Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1999, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 X^"V 26 %tgt fólk DV-mynd Teitur Orri Páll og lítill frændi, Aðalsteinn, Davíð, Viktor, Karl og Kristinn. r rslit Söngkeppni framhaldsskólanna á síðasta ári voru sér- stök - að því leyti að hópurinn sem vann flutti tónlist sína á annan hátt en venja hefur ver- ið í keppninni. Brooklyn Five söng „A Capella“, eða án und- irleiks og raddað. Brooklyn Five er eins og nafnið gefur til kynna hópur fimm ungra manna, sem kem- ur þó ekki frá Brooklyn heldur úr Hlíðunum í Reykjavík. Þeir kepptu í fyrra fyrir hönd Menntaskólans í Hamrahlíð. Allir hafa þeir sungið mikið og eiga það sameiginlegt að hafa verið í hinum frábæra kór Menntaskólans í Hamrahlíð undir styrkri stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Það að þeir tækju þátt í undankeppni söngkeppninnar í skólanum var alls ekki sjálfgefið og að þeirra sögn var ekki sjálfgefið að þeir skyldu vinna. Þeir segja að í raun hafi þeir staðið sig mjög illa. Og skýringin á því er sú að þeir höfðu ekki æft nægi- lega. Billy Joel kemur víða við Brooklyn Five skipa Aðalsteinn Bergdal, Viktor Már Bjarnason, Orri Páll Jó- hannsson, Davíð Olgeirsson og Kristinn Helgason. Þrír þeirra voru fyrir í sönghóp sem þeir nefndu Ut- anbleikir. Davíð datt í hug að þeir ættu að taka þátt í Söngkeppninni og því var hóað í tvo söngvara í við- bót. Eftir slakt gengi, þrátt fyrir sigur, í undankeppninni í MH, lögðust þeir i stífar æfingar og fengu til liðs við sig þjálfarann Karl Sigurðsson. Með hjálp hans og þrotlausum æf- ingum náðu þeir óvæntum en frá- bærum árangri. Þeir unnu Söng- keppni fram- Söng- keppni fram- halds- skólanna fer fram í kvöld Nafn hópsins kemur einnig úr ævisögu Billy Joel. Strákarn- ir vilja taka það fram að Billy er fæddur í New Jersey, en nafnið kem- ur frá skóla- tímabilinu í lífi Billy. Þá var hann vanur að skrópa og fara að mörkum Queens og Brooklyn og syngja þar yfir ruslatunnum. Það var því um tvö nöfn að velja; Brooklyn Five og Queens Five. Þeim fannst Queens Five vera of „drottninga- legt“ og ákváðu því að taka hitt nafnið. Eftir að hafa lagt heim fram- haldsskóla- nema að fótum sér fóru þeir að láta meira á sér bera. í fyrrasum- ar sungu þeir í brúðkaupum og veislum, en há- punktur sumars- ins var söngur á stóra sviðinu á Arnarhóli á 17. júní. Fyrst í stað voru tvö lög á efnisskránni en þeim hefur fjölgað smám saman. Jólalagið Orri þurfti að hverfa á braut til útlanda þar sem hann dvaldi í nokkurn tíma. Brooklyn Five var ekki skorið niður heldur tók Karl þjálfari við stöðu Orra. Eftir að Orri kom aftur heim eru söngvar- amir í Brooklyn Five því í raun orðnir sex. Ekki er þó þörf á að breyta nafninu þar sem einungis fimm syngja í einu. Rétt fyrir jólin datt þeim í hug að gefa út jólalag. Karl Olgeirsson, bróðir Davíðs, samdi því jólalag sem var þó nokkuð spilað á útvarps- stöðvum fyrir jólin, þrátt fyrir að það hafi komið út aðeins átta dög- um fyrir jól. Fyrst í stað hringdu þeir sjálfir í útvarpsstöðvarnar til að biðja um lagið, en síðan fór það að rúlla eitt og óstutt. Eftir að hafa gengið úr skugga um að enginn þeirra hefði hringt og beðið um lagið á aðfanga- dag, getur Davíð staðfest að lagið hafi verið spilað þrisvar sinnum fyrir klukkan sex. Brooklyn Five segist standa í þakkarskuld við Guðrúnu Gunnars- dóttur útvarpskonu, sem var ein- staklega góð við þá og bættist i hóp velvildarmanna í góðum félagsskap Kormáks og Skjaldar. Kemur á óvart í kvöld er fræðilega hægt að segja að ár sé síð- an fimmmenning- amir stóðu uppi á sviði og tóku við verðlaunum. Alla vega er Söngkeppni framhaldsskólanna haldin í kvöld. Þá koma þeir dreng- ir aftur fram og taka lag sem þeir vilja ekki láta uppi hvert er, aðeins að það komi á óvart. -sm ... í prófíl Rithöfundurinn Andri Snær Fullt nafn: Andri Snær Magnason. Fæðingardagur og ár: 14. júlí, 1973. Maki: Margrét Sjöfn Torp. Börn: Hlynur Snær, tveggja ára. Starf: Ritstörf og önnur hug- myndavinna. Skemmtilegast: Starfið; að fá hugmyndir og framkvæma þær. Leiðinlegast: Að rifja upp leiðindi Uppáhaldsmatur: Lamba- hryggur. Uppáhaldsdrykkur: Vatn (þar til ég fæ borgað fyrir að segja kók). Fallegasta manneskjan: Ætli það sé ekki hann Sól- mundur vinur minn. Fallegasta röddin: Sigríður Stefánsdóttir (f. 1888) sem syngur Grýlukvæði á geisla- disknum Raddir. Uppáhaldslíkamshluti: Er ekki á mínum lik- ama. Hlynnt- ur eða andvígur ríkisstjórninni: Mjög andvíg- ur í umhverfismálum. Með hvaða teiknimyndaper- sónu myndir þú vilja eyða nótt? Andrésína önd er ekki i buxum. Uppáhaldsleikari: Finnur Ingólfsson. Uppáhaldstónlistarmaður: Billy Corgan í Smashing Pumpkins og hljómsveitin MÚM. Sætasti stjórnmálamaður- inn: Nelson Mandela. U ppáhaldssj ónvarpsþáttm:: Frasier. Skemmtilegasta auglýsing- in: Libby’s, það er ekki spuming. Leiðinlegasta kvikmyndin: Voðaleg neikvæðni er þetta. Sódóma er ein sú skemmtileg- asta. Sæt- asti sjón- varpsmaðurinn: Keli í Stundinni okkar. Uppáhaldsskemmtistaður: Þar sem vinir mínir eru hverju sinni. Besta „pikköpp“-línan: Hef-1 urðu séð Titanic? Hver hefur haft mest áhrif á líf þitt? Konan, sonurinn, Njála og Steinn Steinarr. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Sem likastur öfum mínum. Eitthvað að lokum? Nei, þetta er fínt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.