Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Qupperneq 54
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999
myndbönd
MYHDBma
GAGNRYNI
Buffalo '66:
Úr öskunni í eldinn
★★★i Buffalo ‘66, sem leikstýrt er af leikaranum geðþekka, Vincent
Gallo, segir frá ólukkufuglinum Billy. Myndin gerist á einum degi,
deginum sem hann losnar úr fangelsi eftir fimm ára vist. Hann ætlar
að heimsækja foreldra sína sem vita ekki að hann hefur verið í fang-
elsi og halda að hann sé giftur og á endalausum ferðalögum vegna
vinnunnar. Hann gripur þvi til þess ráðs að ræna stúlku og neyða
hana til að þykjast vera eiginkona hans.
Vincent Gallo varpar fram á gráglettinn hátt mynd af fremur ömur-
legri tilvist manns sem hefur verið heldur seinheppinn í lífinu. Hann
skapar aumkunarverða persónu sem er í senn fráhrindandi og aðlað-
andi og myndar skemmtilegt mótvægi við passífa persónu stúlkunnar
sem bíður þess þolinmóð að Billy sætti sig við fortíð sína og aðstæður
og fari að horfa fram á veginn. Allir leikaramir standa sig með sóma og
Gallo sýnir einnig takta í leikstjórastólnum. Leikstjórnin og myndatak-
an er jafnan fremur hráslagaleg og minnir nokkuð á myndir Scorsese og
fleiri leikstjóra á áttunda áratugnum. Svo kemur hann af og til með
skemmtileg stílbrögð sem falia vel inn í stemmninguna í sögunni. Allt í
allt er Buffalo ‘66 athyglisverð og óvanalega góð innkoma leikara í leik-
stjómarstólinn.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Vincent Gallo. Aðalhlutverk: Vincent Gallo,
Christina Ricci, Ben Gazzara og Anjelica Huston. Bandarísk, 1998. Lengd:
105 mín. Bönnuð innan 16 ára.-PJ
TheUgly:
Nýsjálenskur tryllir :
★★★ Fjöldamorðinginn Simon Cartwright (Paolo
Rotondo) er geymdur á annarlegu geðveikrahæli þar
sem skera skal úr um hvort hann sé heilbrigður eður
ei. Hann hefur krafist þess að Dr. Karen Shoemaker
(Rebecca Hobbs) verði fengin til þess ama. Á milli
hennar og Simons geisar sálræn valdabarátta sem virð-
ist ganga út fyrir mörk andlegrar reynslu. Simon rekur fyrir henni bæði erf-
ið æskuár og kynni sín af fómarlömbum en Karen er ekki sátt við skýring-
ar hans. Hún leggur sig alla fram um að grafa upp sannleikann en spurning-
in er hvort hún teygi sig of langt eftir honum.
The Ugly er um margt ágæt kvikmynd. Mörg atriði hennar era
skemmtilega tengd saman með persónum frá ólíkum tímaskeiðum eða
stöðum. Sviðsetningar em oft áhrifamiklar, einkum þó í senum frá
æsku Simons. Hann er sjálfur áhugaverð persóna og vel leikinn af Pa-
olo Rotondo. Misbrestur er þó í útfærslu nokkurra aukapersóna, eink-
um varðanna tveggja á hælinu. Það breytir því þó ekki að í heildina er
þetta áhugaverð kvikmynd - þótt sumum kunni að þykja hún fullhrotta-
fengin.
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Scott Reynolds. Aðalhlutverk: Paolo
Rotondo og Rebecca Hobbs. Nýsjálensk, 1997. Lengd: 90 mín. Bönnuð
innan 16. -bæn
Zack and Reba:
Brjálað fólk
★ Öðruvísi myndir með svolítið geggjuðum húmor
geta oft verið afar skemmtilegar en þó getur það
klikkað eins og annað. í Zack and Reba er farið af
stað með ágæta grunnhugmynd sem verður síðan
að engu. Zack er ungur maður sem liggur allan
daginn í þunglyndiskasti í rúminu, en hann hefur
ekki enn náð sér eftir að konan hans dó. Reba varð
sjálf fyrir áfalli þegar kærasti hennar framdi sjálfsmorð eftir að hún
sagði honum upp, en hann var fyrirliði mðningsliðsins og hetja bæjar-
ins. Móður hennar þykja það því léleg býtti þegar ragluð amma Zacks
fer að reyna aö koma þeim saman, og í raun er allur bærinn á móti
því að krónprinsessa staðarins fari að dúlla sér með svona lúða. Við
tekur atburðarás þar sem ástin kemur mikið við sögu, ásamt jarðarför-
um, grafarræningjum, predikuram og öðru misbrjáluðu fólki.
Með þennan efnivið í höndunum hefði hæfileikafólk getað gert stór-
skemmtilega mynd en því miður virðast tómir lúðar hafa verið að verki
þannig að úr verður langdregin og ófyndin endaleysa. Þriðja flokks leik-
arar sjá síðan um að drepa niður þann litla áhuga sem maður hugsan-
lega gæti haft á afdrifum persónanna.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Nicole Bettauer. Aðalhlutverk:
Sean Patrick Flanery og Brittany Murphy. Bandarísk, 1998. Lengd: 98 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Species II:
Marsbúar enn og aftur
jir §t\
\
/ . & ðf
★ Fyrsta áhöfnin sem lendir á Mars sækir meðal
annars sýni í ,jörðu“ plánetunnar. Þegar síðan skal
haldið heim stekkur upp úr einum sýnishólknum
ógnvænlegt slím er umbreytir geimföranum í geim-
verar. (Hver er munurinn?). Á yfirborðinu er þó
engan mun að sjá og geimfaramir ómeðvitaðir um
sitt nýja eðli. Það er ekki fyrr en við samfarir sem
Marsbúinn tekur við stjóminni og veitir elskandanum kröftuga útreið.
Afleiðingin/afkvæmið er ný geimvera og þar sem aðalgeimfarinn
(Justin Lazard) er óseðjandi er eins gott að herinn nái honum sem
allra fyrst. Önnur hætta vofir þó einnig yfír því vísindamenn hafa
klónað geimvera (Natasha Henstridge) í tilraunaskyni. Ef hún og
geimfarinn sameinast er úti um okkur öll!!!!
Góður vísindaskáldskapur gengur m.a. út á að gera hið ótrúverðuga
raunverulegt. Við áhorf Star Wars eða Alien-seríanna samþykkjum við
blekkinguna því lítið er um vankanta til að riðla innlifun okkar. í
Species II minnir lélegur leikur, fiarstæðukenndar tæknibrellur og lang-
sótt erótík okkur á að við eram að horfa á kvikmynd. Þegar innlifunin
er engin verður bjánaskapurinn yfirþyrmandi. Species II mistekst með
öllu að draga okkur inn í atburðarásina og eftir standa leikarar í vand-
ræðalegri baráttu við slím frá Mars!
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Peter Medak. Aðalhlutverk: Michael
Madsen, Natasha Henstridge og Marg Helgenberger. Bandarísk, 1998.
Lengd: 89 mín. Bönnuð innan 16. -bæn
Forsetamyndir:
Hvíta húsið á
hvíta tjaldinu
Kvikmyndum er jafhan skipt í
ákveðnar granntegundir á borð við
stríðsmyndir, vestra, glæpona-
myndir, ástarmyndir, film noir,
hryllingsmyndir og söngvamyndir.
Við þekkjum grannlögmál allra teg-
undanna og vitum nokkum veginn
við hverju er að búast þegar við
veljum okkur kvikmynd. Tegund-
irnar hjálpa okkur að afmarka
áhugasvið okkar auk þess sem við
kunnum að velja ákveðna tegund
eftir því í hvemig skapi við eram.
Flestar tegundirnar eiga sér langa
forsögu og eru órjúfanlega tengdar
kvikmyndasögunni. Sumar eiga sér
þó enn lengri sögu og byggja á frá-
sagnaminnum lengst aftur í aldir.
Ný kvikmyndategund?
Forsetar höfðu fram að tíunda
áratugnum verið litt áberandi í
kvikmyndum en allt annað er upp á
teningnum um þessar mundir. Það
er svo komið að hugtakið forseta-
mynd má teljast gildur meðlimur í
félagi kvikmyndategunda. Að vísu
má rekja myndimar í ólíkar áttir
og til annarra tegunda - en það er
jú alkunna að flestar myndir leika á
mörkum ólikra tegunda. Kvikmynd-
in The American President (1995) er
t.d. bæði gaman- og ástarmynd, en
umfram allt er hún forsetamynd.
Hún er að vinna með hlutverk for-
setans og veltir upp þeirri spum-
ingu hvað geri persónu að góðum
forseta. Hún skoðar hlutverk hans í
samfélaginu, mörk einkalífs hans
og opinbers lifs, og eðli pólitískrar
umræðu í samtímanum. Og hún
gengur lengra því hún tekur afstöðu
til mikilvægra pólitískra deilumála
auk þess sem hún styður við bakið
á BiU Clinton. Hann er ljóslega fyr-
irmynd forseta/hefiu myndarinnar,
sem leikinn er af Michael Douglas
meðan óþokkamir era repúblikanir
og sækja ímynd sína til þeirra. The
American President er því ekki ein-
ungis að fialla um forsetann heldur
tekur virkan þátt í mótun embættis-
ins. Svipaða sögu er að segja um
Primary Colors (1998) en í þeirri
mynd leikur John Travolta sjálfan
BUl Clinton (Jack Stanton) og tekur
myndin sterka afstöðu með forset-
anum.
Mikil fjölbreytni
Þótt fæstar forsetamyndanna
gangi jafnlangt og The American
President og Primary Colors era
The American President. Michael Dougias í hlutverki forseta Bandaríkjanna og Martin Sheen, helsti aðstoðarmaður
hans.
jKlassísk myndbönd 2001: A Space Odyssey © ★★★★
Meistaraverk Stanleys Kubrícks
Keir Dullea í hlutverki geimfarans.
@megin:Fyrirsögnin hér að ofan
er nokkuð villandi því hún gæti rétt
eins átt við Paths of Glory (1957),
Dr. Strangelove (1964) og A
Clockwork Orange (1971), svo nokk-
ur dæmi séu tekin. Engu að síður
grunar mig að 2001 eigi umfram aðr-
ar myndir Kubricks eftir að halda
nafni hans á lofti. Myndin verður að
teljast ólík öllu öðru sem birst hefur
á kvikmyndatjaldinu fyrr og síðar.
2001 hefst á einhverju magnað-
asta (og lengsta) upphafsatriði kvik-
myndasögunnar. Við hverfum aftur
til árdaga mannskepnunnar og
fylgjumst með þeim áhrifum sem
dularfuU steinplata (hver er hún og
hvaðan kemur hún?) hefur á líf apa-
hóps nokkurs. í upphafi era apamir
grænmetisætur sem mega sín lítt
gegn rándýram en með tilkomu
steinplötunnar öðlast þeir skUning
á verkfæram/vopnum. Þeir fikra
sig því upp eftir fæðukeðjunni og
taka að beita vopnum i baráttu við
aöra apahópa. Við lok atriðisins
kastar einn apinn beini/verk-
færi/vopni tU himins og breytist
það fyrir augum áhorfenda í geim-
skip og þar meö erum við komin
miUjónir ára fram í timann. Magn-
aðasta klipping allra tíma?
Árið tvö þúsund og eitt finnst
steinplatan á tunglinu og beinir hún
manninum tU Júpíters. Fimm
manna áhöfn heldur þangað í leyni-
lega ferð ásamt Hal, frægustu tölvu
kvikmyndasögunnar. Þegar áhöfnin
nálgast Júpíter skerst í odda með
Hal og áhöfhinni. Tölva og maður
takast á í bardaga þar sem vart má
greina hver sé mennskari. Áður en
yfir lýkur hefur maðurinn tekið enn
eitt þróunarstökkið með aðstoð
steinplötunnar - þótt ekki veröi fiöl-
yrt um eðli þess hér.
Rétt er að hafa í huga að myndin
var framsýnd ári áður en NeU Arm-
strong steig fæti á tunglið. Gefur
það áhrifa-
miklum
tæknibreU-
um/-sýn
myndarinnar
óneitanlega
aukið vægi.
Það er einnig
markvert
hversu mikUla
vinsælda
myndin hefúr
notið þvi hún
á lítið skylt
við geim-
sápuna Star
Trek eða ævin-
týrahasarinn Star Wars. Þess í stað
er hún hæggengt táknflæði er varp-
ar fram ákaUandi spumingum án
þess að leyfa sér þann hroka að
þykjast vita svörin við þeim. Sjald-
an, ef nokkra sinni, hefur
HoUywood miðlað jafn „hreinum"
módemisma og í 2001. Það segir aUt
sem segja þarf um sniUinginn
Kubrick sem nú er aUur.
Leikstjóri: Staniey Kubrick. Aöal-
hlutverk: Keir Dullea, Gary
Lockwood, William Sylvester og
Douglas Rain. Lengd: 139 mín.
Bandarísk/ensk, 1968. Öllum leyfð.
Björn Æ. Norðfjörð