Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1999, Page 23
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
$$ðtal
Bónus átti tíu ára afmæli í gær og segir Jóhannes Jónsson að hugsjónin sem lagt var upp með sé enn í fullu gildi:
Hvaö titlaróu þig?
„Ég titla mig ekki neitt. Ég er bara
Jóhannes í Bónusi. “
Á þessum orðum hófst samtal mitt
við Jóhannes Jónsson sem undanfar-
in ár hefur átt stóran þátt í að gjör-
breyta íslenskri verslun. í gær var
haldið upp á tíu ára afmæli Bónuss.
Verslunin hefur stækkað gífurlega á
þessum árum og velgengnin verið
vonum framar. Nú eru 9 Bónusversl-
anir á íslandi og tvær í Færeyjum.
„Það hefur verið ævintýri líkast
hvemig til hefur tekist. Við byrjuðum
smátt og fengum strax gríðarlegt
fylgi. Fyrirtækið hefur stækkað mjög
en það hefur ekki stækkað á því höf-
uðið; það hefur ekki fengið vatnshöf-
uð. Skrifstofumar em enn í
kjailaranum þar sem við
hófum starfsemi.
Við feðgamir byrjuðmn
með verslunina til að hafa
okkar lifibrauð af henni.
Þegar fólk sá að ekki var
um neina gorkúlu að ræða
fundum við fyrir gifurleg-
um velvilja sem efldi okk-
ur. Við urðum hugsjóna-
menn og hugsjónin efLdist
við það þakklæti sem við
fengum fyrir að gera vel.“
Er þetta enn hugsjón?
„Já, Bónus er rekinn af
ýtrastu varfæmi með það
að leiðarljósi að halda sem
lægstu vöraverði."
Jóhannes hefur ekki ein-
ungis komið við sögu Bón-
uss, SS og Baugs. Hann
stofnaði 10-11 með Eiríki
Sigurðssyni og átti það með
honum í tvö ár. Bónus
kemur auk þessa að rekstri
bensínsstöðva, lyfjaversl-
ana og veitingastaða.
20 milljónir til
Bamaspítalans
Jóhannes segist muna
fyrst eftir sér við verslunar-
störf árið 1948 þegar hann
sentist með vörur fyrir föð-
ur sinn.
Hann starfaði hjá Slátur-
félagi Suðurlands í 25 ár,
faðir hans starfaði í 55 ár
við verslun og reiknast Jó-
hannesi til að ættliðimir
þrir hafi samtals starfað i
100 ár við verslun. Er versl-
Ekkert magasár
Bónus hefúr alltaf fylgst vel með
nýjungum og sem dæmi um það var
fyrirtækið það fyrsta sem tók upp
strikamerki.
„Strikamerkin gerðu það að verk-
um að við gátum selt ódýrt og vissum
hvað við vorum að gera. Við gátum
því séð að kvöldi hvað dagurinn hafði
geflð af sér. Við fengum ekki magasár
eins og við hefðum væntanlega fengið
hefðum við einungis fengið uppgjör á
nokkurra mánuða fresti eins og tíðar-
andinn var.
Bónus hefur ekki verið rekinn með
tapi einn einasta dag. Þegar sam-
keppnin við Miklagarð var sem hörð-
„Fyrstu mánuðirnir í Bónusi voru mjög erfiðir.
Vinnudagurinn var mjög langur. Við unnum frá
sjö á morgnana til ellefu á kvöldin fyrstu 2-3
árin. Það var oft erfitt en þó aldrei peninga-
lega. Ég held að slíkir erfiöleikar fari verst með
menn í viðskiptum.“ Jóhannes við opnun
fyrstu Bónusverslunarinnar árið 1989.
Bónus hefur gefið um 20 milljónir til Barna-
spítala Hringsins. Pokasjóður fyrirtækisins
rennur til spítalans. Myndin er tekin árið 1995.
unin í blóðinu?
„Ekki skal ég nú fullyrða það. Ég
lærði til prentara á sínum tíma en
það var aðallega til að hafa eitthvað í
bakhöndinni. Þegar ég kem inn í
prentsmiðju í dag virðist kústurinn
hins vegar það eina sem ég kann að
nota.“
Hvemig kom það til að þú ákvaðst
að stofiia eigin verslun?
„Sláturfélagið ákvað að leggja nið-
ur smásöluverslanir sínar og starf
mitt lagðist því af. Ég var í lausa-
göngu í eitt ár þar til við feðgamir
settum Bónus á laggimar."
Jóhannes átti seinna eftir að lenda
í deilum við Kaupmannasamtökin
sem fóra í mál við Bónus. Niðurstaða
þeirra deilna var sú að þeir feðgar
sögðu sig úr samtökunum og sögðu
þar með skilið við pokasjóðinn sem
Jóhannes átti þátt í að stoftia. í stað-
inn fyrir að styrkja landgræðslu og
skógrækt, sem lengi hefur verið i
tísku hér á landi, ákvað Jóhannes að
pokasjóður Bónuss rynni til Bama-
spítala Hringsins og á síðustu árum
hafa um 20 milljónir runnið til spítal-
ans.
Hvers vegna ákváðuð þið að styrkja
Bamaspítala Hringsins?
„Við ákváðum að leita á önnur mið
með okkar pokasjóð. Okkur fannst
nægilega margir að rækta gras
þannig að okkur fannst tilhlýðilegt að
við færam að rækta fólk. Við höfum
fengið miklar þakkir fyrir að leggja
þessu málefni lið.“
ust fóram við í hálfan mánuð nokkuð
nærri núllinu. I rekstri Bónuss höfum
við stefnt að gróða um leið og við forð-
umst græðgi. Það hefur verið okkar
lukka.“
Stærð smásalans
Jóhannes sagði í blaðaviðtali í Tim-
anum árið 1991 að það væri mjög
hættulegt að einn smásali yrði of stór:
“Þaö er afar óhollt í kapítalísku
þjóöfélagi aö eitt fyrirtœki verði svo
stórt aó þaö nái kannski 30-40% mark-
aöshlutdeild. Þaö á sér hvergi hlió-
stœöu í nágrannalöndum okkar aö eitt
fyrirtœki nái slikum tökum. “
Hver er markaðshlutdeild Baugs?
„Baugur er talinn með um 45%
markaðshlutdeild. Margt hefur breyst
í samfélaginu frá því að þessi orð
vora töluð. Einnig hefur margt breyst
í innkaupum til landsins. Hagkvæmni
felst í því að geta keypt sem mest í
einu. Þessi hagkvæmni hefúr aukist
mjög á síðari áram þótt ég ætli ekki
að bera það á borð fyrir nokkum
mann að eðlilegt sé að eitt fýrirtæki
hafl yfirgnæfandi markaðsstöðu. Eng-
inn hefur þó gert það að verkum að
fyrirtæki nái slíkri stöðu annar en
húshóndi okkar sem er neytendur.
Þeir treysta okkur og telja sig ná góð-
um kjörum. Þannig hefur fyrirtækið
náð yfirburöastöðu.
Það þarf hins vegar sterk bein til að
þola góða daga. Ég vona að þeir sem
„Við feðgarnir byrjuðum með verslunina til að hafa okkar lifibrauð af henni. Þegar fólk sá að ekki var um neina
gorkúlu að ræða fundum við fyrir gífurlegum velviija sem efldi okkur. Við urðum hugsjónamenn og hugsjónin efldist
við það þakklæti sem við fengum fyrir að gera vel.“ DV-mynd ÞÖK
Jóhannes með innflutta kjúklinga árið 1995.
Mikið fjaðrafok varð þegar Jóhann-
es hóf að selja bækur í Bónusi.
Þessi mynd er frá 1994.
vinna með mér 1 dag beri gæfu til að
vera vakandi um að gera vel fyrir við-
skiptavini sína.“
Hornkaupmaður í nýrri mynd
Margir hafa talað um að þeir sakni
gömlu kaupmannanna á hominu sem
nú era flestir hverjir að leggja upp
laupana. Jóhannes segir ástæðuna
fyrir fækkun „gömlu“ kaupmann-
anna vera þá að það fyrirkomulag sé
ekki hagkvæmt.
„Kaupmaðurinn á hominu var
merkilegur fulltrúi síns tíma. Hann
var í nánu sambandi við fjölskyldum-
ar í landinu. Aukin krafa um hagræð-
ingu og lægra vöraverð leiddu hins
vegar til stærri verslunar-
eininga. Kannski má segja
að Bónus sé í rauninni nú-
tímaleg útfærsla á kaup-
manninum á hominu, því
eins og hann rekur Bónus
fjölskylduvæna verslun
sem með mikilli hagræö-
ingu og magninnkaupum
hefúr tekist að lækka kostn-
að við rekstur heimilanna.
í okkar alþjóðlega um-
hverfi er sífellt gerð krafa
um bætt lífskjör. Bónus hef-
ur lagt sitt af mörkum til
þess að íslensk verslvm er
nú orðin samkeppnisfær við það sem
best gerist erlendis. Við fáum oft er-
lenda gesti til okkar sem vilja fræðast
um rekstur Bónuss og telja sig geta
margt af okkur lært. Þetta veit ég að
á við um fleiri greinar í íslensku at-
vinnulífi þannig að ég tel að íslend-
ingar geti verið sáttir við stöðu sína í
samfélagi þjóðanna. En alltaf má gera
betur og baráttan heldur því áfram -
alla daga.
Aldrei tekið lán
Ertu ekki orðinn ríkur?
„Ríkur og ríkur. Við lögðum fyrir-
tækið inn í Baug þannig að það er
bara pappírar. Ríkidæmi í peningum
er heldur ekki það sem við lögðum
upp með. Það væri samt synd að
kvarta.“
Hvaða tímabil var erfiðast á þess-
um tíu árum?
„Fyrstu mánuðimir í Bónusi vora
mjög erfiðir. Vinnudagurinn var mjög
langur. Við unnum frá sjö á morgn-
ana til ellefu á kvöldin fyrstu 2-3 árin.
Það var oft erfitt en þó aldrei peninga-
lega. Ég held að slíkir erfiðleikar fari
verst með menn í viðskiptum. Við
rákum fýrirtækið líka öðravísi en
aðrir. Viö höfúm aldrei tekið kredit-
kort og voram því með peninga til-
tæka og fengum vörumar ódýrari en
aðrir. Bónus hefúr aldrei þurft að
taka lán og það hefur sparað fyrirtæk-
inu griðarleg vaxtagjöld.
Áður en við hófum verslun hafði
orðið hrina gjaldþrota í greininni
þannig að keppinautamir vora róleg-
ir og biðu eftir að við færum sömu
leið. Þeir vöknuðu síðan upp við
vondan draum; Bónus var kominn til
að vera.“
Hvaða tími hefúr verið bestur?
„Besti tíminn er fram undan. Þetta
hafa verið ár uppbyggingar. Hún held-
ur áfram en við höfum aflað okkur
þekkingar sem ætti að treysta undir-
stöðurnai-.“ -sm