „Strax á
fyrstu mílunni gerðum við okkur
grein fyrir því að það voru fjölmörg
atriði í keppninni sem komu okkur
á óvart. í fyrsta lagi, að landslagið
var mun mishæðóttara en við gerð-
um okkur í hugarlund og í öðru lagi
að það var örugglega jafn fallegt og
við bjuggumst við.“ Monks og Mat-
riccino voru ekki í jafn góðu formi
og Gísli Ásgeirsson. Gísli lauk
hlaupinu á 6:15 klst., og endaði í 18.
sæti keppenda. Monks og Mat-
riccino voru 8:07 klst. á leiðinni og
höfnuðu í 53. sæti en sveit þeirra fé-
laga varð í 12. sæti af 18.
Monks klykkir út með jákvæðum
orðum um landið. „Þegar allt er
meðtalið, þá er Laugavegurinn
ánægjulegasta hlaupareynsla lífs
míns og ég naut hverrar mínútu. Ég
er nú gjörsamlega orðinn háður
hlaupum af þessari tegund og það
kæmi mér ekki á óvart, ef ég kæmi
aftur til íslands að 10 árum liðnum
til að bæta tíma minn á Laugavegin-
um.“
Jákvæð orð af þessu tagi sem sett-
ar eru á fjölsóttar heimasíður eru
líklegar til að auka aðsókn erlendra
hlaupara í Laugavegshlaupið. Ágúst
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Reykjavíkur maraþons segir að
mikill áhugi virðist vera fyrir
hlaupinu í ár, sem fram fer laugar-
daginn 24. júlí. „Nú þegar hafa 25
manns frá ÍR skráð sig í hlaupið og
um 20 manns frá Hreyfmgu (áður
Mætti). Rúmlega 50 manns eru þeg-
ar komin á lista og mun fleiri vænt-
anlegir. Ég hef fengið fjölda fyrir-
spuma erlendis frá. Erlendir kepp-
endur voru 7 í fyrra, en verða ör-
ugglega fleiri í ár. Hlaup eins og
Laugavegurinn, sem teljast til
„ultra maraþons", eru sérlega vin-
sæl um þessar mundir. Það kæmi
mér ekki á óvart þó tala þátttak-
enda kæmist yfir 100 í ár,“ segir
Ágúst.
Hvað þýða
*
Fyrsta formlega Laugavegshlaup-
ið á vegum Reykjavikur maraþons
fór fram sumarið 1997, en þá voru
þátttakendur 49 talsins. Strax á
næsta ári varð umtalsverð fjölgun,
79 hlupu þessa 55 km erfíðu en fal-
legu vegalengd í fyrra, þar af 7 er-
lendir hlauparar. Víðavangshlaup
sem þessi njóta sífellt meiri vin-
sælda um allan heim. Það er trú
pistlahöfundar að á næstu árum
muni keppendum fjölga mjög í
Laugavegshlaupinu og muni fjölg-
uninn ekki hvað sist verða í hópi er-
lendra þátttakenda.
Á síðasta ári fóru tveir Banda-
ríkjamenn í Laugavegshlaupið, Ken
Monks og mágur hans, Mario Mat-
riccino. Ken Monks hefur tekið þátt
í fjölda almenningshlaupa í heima-
landi sínu, en ekki áður farið í víða-
vangshlaup af þessu tagi. Monks
hefur haldið úti heimasíðu á Netinu
þar sem hann greinir frá hlaupa-
reynslu sinni. Hann skrifaði ítar-
lega lýsingu um Laugavegshlaupið
á heimasíðuna.
Öll er greinin á vinsamlegri nót-
unum þar sem náttúrufegurð ís-
lands og vinsamlegt viðmót lands-
manna er tíundað. Heimasíðu Ken
Monks er auðveldast að nálgast í
gegnum heimasíðu Félags maraþon-
hlaupara ( http://rvik.is-
mennt.is/-gisasg). Það þarf ekki að
fjölyrða um hvert gildi slík auglýs-
ing hefur út á við og verður eflaust
til þess að fleiri erlendir gestir fá
áhuga á því að taka þátt í þessu
skemmtilega hlaupi. Hér á eftir er
gripið niður í grein Monks um
hlaupið í lauslegri þýðingu. „Á ein-
angruðum hluta hins faUega heim-
skautalands liggur fáfarin leið sem
gengur undir heitinu Laugavegur.
Þessi hlaupaleið mælist vera um 55
km að lengd og liggur um fjölbreyti-
legar óbyggðir sem skarta ótrúlegri
fegurð. Þann 25. júlí 1998 lagði hóp-
ur 79 sálna af stað á þessari leið til
að reyna þrek sitt á leiðinni. Ég
naut þeirra forréttinda að vera einn
af þessum 79,“ segir Monks í grein-
inni.
Aðstæður komu á óvart
Ken Monks æfði stift fyrir þetta
hlaup með mági sínum Mario Mat-
riccino í heimaríki sínu, Pennsyl-
vaníu. Þeir félagamir hlupu helst
ekki minna en 90-100 km á viku,
lengst rúmlega 40 km í einu og þeir
Fjöldi stjama segir til um staðal sem við-
komandi hlaup uppfyllir:
(Ath.: Ef hlaup er ekki með stjömu er ekki
um keppnishlaup að ræða.)
***
• Mæling á stöðluðum vega-
lengdum, s.s. 5 km, 10 km,
hálfmaraþon og maraþon.
Æskilegt undirlag malbik.
Aðili frá mótshaldara sem er
ábyrgur gagnvart mælingunni.
• Sjúkragæsla á hlaupaleið
og við endamark.
• Marksvæði lokað fyrir
umferð.
• Brautarvarsla á hlaupaleið.
• Drykkjarstöðvar á hveijum
4-5 km og viö endamark.
• Tímataka.
• Aldursflokkaskipting.
• Verðlaun fyrir alla
þátttakendur.
• Aukaverðlaun, s.s.
útdráttarverðlaun.
**
• Sjúkragæsla við endamark.
• Marksvæði lokað fyrir umferð.
• Brautarvarsla á viðsjárverðum stöðum.
• Drykkjarstöðvar.
• Tímataka.
• Aldursflokkaskipting.
• Verðlaun fyrir a.m.k. þrjá
fyrstu í mark í karla og
kvennaflokki og e.t.v. fleiri
þátttakendur.
*
• Sjúkragæsla við endamark.
• Brautarvarsla á
viðsjárverðum stöðum.
• Drykkjarstöðvar.
• Timataka á a.m.k. fimm fyrstu
körlum og konum i mark.
• Verðlaun fyrir a.m.k. þrjá
fyrstu í mark í karla og kvennaflokki.
Fram undan...
Mars:
■
27. Marsmaraþon (***)
Hefst kl. 10:00 og 11:00 við
Ægisiðu, Reykjavík (fyrri tínia-
setningin er fyrir þá sem ætla
| sér að vera yfír 4:15 tíma að
| hlaupa vegalengdina). Vega-
lengd: maraþon með tímatöku.
Ailir sem ljúka keppni fá verð-
launapening. Paraboðhlaup þar
| sem hvor aðili fyrir sig (verður
að vera kona og karl) hleypur
hálfmaraþon. Upplýsingar Pét-
í ur I. Frantzson í sima 551 4096
og símboða 846 1756.
Apríl:
3. Flóahlaup UMF Samhygðar (**)
Hefst kl. 14:00 við Félagslund,
Gaulverjabæjarhreppi. Vega-
lengdir: 3 km, 5 km og 10 km
með tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn: 14 ára og yngri (3
km), konur 39 ára og yngri, 40
íj ára og eldri (5 km), opinn flokk-
ur kvenna (10 km), karlar 39
1 ára og yngri, 40-49 ára, 50 ára
og eldri (10 km), opinn flokkur
karla (5 km). Verðlaun fyrir
| þrjá fyrstu í hverjum flokki.
| Upplýsingar veitir Markús
1 ívarsson í síma 486 3318.
|
22. Víðavangshlaup ÍR og Elkó (***)
Hefst kl. 13:00 við Ráðhús
Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km
; með tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn: 12 ára og yngri, 13-15
Iára, 16-18 ára, 19-39 ára, 40-49
ára, 50-59 ára, 60 ára og eldri.
Keppnisflokkar í sveitakeppni
eru íþróttafélög, skokkklúbbar
og opinn flokkur. Allir sem
ljúka keppni fá verðlaunapen-
ing. Verðlaun fyrir 1. sæti í
hverjum aldursflokki. Boðið
verður upp á kaðlhlaðborð eftir
hlaup. Skráning í Ráðhúsinu
frá kl. 11:00. Upplýsingar Kjart-
1 an Árnason í síma 587 2361 og
1 Gunnar Páll Jóakimsson í síma
j 565 6228.
22. Víðavangshlaup Hafnarfjarðar (**)
Hefst kl. 13:00 á Víðistaðatúni
í Hafnarfirði. Vegalengdir: 1
í km, 1,4 km og 2 km með tíma-
töku og flokkaskiptingu bæði
j kyn: 5 ára og yngri (200 m), 6-7
ára (300 m), 8-9 ára (400 m),
10-12 ára (1 km), 13-14 ára (1,4
km), 15-18 ára, 19-29 ára, konur
jí 30 ára og eldri, karlar 30-39 ára,
| 40 ára og eldri (2 km). Sigurveg-
ari í hverjum flokki fær farand-
bikar. Upplýsingar: Sigurður
; Haraldsson í síma 565 1114.
22.Víðavangshlaup Vöku (* *)
Upplýsingar: Fanney Ólafs-
dóttir í síma 486 3317.
22. Víðavangshlaup Skeiðamanna (*)
Upplýsingar: Valgerður Auð-
unsdóttir í síma 486 5530.
24. ísfuglshlaup UMFA (**)
Hefst við íþróttahúsið að
Varmá, Mosfellsbæ. Skráning
| og búningsaðstaða við sundlaug
| Varmár frá kl. 11:30. Vegalengd-
ir: 3 km án tímatöku, hefst kl.
13:00 og 8 km með tímatöku og
5 sveitakeppni hefst kl. 12:45.
Sveitakeppni: Opinn flokkur 3
eða 5 i hverri sveit. Allir sem
ljúka keppni fá verðlaunapen-
ing. Útdráttarverðlaun. Upplýs-
ingar: Kristin Egilsdóttir í síma
| 566 7261.
Maí:
1.1. maíhaup UFA (**)
Hefst kl. 13:00 við Sportver.
Vegalengdir: 4 km og 10 km
með timatöku og flokkaskipt-
ingu bæði kyn: 6 ára og yngri (1
km), 7-9 ára, 10-12 ára, 13-14
ára, 15-16 ára (2 km), 17-39 ára,
| 40 ára og eldri (4 km eða 10 km).
Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í öll-
um flokkum og allir sem ljúka
keppni fá verðlaunapening. Út-
dráttarverðlaun. Skólakeppni.
Upplýsingar UFA, pósthólf 385,
602 Ákureyri.
Tilkynning Hagstofu íslands
um verðtryggingu húsaleigu
Hagstofa íslands
Með lögum nr. 168/1998 eru lög um húsaleigu sem fylgir
breytingum vísitölu húsnæðiskostnaðar nr. 62/1984, felld
úr gildi 1. apríl nk. Hagstofa íslands hefur því hætt að reikna
og birta svonefnda verðbótahækkun húsaleigu og gilti síðasta
tilkynning hennar fyrir tímabilið janúar/mars 1999.
Hagstofan vill vekja athygli á því að ekki er lengur unnt
að nota áðumefnda verðbótahækkun til að verðtryggja
húsaleigu. Þess háttar ákvæði skal því ekki taka upp í nýja
húsaleigu-samninga. Leigusalar og leigutakar sem hafa slík
ákvæði í leigusamningum sínum verða nú að semja að nýju
um hvað skuli leysa þau af hólmi ffá 1. apríl nk.
Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu
Hagstofunnar frá 11. mars 1998 og á heimasíðu Hagstofunnar
http://www.hagstofa.is. Upplýsingar eru einnig veittar á
Hagstofunni í símum 560 9831, 560 9832 og 560 9834 eða
á netfangi: rosmundur.gudnason@hagstofa.is
rosmundur.gudnason@hagstofa.is.
Reykjavík, 11. mars 1999
Hagstofa íslands